Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 23 Clinton Bandaríkjaforseti í vanda út af Whitewater Spjótin beinast eink- um að forsetafrúnni Washington. Reuter, The Daily Telegraph. BERNARD Nussbaum, lögfræðiráðgjafi Bills Clintons Bandaríkjafor- seta, sagði af sér á laugardag vegna funda hans með embættismönn- um sem rannsaka gjaldþrot sparisjóðs í eigu fyrrverandi viðskiptafé- laga Clinton-hjónanna í Arkansas. Fundirnir koma sér illa fyrir forset- ann þar sem þeir vekja grunsemdir um að aðstoðarmenn hans hafi reynt að hafa áhrif á rannsóknina. Spjótin beinast nú einkum að Hill- ary Clinton forsetafrú vegna Whitewater-málsins svokallaða, sem er orðið að alvarlegu hneykslismáli og gæti grafið undan forsetanum. Einn af atkvæðamestu bandamönnum Clintons á þinginu, Dan Rost- enkowski, ljær nú máls á því að þingið rannsaki hvort aðstoðarmenn forsetans hafi reynt að hafa áhrif á rannsókn málsins og hylma yfir það. Kínveijar neita hand- tökum KÍNVERSK stjórnvöld neituðu í gær að hafa staðið fyrir hand- töku fjölda andófsmanna í landinu undanfarna viku. Sögðu talmenn stjórnarinnar að aðeins þrír andófsmenn væru í haldi lögreglu, grunaðir um að ýta undir ólgu og grafa undan lögum og reglu. Fréttir hafa borist þess efnis að stjómvöld hafi staðið fyrir fjöldahandtökum vegna komu bandaríska utanríkisráðherr- ans, Warren Christoper til landsins. Finnsk ferja föst í ís FINNSKA feijan Wasa Queen festist í ís milli Svíþjóðar og Finnlands á sunnudag með 585 farþega og 100 manna áhöfn innanborðs. Tókst ís- bijóti að draga hana til Vaasa í Finnlandi í gær. Á föstudag strandaði feija sama skipafé- lags, Sally Albatross, á finnska flóa og var rúmlega 1.000 far- þegum bjargað frá borði. Leiðangur við Beringssund SEX menn sem lögðu upp frá London 27. desember akandi landleiðina til New York komu að Beringssundi í gær. Þeirra bíður ferð á ís yfir Beringssund frá Tsjúktsjí-tanga en frá Nome í Alaska liggur leiðin um Calgary og Toronto til New York. Leiðangursmenn fengu að aka bifreiðum sínum um göngin undir Ermarsund. Sex embættismönnum í Hvíta húsinu og þremur í fjármálaráðu- neytinu var á föstudag stefnt fyrir sérstakan rannsóknardómara sem rannsakar hvort óviðurkvæmileg tengsl séu milli sparisjóðsins og Whitewater-fyrirtækisins, sem Clin- ton-hjónin fjárfestu í á síðasta ára- tug. Starfslið Hvíta hússins fékk einnig fyrirmæli um að geyma öll gögn sem varða fundi Nussbaums með embættismönnum fjármála- ráðuneytisins. Nussbaum sagði af sér eftir að fjölmiðlar skýrðu frá því að hann hefði þrisvar farið á fund embættis- mannanna til að fá upplýsingar um stöðuna í rannsókninni. Hann komst meðal annars að því að stofnun á vegum fjármálaráðuneytisins sem rannsakar gjaldþrot sparisjóðsins myndi fara þess á leit við dómsmála- ráðuneytið að saksóknurum yrði fal- ið að rannsaka meint lögbrot spari- sjóðsins. Þótt Clinton-hjónin hefðu ekki verið sökuð um lögbrot í beiðni stofnunarinnar voru þau sögð á meðal þeirra sem hugsanlega hefðu hagnast á lögbrotunum. Þessir fundir þykja óeðlilegir og Clinton lýsti því yfir á föstudag að hann hefði bannað starfsmönnum sínum að hafa slíkt samband við embættismenn sem annast rann- sóknina. Repbúblikaninn og öldungadeild- arþingmaðurinn Phil Gramm sagði að Whitewater-málið gæti orðið til þess að Clinton neyddist til að segja af sér áður en kjörtímabili hans lýk- ur. Þáttur Hillary í brennidepli Margt bendir til þess að Hillary Clinton sé meira viðriðin Whitewat- er-málið en forsetinn sjálfur. Hún er sögð hafa gerst sek um dóm- greindarbrest í tengslum við fjár- festingar hjónanna á síðasta áratug, þegar forsetinn var ríkisstjóri Ark- ansas og hún lögmaður í Little Rock. Hún sá aðallega um fjárfestingar hjónanna á þessum tíma. Clinton-hjónin voru meðeigendur í Whitewater-fyrirtækinu, sem fjár- festi í lóðum, ásamt James McDoug- al, sem átti einnig Madison Garanty- sparisjóðinn í Arkansas. Gjaldþrot sparisjóðsins kostaði skattgreiðend- ur 60 milljónir dala, 4,3 milljarða króna, og það vakti ýmsar spurning- ar um tengsl sparisjóðsins við Whitewater. Hillary Clinton hafði einnig tekið að sér ýmis lögfræði- störf fyrir sparisjóðinn. Wall Street Journal sagði að hér væri um „þrí- hliða hagsmunaárekstra" að ræða. „Sem maki ríkisstjórans og fjárfest- ir í Whitewater var hún fulltrúi McDougals gagnvart ríkinu. Og hún var sú sem tók ákvarðanir fyrir fjöl- skylduna varðandi fjárfestingar." Viðbrögð starfsliðs Hvíta hússins við rannsókn Whitewater-málsins hafa verið gagnrýnd og spurningar hafa vaknað um þátt forsetafrúar- innar í þeim. Bandarískir fjölmiðlar hafa til að mynda haidið því fram að hún hafi beitt sér mjög gegn því að sérlegur rannsóknardómari yrði skipaður í málinu. Hann var ekki skipaður fyrr en Clinton fór í heim- sókn til Moskvu. Tveir af mönnunum sex sem stefnt var fyrir rannsóknardómar- ann eru í starfsliði forsetafrúarinnar og Nussbaum var einn af nánustu vinum hennar. Hillary Clinton þótti standa sig mjög vel þegar hún stjórnaði undir- búningnum að nýrri áætlun um að tryggja öllum Bandaríkjamönnum sjúkratryggingar. Nú virðist hins vegar sem einnig sé farið að fjara undan áætluninni. Starfsliði Hvíta hússins hefur ekki tekist að tryggja áætluninni almenns stuðnings, eink- um vegna gagnrýni um að hún ein- kennist um of af skrifræði. Búist er við að áætluninni verði breytt veru- lega á þinginu og skoðanakannanir benda til þess að nú séu andstæðing- ar hennar fleiri en stuðningsmenn- irnir. Hrollvekjandi atburður í Gloucester í Englandi Fjöldi líka finnst í húsgrunni og lóð Gloucester. Daily Telegraph. Reuter. LÖGREGLUMENN fundu í gær sjöunda Hkið í kjallaragólfi húss við Cromwellstræti í úthverfi borgarinnar Gloucester í vestur- hluta Englands. Óttast er að jarðneskar leifar enn fleiri eigi eft- ir að finnast í húsinu sem breskir fjölmiðlar kalla nú „hryllingshús- ið.“ Húsráðandinn, Frederick West, sem er 10 barna faðir, hefur verið kærður fyrir morð á fjölda kvenna, m.a. á dóttur sinni. Reuter Grunur leikur á að West, sem er 52 ára húsasmiður, hafi verið valdur að hvarfi fjölda kvenna. Hafa mál tuga stúlkna sem horfið hafa sporlaust allt frá árinu 1968 verið opnuð og hefur lögregla rætt við foreldra nokkurra þeirra. Rannsóknin í hryllingshúsinu hefur vakið ugg í Bretlandi. Hún hófst fyrir 10 dögum er fyrsta lík- ið var grafið upp úr baklóð húss- ins. Það er talið vera af dóttur Wests, Heather, sem hvarf fyrir sjö árum er hún var 16 ára. Aldr- ei var tilkynnt um hvarfið. Framan af síðustu viku fundust tvö lík og er annað af táningsstúlku sem var í vist hjá West-hjónunum og komin sjö mánuði á leið er hún dó. Var heldur aldrei tilkynnt um hvarf hennar. Á laugardag fundust tvö lík til viðbótar í gólfi hússins, hið sjötta kom í leitirnar á sunnudag og það sjöunda í gær. Oll líkin höfðu verið vafin í bleikar ábreiður. Til þess að finna líkin hefur ver- ið notast við bergmálsmæla með góðum árangri. Lögi-eglan liefur ekki vilja gefa upp hvort þeir hafi gefið vísbendingar um að fleiri lík væri að finna í jörðu en bresk blöð sogðu i gær að svo væri. „Þeir hafa ekki lengur tölu á líkunum," sagði Sun og Daily Mirror sagði líkin geta orðið allt að 31. Um helgina tók lögregla sér stöðu við annað hús í Gloucester, við Midland Road, sem West bjó áður í. Rannsakað verður hvort lík kunni að leynast þar þegar rann- sókninni í Cromwellstræti lýkur. Sömuleiðis beinast grunsemdir lög- reglunnar að skógarlundi í Hall- wood Green-skógi í Kempley í Gloucesterskíri. Seinni kona West, Rosemary, sem stendur á fertugu, var hand- tekin með honum í síðustu viku en látin laus eftir yfirheyrslur. Er þau óskuðu eftir hjónavígslu í byij- un árs 1972 skráði hann hjú- skaparstöðu sína sem hann væri piparsveinn. Lögreglan hefur grennslast fyrir um fyrri konu hans, Catherine Costello, sem einn- ig hefur gengið undir nafninu Rena, og dóttur þeirra Charmaine en án árangurs. Ættingjar hennar segjast ekki liafa séð hana eða heyrt af henni í 15 ár. Fjöldi bifreiða átilboðsverði. Greiðslukjör við allra hæfi. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. J Kopavogi, sími 671800 Cherokee Laredo ’88, sjálfsk., ek. 81 þ.f m/öllu. V. 1580 þús., sk. á ód. MMC Lancer GLXI '93, rauður, sjálfsk. ek. 22 þ., rafm. í öllu. V. 1350 þús. Subaru Legacy 1.8 Sedan '91, rauður, 5 g., ek. 56 þ., sóllúga, dráttarkúla, rafm. i rúðum o.fl. V. 1380 þús. MMC Colt GLX '88, 5 dyra, 5 g., 1500, ek. 55 þ. V. 470 þús., sk. á dýrari. Toyota Corolla Liftback ’88, 5 g., ek. 87 þ., steingrár. V. 590 þús. Gott eintak. Mazda 323 LX 1500 '87, rauður, 4ra dyra, 5 g., ek. 97 þ. V. 390 þús. Gott eintak. Subaru station 1800 DL '90, Ijósblár, 5 g., ek. 55 þ. V. 980 þús., sk. á ód. Toyota Carina E Wagon '93, hvítur, sjálfsk., ek. 10 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 1780 þús., sk. á ód. Opel Kadett ’85, rauður, 5 dyra, 4 g., ek. 115 þ. V. 240 þús. MMC Lancer GLX ’88, 5 g., ek. 76 þ., drapplitaður, rafm. í rúðum o.fl. V. 530 þús. Daihatsu Charade CX ’89, 5 dyra, blás- ans, 4 g., ek. 31 þ. V. 520 þús. MMC Galant GLSi ’91, hlaðbakur, sjálfsk., ek. 64 þ., hvítur, rafm. í rúðum o.fl._V. 1270 þús., sk. á ód. Toyota Corolla Hastback special series ’92, hvítur, 5 g., ek. 15 þ., rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V. 940 þús., sk. á ód. Renault Nevada 4x4 '91, svartur, 5 g., ek. 50 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 1280 þús., sk. á ód. Nissan Sunny SLX 1.6 ’92, 5 g., ek. 33 þ. (GTi útlit). V. 1030 þús. Subaru 1800 GL station '88, 5 g., ek. 145 þ. Gott ástand. V. 690 þ. Ath. Skipti á snjósleða. Range Róver ’85, sjálfsk., ek. aðeins 59 þ. V. 1380 þús. (Vouge útfærsla). Ford Escort XR3i '87, hvítur, 5 g., ek. 96 þ. km., álfelgur, samlitir stuðarar o.fl. V. 630 þús., sk. á ód. Mercedes Benz 280 SE '82, silfurgrár, sjálfsk., ek. 127 þ.,.topplúga, álflegur o.fl. Tilboðsverð 980 þús. stgr. V.W. Vento GL '94, silfurgrár, sjálfsk., ek. 2 þ. km., 2 dekkjag. Sem nýr. V. 1590 þús. MMC Pajero V-6 ’91, 5 g., ek. 40 þ., ál- felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1980 þús., sk. á ód. MMC Lancer GL '90, grásans, 5 g., ek. 76 þ., spoiler o.fl. Fallegur bfll. V. 680 þús., sk. á ód. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! Hornsófar með leðri á slitflötum en leðurlíki á sökkli og baki. 6 sæta kr. 134.800,- eða 121.300,- stgr. 5 sæta kr. 122.600,- eða I 10.340,- stgr. Litir: Vínrautt, svart, blátt. HÚSGAGNAVERSLUNIN LÍNAN SUÐURLANDSBRAUT 2 2 • SÍMI 3 60 II

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.