Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
37
minnar hef ég farið sjaldnar en ég
hefði kosið síðastliðin ár.
Afi vann á skrifstofu Eimskips í
rúm 40 ár. Starf sitt vann hann
af samviskusemi og heiðarleika eins
og allt sem hann tók sér fyrir hend-
ur. Oft fór ég í heimsókn til afa í
vinnuna og þá sat ég á eldgömlum
leiðurstól og yddaði gula blýanta
að mér fannst í tugum talið og fékk
að launum bijóstsykur og stundum
líka 100 kr. Það var líka unun að
horfa á hann vélrita með tveimur
puttum á fullum hraða.
Það eru margar minningar sem
ég á um afa. Ein er sú að ég hef
verið níu ára og afi lá veikur á
Hvítabandinu. Ég fór oft í heimsókn
stundum með leyfi mömmu og
stundum án leyfi og mikið var ég
hamingjusöm ef ég gat fengið pen-
ing fyrir bijóstsykurpoka til að
færa afa því hann tók gjöfinni sem
gull væri. Frá honum streymdi allt-
af mikil hlýja sem ég fann hvað
best þegar hann leiddi mig inn
kirkjugólfið er ég gifti mig.
Þó afi væri 96 ára og amma sé
89 ára bjuggu þau enn í Stigó, og
þangað reyndi ég að koma eins oft
ogég gat, en því miður ekki eins
oft og ég hefði kosið.
Elsku amma mín, ég vona að
Guð styrki þig og styðji á þessum
erfiðu tímamótum.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Hjördís.
Elsku afi minn hefur hlotið hvíld
sína. Allt sem kviknar fjarar út að
lokum er sú staðreynd sem ekkert
fær haggað. Þrátt fyrir að afi hafi
náð háum aldri og hlotnast allt sem
máli skiptir í lífínu er söknuðurinn
mikill. Slíkur var hann.
Ég er fæddur í afahúsi og gekk
hann mér í föðurstað. Allar æsku-
minningar mínar tengjast honum,
ég var hamingjusamt barn. Mann-
margt var á heimilinu og gest-
kvæmt, engin sérherbergi. Ég var
sá yngsti, naut athygli stóríjöl-
skyldunnar, afi sá elsti, höfðinginn
sem allir elskuðu og dáðu. Hann
gaf sér alltaf tíma fyrir mig, þolin-
mæði hans var einstök. Hann
kynnti mig fyrir Agli, Snorra og
fleiri köppum sem stóðu ljóslifandi
á stofugólfinu.
Afi var fríður, snyrtilegur og
virðulegur í fasi. Rödd hans var hlý
og mjúk, augun góðleg og það blik-
aði á þau þegar hann gerði að gamni
sínu. Jafnaðargeð hans var slíkt að
aldrei heyrði ég hann hækka róminn
né sá hann reiðast. Það var ekkert
illt til í honum, bara góðmennska,
maður gat alltaf reitt sig á stuðning
hans. Hann fór afar vel með, enda
annarra kosta ekki völ. Ef hann
átti afgang var það af því hann
neitaði sér um allt. Hamingja hans
fólst í að hjálpa öðrum og hin stóra
og mikla fjölskylda sem undan afa
er komin er mesta hamingja sem
hann hefði getað hugsað sér.
Er kom að því að flytja úr afa-
húsi var ekki farið lengra en nokk-
urra mínútna gang. Ég gisti gjarnan
um helgar og við tókum í spil, síðar
spjallað um pólitík eins og gengur.
Við töluðum um stjórnmálamenn
eins og þeir væru persónulegir vinir
okkar og gerðum oft grín í góðu.
En ég vissi að undir niðri bjó við-
horf til lífsins sem ekkert gat hagg-
að.
Hin síðari ár tók að halla undan
fæti og naut afi þá þess hve elskað-
ur hann var af fjölskyldu sinni.
Amma var líka á sínum stað, þau
voru svo heppin að fínna hvort ann-
að og ganga lífíð saman. Þau áttu
hvort annað skilið.
Nú er kletturinn okkar farinn á
braut. Ég sé hann fyrir mér á sunnu-
degi og í bestu fötunum sitjandi út
í horni. Raksturinn og greiðslan
óaðfínnanleg, kannski einn vindill.
Hann var sannarlega höfðingi.
Elsku besti afi minn, takk fyrir
allt og allt. Við skiljum í bili og
ég geymi þig í hjarta mínu alla tíð.
Lárus.
Með nokkrum fátæklegum orð-
um vil ég minnast elsku afa míns,
Erlends Olafssonar, sem verður til
moldar borinn í dag, 10. mars.
Gefist mér nokkru sinni tæki-
færi til að fara fögrum orðum um
nokkurn mann þá er það um hann
afa minn, þennan 96 ára merkis-
mann sem nú er genginn á fund
feðra sinna.
Allir eiga sína föstu punkta í
tilverunni. Hjá mér var afi í Stigó
einn slíkur. Þessi dásamlegi maður
umvafði alla með elsku sinni og
umhyggju. Skipti engu hvort um
ættmenni eða ókunnuga var að
ræða, það löðuðust allir að honum.
Viðmót hans var ávallt hlýtt og
gott enda var hann jafnlyndur með
eindæmum. Satt að segja veit ég
ekki til þess að hann hafi nokkru
sinni skipt skapi.
Afi minn var aldrei einn, aldeil-
is ekki. Við hlið hans stóð ávallt
stórbrotin kona, amma mín, Anna
Jónsdóttir, sem hefur-búið honum
glæsilegt heimili allar götur síðan
þau giftu sig fyrir um 68 árum.
Þegar ég kom í heiminn fyrir
20 árum var afi minn á 76. aldurs-
ári og þá þegar kominn af léttasta
skeiði. Minningarnar um afa minn
eru í senn margar og Ijúfar og
skiptir þá engu til hvaða tíma-
punkts er litið. Þegar ég hugsa til
áttunda áratugarins er íbúð þeirra
hjóna iðaði af lífi fyllist ég djúpum
söknuði sem breytist í lotningu
eftir því sem ég færi mig nær í
tíma. Lotningu yfir því hvernig
þessi fullorðnu hjón af gagn-
kvæmri ást og alúð hafa hlúð hvort
að öðru og haldið heimili í öll þessi
ár.
Elsku amma mín, ég veit að
söknuður þinn er mikill og sár
eftir öll þessi ár, en ég vona að
þú eigir styrk til að standast þá
raun.
Guð geymi afa og verndi um
alla eilífð. Blessuð sé minning
hans.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Vilhjálmur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál.)
Oft hefur okkur fundist þessi
vísa úr Hávamálum eiga vel við
þegar fólk er kvatt hinstu kveðju
en sjaldan eða aldrei eins og nú
þegar „afi í Stigó“ verður borinn
til grafar. Það eina sem er ljóst í
lífinu er að öll komum við til með
að deyja eins og allt sem í kringum
okkur er, eins og fram kemur í
þessari vísu. í dag kveðjum við
hinstu kveðju afa sem er einn af
fáum sem hefur getið sér slíkan
orðstír að aldrei mun deyja. Orðst-
ír er mismunandi en sá orðstír sem
afi gat sér er eins og hann sjálfur,
hljóður, traustur, oft spaugsamur,
en alltaf sá klettur sem uppúr
stendur traustur í ölduróti mann-
lífsins.
Þær eru óteljandi stundirnar sem
við höfum átt í Stigahlíðinni hjá
afa og ömmu þar sem hlýja og
væntumþykja var það fyrsta sem
maður fann þegar komið var inn.
Alltaf vorum við velkomin enda var
alloft mannmargt og þá gjarnan
slegið á létta strengi því grunnt
var í glettnina hjá afa. Þó hann
væri ekki sá sem hafði hæst í hús-
inu, var honum oft skemmt og sást
það fyrst í augum hans þegar þar
brá fyrir þeim glettnisglampa sem
við þekkjum svo vel. Lítillátur, ljúf-
ur, kátur stendur einhvers staðar
skrifað. Þessi lýsing á svo vel við
afa að það er eins og þetta hafi
verið sagt um hann. Lítillátur mað-
ur og hvers manns hugljúfi sem
sannar sig best í því hvað lítil börn
löðuðust að honum á undraverðan
hátt án þess að hann væri með
sérstaka tilburði til að laða þau til
sín, þau bara komu til afa. Ljúfur
og kátur, já verulega. Aldrei sást
hann skipta skapi en alltaf tilbúinn
í góðlátlegt grín og glettni. En allt
hefur sinn tíma, afí er genginn og
við kveðjum hann með söknuði um
leið og við þökkum fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman.
Elsku amma, við biðjum góðan
guð um að veita þér styrk í þinni
miklu sorg, eftir að hafa haft þenn-
an trausta mann við hlið þér í öll
þessi ár.
Fjölskyldan í Skaftahlíð.
hjá ANDRÉSI
Fermingarföt í úrvali
Jakkaföt, einhneppt og tvíhneppt - verð frá kr. 9.900 - 14.900.
Stakir jakkar, margar gerðir - verð frá 3.900 - 11.700.
Stakar buxur, flauelsbuxur - verð frá 1.000 - 6.700.
Skyrtur, bindi og slaufur í úrvali. VANDAÐAR VÖRUR Á VÆGU VERÐI.
Andrés, Skólavörðustíg 22A, sími 18250 - póstkröfuþjónusta.
Húsbréf
Fjórtándi útdráttur
í 1. flokki húsbréfa 1989.
Innlausnardagur 15. maí 1994.
500.000 kr. bréf
89110094 89110534 89110773 89111720 89112053 89112375 89112923 89113201
89110112 89110552 89110782 89111737 89112164 89112382 89112981 89113210
89110143 89110616 89110873 89111767 89112168 89112503 89112989 89113447
89110159 89110661 89110931 89111769 89112198 89112530 89113042 89113529
89110307 89110675 89111426 89111875 89112213 89112638 89113051 89113544
89110312 89110737 89111477 89111916 89112301 89112712 89113080 89113633
89110478 89110757 89111585 89112009 89112361 89112827 89113083
50.000 kr. bréf 1
89140380 89140757 89141620 89141858 89142505 89142699 89143385 89143860
89140385 89140813 89141648 89141894 89142516 89142706 89143403 89143879
89140441 89141037 89141693 89142127 89142534 89142746 89143404 89143915
89140546 89141283 89141713 89142180 89142554 89142918 89143599 89143977
89140566 89141348 89141763 89142201 89142571 89143066 89143617
89140622 89141450 89141773 89142392 89142578 89143279 89143754
89140625 89141501 89141815 89142414 89142612 89143331 89143830
89140653 89141507 89141842 89142494 89142620 89143366 89143847
5.000 kr. bréf 1
89170044 89170487 89171004 89171408 89171844 89172482 89172793 89173478
89170072 89170624 89171053 89171465 89171941 89172556 89172917 89173519
89170075 89170646 89171095 89171509 89172183 89172579 89172980 89173745
89170113 89170649 89171120 89171655 89172239 89172612 89173001 89173903
89170262 89170661 89171124 89171668 89172282 89172641 89173116 89173919
89170350 89170772 89171255 89171740 89172310 89172674 89173170 89173964
89170399 89170883 89171290 89171745 89172320 89172714 89173291 89174230
89170425 89170955 89171320 89171786 89172351 89172735 89173346
Yfirlit yfir óinnleyst húsbréf:
(1. útdráttur, 15/02 1991)
innlausnarverð 5.979.-
5.000 kr.
89171440
(3. útdráttur, ,15/08 1991)
innlausnarverð 6.466.-
5.000 kr.
89170472
(4. útdráttur, 15/11 1991)
innlausnarverð 6.655.-
89170539 89173630
5.000 kr.
(11. útdráttur, 15/08 1993)
500.000 kr.
50.000 kf.
innlausnarverð 757.215.-
innlausnarverð 75.721.-
89140248 89142508
89141301 89143207
89142408 89143226
89111563
89143935
5.000 kr.
innlausnarverð 7.572.-
89170867 89171289
89170871 89171865
89171954
(6. útdráttur, 15/05 1992)
5.000 kr. | innlausnarverð 6.838,- 89171077
89170461 89170538
(7. útdráttur, 15/08 1992)
5.000 kr. | innlausnarverð 7.002.- 89172965
(9. útdráttur, 15/02 1993)
500.000 kr. innlausnarverð 726.544.- ' 89110948 89113108
| 5.000 kr. innlausnarverð 7.265.-
89171118 89171441
(10. útdráttur, 15/05 1993)
50.000 kr. | innlausnarverð 74.016.- 89140944
5.000 kr. | innlausnarverð 7.402.-
89171059 89171901 89171862 89173024
(12. útdráttur, 15/11 1993)
innlausnarverð 777.161.-
89112518 89113420
innlausnarverð 77.716.-
89142539 89142580
500.000 kr.
50.000 kr.
89143874
5.000 kr.
innlausnarverö 7.771.-
89172374 89173023
(13. útdráttur, 15/02 1994)
500.000 kr.
50.000 kr.
innlausnarverö 786.451.-
innlausnarverð 78.645.-
89140480 89142768
89140988 89142964
89142440 89142965
89112599
89143153
89143211
89143627
5.000 kr.
innlausnarverð 7.864.-
89170571 89171850
89170868 89173689
89171248 89174106
89174107
Útdregin ólnnleyst húsbréf bera hvorki vexti né verðbætur frá innlausnardegi. Því er áríðandi
fyrir eigendur þeirra að innleysa þau nú þegar, og koma andvirði þeirra í arðbæra ávöxtun.
Húsbréf eru innleyst í veðdeild Landsbanka íslands, Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
HVlTA HÚSID / SlA