Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 33
33
um. Hann er sá fyrsti af eldri lækn-
' um FSA, sem fellur frá og ég hef
unnið lengst með, einn af þeim sem
I kunni klinikkina og þurfti ekki til
þess flókinn nútíma tölvuvæddan
hátæknibúnað. Það er erfitt að sjá
á bak slíkum afbragðsmönnum, svo
fljótt og svo skyndilega og skarðið
vart fyllanlegt.
Ég votta aðstandendum hans
dýpstu samúð mína og konu
minnar.
Eiríkur Sveinsson.
Vorið nálgast hægt og sígandi.
Birtan eykst dag frá degi. Það vekur
’ vonir um betri tíð og hlýrra sumar
en var á Norðurlandi í fyrra. Mitt í
vorkomunni kveður Baldur Jónsson
þetta líf eftir stutta og ójafna bar-
áttu við miskunnarlausan sjúkdóm.
Hann fékk ekki að njóta vorkomunn-
ar, ekki að njóta frelsisins eftir að
hafa lokið um áramótin iöngum og
farsælum starfsferli. Við, sem eftir
| lifum, getum huggað okkur við það
að hann kunni að njóta hins daglega
lífs og var ávallt glaður á líðandi
I stundu.
Baldur var fæddur á Akureyri 8.
júní 1923. Foreldrar hans voru Jón
Kristjánsson verslunarmaður á Ak-
ureyri og kona hans Laufey Jónsdótt-
ir, bæði af þingeyskum ættum. Bald-
ur varð stúdent frá MA 1944. Hann
lauk námi við læknadeild HÍ 1952,
var námskandidat á Landspítalanum
■ 1952-1953, fékk almennt lækninga-
leyfi í október 1953. Hann starfaði
I sem héraðslæknir í Þórshafnarhéraði
| 1953-1957. Sérfræðinám í barna-
lækningum í Svíþjóð stun(jaði hann
1957-1961 þar sem hann var lengst
af í Vástervik, en einnig í Gautaborg
og Gavle.
Frá október 1961 starfaði Baldur
á Akureyri. Hann var sérfræðingur
við FSA frá þeim tíma, yfirlæknir á
barnadeildinni frá janúar 1974 til
janúar 1994, og jafnframt starfandi
heimilislæknir tii ársloka 1985. Hann
j var eini bamalæknirinn á Akureyri
| þar til í ársbyijun 1975. Auk þessa
gegndi hann fjölda annarra starfa
bæði á sínu sérsviði og trúnaðar-
starfa.
Baldur var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Sigríður Oddný Axelsdóttir
Schiöth hjúkrunarfræðingur og eru
börn þeirra: Málfríður, f. 15. sept.
1949, Jón, f. 30. apríl 1951, Laufey
Guðrún, f. 25. febrúar 1953, Axel,
f. 3. mars 1957, Ingibjörg Agneta,
f. 8. febrúar 1958, og Baldur, f. 13.
sept. 1965.
Eftirlifandi eiginkona Baldurs er
Ólöf Stefanía Arngrímsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og er sonur þeirra
Arngrímur, f. 22. jújí 1971. Einnig
átti Baldur soninn Öm, f. 28. maí
1945, með Sigurbjörgu Stefánsdótt-
Með þessu stutta yfirliti um störf
og líf Baldurs sést að hann hafði í
mörg horn að líta. En hann var ólík-
ur flestum öðram að því leyti að
starfshraðinn var yfirleitt með ólík-
indum, áhuginn á öllu sem í kring
um hann hrærðist var ótrúlegur,
starfsþrekið óbilandi og alltaf var
sjálfsagt að bæta á sig vinnu þó að
verkefnin væra næg fyrir. Á hverju
ári fór hann erlendis til að kynna sér
nýjungar og kom ævinlega hlaðinn
nýjum vísdómi til baka. Hann var
sílesandi og hafði eldheitan áhuga á
því að bæta við nýjungum á barna-
deildina. Það hafa orðið stakkaskipti
í allri tækjavæðingu á deildinni á
fáum áram. Við höfum notið dyggs
stuðnings kvenfélagsins Hlífar á
Akureyri í þeirri uppbyggingu enda
var þessi félagsskapur Baldri mjög
kær. Á undanfömum mánuðum hef-
ur húsnæði bamadeildarinnar verið
stækkað og endurbætt. Það var tek-
ið í notkun nokkram dögum eftir að
Baldur lét af störfum og hafði hann
lagt sinn skerf af hugmyndum við
þær endurbætur. Þá hefur verið gerð
frumhönnun á nýrri bamadeild við
FSA og náði Baldur að taka þátt í
þeirri vinnu síðustu mánuðina sem
hann starfaði. Fór vel á því, en leitt
að hann skyldi ekki fá að njóta þess
að vinna í stærra og betra húsnæði
en verið hefur hlutskipti deildarinnar
á undanförnum árum.
í starfi okkar barnalækna er mik-
ið um útköll hvenær sem er sólar-
hrings. Þrátt fyrir aldur sinn var
Baldur aldrei á því að hann ætti að
nýta rétt sinn til minni vaktavinnu.
Hann stóð sínar vaktir og þótti ekki
mikið þótt hann væri vinnandi um
j helgar og nætur. Hann var afar far-
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994
sæll í starfi sínu, elskaður og dáður
af foreldram og börnum sem hann
stundaði.
Baldur gat sér frábærs orðstírs
sem læknir. Eitt sinn var undirritað-
ur og íslenskur starfsbróðir að glíma
við erfitt tilfelli í Eskilstuna í Sví-
þjóð. Áhyggjufullur afí hringdi þá
og viidi vita hvernig gengi. Þegar
hann heyrði að það væru íslenskir
læknar að stunda bamabarn hans
sagðist hánn treysta okkur fullkom-
lega. Hann hafði kynnst Baldri Jóns-
syni lækni í Vástervik og vissi að
íslensku læknunum væri hægt að
treysta.
Hið jákvæða hugarfar Baldurs
gerði það að verkum að hann var
ætíð ungur í anda og virtist eiga
næga starfsorku eftir þegar hann
skyldi láta af störfum í árslok vegna
aldurs.
Þegar hann kom úr nokkurra daga
jólafríi kenndi hann lasleika og lét
þegar í stað athuga það nánar. Hann
reyndist vera með ólæknandi krabba-
mein. Kom sá úrskurður á þeim dög-
um sem hann var að láta af störfum.
Sársauki okkar samstarfsfólks hans
var því margfaldur. Ekki aðeins lét
kær samstarfsmaður af störfum,
heldur sáum við að hann fékk ekki
að njóta þess að láta af löngu og
erfíðu starfí, tókst í þess stað á við
ólæknandi sjúkdóm.
Ég kveð Baldur með þakklæti og
virðingu. Við Kolbrún sendum Ólöfu,
Amgrími svo og öllum öðram ætt-
ingjum og vinum Baldurs innilegar
samúðarkveðjur. Björt minning um
góðan dreng lifír.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Geir Friðgeirsson.
Á morgun verður Baldur Jónsson,
barnalæknir, til moldar borinn frá
Akureyrarkirkju.
Baldur var fæddur á Akureyri 8.
júní 1923. Foreldrar hans voru Jón
Kristjánsson verslunarmaður og
Laufey Jónsdóttir. Baldur varð stúd-
ent frá Menntaskólanum á Akureyri
árið 1944 og lauk læknaprófí frá
Háskóla íslands árið 1952. Að loknu
kandidatsári var hann fyrsti aðstoð-
arlæknir héraðslæknis í Keflavíkur-
héraði í nokkra mánuði, en gegndi
síðan Þórshafnarhéraði í fjögur ár.
Svo margt hefur breyst í samgöng-
um, fjarskiptum og heilbrigðisþjón-
ustu á íslandi á hálfri öld, að marg-
ir eiga erfitt með að gera sér í hugar-
lund þær aðstæður, sem læknar í
einmenningshéruðum bjuggu við þá.
Konur fæddu börn sín oftast í heima-
húsum og iðulega þurfti að glíma
við bráð veikindi og slys við erfiðar
aðstæður. Farsæl dómgreind og
færni í starfi komu þá strax fram
hjá lækninum unga, en þetta átti
eftir að einkenna starfsferil hans
allan.
Síðan lá leiðin til Svíþjóðar til
náms í barnalækningum. Áð loknu
námi árið 1961 kom Baldur til starfa
sem sérfræðingur við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og varð jafn-
framt heimilislæknir í bænum. Hann
varð yfirlæknir við barnadeild FSA
9. janúar 1974 og gegndi því starfí
til 15. janúar 1994. Baldur var lækn-
ir við vistheimilið Sólborg frá stofnun
þess til ársins 1981 og formaður
Heilsuvemdarstöðvar Akureyrar frá
1970-1978.
Ég var fyrsti aðstoðarlæknirinn á
barnadeild FSA. Baldur var góður
kennari og það var afar þægilegt að
vinna með honum. Hann var einstak-
lega glöggur og úrræðagóður, og
hjartahlýja hans auðveldaði sam-
bandið við börnin. Við unnum síðar
saman á Læknamiðstöðinni á Akur-
eyri eftir að ég hóf störf sem heilsu-
gæslulæknir. Ég undraðist oft hve
fljótur hann gat verið að afgreiða
erindi sjúklinga, en áttaði mig seinna
á því að þetta er því einungis ger-
legt, að heimilislæknir þekki sjúkl-
inga sína vel.
Er Heilsugæslustöðin á Akureyri
var stofnuð árið 1985 hætti Baldur
sem heimilislæknir, en sambandið við
hann hélst, þar sem hann leysti iðu-
lega af í ungbamaeftirlitinu. Á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu barðist hann fyrir
bættri aðstöðu barnadeildarinnar.
Það var þvf mikið gleðiefni, þegar
ákveðið var á síðasta ári að byggja
nýja barnadeild við sjúkrahúsið. Því
miður náði Baldur ekki að sjá þennan
draum rætast, hann lést 18. apríl
eftir nokkurra mánaða veikindi.
Fyrri kona Baldurs var Sigríður
Axelsdóttir, hjúkranarfræðingur,
sem nú er látin. Þau skildu. Börn
þeirra era sex, þau Málfríður, Jón,
Laufey Guðrún, Axel, Ingibjörg Ag-
neta og Baldur. Fyrir hjónaband
eignaðist Baldur soninn Öm. Seinni
kona Baldurs er Ólöf Amgrímsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur, sonur þeirra
er Arngrímur.
Starfsfólk Heilsugæslustöðvarinn-
ar á Akureyri færir eiginkonu, böm-
um og barnabörnum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Guð blessi minningu Baldurs Jóns-
sonar.
Ólafur Hergill Oddsson.
Okkur félögum í Læknafélagi
Akureyrar er nú harmur í huga, er
við sjáum á bak vöskum og ötulum
liðsmanni, Baldri Jónssyni barna-
lækni, sem engum var líkur. Er okk-
ur þar líkt farið og flestum þeim, er
hann átti samskipti við á lífsleiðinni,
því hann naut fágætra mannheilla.
Þar réðu mestu um eðliskostir hans;
hjartahlýja og réttlætiskennd, skarp-
skyggni og atorka, þrautseigja og
æðruleysi og ástríðufullur áhugi á
því að verða skjólstæðingum sínum
að sem beztu liði. Sem læknir varð
hann öðrum fyrirmynd sakir vökullar
dómgreindar og yfirgripsmikillar
fræðikunnáttu, sem hann jók við til
hinzta dags og sem varð undirstaða
rómaðrar hæfni hans í starfí. Sem
brautryðjandi og stjórnandi gaf hann
fordæmi með skipulegum vinnu-
brögðum, áreiðanleika og stundvísi,
skýram og vel grunduðum fyrirmæl-
um og útskýringum auk hins ljúfa
viðmóts, sem gerði öllu samstarfs-
fólki auðvelt um vik að leita til hans,
þótt maðurinn væri í eðli sínu dulur.
Hjálpsemi hans, bóngæzka og snör
viðbrögð á degi sem nóttu voru á
orði höfð. Hann iðkaði læknislist sína
á þann veg að stétt hans var sómi að.
Fyrir hönd Læknafélags Akur-
eyrar vott ég aðstandendum þessa
gengna drengskaparmanns hina
dýpstu samúð.
Pétur Pétursson.
Hann Baldur er dáinn.
Þrátt fyrir að við vissum að hveiju
stefndi, var tilkynningin sár. Það var
ótrúlegt hve fljótt hann var tekinn
frá okkur. Hann sem ætlaði að fara
að njóta lífsins, eins og hann sagði.
Baldur haðfí starfað sem yfírlækn-
ir á Barnadeild FSA í rúm þijátíu
ár, en hætti þegar aldursmarki var
náð um síðastliðin áramót, fáa gran-
aði að tími hans væri kominn svo
unglegur og hress sem hann var.
Fáir voru þeir dagar á starfsferlinum
sem hann ekki mætti til starfa og
oft var vinnutíminn langur og álagið
mikið. En þegar starfsdegi var að
ljúka í desember síðastliðnum kom
kallið, sem við sem með honum störf-
uðum áttum svo erfitt með að trúa,
veikindi greindust sem síðar kom í
ljós að vora ólæknanleg. Að maður
sem ekki hafði kennt sér meins fengi
slík skilaboð og síðan tólf dögum
seinna staðfestingu á því að ekkert
væri hægt að gera, fannst okkur
öllum óskiljanlegt.
Hver var ástæðan? Því fáum við
ekki svarað nú.
Mörgum hefur Baldur sinnt af
fádæma miklum áhuga, þekking
hans og víðsýni var mikil, fómfýsi
og kærleikur til náungans takmarka-
laus. Við sem með honum störfuðum
vissum alltaf að ef eitthvað bjátaði
á hjá okkur persónulega eða í störf-
um okkar gátum við leitað til hans,
engum treystum við betur. Hann var
okkur góð fyrirmynd og mikill kenn-
ari. Fyrir það allt þökkum við nú
þegar leiðir skilja svo allt of fljótt,
en fullviss erum við að störfin hans
hafa markað djúp spor.
Eiginkonu og fjölskyldu hans allri
sendum við okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum Guð að blessa
framtíð þeirra.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V.Briem)
F.h. hjúkrunarliðs Barnadeildar
FSA,
Valgerður Valgarðsdóttir.
Guðrún Daða-
dóttir — Minning
Fædd 17. maí 1898
Dáin 1. apríl 1994
Elskuleg frænka mín, Guðrún
Daðadóttir, er látin. Hún var dóttir
hjónanna Daða Daníelssonar bónda
og Maríu Andrésdóttur, sem
bjuggu á Dröngum á Skógarströnd.
Var hún tólfta barn þeirra af
fimmtán. Þijú dóu í bernsku en
tólf komust upp.
Guðrúnu kynntist ég fyrir u.þ.b.
13 árum, er hún kom í heimsókn
til foreldra minna og færði föður
mínum dýrindins heklaðan dúk sem
hún hafði sjálf gert og prýðir enn
stofuborðið. Hún og allt hennar
fólk í kvenlegg var ákaflega flinkt
hannyrðafólk, og er varla fyrir sér-
Iræðinga á þessu sviði að leika
eftir handavinnu þessarar kynslóð-
ar, sem óðum er nú að hverfa.
Fyrir nokkrum árum, voru mér
sendir tveir heklaðir dúkar að gjöf
eftir móður hennar Maríu. Annar,
sem er úr lopa, er svo listilega
gerður, að enginn, sem ég hef spurt
kann að gera þetta mynstur, sem
hann er gerður úr, og hafa þó nokk-
uð margir flinkir verið spurðir.
Guðrún var ákaflega skemmtileg
og fróð kona og blátt áfram. Tein-
rétt í baki og bar sig tígullega.
Áður hafði ég kynnzt systkinum
hennar Ólafi, bólstrara fjölskyld-
unnar í 50 ár, Guðmundi, bróður
hans, fv. bónda að Ósi við Breiða-
fjörð og systrunum Ingibjörgu og
Theódóru, sem lengi var búsett í
Elliðaey á Breiðafirði en Ingibjörg
búsett í Stykkishólmi. Allt var þetta
afar elskulegt fólk og glæsilegt og
hafsjór af fróðleik og ættfræði.
Guðrún ólst upp hjá frænku sinni
frú Ásthildi Thorsteinsson á Bíldu-
dal, þar til sú fjölskylda flutti til
Danmerkur. Þá ólst Guðrún upp
hjá Finnboga Arndal, kennara og
fjölskyldu hans. Ásthildur var
bamabarn Einars Ólafssonar
bónda í Skáleyjum á Breiðafirði,
en langamma Guðrúnar og nafna,
Guðrún í Miðbæ, var einstök gæða-
kona, sem bjó í Flatey, var föður-
systir Ásthildar, en faðir hennar
var sr. Guðmundur Einarsson á
Breiðabólstað á Skógarströnd.
Guðrún var systurdóttir langömmu
minnar, Herdísar Andrésdóttur
skáldkonu.
Guðrún gerðist kaupakona í Við-
ey en árið 1925 giftist hún Pétri
Eyvindssyni, trésmið, syni hjón-
anna Eyvindar Björnssonar og Jón-
ínu Jónsdóttur, sem þá bjuggu á
Stóru-Drageyri í Skorradal. Þegar
Pétur er á öðru ári missir hann
móður sína og er komið í fóstur
að Grafarholti í Mósfellssveit til
föðurbróður síns Björns Bjarnason-
ar, sem var albróðir föður hans,
enda þótt þeir beygðu föðurnafn
sitt á mismunandi hátt, og konu
hans Kristrúnar Eyjólfsdóttur, þar
sem hann ólst upp. Pétur var um-
hyggjusamur heimilisfaðir og kona
hans mikilhæf húsmóðir, og fljótt
varð heimilið miðstöð ættingja og
vina, sem þar fengu að gista eða
vera í lengri eða skemmri tíma.
Börn þeirra hjóna urðu þijú: Jón-
ína, skrifstofustúlka, Bjöm Eyvind-
ur, verkfræðingur og Valdimar
Már, stýrimaður og húsasmíða-
meistari. Barnabömin eru sjö. Börn
Guðrúnar og tengdaböm báru öll
mikla umhyggju fyrir henni.
Guðrún bauð okkur mæðgum í
níræðisafmælið sitt, sem haldið var
með miklum myndarbrag að Holli-
day Inri, að viðstöddum miklu fjöl-
menni. Þar bar hún sig eins og
drottning og gekk á milli borða til
að heilsa upp á mannskapinn. Veð-
ur var hið fegursta og gátu gestir
setið úti á svölum, þeir sem það
vildu, enda næstum því logn. Þá
man ég, að ég hugsaði með sjálfri
mér, að það væri ekki á færi nema
úrvalsmanna eins og Guðrúnar að
komast í gegnum lífíð eins og hún.
En enginn má skilja orð mín svo,
að lífíð hafí alltaf verið dans á rós-
um hjá henni. Hún missti mann
sinn árið 1951 og hafði verið ekkja
í 43 ár. Eftir að Guðrún missti
mann sinn vann hún sem virt og
vel látin matráðskona hjá Almenn-
um tryggingum í 27 ár.
Ekki get ég stillt mig um að
láta eina sögu fylgja hér af Maríu
móður Guðrúnar. Þegar ég tók
barnapróf 1946 úr Landakoti, fór
skólinn í þriggja daga ferð í Stykk-
ishólm. Faðir minn hafði lagt ríka
áherzlu á, að ég heilsaði upp á elztu
konu ættarinnar, Maríu Andrés-
dóttur, sem þá bjó hjá dóttur sinni,
Ingibjörgu og tengdasyni sínum,
Sigurði Magnússyni fv. hreppstjóra
í góðu yfirlæti. Ég fékk leyfi hjá
kennara mínum til heimsóknarinn-
ar. Ekki fékkst annar tími en að
fara árdegis og fannst mér það
óheppilegt að heimsækja svo gamla
konu á þeim tíma. Jæja, ég er kom-
in á staðinn um tíuleytið um morg-
uninn, en ég hitti Maríu ekki þá.
Hún, sem þá var 87 ára gömul,
var að bera út Kvennablaðið Hlín,
svo ég sá hana ekki í þetta skiptið.
Ég hitti hana ekki fyrr en 15 árum
seinna, þá 102 ára gamla, þegar
ég fór í Stykkishólm með foreldrum
mínum. Þá hafði María á orði, að
mamma hefði ekkert verið orðin
gráhærð, þegar hún hefði heimsótt
hana í Hruna, svo að mömmu varð
að orði, hvort hún hefði nokkurn
tímann komið þar í heimsókn. Þá
snarast María fram og kemur að
vörmu spori aftur með mynd í hend-
inni, þar sem hún er á myndinni
ásamt mömmu og pabba á hlaðinu
í Hruna, og segir við mömmu:
„Manstu núna, þegar ég kom í
heimsókn?" Móður minni til máls-
bóta, sem var yfirleitt mjög minnis-
góð, má segja það, að mjög gest-
kvæmt var í Hruna, og man ég sem
barn eftir gestum, dag eftir dag,
bæði skyldum og óskyldum, svo
það var ekkert skrýtið, þótt hún
myndi ekki eftir heimsókn Maríu.
Guðrún var yfirleitt heilsuhraust
nema síðustu tvö árin. Þá var hún
veik. Hún var minnisstæður per-
sónuleiki og merkileg kona, sem
menntað hafði sig sjálf, vildi öllum
vel, var ákaflega orðvör en sagði
meiningu sína beint út, ef því var
að skipta. Það var alltaf yndislegt
að vera í návist hennar, því það
streymdi svo gott frá henni. Við
systur kveðjum frænku okkar með
virðingu og þökk og óskum henni
alls góðs á nýjum brautum.
Elín K. Thorarensen.
Í.slaiKlsko.stur
y lJnicv/i
Verð frá 900 kr. á mann
(il 48 4Í)
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960