Morgunblaðið - 09.06.1994, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
128. TBL. 82. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Styður að-
ild að ESB
Stúdent við Vínarháskóla lýsir
stuðningi við aðild að Evrópusam-
bandinu sveipaður fána þess með
mynd af „Hetjunni frá Brussel",
Alois Mock, utanríkisráðherra
Austurríkis. Þar í landi verður á
sunnudaginn gengið til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðild að ESB.
■ Úrslitin/14
Major ver
köttinn
London. The Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, neyddist í gær til að bera blak
af heimiiiskettinum í Downingstræti
10, Humphrey, sem grunaður er um
að vera valdur að dauða nokkurra
þrastarunga. Sagði Major ásakan-
irnar afar óréttmætar, þrestirnir
væru vissulega dauðir, en af eðlileg-
um orsökum. „Ég fullyrði að Hump-
hrey er enginn fjöldamorðingi,"
sagði forsætisráðherrann.
Humphrev hefur einnig verið sak-
aður um að eltast við endur í St.
James Park, nærri heimili sínu.
Pierce Brosnan
Fallist á vopnahlé í
Bosníu í einn mánuð
Sar^jevo. Reuter.
STRÍÐANDI fylkingar í Bosníu komust í gær að samkomulagi um eins
mánaðar vopnahlé frá og með föstudegi, svo að Sameinuðu þjóðunum
(SÞ) gefist ráðrúm til að reyna til þrautar að semja um frið. Sagði
Yasushi Akashi, sérlegur sendifulltrúi SÞ að um væri að ræða fyrsta
skrefið í átt að því að stöðva með öllu bardaga í Bosníu-Herzegóvínu
en frekari viðræður hefjast á næstu dögum. A sama tíma háðu múslim-
ar og Bosníu-Serbar harða bardaga um birgðaleiðir í norðurhluta landsins.
Kínverjar andvíg-
ir refsiaðger ðum
Peking. New York. Reuter.
KÍNVERJAR lýstu sig í gær and-
víga refsiaðgerðum gegn stjórn-
völdum í Pyongyang vegna deilunn-
ar um eftirlit með kjarnorkuverum
í Norður-Kóreu.
Qian Qichen utanríkisráðherra
Kína sagði að refsiaðgerðir af hálfu
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) myndu
einungis virka sem olía á eld.
Stjórnarerindrekar meta yfirlýsing-
una sem svo að í bráð séu litlar lík-
ur á stefnubreytingu af hálfu Kín-
verja sem hafa neitunarvald í ör-
yggisráði SÞ. Þá sagði Jian Zemin
forseti Kína í gær það vera ófrávíkj-
anlega stefnu Kínverja að þróa og
efla vináttu við „blóðbræður“ sína
í Norður-Kóreu.
Kínverjar sökuðu Bandaríkja-
menn um tvöfeldni í mannréttinda-
málum í gær og sögðu að kínversk-
ir fangar, konur og fátæklingar
nytu jafnvel meiri réttinda og betri
kjara í Kína en Bandaríkjunum.
Samninginn undirrituðu fulltrú-
ar Bosníu-Serba og sambandsríkis
Króata og múslima en þeir hittust
hins vegar aldrei á meðan sex
daga samningalotunni stóð og
varð Akashi að færa samnings-
drög á milli samningamanna sem
voru í sitt hvoru herberginu. Um
er að ræða fyrsta heildarvopna-
hléssamning sem stríðandi fylk-
ingar hafa undirritað í Bosníu.
Hann er hins vegar langt frá því
sem Akashi gerði sér vonir um,
en það var fjögurra mánaða
vopnahlé. Viðurkenndi hann að sú
von hafi ekki verið raunhæf.
Vilja ekki festa land-
vinninga í sessi
Múslimar og Króatar hafa verið
andvígir löngu vopnahléi, þar sem
það myndi mögulega festa í sessi
landvinninga Serba í Bosníu.
Bandaríkjamenn og Rússar vonast
til þess að stríðsaðilar samþykki
friðaráætlun þar sem gert er ráð
fyrir að Serbar fái 49% landssvæð-
is í Bosníu.
Þá úrskurðaði dómstóllinn að
bresk stjórnvöld hefðu ekki staðið
við þær skuldbindingar sínar sam-
kvæmt lögum ESB að tryggja rétt
starfsmanna í þeim fyrirtækjum þar
sem skipt væri um eigendur. Ekki
væri tryggt í lögum að ráðgast
væri við fulltrúa starfsmanna þegar
einka- eða ríkisrekin fyrirtæki
skiptu um eigendur eða störfum
væri fækkað.
Breska stjórnin sagðist í gær
myndu meta áhrif dómsins á rétt
starfsmanna í fyrirtækjum sem
hefðu verið einkavædd en benti á
að bætt hefði verið úr mörgum
þeirra atriða sem dómstóllinn hefði
fundið að með lagasetningu í fyrra.
Bresk verkalýðsfélög telja að
úrskurður dómstólsins leiði til þess
að allt að ein milljón starfsmanna
ríkisfyrirtækja sem hafa verið
einkavædd, kunni að krefjast bóta.
hinn nýi Bond
London. Reuter.
ÍRSKI leikarinn Pi-
erce Brosnan mun
fara með hlutverk
njósnarans James
Bond í næstu kvik-
mynd um kappann,
sem er sú sautjánda
í röðinni og nefnist
Gullna augað (Gold- Brosnan
en Eye). Þetta var
tilkynnt á blaðamannafundi í
gærdag. Brosnan er 41 árs gam-
all og hefur áður verið boðið að
leika hlutverk leyniþjónustu-
mannsins 007, en þurfti að hafna
því tilboði vegna þess að hann
var samningsbund-
inn. Breskir fjölmiðl-
ar höfðu flestir veðj-
að á að Brosnan hlyti
hlutverkið, svo valið
kom fáum á óvart.
Myndin verður
tekin í Pétursborg, í
Karíbahafinu, Mex-
íkó og Monte Carlo
en handritið skrifar Michael
France, handritshöfundur
„Cliffhanger“. Höfuðandstæð-
ingur James Bonds að þessu
sinni verður breskur vopnasali,
Trevelyan að nafni.
Krefjast starfsmenn bóta?
Tútsar leita
liðsauka
hjá flótta-
mönnum
ÚTSENDARAR uppreisnar-
manna Þjóðernisfylkingar Rú-
anda hafa að undanförnu reynt
að efla hersveitir sínar í stríðinu
við stjórnarherinn. Hefur hund-
ruða manna liðsauki verið sóttur
í flóttamannabúðir í grannríkinu
Búrúndí.
Starfsmenn hjálparstofnana
hafa staðfest að undanfarnar vik-
ur hafi rútur á vegum upp-
reisnarmanna komið daglega í
flóttamannabúðirnar og snúið til
baka fullar af karlmönnum úr
röðum tútsa. Eru þeir fluttir til
héraðsins Kirundo í Rúanda sem
er á yfirráðasvæði Þjóðernisfylk-
ingarinnar en þar hljóta þeir
þjálfun áður en þeir eru sendir
til bardaga.
Talið er að Þjóðfylkingin, sem
verið hefur á undanhaldi, freisti
þess að snúa vörn í sókn og hefna
fyrir fjöldamorð á þúsundum
tútsa í Rúanda frá því stríðið
braust út fyrir tveimur mánuðum.
Þrátt fyrir að 700 munaðar-
leysingjar hafi verið fluttir á
brott frá Rúanda undanfarna
daga hafast þúsundir enn við I
húsakynnum Rauða krossins í
borginni Butare í Rúanda en þar
var myndin tekin.
Úrskurður Evrópudómstólsins
Lög brotin á
launþegnm
Brassel^ Londom Reuter.^
EVRÓPUDÓMSTÓLLINN úrskurðaði í gær að bresk stjórnvöld
brytu lög á launþegum með því að koma í veg fyrir að þeir nytu
þeirra réttinda sem þeim bæri samkvæmt lögum Evrópusambands-
ins (ESB). Staðfestir úrskurður dómstólsins rétt starfsmanna til
þess að tjá sig um einkavæðingu, sameiningu, yfirtöku og fjöld-
auppsagnir í þeim fyrirtækjum sem þeir starfa hjá.
Úrskurðurinn gæti leitt til bóta-
krafna þeirra fjölmörgu launþega
sem misstu vinnuna við einkavæð-
ingu ríkisfyrirtækja og hafa verka-
lýðsfélög hótað því að fara í mál
við ráðherra. Viðurkenndi stjórnin
ekki réttmæti slíkra krafna.
Dómstóllinn vísar á bug þeim
rökum breskra stjómvalda að lög
ESB kveði ekki á um að í aðildar-
löndum eigi fulltrúar starfsmanna
rétt á að hafa áhrif á stjórnun fyrir-
tækja. Segir hann lög ESB miða
að því að tryggja starfsmönnum í
hinum ýmsu aðildarlöndum sama
rétt. Upplýsa verði fulltrúa starfs-
manna um fyrirhugaðar uppsagnir
og þá möguleika sem fyrir hendi
séu til að draga úr áhrifum þeirra.