Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Yeijandi Olafs Gunnarssonar í stóra fíkniefnamálinu við málflutning Bera „höfuðpauriim“ sökum til að sleppa sjálfir Á tali Dómarar fíkniefnamálsins á tali við lögmenn í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Frá vinstri: Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sækjandi málsins, Guðjón St. Marteinsson, héraðsdómari og dómsformaður, Hjörtur O. Aðal- steinsson, héraðsdómari, Orn Clausen, hrl., verjandi eins sak- borninganna og Sigurður Tómas Magnússon, héraðsdómari. * Akæruvaldið telur að það hafí enga þýðingu í stóra fíkniefnamálinu að lög- regla hafí af vangá eytt 5,8 kg af hassi og 200 g af amfetamíni, sem áttu að vera meðal sönnunargagna í málinu. MALFLUTNINGI í stóra - fíkni- efnamálinu var framhaldið í gær, ákæruvaldið lauk máli sínu og veij- endur þriggja af sautján sakbom- ingum fiuttu sínar ræður. Ákæruvaldið telur eyðingu flkni- efnanna aðfínnsluverð mistök, en þau hafi áður verið vigtuð, ljós- mynduð og skráð nákvæmlega og hinir ákærðu tjáð sig um magnið og ekki þrætt fýrir það þótt þeir hafí síðar sammælst um að draga úr fyrri játningum. í máli Jóns Magnússonar hrl., veijanda Ólafs Gunnarssonar, svo- kallaðs höfuðpaurs hins meinta fíkniefnahrings, sem krafðist sýknu af hinum 13 ákæruatriðum á hend- ur Ólafi, kom fram hörð gagnrýni á rannsókn málsins og taldi hann að ákveðnir sakborningar hefðu sammælst um að bera umbjóðanda sinn sökum í því skyni að hljóta sjálfir vægari refsingu. Þess er krafist að þremur sakbominganna sautján, sem nú eiga aðild að þessu máli, verði m.a. refsað fyrir brot á því ákvæði almennra hegningarlaga sem leggur allt að 10 ára fangelsi við stórfelldu fíkni- efnamisferli en yfir öðmm er kraf- ist refsingar eingöngu á grundvelli laga um ávana- og fíkniefni. Jó- hannes Rúnar Jóhannsson, sækj- andi málsins, dró saman þátt þeirra þriggja þannig að í málinu væri um að ræða 13 brot ólafs Gunnarsson- ar á 18 mánaða tímabili þar sem flutt hefðu verið inn 27 kg af hassi og 4 kg af amfetamíni; 30 ára gam- all maður sem_talinn er helsti milli- göngumaður Ólafs um að koma á viðskiptunum, hafí á 12 mánaða tímabili gerst sekur um 9 brot sem varði innflutning á allt að 19,2 kg af hassi og 2,7 kg af amfetamíni sá þriðji, eitt burðardýranna, hafí á þriggja mánaða tímabili farið fjórar ferðir með allt að 7,5 kg af hassi og 1,5 kg af amfetamíni. Um sam- felld brot væri að ræða þar sem undirbúningur næstu ferðar hefði hafíst um leið og einni lauk. Vægustu refsingar krafist Engar málsbætur Sækjandinn sagði að Ólafur Gunnarsson hefði verið frumkvöðull og skipuleggjandi innflutnings á miklu magni fíkniefna auk þess sem hann væri ákærður sérstaklega fyr- ir stórfelld skjalafals og þjófnaðar- brot. Um þrauthugsuð brot væri að ræða sem framin hefðu verið með sterkum ásetningi á löngum tíma í von um hagnað. Allt stuðlaði að refsiþyngingu en Ólafur ætti engar málsbætur. Neitar 9 af 13 ákærum og segist enginn höfuðpaur Jón Magnússon hrl., veijandi Ólafs Gunnarssonar, krafðist þess að skjólstæðingur siiin yrði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa og sýknaður alfarið af 9 af 13 ákæruliðum. Hann neitaði öllum sakargiftum sem lúti að því að hann hafí verið frumkvöðull sem skipu- lagt hafí og haft frum- kvæði að kaupum og inn- flutningi á fíkniefnum en játi aðild í félagi við aðra að nokkrum tilvikum að því að leggja fram fé til kaupa á fíkniefnum. Jón sagði að jafnvel þótt Ólafur yrði sakfelldur fyrir allar ávirðingar yrði fjórðungur hassins og fímmt- ungur amfetamínsins í málinu hon- um alls óviðkomandi, á því bæru ábyrgð aðilar sem tengdust honum ekki með neinum hætti og sú stað- reynd gerði lítið úr því mikla for- ystuhlutverki sem ákæruvald og lögregla ætli Ólafi í ímynduðum fíkniefnahring. Hann sagði að Ólafur hefði aldr- ei keypt fíkniefni. Ef undan væru skildar þær sakargiftir, sem stydd- ust aðeins við framburð manna, sem sjálfir væru berir að innflutningi fíkniefna, að Ólafur væri foringi fíkniefnahrings, . stæði næsta lítið eftir af hinum alvarlegu ákærum gegn honum. Verðmæti 87,5 milljónir Þá sagði Jón Magnússon að ef ákæran fengi staðist hefði verið um mjög umfangsmikil viðskipti að ræða og miðað við upplýsingar lög- reglu um markaðsverð fíkniefna hefði markaðsverð fíkniefna í mál- inu verið 87,5 milljónir króna og verðmæti þess áætlaða magns sem lögregla hefði ekki lagt hald á væri 59,3 milljónir króna. Engin merki væru hins vegar um að Ólafur Gunnarsson hefði haft mikla pen- inga milli handa heldur þvert á móti. Jón hafnaði yfírlýsingum ákæru- valds um að ganga bæri út frá því að lögreglumenn hefðu farið að reglum við yfirheyrslur og sagði að fíkniefnalögreglan lifði í hörðum heimi og ekki væri rétt að lýsa þessum yfirheyrslum eins og og sunnudagaskóladrengir hefðu verið að ræða við kórdrengi. Ólafur hefði iðulega verið yfírheyrður að nætur- lagi, jafnvel undir áhrifum svefn- lyfja og gefið í skyn við hann, að bæri hann rétt, yrði hann e.t.v. lát- inn laus eða a.m.k. veittar ívilnanir í gæsluvarðhaldinu. Þá hefði lögregla leitt áfram framburð þeirra manna sem beri vitni um frumkvæði Ólafs að fíkni- efnamisferli með því að gera þeim grein fyrir að ella yrði þeim sjálfum ætlaður sá sess við rannsóknina. Rannsóknin hefði tekið á sig þá mynd að leiða hefði átt Ólaf í gildru, með hlerunum sem viðmælandi hans meðan á þeim stóð, maður sem fram að því var grunaður skipu- leggjandi innflutningsins, vissi af að áttu sér stað. Ýmsir þeirra sem bæru Ólaf sök- um hefðu hist og haft tækifæri til að ræða málið og samræma fram- burð sinn gegn Ólafi, sem ekki hefði átt kost á slíku, sitjandi mánuðum saman í gæsluvarðhaldi við ómann- úðlegar aðstæður í Síðumúlafang- elsi. Hann sagði að í stuttum yfír- heyrslum yfír lögreglumönnum fyr- ir dómum hefði komið fram margs konar misræmi og væri því ekki að undra þótt sitthvað rækist á annars horn í öllum þeim skýrslum sem teknar hefðu verið hjá lögreglu og fyrir dómi af Ólafi Gunnarssyni. Jón Magnússon krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa yfír umbjóð- anda sínum og sagði að við ákvörð- un hennar ætti að taka tillit til ómannúðlegs gæsluvarðhalds og óvæginnar fjölmiðlaumfjöllunar. Viðstadddir tónleika Kristjáns ►FJÖLDA erlendra gesta hefur verið boðið til landsins vegna þjóðhátíðar ál>ingvöHum 17. júní. Þeirra á meðal eru allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna, auk fulltrúa ríkisstjórna Fær- eyja, Græniands, Álandseyja, Stóra-Bretlands, Frakklands, Bandaríkjanna, Kanada, Þýska- lands, Rússlands og Kína. Gestirnir koma til landsins 16. júní og mun forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, taka á móti öllum þjóðhöfðingjum eftir því sem kostur er, en þeir lenda ýmist í Keflavík eða á Reykjavík- urflugvelli. Um kvöldið hlýða þeir Lýðveldisafmæli 17. júní Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Peðítafli Hilmar Ingimundarson hrl., er veijandi þrítugs manns sem sakað- ur er um aðild að níu smyglferðum þar ákæruvaldið telur að flutt hafi verið inn 19,2 kg af hassi og 2,7 kg af amfetamíni. Hilmar krefst lægstu refsingar, skilorðsbundinnar að öllu eða að hluta, sagði að eins og ákæran væri úr garði gerð yrði hvorki umbjóðandi sinn né aðrir sakfelldir sem frumkvöðlar eða skipulagningu jafnvel þótt Ólafur yrði sýknaður heldur legði ákæru- valdið málið þannig upp að þeir hefðu verið peð í tafli Olafs Gunn- arssonar. Hilmar sagði skjólstæðing sinn hafa gengist við sínum brotum í öllum aðalatriðum, aðeins gert ágreining við ákæru hvað varðar magn amfetamíns í nokkrum ferð- um enda væri það oft rúmt og óljóst tilgreint í ákærunni. Hilmar sagði að án hreinskilningslegra játninga í skýrslum umbjóðanda síns, allt frá fyrstu lögregluskýrslum, hefði sönnunarfærsla ákæruvalds í mál- inu, ekki síst gagnvart Ólafí Gunn- arssyni, verið erfið og nánast útilok- uð. Menn ættu að njóta þess við ákvörðun refsingar að játa sín brot af hreinskilni. á tónleika Kristjáns Jóhannssonar 1 Laugardalshöll og að því búnu þiggja þjóðhöfðingjarnir kvöld- verð í boði forseta Islands. Full- trúar ríkissljómanna sem fyir er getið munu borða í Perlunni í boði forsætisráðherra. Umferð til og frá Þingvöllum ► AKSTURSLEIÐIR verða þijár til Þingvalla 17. júní næstkom- andi, yfir Mosfellsheiði að vestan og gegnum Grímsnes og yfir Lyngdalsheiði að austan. Nesja- vallaleið og Grafningi verður lokað fyrir almennri og ekki er búist við að Uxahryggir eða Kaldidalur verði akstursfærir. Ráð er fyrir gert að 12.000 einkabifreiðar geti farið yfir Mosfellsheiði frá 8-11 fyrir há- degi og verða báðar akreinar nýttar í austurátt frá Þingvalla- afleggjara. Verður önnur þeirra ætluð langferðabifreiðum sem verða í förum frá klukkan 7 frá Reykjavík og frá klukkan 15.30 frá Þingvöllum í bæinn. Farið verður af stað frá Mjódd í Breið- holti og Umferðarmiðstöðinni við Kalkofnsveg. Útbúin verða bif- reiðarstæði fyrir einkabifreiðar á báðum stöðum og er fargjald í rúturnar 400 fyrir fullorðna fram og tilbaka. Þjóðhöfðingjar ►ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Norður- landa sem hingað koma eru; hennar hátign Margrét Þórhild- ur Danadrottning og hans kon- unglega tign Henrik prins, þá hans hátign Karl XVI. Gústaf Svíakonungur og hennar hátign Silvía drottning, þvínæst hans hátign Haraldur V. Noregskon- ungur og hennar hátign Sonja drottning og loks forseti Finn- lands Martti Athissari og frú Eeva Athissari. Kínverskur sendiherra FYRIR hönd Álandseyja koma Ragnar Erlandsson og frú. Frá Danmörku kemur Niels Helveg Petersen og kona hans frú Kirst- en Lee. Fyrir hönd færeyskra stjórnvalda kemur frú Maríta Petersen lögmaður ásamt manni sínum Kára Petersen. Frá Græn- landi kemur formaður lands- sljórnarinnar, Lars Emil Johans- en, ásamt konu sinni frú Ivalo Egede. Fyrir hönd franskra stjómvalda kemur Lucette Mích- aux-Chevry ráðherra mannrétt- indamála og frá Kína kemur Zheng Yaowen sendiherra og kona hans frú Bi Xiying. Óvíst um fulltrúa Bandaríkjanna ►EKKI er ljóst hveijir koma fyrir hönd stjórnvalda í Banda- ríkjunum, Kanada og Rússlandi, en það ætti að skýrast í lok vik- unnar að sögn Sveins Björnsson- ar forsetaritara. Fyrir hönd Bretlands kemur David Heathco- at-Amory, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti, sem meðal annars hefur með málefni Nato- ríkja að gera. Fulltrúi þýskra stjórnvalda er Ursula Seiler- Albring aðstoðarráðherra í utan- ríkisráðuneyti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.