Morgunblaðið - 26.03.1994, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
(
iHeSður
r
a
morgtrn
V _______
Guðspjall dagsins:
(Lúk. 19.). Innreið
Krists i Jerúsalem.
Messur á pálmasunnudag
ASKIRKJA: Ferming og altaris-
ganga kl. 11. Ferming og altaris-
ganga kl. 14. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 10.30. Barnamessa í
Bústöðum kl. 11. Fermingar-
messa kl. 13.30. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Kl. 10. Fræðslu-
fundur í safnaðarheimilinu. Sr.
María Ágústsdóttir talar um eilífa
lífið. Kl. 11. Lokahátíð fermingar-
starfanna. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson. Fermingarbörn
flytja frumsaminn helgileik. Kór
Vesturbæjarskólans syngur. Org-
anleikari Jakob Hallgrímsson. Kl.
12. Fundur í safnaðarheimilinu í
Safnaðarfélagi kirkjunnar. Jónas
Þórisson ræðir um Hjálparstofn-
un kirkjunnar og störf hennar.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldu-
messa og barnastarf kl. 11.
Barnakór Grensáskirkju syngur
undir stjórn Margrétar Pálma-
dóttur. Fræðsla, söngur og fram-
haldssagan. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. 6 ára börn og yngri á
neðri hæð. Sr. Gylfi Jónsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Ingólfur Guðmundsson. Organisti
Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyrirlestur
kl. 10. Bodil Kálund myndlistar-
maður sýnir myndir og segir frá
myndskreytingu sinni á nýju
dönsku Biblíunni. Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur. Organisti
Hörður Áskelsson. Eftir messu
selur Kvenfélag Hallgrímskirkju
súpu, salat og heimabakað brauð,
ennfremur páskaskraut.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 10.30. Fermingarmessa
kl. 13.30. Prestarnir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fermingarmessa
kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Organisti Jón Stefánsson.
Kór Langholtskirkju (hópur I)
syngur. Barnastarf kl. 13 í umsjá
Hauks Jónassonar og Jóns Stef-
ánssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Drengjakór Laugar-
neskirkju syngur. Organisti Ron-
ald Turner. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Þórarins Björnssonar.
Fermingarmessa kl. 13.30. Jón
D. Hróbjartsson.
NESKIRKJA: Kl. 10. Litir og fönd-
ur. Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Ferming kl. 11. Ferm-
ing kl. 14. Prestarnir.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Hákon
Leifsson. Prestur sr. Ingólfur
Guðmundsson. Barnastarf á
sama tíma í umsjá Eirnýjar og
Báru. Listahátíð Seltjarnarnes-
kirkju: Tónleikar kennara Tónlist-
arskóla Seltjarnarness kl. 20.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Ferming og
altarisganga kl. 11. Organl. Sigrún
Steingrímsdóttur. Barnastarf á
sama tíma í Ártúns- og Selás-
skóla. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Útvarps-
guðsþjónusta kl. 11. Eldri barna-
kórinn syngur. Organisti Daníel
Jónasson. Samkoma Ungs fólks
með hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli
Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Fermingar-
guðsþjónusta í KópaVogskirkju kl.
14. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í umsjá
Ragnars Schram. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, prédikar
og vísiterar söfnuðina. Sóknar-
prestar þjóna fyrir altari. Organ-
isti Lenka Mátéová. Kirkjukór
Fella- og Hólakirkju syngur. Guð-
mundur Þór Gíslason syngur ein-
söng: Aríu eftir F. Mendelssohn-
Bartholdy. Pétur Máté leikur ein-
leik á píanó: Scherzo eftir F.
Chopin. Barnakór Fella- og Hóla-
kirkju syngur lagið: Til starfs úr
Sveitakantötu eftir J.S. Bach und-
ir stjórn Péturs Máté. Kvennakór
kirkjunnar syngur Sanctus og
Agnus Dei, úr Messa basse eftir
Gabríel Faure. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
messa kl. 11. Valgerður og Elín-
borg aðstoða. Ferming kl. 14.
Organisti Sigurbjörg Helgadóttir.
Sr. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Barnastarf á tíma. Organisti
Oddný J. Þorsteinsdóttir. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11. Ferming í Kópavogskirkju
kl. 10.30. Kór Kópavogskirkju
syngur. Ólafur Flosason leikur á
óbó. Organisti Örn Falkner. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Laugardagur 26.
mars. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Ath. breyttan tíma v/ferminga.
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30.
Fermingarguðsþjónusta kl. 14.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta kl. 11. Fermd verða fimm
ungmenni. Kolbeinn Bjarnason,
flautuleikari og Vera Guláziová,
organisti safnaðarins, leika tvíleik
á flautu og orgel. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn organista
safnaðarins. Þórsteinn Ragnars-
son.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cec-
il Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH: Sam-
koma kl. 20 í Kristniboðssalnum.
Hrönn Sigurðardóttir prédikar.
Helgi Elíasson hefur upphafsorð.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dag kl. 11 helgunarsamkoma með
ungbarnablessun. Kapt. Anna
Maria og Harold Reinholdtsen
syngja og tala. Kl. 20 hjálpræðis-
samkoma. Kapt. Anna Maria og
Harold Reinholdtsen syngja og
tala. Majór Daníel Óskarsson
stjórnar.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL: Ferm-
ing í Lágafellskirkju kl. 10.30 og
kl. 13.30. Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN: Fermingarguðs-
þjónustur í Garðakirkju kl. 10.30
og kl. 14. Sunnudagaskóli í Kirkju-
hvoli kl. 13. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fermingarmessur kl. 10.30 og kl.
14. Gunnar Gunnarsson leikur á
flautu. Organisti Helgi Bragason.
Prestar sr. Þórhildur Ólafs og sr.
Gunnþór Ingason.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta laugardag kl. 11. Ferm-
ing sunnudag kl. 10 og kl. 14. Kór
Víðistaðakirkju syngur. Organisti
Úlrik Ólason. Ólafur Jóhannsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Fermingarguðs-
þjónusta kl. 13.30. Organisti
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Sr. Ein-
ar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl. 10.30. Organisti
Gróa Hreinsdóttir. Baldur Rafn
Sigurðsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA,
Hvolsvelli: Fermingarmessur kl.
10.30 og kl. 13.30. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Barna- og fjölskylduguðs-
þjónustur í Landakirkju og á
Hraunbúðum. Almenn guðsþjón-
usta kl. 14. Altarisganga, barna-
gæsla. Að messu lokinni verður
hin árlega kaffisala KFUM & K
haldin í safnaðarheimilinu. Ung-
lingafundur KFUM & K í Landa-
kirkju kl. 20.30.
AKRANESKIRKJA: Sameiginleg
helgistund kirkjuskólans og
sunnudagaskólans í dag laugar-
dag kl. 11. Á eftir páskaföndur í
safnaðarheimilinu. Stjórnendur
Axel og Sigurður. Fermingarguðs-
þjónustur sunnudag kl. 11 og kl.
14. Altarisganga fermingarbarna
og aðstandenda þeirra mánudag
kl. 19.30. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Fjöl-
skyldumessa í Borgarneskirkju kl.
11. Sóknarprestur.
Óvænt urslit
EINN helsti kostur hljóm-
sveitakeppni Tónabæjar, sem
kallast Músíktilraunir, er að
úrslit undanúrslitakvöldanna
eru iðulega óvænt. Þá er það
sem atkvæði áheyrenda ráða
því hvaða tvær hljómsveitir
komast áfram og það sannaðist
síðasta undanúrslitakvöldið,
sem var sl. fimmtudag, að ef
hljómsveit hrífur áheyrendur,
þó ekki sé það fyrir yfirburða
lagasmíðar eða spilamennsku,
þá er björninn unninn.
Þriðja og síðasta undanúrslita-
kvöld Músíktilrauna var sl.
fimmtudagskvöld, en þá kepptu
sjö hljómsveitir um sæti í úrslitun-
um sem voru svo í gærkvöldi,
Tónlistin var óvenju fjölbreytt
þetta undanúrslitakvöld, sem
ræðst kannski að nokkru af því
að hljómsveitirnar komu víða að.
Fyrsta hljómsveit á svið var
Zarah frá Akureyri. Hún byrjað
með miklum stæl á leiknum kynn-
ingarkafla, sem gaf forsmekkinn
að því sem á eftir kom. Sveitin
var þétt á köflum og keyrslan
ágæt, en tónlistin var ekki burð-
ug; einskonar brokkþungarokk,
sem hver getur ímyndað sér sem
setið hefur brokkandi klár og jafn-
vel fallið af baki. Gítarleikur var
þó ágætur og söngvarinn átti
spretti. Önnur norðansveit kom
fast á hæla Zarah, Torture frá
Húsavík. Eins og nafnið bendir til
lék Torture dauðarokk, sem er
nánast útdautt í íslenskum bílskúr-
um, og framan af fyrsta lagi var
fátt sem gladdi. Það mátti þó ef
Winnie the Pooh
til vill skrifa á tækjavandræði, því
þegar í öðru lagi var sveitin öliu
kraftmeiri og þéttari, og í þriðja
laginu rann hún vel áfram og út-
koman var afbragðs dauðarokk,
Ekki skemmdi svo sérkennilega
skemmtilegur millikafli lagsins.
Þriðja sveit var enn norðansveit,
að þessu sinni frá Ólafsfirði. Enn
kom ný tónlistarstefna; nú gítar-
popp að hætti Léttlyndu rósar, og
þó fyrsta lagið hafi verið hálf ónýtt
vegna magnaravandræða gítar-
Torture
leikarans, keyrði líflegur bassa-
Ieikari sveitina áfram eins og her-
foringi. Söngvarar voru tveir, ann-
ar sem einskonar skraut og ekki
nýttur sem skyldi, en hinn öllu líf-
legri á sviði með sérkennilega
rödd. Eftir að gítarleikari sveitar-
innar komst í samband sýndi hann
góða takta, en hefði mátt sleppa
snarstefjuninni, sem rauf samfellu
laganna og var á stundum eins
og út úr kú. Hörmulegir enskir
textar voru mikill mfnus. Fjórða
tónlistarstefna fyrir hlé kom svo
frá dansrokksveitinni Tennessee
Trans. Fyrsta lag hennar var þó
meiri trans en dans, en í öðru lagi
komust sveitarmenn á sporið og
þriðja lagið fleytti þeim í úrslit.
Vert er að geta þess að nafn eins
sveitarmanna misritaðist í blaðinu
sl. fimmtudag, en sá heitir Jón
Fjörnir Thoroddsen.
Eftir hlé hóf yngsta sveit Mús-
íktilraunanna, Mósaík, leik sinn.
Sveitin er að vísu skammt á veg
Léttlynda rós
komin með tónmál sitt, en komst
langt á persónutöfrum; sigraði
reyndar örugglega og óvænt. Þar
á eftir kom svo hljómsveit með
ósýnilegan en þó eftirtektarverðan
söngvara, FullTime 4WD. Sveitin
var skemmtilega þétt og með fyrir-
taks trommuleikara, sem kunnari
er þó fyrir gítarleik, og dómnefnd
sá ástæðu til að hún kæmist
áfram. Lokabiti í háls þetta kvöld-
ið var svo vestmanneyska sveitin
Winnie the Pooh. Þar héldu
trommuleikarinn og söngvarinn
sveitinni einna helst niðri, þrátt
fyrir góðan vilja, en ekki voru öll
lögin völundarsmíðar, til að mynda
var fyrsta lag sveitarinnar hálf-
gerð tómlist, þrátt fyrir góðan gít-
arleik. Annað lag sveitarinnar,
sem minnti rækilega á gæðasveit-
ina Nýdanska í viðiaginu, var
besta lag hennar.
Eins og fram hefur komið sigr-
uðu ungmennin í Mósaík örugg-
lega, í öðru sæti varð Tennessee
Trans, en dómnefnd veitti FullTime
4WD svo brautargengi. Úrslit Mús-
íktilrauna voru svo í gærkvöldi.
Arni Matthíasson