Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Til leigu Dodge Dakota ferðabílar Sólstólar - sólbekkir Sólstóll kr. 4.890,- Sólbekkir frá kr. 3.470,- 5% staðgreiðsluafsláttur einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga ÚTILÍFr GLÆSIBÆ . SÍMI 812922 tffl LONGCHAMP P A R I S Fallegar leburtöskur í mörgum litum 'eomwd KRINGLUNNI, SÍMI 677230 IDAG Hlutavelta Ertu viss um að rimalarnir séu nógu sterkir Þuríður, Kolbrún og Brynja styrktu krabbmeinssjúk börn ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega og varð ágóðinn 5.000 krónur sem þær létu renna í sjóð krabbameinssjúkra barna. Andri, Gunnar og Haukur styrktu Rauða kross íslands ÞESSIR drengir héldu hlutaveltu nýlega og varð ágóðinn 855 krónur. Þeir heita Andri Erlingsson, Gunnar Harðarson og Haukur Hannesson. VELVAKANDI svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Stóll fannst SÁ SEM tapaði stól að- faranótt 23. maí sl. á Reykjanesbraut vinsam- lega hafi samband í síma 91-34090. Gullhálsmen fannst VIÐ ALASKA í Vatn- smýrinni fannst gull- hálsmen sem er hálft hjarta. Upplýsingar í síma 20631. Gæludýr brúnum og gulum lit, fannst í Laugarneshverfi sl. helgi. Kannist einhver við köttinn er hann vin- samlega beðinn að hafa samband í síma 684031. Páfagaukur fannst DÍSARPÁFAGUKUR fannst í Blesugrófinni sl. þriðjudagskvöld. Eigandi má hafa samband í síma 685337. Kettlingar ÞRÍR kettlingar, tveir gulir högnar og ein læða, fást gefins. Upplýsingar í síma 672582. Köttur á flækingi Kettlingar FJÖGURRA til fimm TVÆR níu vikna svartar mánaða hálfstálpuð læður fást gefins. Upp- læða, bröndótt í svörtum, lýsingar í síma 14843. Farsi [/Af/werf LiyisuLoki/Ád -4 3-4 UAISáUiSS/cóOC-TUAOT 01983 Faoa C«rtoonsÆ)iartx<ad by Unk>wsal Pi»m Syndta>l« Víkverji skrifar... Oft vill það bregða við, að það nægi að bregða sér rétt út fyrir borgarmörkin, til þess að upplifa það sem landsmenn utan höfuðborgarsvæðisins búa við í verðlagningu á vörum og þjónustu, sem að mati Víkveija er oft óheyri- lega há, í samanburði við það sem gengur og gerist í henni Reykja- vík. Þannig gat Víkveiji nú fyrir skömmu gert samanburð á verð- lagningu á ekki merkilegri vöru- tegund en barnaís, á tveimur stöð- um austur af Reykjavík nú fyrir skömmu og minntist þá verðsam- anburðar sem gerður var á ýmsum ísstöðum í Reykjavík hér í Morg- unblaðinu eigi alls fyrir löngu, þar sem barnaísinn kostaði á bilinu 50 krónur til 100 krónur. Víkveija er minnisstætt að tvær ísbúðir í Reykjavík voru í fararbroddi með lágt verðlag, 50 krónur, og hefur hann jafnan lagt leið sína í þær tvær búðir, þegar ísþörf barna í hans félagsskap hefur orðið brýn. xxx Fyrri stansinn sem gerður var á austurför Víkveija og ferða- langa hans var Eden í Hvera- gerði. Þar kostar barnaís í brauð- formi hvorki meira né minna en 160 krónur og 185 krónur, ef keyptur er með munaður er nefn- ist súkku- laðidýfa. Þetta fínnst Víkveija hærra verðlag en svo að þegja beri um það. Það getur vart nokkuð annað að baki búið, hjá þeim sem reka Eden, en beinlínis að okra á viðskipavinuin sínum, sem eru jú að uppistöðu til ferða- menn. Vart getur það verið ferða- þjónustu á íslandi til framdráttar, á því ári ^sem boðskapurinn er „Sækjum ísland heim“, að gera þeim sem leggja land undir fót, að greiða liðlega þrefalt hærra verð fyrir barnaísinn, en greiða þarf í Reykjavík. Ekki er flutning- skotnaðinum fyrir að fara hjá Eden sem flytur til sín Kjörís í mjúku formi, því höfuðstöðvar Kjöríss eru einmitt í Hveragerði, þannig að Eden er betur staðsett gagnvart framleiðandanum en nokkur ísbúð á Reykjavíkursvæð- inu. Fróðlegt væri að vita, hvert heildsöluverð er á ísnum frá Kjör- ís til Eden. XXX að var að vísu á leiðinni aftur til Reykjavíkur sem höfð var viðdvöl í Þrastarlundi, m.a. til þess að fullnægja barnaísþörf barna í hópnum. Þar er boðið upp á mjúk- an MS ís úr vél, og kostar barnaís- inn 110 krónur og 120 krónur með dýfunni fyrrnefndu. Þama skýtur skökku við. Að vísu er ekki löng flutningsleið á hráefninu frá MS, sé það flutt frá Selfossi í Þrastarlund, en engu að síður er hún margfalt lengri en frá Kjörís í Hveragerði til Eden í Hvera- gerði. Raunar er Þrastarlundur með þessari verðlagningu á barna- ísnum samkeppnisfær við dýrustu ísbúðimar í Reykjavík. xxx Auðvitað era þessi tvö verð- dæmi um barnaís hér í næsta nágrenni höfuðborgarinnar langt frá því að teljast til úttektar af einni eða annarri gerð, en Vík- veiji er þó þeirrar skoðunar, eftir að hafa í fyrra gert nokkurn sam- anburð á verðlagningu veitinga- húsa á Suður- og Vesturlandi, að þeir sem hafa mestra hagsmuna að gæta, að því er það varðar að auka við og glæða ferðamanna- straum um landið, ættu að fara sér hægt um gleðidyr verðlagning- arinnar, því þeir kynnu að sitja uppi með himinháa verðlagningu, en enga viðskiptavini, gæti þeir ekki að sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.