Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 14

Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994 Frá húsnæðisnefnd Reykjavíkur Almennar kaupleiguíbúðir Höfum til ráðstöfunar nokkrar almennar kaupleiguíbúðir á eftirtöldum stöðum: Veghús 31 Tveggja, þriggja og þriggja til fjögurra herbergja íbúðir Ásholt 38-42 Tveggja herbergja íbúðir Klappastígur 1A Tveggja herbergja íbúðir Vakin er athygli á nýsamþykktum lögum um rýmkuð lánskjör við kaup á al- mennum kaupleiguíbúðum. Nánari upplýsingar á skrifstofu húsnæðisnefndar á Suðurlandsbraut 30, sími 681240. Auglýsing frá félagsmálaráóuneytinu Félagsmálaráðuneytið hefur að ósk hlutaðeigandi sveitarstjórna heimilað að almennar sveit- arstjórnarkosningar fari fram 11. júní 1994 í þeim sveitarfélögum sem hér eru greind: Saurbæjarhreppur, Eyjarhreppur, Miklaholtshreppur, Broddaneshreppur, Bæjarhreppur í Strandasýslu, Staðarhreppur í Vestur-Húnavatnssýslu, Fremri-Torfustaðahreppur, Ytri- Torfustaðahreppur, Kirkjuhvammshreppur, Þorkelshólshreppur, Skagahreppur, Skarðs- hreppur í Skagafjarðarsýslu, Hálshreppur og Ljósavatnshreppur. í öðrum sveitarfélögum en ofantöldum skulu kosningar til sveitarstjórna fara fram 28. maí 1994. Dagsetningar vegna sveitarstjórnarkosninga 11. júní 1994 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófstfyrsta virkan dag eftir 16. apríl, þ.e......18. apríl Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri berist oddvita yfirkjörstjórnar bréflega eigi síðar en.........................30. apríl. Sveitarstjórnarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna yfirkjörstjórn þá ákvörðun sína eigi síðar en...................................................7. maí. Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi.......................................14. maí. Framlengdurframboðsfrestur, efaðeinskemurframeinn listi, rennurút...............16. maí. Kjörskrá skal lögð fram eigi síðar en...........................................18. maí og skal framlagning hennar auglýst fyrir þann tíma. Kjörskrá skal liggja frammi til kjördags. Kærufresturtilsveitarstjórnarvegnakjörskrárrennurút kl. 12 á hádegi.............28. maí. Yfirkjörstjórn auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úrskurðaðir gildir og merktir. Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörská eigi síðar en...............31. maí. Sveitarstjórn úrskurðar kærur eigi síðar en......................................4. júní. Oddviti sveitarstjórnar eða framkvæmdastjóri hennar undirritar kjörskrá. Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi, svo og sveitarstjórn sem mál getur varðar, um breytingar á kjörskrá strax og úrskurður liggur fyrir. Sveitarstjórn skal senda oddvita yfirkjörstjórnar eintak af kjörskrá þegar kjör- skráin hefur verið endanlega undirrituð. Kjörstjórn tilkynni oddvita yfirkjörstjórnar, svo og sveitarstjórn sem mál getur varðað, um breytingar á kjörská strax og dómur er genginn. Yfirkjörstjórn auglýsir hvenær kjörfundur hefst. Kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Yfirkjörstjórn auglýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með nægum fyrir- vara á undan kosningum. Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjórn setur notaða atkvæðaseðla undir innsigli að talningu lokinni, þegar kosning er óbundin. Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga. Yfirkjörstjórn eyðir innsigluðum atkvæðaseðlum að kærufresti loknum eða að fullnaðarúrskurði uppkveðnum hafi kosning verið kærð þegar kosning er óbundin, sbr. nr. 19. Kjörstjórn skal gefa út kjörbréf til aðalfulltrúa í sveitarstjórn og varamanna þeirra og senda nýkjörinni sveitarstjórn greinargerð um úrslit kosninganna. Félagsmálaráðuneytið, 22. apríl 1994. A • • ATOK GOÐS OGILLS _________Leikiist_____________ Súsanna Svavarsdóttir Brúðuleikhúsið 10 fingur. Englaspil. Höfundur handrits og brúðu- gerð og leikmynd: Helga Arn- alds. Leikstjóri: Ása Hlín Svavars- dóttir. Einmana, lítil stúlka, hún Vera, leikur sér í þvottahúsi ömmu sinnar. Hún er dálítið ósátt við hlutskipti sitt, en nær að hefja sig yfir ergelsi augnabliksins með miklu hugmyndaflugi. Upp úr þvottabala ömmunnar, galdrar hún heilu ævintýrin og það er al- veg sama hvað kemur upp úr balanum, Vera er alveg örugg í sinni veröld. Hún hefur jú Guð. Daginn sem sýningin á sér stað, er eins gott að halda sér í Guð, því gólftuskan er í sínu versta skapi og upp úr balanum kemur ófleygur engill, hann Gabríel og svo enginn annar en sjálfur Lúsí- fer. Það væri ofsögum sagt að mannkærleikurinn væri að drepa hann, þegar hann birtist. Vera er hins vegar ekkert að nudda honum upp úr því hvað hann er leiðinlegur. Hún er svo einmana að hún vill alveg vera vinur hans. Lúsífer verður alveg klumsa og samþykkir meira að segja að hjálpa Gabríel að brölta upp xegnbogann, til að komast til Guðs og fá hann til að kenna englinum að fljúga. Og nú upphefjast hatrömm átök góðs og ills. Gólftuskunni, Gremju Grámyglu, lýst ekki á blikuna. Hún bíður átekta bak við hveija bugðu á regnboganum og reynir að bregða fæti fyrir góð- mennskuæðið, sem hefur runnið á Lúsífer. Hún reynir líka að gera regnbogann að hættuslóð með því að pissa á hann - og rosalega kemst hún nærri því að ná fram illsku hans. Sagan í þessu verki er skemmti- lega samsett og átök góðs og ills mjög augljós. Einnig eru brúðum- ar fallegar og vel unnar. Hins vegar verð ég að segja að ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum með sýninguna, sérstaklega fyrri hlut- ann. Þar var reynt að koma að of mörgum hlutum og því varð sá partur dálítið slitróttur. Þegar svo kom að hléi, þar sem börnin á sýningunni fóru fram að syngja til að heilla regnbogadrottning- una, fannst mér ekki hafa náðst að byggja upp þá spennu og eftir- væntingu sem til þarf til að börn- in syngi af lífí og sál; markmiðið virtist ekki ljóst. Seinni hlutinn var öllu betri, bæði hvað varðar hraða og snerpu í sýningunni og hvað varðar að ná sambandi við áhorfendur. Það má vel vera að ég hafí verið með of miklar væntingar til Helgu, sem er tiltölulega nýkomin heim eftir brúðuleikhúsnám á Spáni. Ég vænti þess að hún hefði eitthvað nýtt fram að færa en finnst svo ekki vera. Sýning henn- ar ber of mikinn keim af því sem við höfum þegar hér. Af brúðu- gerðinni mátti sjá að Helga kann sitt fag og er vonandi að hún út- færi sýningar sínar á sjálfstæðari hátt í framtíðinni og gæði þær þeim hraða og snerpu sem til þarf til að halda vel athygli yngstu áhorfendanna. Saga daganna hlýt- ur viðurkenningu bókasafnsfræðinga NEFND um val á fræðibók ársins 1993 fyrir fullorðna mælir með að bókin Saga daganna eftir Árna Björnsson sem Mál og menning gaf út hljóti viðurkenningu Félags bókasafnsfræðinga fyrir frum- samda íslenska fræðibók fyrir fullorðna útg. 1993. í fréttatilkynningu segir; „Nefndin skoðaði íslenskar fræðibækur ársins 1993 með hlið- sjón af þeim viðmiðunarreglum sem hún hefur sett sér. Allmargar bækur komu til álita og varð áður- nefnd bók fyrir valinu. Úrslitaáhrif við val hafði ótvírætt handbókar- gildi bókarinnar, að efnismeðferð er skipuleg, texti er þægilegur af- lestrar en jafnframt er bókin fræði- leg, aðgengi upplýsinga er eins og best verður á kosið og bókin búin yfírgripsmiklum heimildaskrám. Höfundur bókarinnar er Árni Björnsson þjóðháttafræðingur. Ekki eru sögð nógu nákvæm deili á honum í bókinni, sem æskilegt væri, sérstaklega með komandi kynslóðir í huga, en hann er löngu þjóðkunnur fyrir ritstörf sín og fræðistörf. Bókin er alls 829 síður í hand- hægu broti. Frágangur hennar er góður, hún er prentuð með skýru letri og vandað er til pappírs og bókbands. Fjölbreytt myndefni er í bókinni sem fellur vel að texta hennar. I dómnefndaráliti segir: „Nota- gildi bókarinnar er mjög mikið, sérstaklega þar sem hún er ítarleg- asta sambærilega bókin á íslensku og í formála er bent á bækur á íslensku um skyld efni. í formála segir að bókinni sé ætlað „að vera aðgengileg handbók ... en standast eigi að síður fræðilegar kröfur“. Bókin stendur vissulega undir þessum fyrirheitum þar sem fag- mennska og vandvirkni eru í fyrir- rúmi.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.