Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Minningarskjöldur afhjúpaður
MINNINGARSKJÖLDUR um Dr. Gunnlaug Claessen, fyrsta röntgen-
lækni á íslandi og yfirlækni röntgendeildar Landspítalans frá 1931
til 1948, var afhúpaður á húsinu Hverfisgötu 12 í Reykjavík síðastlið-
inn sunnudag, en í því húsi var röntgenstofa Dr. Gunnlaugs fyrst til
húsa. Á myndinni sjást dætur Dr. Gunnlaugs, þær Þórdís t.v. og
Anna, sem afhjúpuðu minningarskjöldinn, en á milli þeirra stendur
rússneski listamaðurinn Pyotr E. Shapiro sem gerði skjöldinn.
Stjórn Geðlæknafélags íslands gagnrýnir nýja reglugerð
Geðsjúkum gert erf-
iðara að nálgast lyf
STJÓRN Geðlæknafélags íslands hefur ályktað um breytingar á kostn-
aðarhlutdeild sjúklinga vegna geðlyfja. Þar segir að með reglugerð
frá heilbrigðis- og tryggingaráðunevtinu sé enn vegið að geðsjúkum
með því að gera þeim erfiðara en áður að fá viðeigandi meðferð.
Sljórn Geðlæknafélagsins skorar á yfirvöld að endurskoða ákvörðun
sína og lýsir sig reiðubúna að veita þeim ráðgjöf í þessum efnum.
Fjórir efstir og jafnir
MEISTARAMÓT Skákfélags Hafnarfjarðar f aldursflokkunum 7 til
i2 ára var haldið laugardaginn 5. mars sl. Úrslit mótsins urðu þau
að efstir og jafnir voru Hörður Sigurðsson, fvar Orn Halldórsson,
Þorsteinn Gunnlaugsson og Sigmundur Sigurðsson aliir með fimm
vinninga. L5.-7. sæti urðu Halldór Halldórsson, Þóra Lilja Sigurðar-
dóttir og Arni Sigurðsson með fjóra vinninga.
í ályktuninni segir að helsti kost-
ur þeirra lyfja sem nú lendi undir
sparnaðarhnífnum sé hversu einföld
þau séu í notkun samanborið við
eldri lyf. Að sögn Kristins Tómas-
sonar, ritara Geðlæknafélags ís-
lands, eru allar hömlur á því að
nálgast þunglyndislyf mjög til baga
fyrir þá sjuklinga sem á þeim þurfi
að halda. Þeir séu oft haldnir von-
leysi og sjálfsásökunum og eigi erf-
itt með að fylgja leiðbeiningum um
lyfjatöku og læknismeðferð. Með því
að hafa þessi lyf jafn aðgengileg og
ö'nnur lyf er tryggara að fólk komist
og haldist í meðferð við þunglyndi.
Þar með finnist geðlæknum líklegra
að dragi úr þjáningum fólks og ör-
orku og veikindadögum fækki. Geð-
sjúkdómar eru að sögn Kristins ein
af aðalástæðum fyrir örorku.
Margir þunglyndissjúklingar eru
í langtímameðferð og felast höml-
urnar í reglugerðinni m.a. í því að
þegar skrifaðir eru út langtímalyfja-
skammtar taki Tryggingastofnun
mun minni þátt í kostnaði en áður.
Kristinn telur að þetta muni valda
því að heimilislæknar veigri sér við
að vísa á þessi lyf.
Ekkert sem bendir til
ofnotkunar
Kristinn segir að forsendur ráðu-
neytisins fyrir breytingunum orki
tvímælis. Áhyggjur af ofnotkun séu
Hörður Sigurðsson var úrskurðað-
ur sigurvegari í 10-12 ára flokki
með fimm yinninga og 23,0 monrad-
stig. ívar Örn Halldórsson sigraði í
flokki 9 ára og yngri með fimm vinn-
inga. í öðru sæti varð Bjarni Gísla-
son og Ólafur Haraldsson þriðji.
Barna- og unglingaæfíngar eru á
laugardögum kl. 14 í húsnæði Skák-
félags Hafnarfjarðar í Brekkugötu
1, Hafnarfirði.
Ráðstefna Fóstrufélags
Islands um leikskóla
úr lausu lofti gripnar og segir Krist-
inn ekkert benda til þess að svo sé.
Kristinn sagði alhliða markmið
læknis- og lyfjameðferðar við geð-
sjúkdómum væri að draga úr ein-
kennum og fylgikvillum, þar sem
sjálfsvíg væri sá alvarlegasti. Hann
tekur líkingu af þeim áróðri sem
rekinn er fyrir því að börn noti
hjálma við hjólreiðar. „Hjálmarnir
draga væntanlega úr dauðaslysum
barna en þeir draga ekki síður úr
alls kyns öðrum þjáningum. í stað
þess að fá skrámu við það að detta
og þurfa að vera á slysadeild í
nokkra klukkutíma þá getur barnið
haldið áfram að hjóla. Með því að
veita fólki viðeigandi meðferð sem
líka er fyrirbyggjandi þá má draga
úr þessum þjáningum. Lyfin eru að
vísu dýr, miðað við gömlu lyfin, en
menn verða að gera sér grein fyrir
því að stundum þarf að eyða 5 krón-
um til að spara 500. Það er ennþá
dýrara þegar fólk hlýtur örorku,"
sagði Kristinn.
Sem dæmi um verðbreytingar fyr-
ir og eftir gildistöku reglugerðarínn-
ar má nefna að fyrir 1. mars kost-
aði 90 daga skammtur af geðdeyfð-
arlyfinu Seról sjúkling 1.500 krónur
en kostar nú 3.141 krónu.
----------? ? ?---------
"^Prófkjör A-lista á Akranesi
smiður, Haukur Ármannsson kaup-
maður, Hervar Gunnarsson form.
Verkalf. Akraness, Ingvar Ingvars-
son aðstoðarskólastjóri, Júlíus Már
Þórarinsson lektor, Kristján Sveins-
son deildarstjóri, Rannveig E. Hálf-
dánardóttir móttökuritari, Sigríður
K. Óladóttir hússtjórnarkennari,
Sigrún Ríkharðsdóttir bankamaður,
Sigurður Hauksson verslunarmað-
ur, Sigurjón Hannesson húsasmið-
ur, Steindóra Steinsdóttir verka-
maður, Steinunn Jónsdóttir deildar-
stjóri og Sveinn Rafn Ingason
rennismiður.
FOSTRUFELAG Islands heldur ráðstefnu um gæði í leikskólastarfi g^ ,
dagana 10.-12. mars. Ráðstefnan hefur yfirskriftina: Gæði? - nema \jrcl;HUXlíÍ/l[* SL
hviið!' og fjallar um gæði leikskólauppeldis frá ýmsuin hliðum. Ráð-
stefnan verður haldin á Hótel Sögu. Setningarhátíð verður í Háskóla-
bíói fimmtudaginn 10. mars kl. 14 og er öllum opin.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að próf-
kjör Alþýðuflokksins, jafnaðar-
mannaflokks íslands, fari fram
vegna bæjarsljórnarkosning-
anna á Akranesi 18. og 19. mars.
Eftirfarandi hafa gefið kost á
sér: Ástríður Andrésdóttir skrif-
stofumaður, Björgheiður Valdi-
marsdóttir húsmóðir, Björn Guð-
mundsson húsasmiður, Elín Hanna
Kjartansdóttir skrifstofumaður,
Friðrik Alfreðsson rafeindavirki,
Guðmundur Vésteinsson deildar-
stjóri, Hafsteinn Baldursson renni-
Gunilla Dahlberg verður sérstakur
gestur ráðstefnunnar. Hún er dósent
við Kennaraháskólann í Stokkhólmi.
Fyrirlestur hennar fjallar annars
vegar um kjarnann í gæðum Ieik-
skólastarfs, það er starfið með barn-
inu. Hins vegar ræðir hún um mikil-
vægi og tilgang skráningar í leik-
skólastarfi.
Fóstrur verða með fyrirlestra sem
fjalla um athuganir á börnum, sam-
skipti barna og fullorðinna, starfs-
mannaþróun, starfsmannahandbók,
skipulag og markvissa skólastefnu
qg samstarf leikskóla og grunnskóla.
Ýmsir aðrir halda fyrirlestra á ráð-
stefnunni. Fjalla þeir m.a. um altæka
gæðastjórnunm, gæði í skólastarfi,
sjónarmið foreldra, rannsóknir og
gildi fagmenntunar í skólastarfi.
í tengslum við ráðstefnuna býður
Fóstrufélag íslands foreldrum leik-
skólabarna á fyrirlestru um leik-
skólauppeldi. Hann verður á Hótel
Sögu í sal A, laugardaginn 12. mars
kl. 13-14. Fyrirlesari verður Sesseija
Hauksdóttir, fóstra, og mun hún
fjalla um eftirtalin atriði: Hvað er
leikskólauppeldi, Leikskólauppeldi,
foreldrauppeldi, Hver eru áhrif leik-
skólauppeldis á þroska barna?, Lög
um leikskóla og uppeldisáætlun
(námskrá) leikskóla og Hvaða kröfur
geta foreldrar gert til leikskóla? Fyr-
irlesturinn er ókeypis og öllum opinn.
Kringlukránni
JAZZHLJÓMSVEITIN Gammar
heldur tónleika á Kringlukránni
miðvikudagskvöldið 9. mars nk.
Hljómsveitina skipa nokkrir af
fremstu djassleikurum landsins og
Ieikur hljómsveitin eingöngu
frumsamið efni hljóinsveitarmeð-
lima.
Hljómsveitina skipa þeir Björn
Thoroddsen, gítar, Þórir Baldursson,
píanó, Stefán S. Stefánsson, saxafón,
Bjarni Sveinbjörnsson, bassi, og
Halldór G. Hauksson, trommur.
Hljómsveitin hefur sent frá sér tvo
geisladiska, Gammar. 1+2 og Af
Niðafjöllum. Á tónleikunum munu
þeir flytja efni af þessum geisladisk-
um sem og nýtt efni.
Eldriborgaraferð
til Kanarí %3w£,
40dagar
Einstakt tilboö 2 vikur ókeypis
Aöeins
kr. 56.200
pr. mann m.v. 4 í íbúð
m/2 svefnherbergjum, Doncel.
Kr. 67.400
pr. mann m.v. 2 í íbúö
m/2 svefnherbergjum, Doncel.
Þjónusta Heimsferða
1. Beint leiguflug án millilendingar
2. Þrif 5 sinnum í viku á gististaö
3. Spennandi kynnisferðir
4. íslenskir fararstórar
5. íslenskur hjúkrunarfræðingur
Okkur er það ánægja að kynna sérstaka eldriborgaraferð þann
13. apríl til Kanarí, þar sem veðrið er á þeim tíma einstaklega
gott. Með frábærum samningum höfum við samið við gististaði
okkar um ótrúleg kjör, þú dvelur í 40 daga á Kanarí, borgar það
sama og fyrir þriggja vikna ferð og færð því 2 vikur ókeypis.
Undirtektir við Kanaríferðum Heimsferða hafa verið einstakar í
vetur og æ fleiri íslendingar kynna sér þessa heillandi paradís.
Frábær aðbúnaður
Doncel gististaðurinn hefur verið einstaklega vinsæll meöal
farþega okkar í vetur og þeim treystum við best til aö gefa
honum góða einkunn. Einstök staðsetning í miðbæ Ensku
strandarinnar og því örstutt í alla þjónustu, stórar, vefbúnar
íbúðir og fallegur garður.
Flugvallaskattar:
3.660 fyrir fullorðna
air europa
fer
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 62 4600
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
4. - 7. mars 1994
Föstudagsnóttin var fremur
róleg þó ölvun hafi verið áber-
andi. Margt fólks safnaðist utan-
dyra í miðborginni eftir að vínveit-
ingastaðirnir lokuðu. Mikið bar á
yngra fólkinu. Unglingar undir
17 ára aldri sáust þó ekki á ferli.
Lögreglan og starfsfólk félags-
málayfirvalda fylgjast sérstaklega
með því hvort unglingar eru á
ferli eða í nálægð við miðborgina.
Einnig er um slíkt eftirlit að ræða
víða annars staðar. Fjarlægja
þurfti tvo unglinga úr miðborginni
aðfaranótt sunnudags og vista hjá
Unglingaheimili ríkisins. Foreldr-
ar eru hvattir til þess að sjá til
þess að börn þeirra haldi áfram
að virða reglur um útivist barna
og unglinga.
Snemma á sunnudagsmorgun
var tilkynnt um tvo menn sem
voru að skemma bifreiðar við
Skólavörðustíg. Þeir höfðu rifið
spegil af einni bifreið þegar lög-
reglumenn komu á vettvang. Ann-
ar mannanna hafði skorið sig og
þurfti að flytja hann á slysadeild
þar sem gert var að sárum hans.
Fyrsta helgin í hverjum mánuði
er yfirleitt annasamari en aðrar.
Þá er jafnan meiri ölvun en venju-
lega. Að þessu sinni var helgin
þó með rólegra móti. Þó eru bók-
uð 82 ölvunartilvik þar sem kom
til afskipta lögreglu, auk annarra
tilvika, s.s. 6 líkamsmeiðinga, 19
ölvunaraksturstilvika og 21 vegna
hávaða og ónæðis. í tveimur ölv-
unaraksturstilvikanna höfðu öku-
mennirnir lent í umferðaróhöpp-
um áður en til þeirra náðist. Þrjá-
tíu og fjórir einstaklingar gistu
fangageymslurnar um helgina.
Af þeim komu tveir þangað af
sjálfsdáðun. Langflestir voru í
geymslunum vegna ölvunarhátt-
semi sinnar.
Um helgina voru 43 ökumenn
kærðir fyrir að aka hraðar en
leyfileg hámarkshraðamörk segja
til um. 10 voru kærðir fyrir að
aka gegn rauðu íjósi og 24 fyrir
önnur umferðarlagabrot.
Aðfaranótt sunnudags stöðvaði
lögreglan akstur sendibifreiðar
vegna of hraðs aksturs. í ljós kom
að ökumaður var að aka farþegum
gegn gjaldi. Slíkt er með öllu
óheimilt, nema í undantekningart-
ilvikum.
Ákveðið hefur verið að næsta
sameiginlega umferðarátak lög-
reglunnar á suðvesturlandi verði
16.-23. mars nk. Athyglinni verð-
ur sérstaklega beint að akstri
gegn rauðu ljósi og bílbeltanotkun
ökumanna og farþega. Þá mun
lögreglan á sama tíma fram-
kvæma sérstaka skoðanakönnun
á meðal vegfarenda.