Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 11 t- Klarinettuleikur Jón Aðalsteinn Þorgeirsson klari- nettuleikari og Örn Magnússon píanóleikari, stóðu fyrir tónleikum í Listasafni Islands sl. sunnudag. A efnisskránni voru að mestu íslensk nútímatónverk en eitt bandarískt, sónata eftir Aaron Copland. Tónleikarnir hófust á sónötu eftir Jón Þórarinsson, frá árinu 1964, mikilvægu verki fyrir þróun íslenskr- ar tónlistar og má segja, að sé nú það sem kalla mætti „klassík“. Jón Aðalsteinn lék verkið mjög vel og mátti heyra á samleik hans við Örn, að ýmislegt hafði verið brotið til mergjar í þessu ágæta tónverki. Næsta verkefni var Ristur I, II og III (1985), eftir Jón Nordal, áheyrilegt en nokkuð leitandi verk, sem þeir félagar léku vel. Fjögur íslensk þjóðlög í útfærslu Þorkels Sigurbjörnssonar voru næst á efnis- skránni. Lögin eru Ljósið kemur langt og mjótt, Björt mey og hrein, Yfir kaldan eyðisand og Það var barn í dalnum. íslensk þjóðlög má aðhæfa öllum stílbrigðum en inngerð þeirra er samt ávalt sá einfaldleiki, sem liggur fólginn í tónum textans, því hér er um að ræða hreina söngtónlist, þar sem vart má merkja nokkuð í tón- skipaninni, sem vísar til hljóðfæra- leiks, enda hefur íslenskum tón- skáldum tekist best upp f útfærslu íslenskra þjóðlaga fyrir söng. Út- færslur Þorkels eru svolítið tilbúnar og jafnvel tilgerðarlegar, eins og þegar leika á sér með það sem „lít- ið“ er. Novelette (1987), eftir Atla Heimi Sveinsson, er smellið í stuttleika sín- um og var vel leikið af þeim félög- um. Strákalag (1960), fyrir píanó eftir Jón Leifs er einnig smellið og sem og laga Atla, ekta í nútíma- legri gerð sinni. Örn lék Strákalagið mjög vel en þar á eftir lék Jón Aðal- steinn, Aubade (1986), einleiksverk fyrir klarinettu, eftir John A. Speight, hljómþýtt og leikandi skemmtilegt verk, sem lék sannar- lega í höndum Jóns. Lokaviðfangsefnið var sónata (1986) eftir Copland, fallegt verk en ekki sérlega svipmikið, er var mjög vel fiutt. Þeir félagar, Jón Aðalsteinn og Örn, eru vaxandi tón- listarmenn og hafa með margvísleg- um hætti sýnt frábæran leik, bæði sem einleikarar og í flutningi kamm- ertónlistar. Örn hefur náð mjög góð- um árangri, með vönduðum flutningi íslenskrar píanótónlistar, eins og vel mátti heyra í Strákalaginu eftir Jón Leifs. Jón Aðalsteinn er í hópi okkar bestu klarineýtuleikara, sem hann sýndi sannarlega á þessum tónleik- um, bæði er varðar fallega tónmótun og yfirvegaða túlkun. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson og Örn Magnússon. » Glæsileg Austfjarðarhátíð á Hótel íslandi föstudaginn 18. mars. Húsið opnar fyrir matargesti kl. 19. Félögin sem standa að hátíð þessari eru: Átthagasamtök Héraðsbúa, Borgfirðingafélagið, Eskfirðingafélagið, Fáskrúðsfirðingafélagið, Félag austfirskra kvenna, Reyðfirðingafélagið, Seyðfirðingafélagið, Austfirðingafélagið og Vopfirðingafélagið. Fjölbreytt skemmtiatriði að austan. VÍSNAVINIR. Stefán Bragason. Árni Óðinsson. Guðlaugur Sæbjörnsson flytja gamanmál og söng að hætti austfirðinga. Ásta Sveinsdóttir, söngkona Veislustjóri Helgi Seljan. Haukur Heiðar leikur undir borðhaldi. Austfirska hvljómsveitin BERGMÁL leikur fyrir dansi til kl. 03.00 Verð aðeins kr. 3.500.- Sértilboð á gistingu, sími 688999 Verði er stillt í hóf eða aðeins 3.500 krónur fyrir kvöldverð, skemmtiatriði og dansleik. Athugið sérstakt tilboð á hótelgistingu (tveggja manna herbergi 4.500 krónur. Vinsamlegast pantið miða fyrir 15. mars til að fá gott borð. Matseðill Rjómalögud sjávanéttasúpa Nauiatundir me rjómasósu, bakaðri kartöjlu, Jlamberuðum ávöxtum og gjáðu grœnmett. Appetsinwjómarönd með mokkasósu. nom mAND Miða- og borðapantanir í síma (91) 687111 alla virka daga frá kl. 13-17. Allur heimurinn er mitt kjöt Leiklist_____________ Guðbrandur Gíslason Á Herranótt Menntaskólans í Reykjavík. Sweeney Todd. Höf- undur: Christopher Bond. Þýð- andi: Davíð Þór Jónsson. Leik- sljóri: Óskar Jónasson. Leik- mynd: Nemendur í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Aðalleikendur: Ólafur D. Ólafsson, Markús Þ. Andrésson, Aðalbjörg H. Vals- dóttir, Hanna K. Jóhannsdóttir, Ragnar Kjartansson, Egill H. Jónsson. Skýringarheiti þessa blóði drifna gamanleiks er Morðóði rakarinn við Hafnargötuna. Segir þar af Sween- ey nokkrum Todd sem hefnir harma sinna með því að skera viðskiptavin- ina á háls og leggur með því frú Lovett til hráefnið í gómsætar bökur sem ijúka út eins og — hvað haldið þið — heitar lummur. Sweeney á sér lífgjafa og vin, huglausan fáráð- ling sem heitir Anthoni Hope. Sá festir ofurást á hreinlífri dóttur Sweeneys, Jóhönnu, sem er í fóstri hjá fláráðum dómaradurg ... En nóg um fléttuna. Hvernig tekst MR-ingum og Óskari Jónassyni að setja upp verk þar sem morðæði og mannát eru efst á baugi? Verður þetta nokkuð annað en ógeð á borð við blóðslettuhryllinginn sem hægt er að leigja sér á næstu myndbana- leigu? Svarið við fyrri spurningunni er: Þeim tekst það vel, en við þeirri seinni: Þetta leikrit er (sem betur fer) allt annað og miklu meira en einfaldur hryllingur. Óskar Jónasson hefur sýnt það og sannað að honum er einkar vel lagið að fletta ofan af fáránleik hlut- anna með því að skopstæla þá. Þess má t.d. sjá merki í kvikmynd hans „Sódómu Reykjavík". Skopstæling og skrumskæling geta verið eitt hvassasta eggvopn háðsins en um leið þjónað þeim tilgangi að fletta ofan af 'tilgangsleysi alvörunnar. Hér gerist hvorttveggja. Hér er miskunnarlaust dregið dár að húg- myndinni um hina sönnu ást. Hinn angurværi tónn hjarðpípunnar kemst hvergi að í samskiptum Hop- es og Jóhönnu fýrir þeim smámun- um tilverunnar sem slettast á tær- leik ástarinnar eins og skituklessur upp á nýkalkaðan fjósvegg. Smá- munir á borð við holdlega girnd, eða jafnvel sjálft þyngdaraflið þegar Hope ætlar að lesa sig á hári sinnar heittelskuðu upp á svalirnar til hennar. Hársár Júlían sú. Og til- gangsleysi alvörunnar verður bert þegar Sweeney uppgötvar hinn ævaforna sannleik að það er gróða- vegur að drepa menn svo lengi sem maður kemst upp með það. Og ef samviskan angrar, þá er alltaf ein- hver réttlæting tiltæk. Ef hún þá angrar. Frú Lovett vill sjá sér vel borgið í ellinni og sitja suður með sjó. Hvað er svo semekki á sig leggj- andi fyrir það? Og hvað hafast ekki höfðingjarnir að? Dómarinn hikar ekki við að troða réttlætið fótum til að fullnægja eigin fýsnum. Þessi meginþemu hefur Óskar greint og leikararnir koma þeim til skila kostulega og vel. Skopið er viðsjár- vert vegna þess að það krefst þekk- ingar á þeim gildum sem skopast er áð. Sú þekking er hér til staðar og það er þroskamerki. Leikararnir eru góðir og ugglaust á leið sumra þeirra eftir að liggja upp á svið atvinnuleikhúsanna. Þeir voru upp til hópa lausir við stirð- leik, lifðu sig feimnisiaust inn í heim leikritsins og sýndu agað látbragð og stundum blæbrigðaríkt. Þau voru skýrmælt og hiklaus og ber það vitni góðri leikarastjórn og mikilli æf- ingu. Persónusköpun er skýr og vel hugsuð'. í fyrstu óttaðist ég að Olaf- ur Darri Ólafsson væri of góðlegur til að túlka hinn hefnigjarna Sween- ey Todd, en hann stóð sig afbragðs- vel og skóp karakter sem lætur ekki vafasamar leiðir að settu marki þvælast fyrir sér heldur nýtir þær af hagsýni hins praktíska manns. Þýðing Davíðs Þórs Jónssonar er hnökralaus, orðaleikir fyndnir og oft hnitmiðaðir og staðfæring á auglýsingaskrumi ögrandi. Tónlist Úlfs Eldjárn skapaði stemmninguna fyrir hryllinginn þegar hryllingur var í vændum. Það er skemmtilega í stílnum að organistinn með pípu- hattinn skuli skóaður í íþróttaskó. Búningar voru dágóðir, svo og lýs- ingin, en mesta hrifningu mína vakt þó leikmynd nemenda Myndlista- og handíðaskólans sem er í senn flókin og einföld, en þjónar mæta- vel margþættum tilgangi sínum. Morðóði rakarinn við Hafnargöt- una er ísmeygilega skemmtileg sýn- ing. Farið og sjáið. DOÐWOO 29" RISATÆKI ® Býður nokkur betur? Við bjóðum nú nýjustu gerð af DAEWOO/MARK 29" litsjónvarpstækjum, hlöðnum tækninýjungum: \/ 29" flatur, kantaóur skjár „Super Black Screen" (flestir bjóða aðeins 28") ✓ Nicam Stereo, 2x25w magnari. \/ Frábær hljómgæði, 4 hátalarar, Super Woofer og Super Dome. t/Textavarp með íslenskum stöfum. V Fullkomin fjarstýring. \/ Stillanlegur tímarofi. t/ Scart tengi. Verð aðeins kr 99.800 eða kr «0.900 stgr. fíiS Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28 TT 622901 og 622900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.