Morgunblaðið - 08.03.1994, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
47
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
Afmælishátíð í MS
OPIÐ HÚS var í Menntaskólanum við Sund síðastlið- bekkjanna sem voru af margvíslegum toga, má nefna
inn laugardag í tilefni af 25 ára afmæli skólans. sem dæmi kennslustofu árið 2094, gervibekk með
Athöfnin hófst með setningu klukkan 13, þar voru dúkkulísum, ármenn skólans, fræga kennara og
flutt ávörp, að því búnu hófst kórsöngur og hljóm- , nemendur, slangurorðabók og ýmislegt fleira. í einni
sveit kennara lék. Einnig voru haldnar sýningar í stofunni voru sýndar eðlisfræðitilraunir, og lögðu
skólastofum þar sem ýmis fög voru kynnt og auk margir leið sýna þangað til þess að skoða eldgosið
þess gafst gestum kostur á að kynna sér verkefni á meðfýlgjandi mynd.
Framsókn á Selfossi
Kristján
Einarsson
í efsta sæti
SKOÐANAKÖNNUN um niður-
röðun á lista framsóknarmanna
á Selfossi fyrir bæjarstjórnar-
kosningar fór fram um síðustu
helgi. 198 greiddu atkvæði og
er það 66% þátttaka.
í efsta sæti í könnuninni lenti
Kristján Einarsson, Guðmundur
Búason í öðru sæti, Hróðný
Hauksdóttir í þriðja sæti, Guð-
mundur Kr. Jónsson í fjórða sæti
og Einar Axelsson í fimmta sæti.
Aðrir sem gáfu kost á sér voru
Ingibjörg Stefánsdóttir, Jón G.
Bergsson, Kristín Fjólmundsdótt-
ir, Gylfi Guðmundsson og Sigrún
Sveinsdóttir.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar eru ekki bindandi. I efstu
fimm sætunum eru báðir bæjar-
fulltrúar Framsóknarflokksins.
Kristján Einarsson var í öðru sæti
síðast en lendir nú í fyrsta. Guð-
mundur Kr. Jónsson var í efsta
sæti en lendir nú í fjórða sæti.
Hinir þrír koma nýir inn núna.
A
Willard Olason skipstjóri á nótaskipinu Grindvíkingi GK
*
Allt að 200 þúsund tonn
verða eftír af loðnukvóta
LOÐNUSKIP lönduðu rúmlega 18 þúsund tonnum af loðnu
frá föstudagsmorgni til mánudagsmorguns, samkvæmt
upplýsingum frá Félagi íslenskra fiskimjölsframleiðenda
og er með þeim afla búið að veiða rúmlega 344 þúsund
tonn á vetrarvertíð. Eftirstöðvar loðnukvóta eru þá rúm-
lega 275 þúsund tonn. „Það er alveg útilokað að náist að
veiða upp í kvóta miðað við stöðuna nú,“ sagði Willard
Ólason, skipstjóri á Grindvíkingi, í samtali við Morgunblað-
ið seint í gærkvöldi. Hann spáði því að um 150-200 þúsund
tonn yrðu eftir af kvótanum.
Vígslubiskupskjör í Skálholtsstifti
Saulján prestar
kæra kjörskrá
Um 30 loðnuskip voru að veið-
um í gær, flest suður af Reykja-
nesi en nokkur einnig austan við
land. Willard sagði að afli væri
lítill og veiði hefði verið treg sein-
ustu daga. Skipið var þá statt út
af Keflavík. Bæði hefði veður gert
loðnuskipum erfitt fyrir en einnig
hafi stóra loðnugangan haldið
beint til Vestfjarða án viðkomu í
Faxaflóa og nálægum miðum, og
liggi nú á fjarðarbotnum fyrir
vestan og hrygni. „Það hefur ekk-
ert veiðst úr stóru göngunni í eina
tíu daga, þannig að við erum að
mestu búnir að missa af henni.
Við veiddum aðeins við Snæfells-
nes en því lauk fyrir tveimur dög-
um, og síðan höfum við verið héma
kringum Reykjanesið þar sem em
einhverjar eftirhreytur,“ segir
Willard. Hann segir að tvennum
sögum fari af því hversu mikið
af loðnu sé að fínna fyrir austan
land.
Loðnuskipið Jón Finnsson var á
leið vestur með landinu í gær-
kvöldi eftir að hafa landað rúmum
1.000 tonnum af loðnu á Seyðis-
firði og sagði Eggert Þorsteinsson
skipstjóri, að um þriðjungur aflans
hefði farið í frystingu. Hann
kvaðst eiga von á að skipið kæmi
á miðin fyrir utan Garðskaga um
sjö nú í morgun. Veðurútlit væri
hins vegar ekki vænlegt og því
erfitt að segja til um aflalíkur, en
veiði hafí ekki verið nægilega góð
seinustu sólarhringa.
Ályktun Verslunarráðs íslands
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0009 7116
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Afgreiðslufólk vinsamlegast takiö qfangreind
kott úr umferö og sendiö VISA islandi
sundurklippt.
VERBLAUN kr. 5000,-
fyrir að klðfesta kort og visa á vágest.
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík
Slmi 91-671700
r. Cagliari - Cremonese - X -
2. Foggia - Atalanta - X -
3. Inter - Udinese 1 - -
9. Icikvika , 6. mars 1994
Nr. Leiktir: Röðin:
4. Juventus - Milan - - 2
5. Lecce - Napoli - - 2
6. Piacenza - Genoa - X -
7. Reggiana - Parma 1 - -
8. Sanipdoria - Torino 1 - -
9. Ascoli • Bari - X -
10. Fid.Andria - Cosenza 1 - -
11. Lucchese - Cesena - - 2
12. Palermo- Ancona - - 2
13. Pisa - Fiorentina - X -
Heildarvinn ingsupphæðin:
17,6 milljón krónur
13 rcttir: jTvöfaldur nœst J kr'
12 réttln 141.100 ] kr-
11 réttir: 6.690 J kp’
10 réttir: 1.380 J kn
9. leikvika , 5. mars 1994
Nr. Leikur: Röðin:
1. Blackbum - Liverpool 1 - -
2. Everton - Oldham 1 - -
3. Ipswich - Arsenal - - 2
SAUTJÁN prestar hafa kært kjörskrá vegna fyrirhugaðrar
kosningar vígslubiskups í Skálholtsstifti en kærufrestur rann
út klukkan 13 í gærdag. Þorsteinn Geirsson ráðuneytissljóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og formaður kjörstjórnar
segir, að kærur tveggja hafi verið teknar til greina. Kærufrest-
ur til kirkjumálaráðherra er ein vika.
Aðild að Evrópu-
sambandinu ekki
útilokuð fyrirfram
Á STJÓRNARFUNDI Verslunarráðs íslands var eftirfarandi tillaga
samþykkt samhljóða. í henni er fagnað fræðilegri úttekt á kostum
og göllum aðildar íslands að Evrópusambandinu. Jafnframt er hvatt
til þess að fram fari málefnaleg og fordómalaus umræða um hugsan-
lega aðild. Stjórn Verslunarráðsins hvetur ráðamenn þjóðarinnar
til þess að útiloka enga kosti að óathuguðu máli og gefa sér engar
niðurstöður fyrirfram.
Ók aftan á
snjóbíl á
Hellisheiði
ÁREKSTUR varð á Hellisheiði
laust eftir hádegi í gær þegar
fólksbíl á austurleið var ekið aft-
an á snjóbíl.
Tilkynnt var um áreksturinn til
lögreglunnar á Selfossi rúmlega
hálf tvö í gærdag. Ökumaðurinn
var fluttur á slysadeild Borgarspít-
alans en hann kvartaði undan
áverkum á brjósti.
Þær upplýsingar fengust á Borg-
arspítalanum í gærkvöldi að maður-
inn ætti að liggja inni eina nótt en
væri ekki alvarlega slasaður.
Að sögn Þorsteins er um að
ræða sérþjónustupresta sem hvorki
eru ráðnir af ráðherra né biskupi
heldur beint af stofnunum. í lögum
um prestaköll og prófastdæmi seg-
ir að ráðningar á sérþjónustuprest-
um skuli vera á hendi ráðherra.
Þorsteinn segir að kjörstjómin hafi
úrskurðað að tvær af kærunum
sautján skyldu teknar til greina, í
öðru tilfellinu var um að ræða prest
í námsleyfi og hinu prest sem ný-
ráðinn var til starfa. Hinir fímmtán
skiptast þannig að sex eru sjúkra-
húsprestar, einn er skólaprestur,
einn prestur aldraðra, lausráðinn
starfsmaður biskupsstofu, tveir
aðstoðarprestar, einn sóknarprest-
ur í Hólastifti sem telur að hann
heyri undir Skálholtsstifti, einn
prestur sem starfar erlendis, einn
settur sóknarprestur og einn fram-
kvæmdastjóri æskulýðssamtaka.
Kærufrestur til kirkjumálaráð-
herra rennur út innan viku.
Ályktun Verslunarráðsins er
svohljóðandi: „Stjórn Verslunar-
ráðs Islands fagnar þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að gerð verði
fræðileg úttekt á kostum og göllum
aðildar Islands að Evrópusamband-
inu.
Verslunarráð íslands minnir á
að innan ráðsins fór fram ítarleg
könnun á þessu viðfangsefni fyrir
viðskiptaþing ráðsins fyrir ári síð-
an. Umfjöllunarefni viðskipta-
þingsins var íslands í EB - Já eða
nei? í skoðanakönnun á viðskipta-
þinginu lýstu tveir af hveijum
þremur sig fylgjandi því að sækja
um aðild og sjá hvaða niðurstöður
fengjust úr aðildarviðræðum.
Að lokinni úttekt á kostum og
göllum aðildar þarf að fara fram
málefnaleg og fordómalaus um-
ræða og ákvörðunartaka að vel
ígrunduðu máli. Af þeim sökum
hvetur Verslunarráð Islands ráða-
menn þjóðarinnar til þess að útiloka
enga kosti að óathuguðu máli og
gefa sér engar niðurstöður fyrir-
fram.“
4. Leeds - Southampton - X -
5. Man. Utd. - Chelsea - - 2
6. QPR - Man. City -X-
7. Sheff. Wed - Ncwcastlc - - 2
8. Swindon - West Ham - x -
9. Tottcnham - ShefT. Utd - X-
10. Wimbledon - Norwich í - -
11. Bolton - Charlton í - -
12. Brísto) City - Dcrby - X ■
13. Portsmouth - C. Palace - - 2
Heildarvinningsupphæðin:
118 milljón krónur
13 réttir: | 7.922.130 1 kr.
12 réttir: 92370 1 kr.
11 réttir: 6.190 | kr.
10 réttin 1.460 J kr.
Höfdar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!