Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 39
39
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 24. APRIL 1994
ATVINNUAUGl YSINGAR
Organisti
Organista - söngstjóra vantar að Egilsstaða-
kirkju ásamt Vallarnes- og Þingmúlakirkjum
frá 1. september 1994.
Umsóknarfrestur til 15. júní 1994.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til formanns
sóknarnefndar Egilsstaðasóknar.
Ástráður Magnússon,
Hörgsási 4,
700 Egilsstöðum.
Sími 97-11515.
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra
Svæðisskrifstofan, sem rekur margháttaða
þjónustu við fatlaða, auglýsir eftirtaldar stöð-
ur lausar til umsóknar og er umsóknarfrest-
ur til 4. maí nk.:
Staða sálfræðings
Hlutverk sálfræðings er að sinna sérhæfðum
viðfangsefnum s.s. sálfræðilegum athugun-
um og prófunum, ráðgjöf til starfsmanna og
aðstandenda, viðtölum og ráðgjöf til skjól-
stæðinga. Hann er til ráðgjafar um meðferð-
armál og tekur þátt í að skipuleggja slíka
vinnu við aðra starfsmenn. Hann veitir starfs-
fólki handleiðslu og fær til úrvinnslu og at-
hugunar ýmis önnur mál er snerta hans sér-
svið og yfirmaður hans kann að fela honum.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1994 eða eftir
nánara samkomulagi.
2 stöður ráðgjafa
Hlutverk ráðgjafa er að veita stofnunum
Svæðisskrifstofunnar s.s. sambýlum al-
menna faglega ráðgjöf og vera tengiliður
milli skrifstofunnar og viðkomandi stofnunar.
Sú ráðgjöf snertir m.a. faglegt skipulag starf-
seminnar, aðstoð í málefnum einstaklinga
o.fl. Umsækjendur skulu hafa menntun
þroskaþjálfa eða aðra þá menntun á félags-
eða uppeldissviði sem nýtist í starfinu.
Stöðurnar veitast frá 1. júní nk. eða síðar
eftir samkomulagi.
Forstöðumaður
sambýlis
Staðan er við sambýli fyrir geðfatlaða sem
rekið er í nánu faglegu samstarfi við geð-
deild FSA. Forstöðumaðurinn ber ábyrgð á
faglegum og fjárhagslegum rekstri sambýlis-
ins í samræmi við starfslýsingu og verklags-
reglur sem fyrir stöðuna gilda. Umsækjendur
skulu hafa menntun á félags- eða uppeldis-
sviði og/eða reynslu af starfi með geðfötluðum.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1994.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast til starfa á dagdeild fyrir
þroskahefta. Deildin er rekin í húsnæði vist-
heimilisins Sólborgar. Sjúkraþjálfara bjóðast
afnot af þeirri aðstöðu, sem þar er að finna
s.s. sundlaug o.fl., fyrir eigin rekstur.
Staðan er laus nú þegar.
Skriflegar umsóknir um stöður þessar ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Stórholti 1, 603 Akureyri. Þar eru einnig
veittar nánari upplýsingar og í síma skrifstof-
unnar sem er 96-26960.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
á Norðurlandi eystra.
Atvinnutækifæri
Ha-Ra - íslandi
Við viljum bæta við nokkrum áreiðanlegum
söluaðilum til heimakynningar á Ha-Ra vör-
unum. Ha-Ra eru vistvænar vörur, ætlaðar
til þrifa jafnt úti sem inni - heildarlausn.
Ha-Ra er leiðandi fyrirtæki í heiminum á
Dessu sviði, marg verðlaunað, nokkuð sem
viðskiptavinirnir átta sig á þegar þeir gera
samanburð. Söluaðilinn eignast með tíman-
um viðskiptavinahóp, sem verslar aftur og
aftur. Á landsbyggðinni kemur aðeins einn
til greina á hverjum stað.
Upplýsingar gefur Kristín í síma 676869 í
dag, sunnudag, frá kl. 13-16, og á mánudag
frá 9-16.
Alþjóða verslunarfélagið,
Skútuvogi 11,
104 Reykjavík.
FJÖLBRAUTASKOLINN VIÐ ARMULA
ÁRMÚLA 12-108 REYKJAVÍK - SÍMI 814022
Kennarar
Kennara vantar í eftirtaldar greinar:
Viðskiptagreinar, tölvufræði, líffræði og
lyfjafræði.
Auk þess vantar stundakennara í ýmsar
sérgreinar heilbrigðisbrauta, t.d. lyfjafræði,
líkamsbeitingu, tann- og munnsjúkdóma-
fræði o.fl.
Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi
og skal senda umsóknir til skólameistara,
sem gefur allar nánari upplýsingar,
sími 814022.
Skólameistari.
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Markaðsfulltrúi
Vegna aukinna umsvifa óska REKSTRAR-
VÖRUR eftir að ráða markaðsfulltrúa/hrein-
lætisráðgjafa.
Markaðsfulltrúa er fyrst og fremst ætlað
að sinna þjónustu við viðskiptavini í matvæla-
iðnaði. Hann veitir ráðgjöf varðandi val á
hreinlætisvörum og tækjum ásamt því að
leiðbeina um notkun þeirra. Einnig annast
hann gerð sölu- og hreinlætisáætlana, til-
boðsgerð auk annarra verkefna.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
menntaðir á sviði efnafræði, matvælafræði
og/eða fisktækni. Reynsla af matvælaiðn er
æskileg, tæknileg þekking nauðsynleg.
Áhersla er lögð á skipuleg og sjálfstæð
vinnubrögð, þjónustulipurð og þægilega
framkomu.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí nk.
Ráðning verður sem fyrst.
Rekstrarvörur er sérhæft verslunar- og fram-
leiðslufyrirtæki er þjónustar stofnanir og fyrir-
tæki um land allt á sviði hreinlætis- og rekstrar-
vöru. Markmið fyrirtækisins er að sinna þörfum
viðskiptavina fyrir almennar rekstrarvörur
ásamt tengdri þjónustu og ráðgjöf.
Vinsamlega athugið að umsóknareyðublöð
og allar nánari upplýsingar eru eingöngu
veittar hjá Ráðningarþjónustu Lögþings frá
kl. 9-15.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
j* f* \ f~ \ í % i* .\
l f W M
- -* -■ a m —Ji
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hœð, 105 Reykjavík
Simi 91-628488
Rannsóknarstofa
Óskum eftir að ráða rannsóknarmann til
starfa á rannsóknarstofu hjá traustu iðnfyrir-
tæki í Reykjavík.
Starfssvið:
1. Almennt gæðaeftirlit með framleiðsluvör-
um fyrirtækisins.
2. Örveruræktun.
3. Fylgjast með hreinlæti og þrifum.
Innkaup.
Við leitum að meinatækni, matvælafræð-
ingi, efnafræðingi eða manni með efnafræði-
þekkingu og reynslu af svipuðu starfssviði.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Rannsóknarstofa" fyrir 1. maí nk.
Hasva ngurhf
Skeifunni 19 1 Reykjavík 1 Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
KVENNADEILD
Sérfræðingur
Starf sérfræðings (100%) við kvennadeild
Landspítalans er laust til umsóknar. Starfs-
svið er fyrst og fremst bundið við glasafrjóvg-
unardeild og kvenlækningar. Sérmenntun í
fæðinga- og kvensjúkdómafræði og á ofan-
greindum tveimur sviðum er nauðsynleg.
Starfið veitist frá 1. júlí 1994 og umsóknar-
frestur er til 1. júní 1994. Nánari upplýsingar
veita Reynir Tómas Geirsson, prófessor og
Jón Hilmar Alfreðsson, yfirlæknir.
Umsóknir, á þar til gert eyðublað ásamt yfir-
liti um menntun og starfsferil einkum m.t.t.
kennslu og rannsóknareynslu á því sviði sem
starfið varðar, skulu sendar stjórnarnefnd
Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31.
Ljósmæður
Vegna opnunar Fæðingarheimilis Reykjavík-
ur í maí eru lausar stöður Ijósmæðra. Um
er að ræða fæðingar- og sængurleguþjón-
ustu fyrir konur með eðlilega meðgöngu að
baki. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið
störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Elínborg Jónsdóttir,
yfirljósmóðir, s. 602060 eða 601000 og Ólöf
Ásta Ólafsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 601195 eða 601000.
GEÐDEILD
Félagsráðgjafi óskast til starfa á geðdeild
landspítalans, skor 2. Um er að ræða afleys-
ingastarf í ca 1 ár. Starfið felst í vinnu á
móttökudeild, göngudeild og vernduðum
heimilum. Æskilegt er að viðkomandi hafi
auk starfsreynslu, menntun og þjálfun í fjöl-
skyldumeðferð.
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Guð-
mundsdóttir, yfirfélagsráðgjafi, í síma
601860.
Umsóknir sendist Sigurrós Sigurðardóttur,
yfirfélagsráðgjafa, geðdeild Landspítalans,
fyrir 16. maí 1994.
RIKISSPIT AL AR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspitala er helguð þjónustu viö almenning og við höfum
ávalit gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.