Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 45 Baráttan gegn kyn ferðislegu ofbeldi Frá Helgu Garðarsdóttur: SL. FÖSTUDAG stóðu nokkrar ungar stúlkur í anddyri Hagkaups á Eiðistorgi og báðu fólk um að styrkja fjárhagslegan grundvöll Stígamóta með því að kaupa merki samtakanna á 500 kr. í sem fæst- um orðum sagt voru viðbrögð mjög margra við bón stúlknanna fyrir neðan allar hellur og þeim til hábor- innar skammar. Langflestir þeirra, sem ætluðu ekki að kaupa merki, höfðu ekki í sér þann manndóm að horfa framan í stúlkurnar op segja: nei, takk, heldur rýndu þeir þegjandi niður í gólfið og góndu á tærnar á sér svo við lá að þeir dyttu hver um annan þveran. Nokkuð margir, en þó mun færri en hinir, keyptu merki; ekki merkis- ins vegna heldur vegna þess að þeir gera sér grein fyrir því mikla og nauðsynlega starfi sem Stíga- mót vinna og vilja leggja sitt af mörkum svo ekki komi til þess að hjálparstarfið lamist vegna fjár- skorts. Þeim öllum þakka ég fyrir. Það hefur margsýnt sig að ís- lendingar eru gjafmildir á fé öðrum til handa. Skemmst er að minnast ýmissa safnana sem útvarpsstöðv- arnar hafa tekið þátt í. En þarf endilega að leggja í dýran kostnað og skapa stemmningu kringum söfnun? Er ekki hægt að láta fé af hendi rakna á hljóðlátan og kostnaðarlausan hátt, eins og þeir gerðu sem keyptu merki Stígamóta sl. föstudag? í dag, 8. mars, á alþjóðabaráttu- degi kvenna eiga Stígamót 5 ára . afmæli. Af því tilefni hafa mörg íslensk félagasamtök kvenna og karla ákveðið að tileinka daginn baráttunni gegn kynferðislegu of- beldi. Kynferðislegt ofbeldi er ekki einkamál þolenda heldur þjóðfé- lagslegt vandamál. Merkjasalan er liður í því að hægt sé að halda baráttunni gegn því áfram. Starf- semi Stígamóta stendur og fellur með velvilja almennings og stjórn- valda, því samtökin hafa engan fastan tekjustofn. Enginn sem leit- ar hjálpar hjá Stígamótum er kraf- inn um greiðslu fyrir veitta hjálp. Að lokum langar mig að biðja ykkur, konur, karlar og börn, um að taka þátt í göngu gegn kynferð- islegu ofbeldi, sem hefst á Hlemmi kl. 17.30 í dag. Gengið verður nið- ur Laugaveginn að Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3. Þar verður fólki boð- ið upp á veitingar og skemmtiatriði og vonandi nota margir tækifærið og kynna sér starfsemi Stígamóta. HELGA GARÐARSDÓTTIR, 221059-4929. VELVAKANDI ÞAKKIR TIL PIZZAHÚSSINS FIMMTUDAGINN 3. mars sl. fór ég í hádeginu í Pizzahúsið við Grensásveg en var svo óheppin að rífa sokkabuxumar mínar á stólnum sem ég sat á. Ég kallaði í unga stúlku sem vinnur þama og sagði henni frá þessu. Hún skipti um stól og kom svo til mín skömmu síðar og spurði mig hvaða tegund og stærð af sokkabuxum ég not- aði. Eftir skamma stund kom hún aftur með tvennar sokkabuxur, aðrar fyrir þær skemmdu, hinar sagði hún að væm í sárabætur. Því miður iáðist mér að spyija stúlkuna að nafni. Þetta finnst mér frábær þjónusta og viðmót. Signður Tómasdóttir, Sviðholtsvör 9, Bessastaðahreppi. TAPAÐ/FUNDIÐ Ullarúlpa tapaðist BRÚN síð ullarúlpa með hettu var tekin í misgripum á Berlín fyrir röskum mánuði, en eftir var skilinn blár ullarfrakki. í vösum hans vom m.a. lyklar og hanskar. Kannist einhver við þessi mistök hann vinsam- lega beðinn að hringja í síma 76808. DÝRTAÐFARAÁ SLYSADEILDINA GUÐRÚN Jóhannsdóttir hringdi til að kvarta yfir því hversu dýrt væri að fara á slysadeild Borgarspítalans. Hún þurfti að fá þar þjónustu fyrir skömmu, beið í tvo til þijá tíma og þurfti að greiða 2.900 krónur fyrir viðvikið. Úr fannst GULLÚR með leðuról fannst við strætisvagnaskýli á Há- teigsvegi fimmtudaginn 3. mars sl. Eigandi má hafa sam- band í síma 18551. Fjallahjól tapaðist GRÆNT 18“ kvenfjallahjól af gerðinni Giant tapaðist frá Tryggvagötu aðfaranótt 3. mars sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 627247 eða hafi samband við lögreglu. GÆLUDÝR Týndur köttur SVÖRT læða með bleika hálsól tapaðist frá Laugamesvegi 80 sl. þriðjudag. Hafi einhver orðið ferða hennar var er hann vin- samlega beðinn um að hringja í síma 811460. Týnd læða GRÁBRÖNDÓTT tíu mánaða læða með bláa hálsól með bjöllu týndist í Þingholtsstrætinu fyr- ir u.þ.b. viku. Hún svarar ef mjálmað er til hennar. Hafi ein- hver orðið hennar var er hann beðinn um að hringja í síma 25046. Frá stjórn Barnamáls FÉLAGIÐ Barnamál, sem er áhugafélag um bijóstagjöf, vöxt og þroska bama, vill taka fram að það kom á engan hátt nálægt gerð þáttarins Veruleik- inn - Bijóstagjöf, sem sýndur var í Ríkissjónvarpinu 1. mars sl. Hjálparmæður félagsins afla sér stöðugt nýrrar þekkingar og telja ýmislegt í þættinum vera orðið of gamalt til að vera nothæft. Hjálparmæður veita ráðgjöf og upplýsingar og má fá símanúmer þeirra hjá Forel- dra samtökunum og í Dagbók Morgunblaðsins. Mýrarljósin Nokkrir alvöruþankar um augnablik líðandi stundar Frá Árna Helgasyni: Er Drottinn að gefa upp sína sauði? Sýnast honum þeir lítils virði? Nú lifir ekki af einu brauði hans útvaldi þjónn uppí Borgarfirði? Almáttugur. Hver er við stýri er allt í vonleysi? Stækkar þrautin? Aukatekjumar, Drottinn minn dýri duga vart fýrir saltinu í grautinn. Hér verður í krafti klukkum að hringja svo komist verði upp úr svona díki. Þá mætti á undan sálma syngja svo mætti stefna landi og ríki. Hvað er nú með þig heilög kirkja og hirðana sem þig efla og styrkja? Áfram, og látum lúðrana gjalla og látum dómstóla um málin Qalla. Það dynur í fjöllunum dómurum ekki vært á dómarapöllunum ... Er of margt að verða hér eilif byrði? Og er nokkur goðgá þótt fávís spyrði: Er blessun kirkjunnar blessunar virði ef „botninn" er suður í Borgarfirði"? ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Pennavinir NÍTJÁN ára finnsk stúlka sem hyggur á íslandsferð vill skrifast á við 17-21 árs pilta og stúlkur: Lotta Jáaskeláinen, Tasatie 15 AS 9, 28800 Pori, Finland. FRÁ Tanzaníu skrifar piltur sem getur ekki um aldur en er líklega á táningur. Með áhuga á píanóleik, tónlist og ferðalögum: Emanuel Joran, ^ Box 1698, Mostti, Kilimanjaro, Tanzania. LEIÐRÉTTINGAR Nafn misritast Nafn misritaðist í frétt um sýn- ingu Leikfélags Homaíjarðar á Djöflaeyjunni en fréttin birtist á bls. 43 í laugardagsblaðinu. Sá sem leikur Badda heitir Hilmir Stein- þórsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Úttekt á ESB-aðiid í frétt í blaðinu sl. laugardag um samþykkt ríkisstjómarinnar að fela Háskóla íslands að gera fræðilega úttekt á kostum og göllum aðildar íslands að Evrópusambandinu (ESB) var frá því greint að skv. tillögunni verður Lagastofnun, Hagfræðistofnun og Sjávarútvegs- stofnun falið að gera úttekt á mál- inu en í fréttina vantaði hins vegar að Alþjóðastofnun Háskólans og Félagsvísindastofnun var einnig falið að annast þetta verkefni. Er beðist velvirðingar á þessu. KkléilL VERSLUN í BORGARKRINGLUNNI. SÍMI 677340 Heilsuvika l Þumalínu Kíktu inn: Þú finnur lífrænt ræktaðar jurtasnyrtivörur, sem ekki valda ofnæmi, eru ekki með rotvarnarefni (parabenar/kathon), eru ekki með ertandi ilmefni (fragance) og hafa ekki verið prófaðar á dýrum. Þú finnur ekta Rósmarin/Furunála/Lavandella baðolíur og Arnika/Calend- ula/Citrus gigtarolíur, sem gefa vellíðan og losa spennu. Þú finnur orku/vítamín diykki og hárvörur, sem gefa hárinu næringu og glans og losa flesta við flösu og hárlos. Þú finnur tannkrem fyrir alla fjöiskyiduna án skaðlegra skrúbb- og slípi- efna, fáðu prufu. Þú finnur NOVAFÓNINN, sem hefur hlotið gullverðlaun á læknaþingum, frábært tæki til sjálfshjálpar gegn gigt og vöðvabólgu. Þú finnur barna calendula/camomill snyrtivörurnar. 011 litlu bömin fá bos- sakrem, mamma fær möndluolíu, pabbi húðolíu, afi og amma frá amikuolíu. Að auki gefum við 20% afmælisafslátt alla vikuna. Ullar- og silkinærfatnaður, svissnesk hágæðavara. Við rýmum fyrir nýjum vörum og gefum 50% afslátt. Allt fyrir heilsuna. Umhverfisvænar bleyj- ur. Námskeið í notkun þeirra og 10% afsláttur út heilsuvikuna. Öll börn fá bleyju gefins. Það borgar sig að koma við. Opið virka daga kl. 10-18 og nk. sunnudag kl. 14-17. blllHlllÍMII Leifsgötu 32. Sími 12136 og fax 626536. Sendum í póstkröfu. ÁRA (Áhugahópur um refsistefnur og afbrotafræði), dómsmálaráðuneyti og lagadeild Háskóla íslands halda ráðstefnu um efnið: Hræðsla við afbrot, brotaþolar og forvarnir í Borgartúni 6, mánudaginn 14. mars 1994, kl. 13-17. DAGSKRÁ: 13.00 Skráning. 13.15 Ráöstefnan sett: Ragnheiður Bragadóttir, lektor. 13.30 Öryggi og varnarleysi gegn afbrotum (Utsatthet för brott och trygghet). Per-Olof Wikström, Brottsförebyggande Rádet, Stokkhólmi. 14.00 Umræða og fyrirspurnir. 14.15 Á pabbi að fara í fangelsi? Hagsmunir barna, sem hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun. (Skal far sættes f fængsel? Mishandlede berns interesser). Beth Grote Nielsen, Háskólanum í Árósum. 14.45 Umræða og fyrirspurnir. 15.00 Kaffihlé. 15.30 Afbrot í Ijósi kannana á brotaþolum. (Brottsligheten í Ijuset av viktimologiska surveyundersökningar). Kauko Aromaa, Ráttspolitiska forskningsinstitutet, Helsingfors. 16.00 Umræða og fyrirspurnir. 16.15 Almenn umræða. Fundarstjóri: Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis. Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig í síma 609010 fyrir fimmtudaginn 10. mars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.