Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRIL 1994
Verkir í mjóbaki —
faraldur í iðnríkjum
eftir Gunnar Arnason
Yfirlæknir hjá Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnuninni (WHO) lýsti
þessu yfir í setningarræðu sinni á
sameiginlegu þingi stofnunarinnar
og Alþjóða kírópraktorasambands-
ins (WFC) í London á liðnu ári.
Könnun Vinnueftirlits ríkisins1
bendir til þess að í þessu, sem öðru,
séum við Islendingar engir eftirbát-
ar. Kanada- og Bandaríkjamenn
hafa bent á að af fjárveitingum til
heilbrigðismála sé mestu fé kastað
á glæ í meðferð mjóbaksverkja og
einnig þar séu mestar líkur á að
hægt sé að spara2.
Heilbrigðisráðuneytið í Ontario í
Kanada lét gera hagkvæmnis út-
reikninga á meðhöndlun kíróprakt-
ora við verkjum í mjóbaki og voru
niðurstöðurnar birtar nýlega3. Höf-
undar skýrslunnar eru meðal fær-
ustu manna á sínu sviði: Prófessor
P. Manga sem hefur verið ráðgjafi
ríkisstjórna um heilbrigðismál víða
um heim, D. Angus prófessor í
heilsuhagfræði, samfélagsheilbrigði
og faraldursfræði og tveir ráðgjafar
um heilsugæslu og heilsuhagfræði.
Þeir gerðu yfirlit um kostnað vegna
verkja í mjóbaki, lýstu meðferð sem
var í boði í Ontario, söfnuðu saman
og gagnrýndu rannsóknir á áhrif-
um, öryggi og hagkvæmni kíró-
praktíkur. Einnig var leitað eftir
áliti neytenda á þjónustu kíróprakt-
ora og að lokum fjallað um hönnun
rannsókna kírópraktora.
Niðurstöður
1. Mjóbaksverkir eru, að mati
skýrsluhöfunda, e.t.v. kostnaðar-
samasta heilbrigðisvandamál
Kanada. Þeir eru helsta orsök veik-
inda miðaldra fólks og fjarveru þess
frá vinnu.
2. Þjónusta kírópraktora, við fólk
með verki í mjóbaki, felst m.a. í
meðhöndlun á stofu þar sem er lögð
áhersla á að draga úr verkjum, t.d.
með ísböxtrum og nuddi. Hreyfing
baksins er endurbætt, einkum með
svokallaðri „manipulation" (hnykk-
ingum). Það er varleg hreyfing liðar
sem lýkur með nákvæmu viðbragði
sem opnar liðbilið lítillega. Þannig
eru liðir liðkaðir og áhrif á tauga-
kerfið leiða m.a. til minnkaðrar
vöðvaspennu og minni verkja. End-
urhæfing og ráðgjöf um fyrirbyggj-
andi aðgerðir er lokaþáttur með-
höndlunarinnar.
3. Gagnrýnið mat rannsókna
sýndi að því betur sem rannsóknir
voru gerðar kom greinilegar í ljós
að „manipuiation" hryggjarins,
framkvæmd af kírópraktorum, er
áhrifameiri en aðrar aðferðir í bar-
„Öryggi og árangur
hljóta þó ávallt að vera
hornsteinar heilbrigðis-
þjónustunnar. Prófess-
or Manga og samstarfs-
menn hans telja að
þessum atriðum sé bet-
ur borgið með með-
höndlun kírópraktora
en annarra heilbrigðis-
stétta við verkjum í
mjóbaki.“
áttunni við verki í mjóbaki. Engar
klínískar rannsóknir sýna, né svo
mikið sem benda til, að „manipulati-
on“ kírópraktora við mjóbaksverkj-
un sé óörugg. Hins vegar eru sann-
anir fyrir því að „manipulation",
framkvæmd af öðrum en kíróprakt-
orum, sé ekki eins örugg eða áhrifa-
rík.
4. Oyggjandi sannanir sýna hag-
kvæmni meðhöndlunar kíróprakt-
ora umfram aðrar aðferðir og engin
gögn sem voru rannsökuð bentu til
hins gagnstæða. Prófessor P.
Manga telur að með aukinni nýt-
ingu á þjónustu kírópraktora megi
spara um 2 milljarða dollara á ári
í Kanada', því færri verði lagðir inn
á sjúkrahús, mun færri fái langvinn
bakvandamál og örorka verði minni
og styttri.
5. Reynsla hefur sýnt að sjúkling-
ar eru mjög ánægðir með meðferð
kírópraktora við mjóbaksverkjum.
6. Hyggilegt er að hvetja til frek-
ari rannsókna á áhrifamætti og
virkni meðferðar kírópraktora en
Ijóst er af heimildum að ennfremur
er þörf fyrir slíkar rannsóknir á
árangri meðferðar annarra heil-
brigðisstétta.
í ráðgjöf sinni til heilbrigðisyfir-
1 21
MWk í \ wtm
Gunnar Arnason.
valda í Ontario segja höfundarnir
m.a. að almannatryggingar ættu
að greiða fyrir meðhöndlun kíró-
praktora að fullu og að þeir ættu
að vinna í nánu samstarfi við heilsu-
gæslustöðvar og sjúkrahús auk
annarra heilbrigðisstofnana.
Lokaorð
Á tímum samdráttar og aðhalds
í fjái’veitingum til heilbrigðisþjón-
ustunnar hlýtur hagkvæmni að
vega þungt við ákvarðanatöku og
vera sjálfsagður hlutur þegar um
dýrustu heilbrigðisvandamál samfé-
lagsins er að ræða. Því lét fylkis-
stjórn Ontario gera umrædda könn-
un.
Öryggi og árangur hljóta þó
ávallt að vera hornsteinar heilbrigð-
isþjónustunnar. Prófessor Manga
og samstarfsmenn hans telja að-
þessum atriðum sé betur borgið
með meðhöndlun kírópraktora en
annarra heilbrigðisstétta við verkj-
um í mjóbaki.
í ljósi niðurstaða skýrsluhöfunda
er það eðlileg krafa að heilbrigðis-
yfirvöld á íslandi íhugi alvarlega
að greiða fyrir meðhöndlun fólks
með verki í mjóbaki hjá kírópraktor-
Höfundur er kírópraktor.
Tilvitnanir:
1. Ólöf A. Steingrímsdóttir, Vilhjálmur
Rafnsson, Þórunn Sveinsdóttir, Magnús
H. Ólafsson, (1988) Einkenni frá hreyfi-
og stoðkerfi, hóprannsókn á úrtaki
íslendinga I, Læknablaðið, 74;223-32.
2. Burton, C.V., Cassidy, J.O. (1992)
Managing Low Back Pain, 3rd Edn, Ed,
Kirkaldi-Willis, Churchill Livingstone.
3. Manga, P. og félagar, (1993) The
Effectiveness and Cost-effectiveness of
Chiropractic Management of Low-Back
Pain, Kenilworth Publishing.
4. Manga, P. (1993) Persónuleg
samskipti.
Vestfirðingar sitji við
sama borð og aðrir
eftir Kristján Pálsson
Langvarandi aflasamdráttur og
einhæft atvinnulíf skekur nú undir-
stöður mannlífs á Vestfjörðum svo
mjög að ráðamenn Vestfirðinga
hafa látið í ljós verulegan ótta um
stórfelldan fólksflótta af svæðinu,
verði ekkert að gert.
Þegar Vestfirðingar koma fyrir
þjóðina með málflutning af þessu
tagi þá er full ástæða, að ég tel,
til að taka hana alvarlega og hlusta.
Það er ekki í eðli Vestfirðinga að
fjargviðrast yfir smámunum eða að
þreyta fólk með málalengingum,
þeirra skilaboð eru'yfirleitt skýr.
Það hefur valdið mér verulegum
vonbrigðum að heyra þann mál-
flutning sem átt hefur sér stað á
Alþingi og víðar þegar erfiðleikar
fyrirtækja í þessu kjördæmi eru
notaðir gegn þeim. Ég get að sjálf-
sögðu skilið að fulltrúar annarra
kjördæma láti til sín heyra og minni
á að erfiðleikar í atvinnulífinu eru
þar einnig til staðar og þeirra þing-
menn hafi það í huga. En það breyt-
ir engu með það, að þegar eins
miklir erfiðleikar steðja að einu
kjördæmi eins og raun ber vitni um
á Vestfjörðum þá huga engin und-
FISKRÉTTIR LINDARINNAR
FI5KMATSEÐILL HEIMIUSMATSEÐILL
til dæmis:
GriUaður háfur kr. 950,-
Pönnusteikt kolaflök
kr. 1.020,-
Smjörsteikt keiluflök
kr. 970,
H vítlauksristaður
steinbítur kr. 950,-
3 Ijúfir smáréttir
kr. 1.320,-
til dæmis:
Fiskbollur m/lauksósu
kr. 870,-
Plokkfiskur
m/rúgbrauði kr. 890,-
Síldardiskur kr. 780,-
Súpa, heimabakað
brauð og salatbar
fylgja öllum réttum.
10% afsláttur af mat gegn framvísun þessa miða.
LIMVIM
Rauðarárstíg 18 - Sími 6 2 3 3 5 0
„Matthías Bjarnason al-
þing’ismaður og helsti
forystumaður Vestfirð-
inga hefur haft for-
göngu um ákveðnar
lausnir fyrir sveitarfé-
lög og fyrirtæki á svæð-
inu, sem falla vel að því
sem gert hefur verið
annarstaðar. Þessum
lausnum verður að sýna
skilning og ná um þær
samstöðu á Alþingi.“
anbrögð. Það er nauðsynlegt að
grípa til róttsékra aðgerða á Vest-
fjörðum nú þegar, erfiðleikarnir eru
mun skaðvænlegri þar en víðast
annarstaðar vegna einhæfni at-
vinnulífsins og að kjördæmið er
landfræðilega mjög erfitt.
Matthías Bjarnason alþingismað-
ur og helsti forystumaður Vestfirð-
inga hefur haft forgöngu um
ákveðnar lausnir fyrir sveitarfélög
og fyrirtæki á svæðinu, sem falla
vel að því sem gert hefur verið
annarstaðar. Þessum lausnum verð-
ur að sýna skilning og ná um þær
samstöðu á Alþingi.
Það vita allir sem vilja vita að
gripið hefur verið til sértækra að-
gerða víða um land af minna til-
efni, bæði fyrir byggðarlög, svæði
og einstaka hluta flotans. Að gera
aðgerðir tortryggilegar, sem bein-
ast að því að rétta stöðu Vestfirð-
inga, er ekki heiðarlegt.
Ég tel að skoða beri jafnframt
hvort ekki sé nauðsynlegt, að út-
hluta 12.000 tonna aflaheimildum
Hagræðingarsjóðs til Vestfjarða og
Snæfellsness næstu 2-3 árin, vegna
einhæfni atvinnulífsins á þessum
svæðum.
Að snúa vörn í sókn í atvinnulíf-
inu á Vestfjörðum er einnig nauð-
synlegt til að bæta stöðu svæðisins.
Það er hægt með meiri fjölbreytni
við nýtingu þeirra auðlinda sem
Vestfirðingar eiga, bæði til sjós og
lands. Má þar nefna botndýr alls-
konar sem gnægð er af í ísafjarðar-
djúpi og ferðamennsku. Ég mun
ekki skrifa að þessu sinni um botn-
dýrin en aðeins um ferðamennsk-
una.
Af hálfu heimamanna hefur verið
bent á aukna möguleika á ferða-
mannaiðnaðinum, sem er vaxandi
um allt land. Það er þó einn þránd-
ur í götu ferðamanna á leið vestur,
sem eru vegirnir.
Þó margt gott hafí verið gert hin
síðari ár í vegalagningu á leiðinni
vestur, þá er bundið slitlag á leiðina
frá Hrútafirði til ísafjarðarkaup-
staðar forsenda þess að veruleg
aukning verði á komu ferðamanna
þangað.
v&r, .V*
Kristján Pálsson.
Til að ná fleiri ferðamönnum
verður því að marka sérstaka áætl-
un í því skyni og tel ég að bundið
slitlag verði að vera þar efst á blaði.
Með tilliti til aðstæðna er brýnt að
slík áætlun verði lögð fyrir Alþingi
sem fyrst og að slitlagsfram-
kvæmdum verði lokið á næstu 3-5
árum. Ef þetta tekst þá er ég sann-
færður um að tíguleiki Vestfjarða
mun draga til sín ótrúlegan fjölda
ferðamanna, innlendra sem er-
lendra.
Islendingar, leggjumst saman á
árarnar og tryggjum Iífvænlegar
byggðir á landinu öllu, slíkt mun
ekki einungis leiða af sér betri lífs-
afkomu á landsbyggðinni, heldur
öryggari afkomu allrar íslensku
þjóðarinnar.
Höfundur er bæjarstjóri í
Njarðvík og Vestfirðingur.
Framboðslisti sjálfstæðismanna
í Vestmannaeyj um samþykktur
SJÁLFSTÆÐISMENN samþykktu framboðslista flokksins á fulltrúa-
ráðsfundi á þriðjudagskvöld. Miklar breytingar eru á listanum frá
siðustu kosningum, enda gáfu tveir efstu menn listans ekki kost á
sér til áframhaldandi setu.
Fyrr í vetur hafði verið ákveðið
að viðhafa prófkjör til uppstillingar
á lista flokksins. Þar sem tilskilinn
fjöldi frambjóðenda, samkvæmt
reglum um prófkjörið, fékkst ekki
var ákveðið að falla frá prófkjöri og
í kjölfar þess var skipuð uppstilling-
arnefnd sem lagði tillögur sínar fyr-
ir fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á
þriðjudagskvöld.
Tillaga uppstillingarnefndarinnar
var samþykkt á fulltrúaráðsfund-
inum og verður listinn þannig skip-
aður: 1. Elsa Valgeirsdóttir, formað-
ur Verkakvennafélagsins Snótar, 2.
Úlfar Steindórsson, fjármálastjóri,
3. Ólafur Lárusson, kennari, 4.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, 5.
Arnar Sigurmundsson, fram-
kvæmdastjóri, 6. Auróra Friðriks-
dóttir, umboðsmaður, 7. Grímur
Gíslason, vélstjóri, 8. Katrín Harð-
ardóttir, verslunarmaður, 9. Stefán
Geir Gunnarsson, sjómaður, 10.
Edda G. Ólafsdóttir, skrifstofu-
stjóri, 11. Einar Örn Arnarsson,
nemi, 12. Helgi Ágústsson, skip-
istjóri, 13. Emma Pálsdóttir, hús-
móðir, 14. Bragi I. Olafsson, um-
dæmisstjóri.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
verður bæjarstjóraefni flokksins en
hann óskaði sjálfur eftir að taka
fjórða sætið, baráttusætið, á listan-
um. í samtali við Morgunblaðið
sagðist Guðjón mjög ánægður ineð
listann. Hann væri sambland af
nýju og fersku fólki og öðrum reynd-
ari og hann sagðist telja mikinn
kost hversu breiður hópur fólks úr
ýmsum störfum skipaði listann.
Hann sagðist telja listann sigur-
stranglegan enda væri hann skipað-
ur fólki sem væri tilbúið að vinna
saman að góðum málum fyrir Vest-
mannaeyjabæ. _ Qrímur