Morgunblaðið - 08.03.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
21
ÞESSAR stúlkur sungu og söfnuðu um leið 1.100 krónum til styrkt-
ar Elliheimili Kópavogs. Þær heita Hulda, Rósa, Arna og Elfa.
ADALFUNDUR
------7-
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn fimmtudaginn 24. mars 1994
á Hótel Sögu, Súlnasal,
og hefst fundurinn kl. 13.30.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja frammi á
aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða
afhent á aðalskrifstofu félagsins
Suðurlandsbraut 18, 2. hæð,
frá og með 21. mars, fram að
hádegi fundardags.
Stjórn Olíufélagsins hf.
ísso
Olíufélagið hf
hefur sett á fót útibú a.m.k. á
ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Réttara væri að halda áfram á
þeirri braut.
Vegagerð ríkisins (Vr) rekur
stöndug útibú víða um land og er
það fáheyrð fásinna að flytja höfuð-
stöðvar Vr til Borgarness (þar sem
er annars fyrir veglegt útibú Vr).
Stór hluti verkefna Vr er á höfuð-
borgarsvæðinu og Reykjanesi og
því þyrfti hvort eð er að hafa stórt
útibú á þessum slóðum. Rarik hefur
líka rekið ágæta útibúastefnu og
er með útibú víða um iand. Skipu-
lag ríkisins hefur rekið útibú um
tíma á Sauðárkróki og á Akureyri.
Veiðimálastofnun er með deildir úti
á landi.
Vandséð er hver ávinningur
landsbyggðarinnar er af flutningi
aðalstöðva þessara stofnana út á
land og réttara væri að styrkja
útibúastefnu enn frekar hjá stofn-
unum. Mjög ákveðin þörf er fyrir
ríkisbyggingafulltrúa í landsfjórð-
ungum eða héruðum. Eða enn frek-
ar útibú sem hefðu með höndum
eftirlit, fræðslu og ráðgjöf á sviði
umhverfis- , skipulags- og bygg-
ingarmála í landsfjórðungi eða hér-
aði. Einnig myndu slík útibú geta
séð um mælingar og skráningu
fasteigna, lóða og landa. Þessi
útibú mætti tengja að einhverju
leyti við sýslumannsembættin.
Slík útibú myndu skila meiri
ávinningi og raunverulegri þjón-
ustuaukningu til landsbyggðarinn-
ar allrar, almennings, sveitarfélaga
og héraðsráða.
Höfundur er starfsmaður hjá
Skipulagi ríkisins.
Allar nánari upplýsingar
í síma: 91 - 641 340
Vigfús Erlendsson
súpa seyðið af svona vitlausum
aðgerðum eins og flutningur aðal-
stöðva Skógræktarinnar var.
Útibúastefna stofnana er góð
stefna
Nokkrar þær stofnanir, sem gerð
var tillaga um að flyttu út á land,
hafa um árabil rekið skilvirka
útibúastefnu eða þær gert sam-
komulag við aðila í héraði um
ákveðna þjónustu. Byggðastofnun
Um tillögur um flutning ríkisstofnana út á land
2. grein
eftir Vigfús Erlendsson
Til hvers eru höfuðborgir?
Dreifing aðalstöðva núverandi
stofnana um landið er almennt léleg
stefna. Þegar aðilar af landsbyggð-
inni (t.d. sveitarstjórnarmenn)
þurfa að reka erindi sín hjá stofnun-
um og/eða ráðuneytum, er gott að
hafa útibú í landsfjórðungi eða hér-
aði. Oftast eru þó ferðir til Reykja-
víkur samnýttar til þess að reka
ýmis erindi, stundum er farið á
margar stofnanir. Með því að drita
höfuðstöðvum stofnana víðs vegar
um landið nýtur kannski viðkom-
andi hérað eða landsfjórðungur
góðs af. Eg segi kannski, því að
t.d. flutningur stofnunar til ísa-
Ijarðar auðveldar ekki íbúum
„Ýmis tengsl rofna og
kostnaður vegna ferða
og fjarskipta eykst
fram úr öllu hófi. ís-
lendingar hafa síst efni
á svona bruðli.“
Barðastrandarsýslu eða Stranda-
sýslu aðgöngu að viðkomandi stofn-
un. Og eitt er alveg öruggt: íbúar
annarra landsfjórðunga njóta síður
en svo góðs af því að ein stofnun
sé á Egilstöðum, önnur á Höfn,
þriðja á ísafirði, fjórða á Sauðár-
króki. Það verður þá lítið um ferð-
ir, ýmiskonar persónutengsl rofna
og sambandið verður minna við
aðra landshluta, svo ekki sé rætt
um ýmis konar óhagræði og kostn-
að, sem af þessu hlýst. í þessu sam-
hengi er um að ræða handónýta
byggðastefnu. Til hvers er líka höf-
uðborg íslands? Ég hef rætt við
marga aðila úti á landsbyggðinni
og heyrist mér að þessar flutninga-
tillögur finnist mönnum hin mesta
firra, nema í þeim sveitarfélögum,
þar sem tillögur eru um flutning
tiltekinnar stofnunar. Enda eru
málin þá ekki skoðuð í víðara sam-
hengi, heldur út frá músarholusjón-
armiðum. Ýmis tengsl rofna og
kostnaður vegna ferða og fjarskipta
eykst fram úr öllu hófi. Islendingar
hafa síst efni á svona bruðli.
Aðalstöðvar ríkisstofnana úti á
landi
Nokkrar stofnanir eiga sér
ákveðnar rætur á landsbyggðinni,
t.d. Landgræðslan og Skógræktin.
Aðalstöðvar Skógræktarinnar voru
fluttar austur á Hérað nýlega og
tel ég það vera skref aftur á bak.
Þessir flutningar voru dæmigerðir
fyrir ranghverfan „byggðastefnu-
hugsanahátt“. Ráðherra skorar og
bláeygðir kjósendur halda að nú
sé sigur og fagna. En staðreyndin
er bara sú að ráðherra skoraði
bara sjálfsmark. Þetta kemur allt
aftan að okkur aftur með auknum
tilkostnaði. Og hver borgar? Við
sjálf, í gegnum hærri og hærri
skatta. Sannið þið til, landsbyggðin
og reyndar þjóðin öll á eftir að
T1LS0U
Permaform-hús í Skelj alangahverf I
Mosfellsbæ
Dæmi um verð:
3ja herb. íbúð kr. 6.500.000,-
4ra herb. íbúð kr. 6.950.000,-
Permaform-íbúðirnar eru afhentar
fullbúnar að utan sem innan, með
frágengnum garði og bílastæði.
Tilbúnar innréttingar bíða nýrra
eigenda sem ekkert þurfa að gera
annað en að raða í skápa og stinga
kaffikönnunni í samband!
PERMAF0RM
-BYGGINGARMÁTI NÚTÍMAFÓLKS
Ódýrar og
fallegar íbúðir
í góðu hverfi
- hagstœðir
greiðsluskilmdlar!
Handónýt byggðastefna