Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 19

Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 19 Fiskeldi Éxcel námskeið Miklilax tapaði 34 milljónum á síðasta árí Hlutafé aukið aftur í 55 milljónir 34 MILLJÓNA króna tap varð af rekstri laxeldisstöðvarinnar Mikli- lax í Fljótum á síðasta ári að teknu tilliti til afskrifta og fjárrnagns- liða. Um er að ræða mikinn rekstr- arbata frá árinu 1992 þegar tapið varð um 190 rnilljónir. Miklilax náði nauðasamningum við lánar- drottna sína í desember á síðasta ári um niðurfellingu skulda, en fyrirtækið skuldaði þá um 800 milljónir. Helstu kröfuhafar sem samið var við voru Byggðastofn- un, Atvinnuleysisti’yggingasjóður og fóðursalar. Sölutekjur Miklalax voru 84 millj- ónir á síðasta ári en rekstrarkostnað- ur nam 86 milljónum. Þar af Voru afskrifaðar eignir upp á 28 milljónir. Að teknu tilliti til fjármagnsliða varð tapið 34 milljónir. „Eftir nauðasamningana var eig- iníjárstaða Miklalax jákvæð upp á 33 milljónir," segir Reynir Pálsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Það hefur verið ljóst í mörg ár að fyrirtækið gæti aldrei staðið undir þeim skuldbindingum sem á því hvíldu. Nú þegar eðlileg rekstrarskil- yrði eru fyrir hendi gera áætlanir ráð fyrir að reksturinn verði í járnum á Tölvur Ráðstefna hjáHPá Islandi HP á íslandi hf. efnir til ráðstefnu dagana 9.-10. mars á Hótel Loft- leiðum með yfirskriftinni „í nýjan ham“. Fyrri daginn er ráðstefnan einungis ætluð boðsgestum en seinni daginn þann 10. mars er hún öllum opin. A ráðstefnunni verða kynntar nýjungar frá Hew- lett Pacard og samstarfsaðilum HP á íslandi. Meðal nýjunga sem kynntar verða á seinni degi ráðstefnunnar þann 10. mars verða nýjar UNIX-vélar frá Hewlett Packard og nýjar Pentíum einmenningstölvur frá Hewlett Pack- ard. Þá verður kynning á stefnu Hewlett Packard í netstjórnun og ýmsum hugbúnaði, m.a. Ópusallt við- skiptahugbúnaði, Concord XAL við- skiptahugbúnaði, nýjungum í In- formix og gagnasafni Morgunblaðs- ins. Á fyrirlestrum á vegum Félags HP-notenda verður fjallað um Inter- net, öryggismál í UNIX, tölvupóst- kerfi, OpenView í netstjórnun og hjálpartól í Unix og MPE. þessu ári og síðan verði um hagnað að ræða á árinu 1995. Breyttur hluthafahópur Nokkrar breytingar urðu á hlut- hafahóp Miklalax í kjölfar nauða- samninganna í desember en hlutafé fyrirtækisins var þá lækkað úr 100 milljónum niður í fimm. Það hefur síðan verið aukið í 20 milljónir og á hluthafafundi sl. laugardag var sam- þykkt heimild til að auka hlutafé félagsins aftur í 55 milljónir. Áður átti sveitarfélagið tæp 50% í Mikla- laxi, Byggðastofnun um 20%, skoska fyrirtækið Fish Farming Develop- ment 15% og aðrir aðilar tæp 20%. Stærstu hluthafamir nú eru einstakl'- ingar, flestir úr Fljótunum, og sveit- arfélagið og síðan koma inn sem nýir hluthafar Kaupfélag Skagfirð- inga og Framleiðnisjóður. Fyrirtæki Tap Flugleiða meira en reiknað var með Rekstraráætlun 1994 gerir ráð fyrir hagnaði AFKOMA Flugleiða í nóvember og desember 1993 varð talsvert lakari en gert hafði verið ráð fyrir í áætlunum félagsins og tapið því meira á öllu árinu en búist hafði verið við. Þannig voru farþegar í millilanda- flugi í desember 12% undir áætlun og meðalfargjald 6% lægra. Þetta olli því að tekjur af alþjóðaflugi í desember voru um 18% lægri en í rekstraráætlun, að því er segir í nýútkomnu fréttabréfi félagsins. Farþegar á öllu árinu voru 2,2% færri en gert var ráð fyrir. Meðalfar- gjald var 1% lægra og farþegatekjur í millilandaflugi því rúmlega 3% lægri en í endurskoðaðri rekstraráætlun. Á árinu 1993 fluttu Flugleiðir um 801 þúsund farþega en 757 þúsund árið áður sem er um 4% Ij'ölgun milli ára. Farþegar í millilandaflugi voru rúmlega 552 þúsund og fjölgaði um 8%. í innanlandsfluginu voru farþeg- ar 249 þúsund og fækkaði um rúm- lega 3%. Rekstraráætlun Flugleiða fyrir árið 1994 hefur verið kynnt í stjórn félagsins og er þar gert ráð fyrir að snúa rekstrinum í hagnað eftir tap- rekstur undanfarin tvö ár. Þessar áætlanir byggja á því að sparnaður verði festur í sessi, vextir verði áfram lágir svo og verð á flugvélaelds- neyti. Stefnt er að betri nýtingu á flugvélakosti félagsins, einkum í Norður-Atlantshafsfluginu og að far- þegum fjölgi um tæplega 19%. Hins vegar er gert ráð fyrir einhverri fækkun íarþega í innanlandsflugi. Efnahagsmál Bati Breta minni en spáð var London. Reuter. MINNI vöxtur lána í janúar og minni hreyfing á fasteignamarkaði en gert hafði verið ráð fyrir eru enn ein dæmi þess að efnahagsbatinn í Bretlandi hefur hægt á sér fyrstu vikur ársins 1994 að sögn hagfræð- inga. Miklar skattahækkanir taka gildi í apríl og nokkrir hagfræðingar telja að þær muni draga úr neyzlu, sem var ein ástæðan fyrir efnahagsbat- anum 1993. „Ráðstöfunartekjur meirihluta þjóðarinnar munu minnka um sem svarar tveggja vikna launum á kom- andi ári,“ sagði brezkur bankastarfs- maður. „Ef slíkui' samdráttur er hafður í huga er erfitt að trúa því að eyðsluvenjur haldist óbreyttar." VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VELADEILD FALKA YMOSSA 'FARAR- BRODDI FAE kúlulegur og rúllulegur Eigum á lager flestar geröir af legum og hjöruliðakrossum í bíla og vinnuvélar. ihp leguhús Ennfremur legur fyrir hverskonar framleiösluvélar, iönaöarvélar og bátagíra. Útvegum allar fáanlegar legur meö hraði. Þaö borgar sig aö nota þaö besta! TIMKEN keilulegur IlSu precision hjöruliöakrossar 90ÁRN Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8-108 REYKJAVlK SlMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS 94029 Tölvu- og verkfræöiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • © 68 80 90 Annar hagfræðingur kvað upplýs- ingarnar sýna að neytendur væru varir um sig vegna skattahækkunar- innar í apríl. Drunginn hefur aukizt við það að skýrsla frá forstjórastofnuninni IOD sýnir að pantanir og hagnaður hafa lítið eitt dregizt saman á síðustu tveimur mánuðum. Áður hefur verið skýrt frá auknu atvinnuleysi, minni framleiðslu og samdrætti í smásöluverzlun. Síðasta hraðlestrarnámskeiðið Síðasta námskeið vetrarins hefst miðvikudaginn 16. mars nk. Viljir þú margfalda lestrarhraðann, hvort heldur er til að bjarga næstu prófum með glæsibrag eða til að njóta þess að lesa meira af góðum bókum, ættir þú að skrá þig strax á næsta námskeið. Skráning alla daga í sfma 642100 og 641091. HRAÐLESTRARSKÖUNN THYGLISVERÐASTI UGLÝSINGADAGUR RSINS Verölaunaafhending fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins 1993 fer fram í Borgarleikhúsinu 11. mars. ’ ^ Að þessu sinni hefst dagskrá fyrr en venjulega. Áður en verðlaunaafhendingin fer fram verða fyrirlestrar um SKAPANDi HUGSUN í AUGLÝSINGA- OG MARKAÐSMÁLUM og hefjast þeir kl. 13 í litlasal Borgarleikhússins. Aðgangseyrir á fyrirlestra er kr. 2.500 og innifalið er kaffi og nýjasta bók þeirra J. Trout og A. Rice. Verðlaunaafhendingin fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins fer fram í aðalsal Borgarleikhússins kl. 16 og er aðgangur ókeypis. Meðan á auglýsingadeginum stendur verður vegleg sýning í anddyri Borgarleikhússins á vörum og þjónustu tengdri auglýsingum og markaðsmálum. NÚ ER KJÖRIÐ TÆKIFÆRIFYRIR AUGLÝSINGA- OG MARKAÐSFÓLK AÐ TAKA AUGLÝSINGADAGINN 11. MARS SNEMMA, AFLA SÉR FRÆÐSLU OG ÞEKKINGAR OG NJÓTA SKEMMTUNAR í LEIÐINNI. W) {PÆARK- ATHYGLISVEROASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1993 ÍSLENSKI MARKAÐSKLÚBBURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.