Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 601181, PÓSTHÓLF 3040 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Akveðið að verja 1.200 milljónum til átaksverkefna Formaður Dagsbrúnar telur að trygginga- félög og lífeyrissjóðir eigi að geta lánað fé STJÓRN Atvinnuleysistryggingasjóðs samþykkti í gær að nýta heimild í lögum til að veita allt að 1.200 milljónum til átaksverk- efna á þessu ári. Á fundi stjórnarinnar var ekki rætt sérstaklega um þá hugmynd Reykjavíkurborgar að veija allt að 800 milljónum til atvinnuskapandi verkefna, en Pétur Sigurðsson, formaður stjórnarinnar, segir að hann vænti þess að umsókn um framlag til þess verkefnis berist Atvinnuleysistryggingasjóði fljótlega. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, segir að bæði tryggingafélög og ltféyrissjóðir eigi að geta lánað fé til fyrirhugaðra vegaframkvæmda í Reykjavík. Atvinnuleysistryggingasjóður fær 600 milljóna króna framlag árlega frá sveitarfélögum, sem ráðstafað er til átaksverkefna. Stjórn sjóðsins ákvað í gær að nýta heimild í lögum til að veita sömu upphæð úr sjóðn- um, svo alls verður 1.200 milljónum varið til átaksverkefna á þessu ári. „Þessu fé á að veita til nýrra starfa, sem eru viðbót við hefðbundin störf sveitarfélaga," segir Pétur Sigurðs- son. „Við auglýsum því eftir hug- myndum, sem gætu leitt af sér aukna atvinnu til frambúðar. Ég vona að umsókn Reykjavíkurborgar muni standast þessar kröfur." Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, segir að félagið styðji hugmyndir borgaryfirvalda af heilum hug. Hann varpar fram þeirri hugmynd að tryggingafélög og líf- eyrissjóðir láni fé til fyrirhugaðra vegaframkvæmda í Reykjavík, enda muni þessar framkvæmdir spara þeim fé til lengri tíma litið vegna færri slysa og minni tjóna. Sjá samtal við Guðmund J. Guðmundsson á bls. 24: „Kom- ið að borginni..." Norrænir forsætisráðherrar Reuter Á blaðamannafundi í gær sátu forsætisráðherrar Norðurlandanna fyrir svörum. Á myndinni eru, frá vinstri: Paul Nyrup-Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, Davíð Oddsson, Esko Aho, forsætisráð- herra Finnlands, og Carl Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar. Davíð Oddsson við setningu 44. þings Norðurlandaráðs í StOkkhólmi Hvatti til sameigmlegs átaks gegu atvinmileysi DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hvatti í setningarræðu 44. þings Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í gær til aukins samstarfs aðila í sjáv- arútvegi á Norðurlöndum og til samstarfs Norðurlandaþjóða innan Sameinuðu þjóðanna til að koma á alþjóðlegum samningi um úthafsveið- ar. Forsætisráðherra kvaðst telja atvinnuleysi stærsta vandamál sem Norðurlönd glími við nú um stundir og hvatti til þess að þjóðirnar ynnu gegn þeim vanda með sameiginlegum verkefnum. Um framtíð norræns samstarfs sagði forsætisráðherra að til skemmri tíma skipti mestu að aðild fleiri Norðurlanda að Evrópusambandinu girti ekki fyrir mikilvæga þætti norræns samstarfs og lýsti ánægju með að aðild- arsamningum við Evrópusambandið fylgdi sameiginleg yfirlýsing um framhald norrænnar samvinnu við lönd utan Evrópusambandsins. Davíð Oddsson vék að málefnum Eystrasaltsríkjanna og benti á að pólitískt, efnahagslegt og hern- aðarlegt öryggi þeirra hefði aug- ljósa þýðingu fyrir Norðurlönd. Afstaða Rússlandsstjórnar til Eystrasaltsríkjanna og veru her- (sveita í Eistlandi og Lettlandi væri áhyggjuefni og þróun mála í Rúss- landi ylli frekari áhyggjum. Um atvinnuleysisvandann sagði , _______________________________________ Mótmæligegn Sella field GREENPEACE efndi til mótmælaaðgerða við setningu 44. þings Norður- landaráðs í gær og var þeim beint gegn starfrækslu THORP kjamorkuend- urvinnslustöðvarinnar í Sellafield. Þegar Sighvatur Björgvinsson, viðskipta- ráðherra, kom til þingsins þurfti hann að stika framhjá 200 mótmælendum sem höfðu lagst á stéttina svartklæddir með hvítar hauskúpugrímur. forsætisráðherra að hvert land hefði þegar gripið til aðgerða til að draga úr atvinnuleysi og Norð- urlöndin hefðu unnið saman á al- þjóðavettvangi að lausn þeirra mála með margvíslegum hætti. Ráðherrann sagði, að norrænt samstarf veitti gott tækifæri til að skiptast á skoðunum og kanna sameiginlega ýmsa þætti atvinnu- vandans, svo sem aðferðir við vinnumiðlun, aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði, endurbætur í at- vinnuleysistryggingum og á hinn bóginn þyrfti að halda áfram sam- eiginlegum verkefnum á borð við aðgerðir til að efla vöxt og viðgang lítilla og meðalstórra fyrirtækja á vegum Norræna iðnaðarsjóðsins og Norræna fjárfestingarbankans. Þá sagði Davíð Oddsson að fyrir þann hluta Norðurlandaþjóðanna sem hefði sjávarútveg að aðalat- vinnugrein væri sjálfbær nýting fiskistofna og annarra náttúruauð- linda lífsnauðsyn og skipti miklu að tryggja að nægileg þekking á staðreyndum væri fyrir hendi þar sem um mál þessi væri fjallað. Aðilar í sjávarútvegi þyrftu að styrkja samstarf sitt innbyrðis því í þessum efnum ættu þeir sömu hagsmuna að gæta, til lengri tíma litið. Gegn mengun frá landstöðvum Þá ræddi Davíð m.a. mikilvægi þess að draga úr mengun hafsins frá landstöðvum en til þeirra mætti rekja 70-80% af mengun hafsins og gera allt sem unnt sé til að koma í veg fyrir að geislavirk efni og lífræn, þrávirk efni séu losuð í hafið. Sjá fréttir frá Norðurlanda- ráðsþingi á miðopnu. Könnun Samtaka iðnaðarins í byggingariðnaði Störfum fækkar um 11% en velta eykst um 7,5% BRÁÐABIRGÐANIÐURSTÖÐUR í byggingarkönnun sem Sam- tök iðnaðarins hafa látið gera sýnir að milli áranna 1992 og 1993 fækkar störfum í byggingariðnaði um 11%, þrátt fyrir að heildarvelta byggingarfyrirtækja aukist á sama tíma um 7,5%. Velta fyrirtækjanna, stórra og smárra, í úrtaki Samtaka iðnaðarins, sem voru 50 að tölu, var á seinasta ári um 2,2 millj- arðar króna. Könnun Samtaka iðnaðarins er ýtarleg og verður hún gerð opinber nú í vikunni. Guðmundur Guð- mundsson verkfræðingur hjá Sam- tökum iðnaðarins sagði í samtali við Morgunblaðið, að sambærileg fækkun starfa hafi einnig átt sér stað milli áranna 1991 og 1992,- Hann kvað þessar niðurstöður vera uggvænlegar og ekki skýrðar með aukinni framleiðni í byggingariðn- aði, heldur liggi orsökin í auknum innflutningi byggingavara og til- búnum húshlutum. Þannig hafi störf sem tilheyrt hafí íslenzkum byggingariðnaði færst til útlanda. Sveinn Hannesson fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að niðurstöðurnar feli í sér greinileg skilaboð um að bregðast verði við með endurskoðun á starfs- skilyrðum íslensks byggingariðnað- ar. Endurskoðunina verði að gera í ljósi þess að starfsskilyrðin eru enn við það miðuð að byggingariðn- aðurinn njóti fjarlægðarverndar. Bráðabirgðatölurnar staðfesta að byggingariðnaður á í vaxandi sam- keppni við innflutning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.