Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Dýraglens HVAPEWJ GEEA HéR Ferdinand Smáfólk h'ou're úsing up ALL THE 5UN e/t Færðu þig-... ég er að Ég kem ekki við þig. Þú notar alla sólina! rfeyna að fá sólbrúnku. Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Máleraðlinni Frá Hjálmari Þ. Guðjónssyni Blön- dal ogJóhanni Davíð ísakssyni: I. MARGAR ógnir hafa steðjað að ís- lenskri tungu frá fornu fari sakir erlendra svo og annarra áhrifa og virðist nú sem nýr skaðvaldur hafi litið dagsins ljós. Syndaflóð nýyrða er komið á það stig að grípa verður í taumana hið snarasta svo varanleg- ur skaði hljótist ekki af. Sýnt þykir að umræðan um íslensk nýyrði hafí opnað áhuga almennings á hinum ýmsu gildum og möguleikum sem íslenskan býr yfir, en sitt sýnist hverjum. Hin fjölmörgu torskildu nýyrði sem komið hafa fram hafa án efa orkað tvímælis. Hversu langt hyggjast íslenskufræðingar ganga í torveldingu sinni á almennum skiln- ingi íslenskrar tungu? Mál er að linni. II. Eitt er þjóðarbrot í fjallahéruðum N-Spánar er Baskar nefnist. Tungu- mál þessa þjóðarbrots er sérstætt og gætir lítt í því áhrifa annarra tungu- mála. Þetta sögufræga þjóðarbrot hefur gjörsamlega einangrast og stendur það jafnfætis forfeðrum fyr- ir 1.000 árum í þjóðfélagslegum þroska. Svo fer einnig um okkur .ef ekki er haldið rétt á spöðunum. Nauðsynlegt er að hvert tungumál lagi sig að aðstæðum og taki við nýjungum sem án efa streyma inn í landið með tilurð opnunar Evrópu á viðskipta- og menningarlegum grundvelli. Tækninni fleygir nú fram á hinum ólíkustu sviðum sem orsakar eftirspurn eftir nýjum nöfnum á nýj- um hlutum/tækjum. Má í þeim flokki nefna farsíma, geislaspilara, af- ruglara, ljósritunarvél o.fl. o.fl. ís- lenskufræðingum hefur tekist að finna fjölmörg nýyrði sem aðlagast hafa íslenskunni á skömmum tíma og heppnast vel. En í stórri verk- smiðju leynast alltaf verksmiðjugall- ar. Nægir að nefna orð eins og víðóma (stereo), kvikmyndahús (bíó), myndbandstæki (video), bjúgverpill (boomerang), ballskák (billiard) og síðast en ekki síst hin fjölmörgu nýyrði um orðið telefax (símbréf, símriti, myndbréf, myndriti). Reynd- ar hafa íslenskufræðingar myndað svo mörg nýyrði um orðið að vart verður tölu á þau komið. íslenskufræðingar hafa greinilega ekkert betra að gera en að góna út í loftið og mynda samheiti erlendra og íslenskra orða er hafa skipað sér fastan sess í íslensku máli. Þeim væri nær að mynda orð sem tilfinn- anlega vantar í íslenskt mál en eru til í mörgum öðrum germönskum tungumálum. Má þar helst nefna orð eða orðasmbönd eins og „afi og amma“ (þ. Grosseltem, e. grandpar- ents), „ekki á morgun heldur hinn“ (þ. Öbérmorgen), og nánari greining ættmenna, t.d. „böm systur minnar" (þ. Nichte) o.fl. íslenskufræðingar verða að leita úrlausna á þessu máli hið snarasta. Spekingarnir hafa reyndar ekki setið auðum höndum heldur tekist að mynda mörg ágætis nýyrði, t.d. á íþróttum: ruðningur (rugby), hafnabolti (baseball), keila (bowling) o.fl. Hvað heitir golf á íslensku? Það vakti undrun okkar, undirrit- aðra, er þáttur um íslenskt mál var sýndur í sjónvarpinu nýverið, þegar starfsmaður Málræktarnefndar hafði tekið upp á því ódæði að mynda nýyrði um rótgróna orðið púsluspii. Þetta vildi hann kalla „stykkjaþraut" og ætti fólk því að „stykkja" en ekki að púsla! Sama var uppi á teningnum þegar einhver íslenskufræðingurinn vildi láta kalla sturtu „steypibað" og geisladisk „geislaplötu" og bæri því að kalla hana „GP“ sbr. enska orðið „compact disc = CD“. Þetta ér án efa stöðnun hjá spekingunum. Það kallast ekki lengur lýðræði þegar nefnd fimm manna fær öllu ráðið varðandi myndun nýrra orða en hug- myndir almennings virtar að vettugi. III. Með þessum skrifum viljum við, undirritaðir, vekja athygli á þeirri stöðnun er átt hefur sér stað í hug- myndaflugi gagnvart myndun nýrra orða í íslensku máli. Jafnframt er brýnt að almenningur geri sér grein fyrir því að tunga vor er ekki eign fárra heldur arfur sem hlúa ber að. HJÁLMAR Þ. GUÐJÓNSSON BLÖNDAL, nemi í MR og framkvæmdastjóri listasamtakanna Giggg sf. JÓHANN DAVÍÐ ÍSAKSSON, nemi í MR. í tilefni 17.júní Frá Baldri Pálmasyni: STUTT er til þjóðhátíðardags, sem er markverðari i ár heldur en oftast fyrr. Æði oft vill brenna við á þessum árstíma að talað sé um að hitt eða þetta gerist á 17. júní. Er þó marg- sinnis á liðinni tíð búið að fínna að hinni óþörfu og leiðu notkun forsetn- ingar á þessum stað, enda þótt ná- lægar þjóðir viðhafi sambærilegt orð. Þetta verður okkur ljóst, ef við hugs- um málið. Sé maður spurður, hvenær hann er fæddur, svarar hann hik- laust 1. júní, aldrei á 1. júní. Hinsveg- ar á forsetningin við, þegar talað er um að þetta eða hitt gerist á þjóðhá- tíðardaginn, rétt eins og við segjum á morgun, á jólum, á sumardaginn fyrsta. Annarrar meinloku er farið að gæta varðandi 17. júní, og þarf að koma henni fyrir kattarnef líka. Far- ið er að kalla daginn sautjándann. Aðeins einn dagur ársins hefur þá sérstöðu að bætt er ákveðnum greini við raðtöluna, svo að úr verður ígildi nafnorðs. Það er þrettándi dagur jóla, þrettándinn. Þarna er gömul málhefð og á við endadægur jóla, 6. janúar, en ekki mánaðardag. Ef nýju aðferð- inni yrði beitt, ættum við að segja „á sjöttanum"! Líkar einhveijum það? BALDURPÁLMASON, Vesturbrún 31, Reykjavík. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir tem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.