Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Þorkell Slasaðist alvarlega RUMLEGA sextug kona slasaðist alvarlega í hörðum árekstri í Hafnarfirði um kl. 10 í gærmorgun. Konan ók Trabant bíl sínum eftir Hellisgötu og í veg fyrir Bronco jeppa, sem var ekið suður Reylqavíkurveg. Við áreksturinn kastaðist konan út úr bílnum og hlaut höfuðmeiðsli og beinbrot. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði var hún ekki talin í lífshættu. Okumaður jeppans slapp ómeiddur. Könnun Félags vísindastofnunar HI Meirihluti fylgj- andi ESB-aðild TÆP 60% landsmanna telja æski- legt að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. Hlutfallið er hærra þegar spurt er hvort menn séu hlynntir aðild ef ísland stæði eitt Norðurlandanna utan ESB, því þá eru 70% fylgjandi aðiid. Þegar enn er spurt, hvort menn séu hlynntir aðild ef íslendingar næðu fram öllum meginkröfum sínum í físk- veiðimálum í samningaviðræðum við ESB, þá eru 83% fylgjandi aðild. Þetta eru niðurstöður könnunar, sem Félagsvísindastofnun Háskól- ans vann dagana 31. maí til 4. júní. Úrtakið var 1600 manns á landinu öllu, á aldrinum 18-75 ára. Svör fengust frá 1075, eða 67,2%. í könnuninni var fólk fyrst spurt hvort það teldi æskilegt eða óæski- legt að íslendingar sæktu um aðild að Evrópusambandinu. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 17% það mjög æskilegt, 42,4% frekar æski- legt, 22,4% frekar óæskilegt og 18,3% mjög óæskilegt. 59,4% töldu umsókn því frekar eða mjög æski- lega, á meðan 40,7% töldu hana frekar eða mjög óæskilega. Allt að 83% fylgjandi aðild Önnur spuming könnunarinnar var á þá leið hvort fólk væri hlynnt eða andvígt aðild að ESB ef íslend- ingar stæðu einir Norðurlanda- þjóðanna utan þess. 70% voru þá hlynnt aðild, en 30% á móti. Þegar enn var spurt um afstöðu til aðild- ar, miðað við að íslendingar næðu fram öllum sínum meginkröfum í fiskveiðimálum í samningaviðræð- um við ESB voru 82,6% hlynnt aðild, en 17,4% andvíg. Ingimimdur Sig- fússon lætur af störfum hjá Heklu Selur systkinum sínum hlut sinn 1 fyrirtækinu INGIMUNDUR Sigfússon, stjórnar- formaður Heklu hf., hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu eftir nær 30 ára starf og selt hlutafé sitt til systkina sinna. Hann varð forstjóri Heklu hf. árið 1967 en gerðist stjóm- arformaður árið 1990. „Ég hef unnið hjá fyrirtækinu í tæplega 30 ár og mér finnst tfmi-til kominn að hægja á og snúa mér að öðrum hugðarefnum. Ég hef hins vegar ekkert ákveðið ennþá hvað ég mun taka sér fyrir hendur," sagði Ingimundur í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði aðspurður að þessi breyting tengdist ekki þeim sviptingum sem átt hefðu sér stað hjá íslenska útvarpsfélaginu að und- anförnu. „Það er augljóst að þegar ég læt af störfum hjá Heklu eftir 30 ára starf þá hlýtur það að hafa lengri aðdraganda heldur en þetta mál sem kom upp hjá íslenska út- varpsfélaginu fyrir skömmu. Tilvilj- un ein réði því að þetta gerist á sama tíma." Morgunblaðinu barst í gær eftir- farandi fréttatilkynning frá Heklu hf. og Ingimundi Sigfússyni: „Ingi- mundur Sigfússon, stjómarformað- ur Heklu hf., hefur nú ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu og hverfa til annarra starfa. Hann tók við stöðu forstjóra Heklu hf. við andlát föður síns, Sigfúsar Bjarna- sonar, í september 1967 og gengdi því starfi til ársins 1990 þegar hann gerðist stjómarformaður fyrirtækis- ins. Hafa systkini hans, Sverrir, Sig- fús og Margrét, sem einnig hafa starfað í fyrirtækinu um árabil leyst til sín hlutafé hans og munu þau reka fyrirtækið áfram í sameiningu. Um leið og Ingimundur hverfur af þessum starfsvettvangi færir hann öllu'samstarfsfólki sínu í Heklu hf. og viðskiptavinum gegnum árin. innilegar þakkir , fyrir ánægjuleg samskipti og óskar fyrirtækinu und- ir stjórn systkina sinna áframhald- andi velgengni og blessunar. Af hálfu Heklu hf. eru Ingimundi færð- ar þakkir fyrir farsæl störf hans í þág^i félagsins og honum ámað heilla í framtíðinni." íslendingur flaug meö aldna fallhlífa- hermenn er D-dagsins var minnst • • Oldungarnir voru í sæluvímu FÁFNIR Frostason, atvinnuflugmaður og lærður flugvirki, var í áhöfn upprunalegr- ar Douglas C-47 Da- kota-vélar (DC-3), sem flutti aldna fall- hlífahermenn til Normandí vegna há- tíðarhalda í tilefni af 50 ára afmæli D-dags- ins. Fáfnir, sem sjálf- ur fiaug hluta leiðar- innar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ferðin hafi gengið mjög vel og verið ævintýri likust. Fé- lagsskapurinn hafi verið kostulegur, yngsti fallhlífa- stökkvarinn hafi verið 68 ára, sá elsti 84 ára. „Hermennirnir gömlu höfðu aug- ljóslega lifað fyrir þennan atburð í langan tíma,“ sagði Fáfnir. „Þeir höfðu allir staðist læknisskoðun og stokkið í fallhlíf þrisvar sinn- um á siðastliðnum þremur mánuð- um. Þegar lendingarstaðurinn, Sainte-Mére-Eglise skammt frá Utah-ströndinni í Normandí, nálgaðist tóku öldungarnir að stappa niður fótum og æpa. Þeir voru hreinlega í sælu- vímu.“ Fáfnir segir að stökk hermannanna öldnu hafi í raun markað upphaf hátíð arhalda á Normandí- strönd. Klukkan 1:45 þann 5. júní hafi þeir stokkið samkvæmt áætlun og að sögn Fáfnis gekk nær allt að óskum. „Þessi at- burður vakti gríðar- lega mikla athygli í fjölmiðlum. Við fórum um allt á einhvers konar sendiherrapassa en við gátum, þó einkum öldungarnir, vart þverfótað fyrir hnýsnum fréttamönnum," sagði Fáfnir. Að sögn Fáfnis var Douglas C-47 Dakota-vélin smíðuð 1944 og var hún notuð síðustu árin í seinna stríðinu. Hún er nú eina flughæfa vélin sinnar tegundar. Fáfnir Frostason Hágangi I var neitað um viðger ðarþj ónustu í Harstad í Noregi Skipstjóri yfirheyrður o g sektaður NORSKA lögreglan kallaði skip- stjóra Hágangs I til yfirheyrslu og gerði honum að greiða 5.000 norskar krónur í sekt fyrir að hafa ekki tilkynnt skipið sólarhring áður en komið var í norska land- helgi á þriðjudag. Reynir Arnason, útgerðarstjóri skipsins, segir að ítrekað hafí verið reynt að ná í loftskeytastöð í Vardö nyrst í Noregi. Hún hafí ekki svarað, trú- lega af ástettu ráði, og hafí verið brugðið á það ráð að láta varðskip vita. Náðst hafí í skipið á sömu bylgju og loftskeytastöðin. En boð- unum hefði greinlega ekki verið komið tii skila. Reynir segir að reynt hafi verið að koma í veg fyrir að skipið legð- ist að bryggju í Harstad á mánu- dag. Hótanir hafi ekki borið árang- ur og hafi skipið legið í höfn yfír nóttina. Daginn eftir bárust þau fyrirmæli frá háfnaryfírvöldum að færa yrði skipið út á ytri höfn vegna komu skemmtiferðaSkips til bæjarins. Starfsmenn skipasmíðastöðvar, sem lofað hafði að taka að sér viðgerð, skoðuðu Hágang og mátu aðstæður svo að skipið væri ekki haffært. Neituðu skipveijar að færa skipið og vörpuðu allri ábyrgð á hafnaryfírvöld. Lyktír urðu þær að skipið var dregið af pramma yfir á aðra bryggju í höfn- inni. Reynir segir að sama dag hafi skipstjóri Hágangs verið kallaður í yfírheyrslu og gert að greiða sekt fyrir að hafa ekki tilkynnt skipið sólarhring áður en komið var í norska landhelgi. Hann hefði útskýrt málavexti, en skellt hefði verið skollaeyrum við orðum hans. Bréf Nordland fylkesfiskarlag, samvinnuráðs hagsmunaaðila í sjávarútvegi, til útgerðar Hágangs inniheldur að sögn Reynis hótun. Samtökin hafa sent þjónustuaðil- um í sjávarútvegi í Noregi bréf og hvatt sjómenn, fyrirtæki í við- skiptalífi og almenning til að snið- ganga fyrirtæki og framleiðendur sem láti „Smugutogurum“ vörur eða þjónustu í té frá og með 5. júní. Fyrirtæki fari á svartan lista bijóti þau viðskiptabannið. Hin fari á hvítan lista og á þau verði bent. Listarnir verði birtir með aðstoð dagblaða og Ijósvakamiðla til að þeir beri sem mestan árang- ur. Reynir segir að hægt sé að lag- færa skipið við bryggju, a.m.k. til bráðabirgða, og ætli útgerðin að bíða átekta og athuga hvort skipa- smíðastöðin endurskoði afstöðu sína, þegar mesti hugurinn sé far- inn úr mönnum. Einnig komi til greina að draga skipið heim enda telji hann útséð um viðgerð annars staðar í Noregi. 4500 síma- númer breytast UM 4500 símanúmer breytast í Reykjavík á laugardag. Er þegar búið að breyta þeim í nýrri síma- skrá sem hafín er dreifing á. Hrefna Ingólfsdóttir, blaða- fulltrúi Pósts og síma, segir að númerin sem breytist séu flest í Árbæ, Breiðholti og Grafar- vogi. Númer þar sem nú byija á 68 breytast í 87, en númer annars staðar í Reykjavík sem byija á 68 breytast ekki. Eftir breytinguna munu öll símanúm- er í hverfunum þremur byija á 7, 67 eða 87. Einnig munu nokk- ur símanúmer í austurbænum sem byija á 67 breytast í 88, en símanúmer í Breiðholti, Graf- arvogi og Árbæ _sem byija á 67 breytast ekki. í Múlahverfínu munu eftir breytinguna öll síma- númer byija á 8, 68 eða 88. Lýðveldishá- tíð á flokks- þingi FLOKKSÞING Alþýðuflokksins hefst kl. 20.30 í kvöld með menningarhátíð sem haldin er í tilefm af 50 ára lýðveldisafmæl- inu. Á hátíðardagskrá er m.a. söngur Kvennakórs Reykjavíkur og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins, flytur ávarp sem nefnist „Ættjarðarást og alþjóðahyggja.“ Einnig flytur dr. Ólafur Þ. Harðarson stjóni- málafræðingur erindi undir heit- inu „Stjórnmálakerfi lýðveldis- ins: Höfum við gengið til góðs.“ Formleg þingsetning verður kl. 10 á morgun og flytur Jón Bald- vin Hannibalsson þá setningar- ræðu sína. ■ Átök um brúna/miðopna Seðlabanka- stjóri í af- mæli Eng- landsbanka BIRGIR ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri og formaður bankastjórnar Seðlabanka ís- lands, er fulltrúi bankans við hátíðahöld vegna 300 ára af- mælis Englandsbanka. 300 ár eru síðan Englands- banki var settur á laggirnar og af því tilefni eru í Lundúnum hátíðahöld sem hófust í gær og halda áfram í dag. Meðal ann- ars er efnt til ráðstefnu um þró- un og hlutverk seðlabanka. Tónleikar Bjarkar 3500 miðar seldir MIÐASALA vegna tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Laugardaishöll 19. júní hefur verið stöðug að sögn Sveins Kragh, miðasölustjóra hjá út- gáfufyrirtækinu Smekkleysu. Þegar hafa 3.500 manns tryggt sér miða og 1.178 miðar í sæti seldust upp fyrir löngu. Gert er ráð fyrir 4.500 gestum. Auk seldra miða bíða fjölmargir í pöntun en fólki á landsbyggð- inni var gert kleift að panta miða. Ósóttir miðar verða seldir eftir 14. júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.