Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
ADÖABOinl
NOmiNGtó
ríNNtfH «fc.
£, *** MBL
'Jm ★★★ Rás 2
*** DV
★★★★ NY POST
★★★★ EMPiRE
Nútímaleg feminisk mynd eftir
Zhang Yimou (Rauði lampinn).
Sigraði á hátíðinni I Feneyjum '93.
Sýnd kl. 7. Síðustu sýninqar.
Stórkostleg mynd sem hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda.
Sýnd kl. 5 og 9.
Spennumynd með Al Pacino (Scent of a Woman, Scarface) og Sean
Penn (Indian Runner) í aðalhlutverkum. Pacino afbragð að vanda.
Sýran og diskóið nýtur sín fullkomlega
í nýju DTS DIGITAL hljóðkerfi HÁSKÓLABÍÓS •
Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuö innan 16 ára.
/ nafni föðurins
7 ÓSKARSVERÐLA UNATILNEFNINGAR
BESTA MYNDIN • BESTI LEIKSTJÓRINN Jim Sheridan • BESTI AÐALLEIKARINN Daniel Day-Lewis
• BESTU LEIKARAR í AUKAHLUTVERKUM Emma Thompson og Pete Postlethwaite
★ ★★★ A.l. MBL
★★★★H.H. PRESSAN
£ * ^
★ ★★★ Ö.M. TÍMINN
★★★★ J.K. EINTAK
DAJNIKU DAY-U5WIS • ÉMMA THOMPSON
PETE POSTLETHWAITE
ÍM IN THE NAME 0F THE FATHER
i Beriin v
\ 1994 ,ih
SÝND KL. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára.
'j Benm v
■4,1994/
Stuttmyndadag-
ar í Reykjavík
KVIKMYNDAFÉLAG íslands hefur staðið fyrir Stutt-
myndadög-um I Reykjavík sl. tvö ár. í fyrsta skipti
árið 1992 á Hótel Borg, síðan á Café Hressó 1993.
Þátttaka á Stuttmynda-
dögum hefur ávallt verið
mjög góð, um 40 nýjar
myndir eru frumsýndar ár
hvert og koma þær allsstað-
ar að af landinu jafnt frá
áhugamönnum sem og at-
vinnumönnum.
í fyrra, sem og nú í ár,
veitti Reykjavíkurborg
verðlaun fyrir þijár bestu
myndirnar á Stuttmynda-
dögum; 200.000, 100.000
og 50.000 kr. og vakti þetta
framlag borgarinnar verð-
skuldaða athygli og þakk-
læti til allra þeirra sem tóku
þátt og að sjálfsögðu einnig
þeirra sem stóðu að hátíð-
inni. Verðlaunamyndirnar
þijár voru síðan sýndar í
Sjónvarpinu sl. haust. Fyrir
stuttu gerði Kvikmyndafé-
lagið samning við dagskrár-
stjóra Sjónvarpsins um sýn-
ingu í Sjónvarpinu á verð-
launamyndum hátíðarinnar
í ár.
Stuttmyndadagar í
Reykjavík 1994 verða
haldnir um miðjan apríl nk.
og myndirnar þurfa að hafa
borist til Kvikmyndafélags
’íslands, Pósthólf 891, 121
Reykjavík, fyrir 4. apríl nk.
Margt á döfinni
í Hólminum
Stykkishólmi.
ÞAÐ fer ekki á milli mála að þetta ár verður viðburða-
ríkt í Stykkishólmi. María Valdemarsdóttir var gestur
Lionsklúbbs Stykkishólms 24. febrúar sl. og gerði
grein fyrir því sem í boði væri og eins hitt hvenær
þess væri að vænta. Margt væri þegar farið að und-
irbúa, svo sem fjölskylduhátíð í júní, komu Skagfirsku
söngsveitarinnar 20. mars, Lúðrasveit Stykkishólms
heldur upp á 50 ára afmæli, Tónlistarfélagið verður
30 ára og svona mætti lengi telja.
Eyjaferðir undir stjórn sem í vændum væri og taldi
hjónanna Svanborgar Sig-
geirsdóttur og Péturs Ág-
ústssonar hafa orðið vin-
sælli með hveiju árinu sem
þær starfa og alltaf er þar
eitthvað nýtt á pijónunum
til að gera ferðamönnum
hér dvölina sem ákjósanleg-
asta og eiga þau miklar
þakkir skildar fyrir það.
Þeir sem hafa ferðast hér
um eyjasundin og komið við
í ævintýraríkum eyjum þar
sem kynslóðir hafa gert
garðinn frægan um aldar-
aðir taka vel eftir.
María Valdemarsdóttir
var með stóran lista um það
að hann ætti eftir að lengj-
ast mikið, en þeim sem
leggja leið sína um Hólminn
og á Snæfellsnes með.bæði
fræðandi og upplífgandi
efni fjölgar með hveiju ár-
inu.
María sagði frá hópnum
sem að málunum vinnur og
gat þess að þau atriði sem
væru á döfinni á árinu yrðu
kynnt í sérstakri bók sem
ákveðið væri að dreift yrði
um landið á næstunni og
aðilar víða að af iandinu
myndu leggja til efni.
- Árni.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Fjölmenn strengjasveit Tónlistarskóla ísafjarðar lék á
miðsvetrartónleikum skólans.
Miðsvetrar-
tónleikar helg-
aðir samspili
ísafirði.
TÓNLISTARSKÓLI ísafjarðar hélt sína árlegu miðsvetr-
artónleika í ár í tengslum við dag tónlistarskólanna 26.
febrúar. Vegna fjölda nemenda varða að skipta tónleik-
unum á tvo daga.
Tónlistarnemendur hafa
oftast fengið aðstoð við und-
irleik þegar það hefur átt við
frá elstu nemendum eða kenn-
urum sínum. Á þessum tón-
leikum var megináherslan
lögð á að nemendumir störf-
uðu saman án aðstoðar kenn-
aranna. Engir einleikarar
komu því fram, en samspilið
kom á óvart og reyndust nem-
endur yfirleitt þeim vanda
vaxnir að leika saman og
byggja hveijir aðra upp. Þótt
ekki hafi enn tekist að stofna
lúðrasveit við skóiann er vax-
andi áhugi fyrir samleik í
stærri hópum og léku nokkrir
þeirra á hljómleikunum. Mesta
athygli vakti strengjasveit
undir stjórn Miróslávs
Thomaceks.
Mikil gróska er í starfi Tón-
listarskóla ísafjarðar, þrátt
fyrir ófullnægjandi aðstöðu í
húsnæði Húsmæðraskólans
Óskar.
í ár átti að ljúka byggingu
nýs tónlistarskólahúss sem
hafin var bygging á 1984,
samkvæmt samningi Tónljst-
arfélagsins og bæjarsjóðs ísa-
fjarðar, sem ætluðu að skipta
kostnaði með sér til helminga.
Miklum peningum hefur verið
safnað til framkvæmdanna að
hálfu Tónlistarfélagsins og
velunnara Tónlistarskólans,
en bæjarstjórn hefur að mestu
svikist um að leggja fram fé
og leggur ekki krónu til verks-
ins á þesáu ári. +■ Úlfar.
Keflavík/Njarðvík/Hafnir
Mikil þátttaka í
prófkjöri Fram-
sóknarflokksins
Keflavík.
MIKIL þátttaka var í prófkjöri Framsóknarflokksins fyrir
bæjar- og sveitarsljórnarkosningarnar 28. maí nk. i sam:
einuðum sveitarfélögTim Keflavík, Njarðvík og Höfnum. í
prófkjörinu, sem var opið og bindandi fyrir 5 efstu sætin,
greiddi 1.491 atkvæði og voru 1.477 atkvæði gild. í fram-
boði voru 20 þátttakendur og hlaut Drífa Sigfúsdóttir
bæjarfulltrúi í Keflavík, Steindór Sigurðsson bæjai-fulltrúi
í Njarðvík, Þorsteinn Árnason, Keflavík, Kjartan Már
Kjartansson, Keflavík, og Friðrik Georgsson bindandi
kosningu í fimm efstu sætin.
Drífa Sigfúsdóttir
fékk 759 atkvæði
í 1. sæti og 1.146
atkvæði alls,
Steindór Sigurðs-
son fékk 677 at-
kvæði í 1.-2. sæti
og 1.009 atkvæði
alls, Þorstein
Árnason fékk 569
atkvæði í 1.-3.
sætið og 833 at-
kvæði alls, Kjart-
an Már Kjartans-
son fékk 659 at-
kvæði í 1.-4. sæt-
ið og 755 atkvæði
all og Friðrik Ge-
orgsson fékk 629 atkvæði í
1.-5. sætið.
Ari Sigurðsson, formaður
uppstillingarnefndar, sagðist
í samtali við Morgunblaðið
vera ánægður með hvemig til
hefði tekist og að greinileg
sveifla hefði verið til flokks-
ins, því hann hefði fengið um
850 atkvæði samanlagt í bæj-
arfélögunum i síðustu kosn-
ingum. Áberandi hefði verið
' stuðningurVið núverandi bæj-
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Ríðandi á kjörstað
Hestamenn notuðu góða veðrið og
komu margir þeirra á kjörstað ríðandi
á fákum sínum.
arfulltrúa þau Drífu Sigfús-
dóttur í Keflavík og Steindór
Sigurðsson úr Njarðvík. Einn-
ig væri árangur Kjartans Más
Kjartanssonar athyglisverður.
Hann hefði nýlega hafið störf
fyrir flokkinn en eigi að síður
fengið glæsilega kosningu.
Ari sagði ennfremur að þeir
sem hefðu lent í fimm efstu
sætunum hefðu fengið afger-
andi flest atkvæði.
- BB
HASKOLABIO
SÍMI22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
+**MÐL
★★★ Rás 2
*** DV
***** b.t*
***** E.B,
K)R
ORSON WELLES
HÁTÍÐ 1. TIL 10. MARS
Hvað er hægtað segja um þessa mynd?
Gagnrýnendur hafa í könnunum undan-
farin 30 ár ævinlega valið hana bestu
mynd allra tíma. Einstakt tækifæri til að
njóta þessá meistaraverks á breiðtjaldi.
Við bjóðum þér að koma og njóta
spánýs sýningareintaks.
Sýndkl.
9.
Síð. sýn..
nreyfimynda
lagið
CITIZEN KANE