Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ íslenska fánann í öndvegi Ýmsar hugmyndir um íslenska fána Enn er óútskýrt hvers vegna konungur ís- lands stóð undir dönskum fána á alþingishá- tíðinni 1930, segir Ólafur Asgeirsson, en hann reifar hér sögu íslenska fánans. Póst- og símafáni. Hinn almenni þjóðfáni. ÁÐUR hefur verið gerð grein fyrir aðdraganda þess að ísiending- ar völdu sér þjóðfána sinn og erfíðu verkefni fánanefndarinnar sem stóð andspænis því að þurfa að hafna vinsæl- um fána og finna ann- an sem vel sæmdi þjóð- inni. í starfi vann nefndin markvisst og gerði nánast vísinda- lega greinargerð um fána, sögu þeirra og notkun almennt. Nefndin ákvað sömu- leiðis að leita til al- mennings og freista 'd>ess að fá tij umfjöllun- ar margar óskyldar til- lögur að nýjum fána. I janúarmánuði 1914 birtist svohljóðandi auglýsing í blöðunum: „Þeir sem hafa hug á að senda fánanefndinni tillögur um gerð íslenska fánans eru beðnir að koma tillögum sínum til nefndar- innar fyrir marsmánaðarlok og senda þær formanni nefndarinnar Guðmundi Björnssyni landlækni, Amtmannsstíg 1, Reykjavík.“ Und- irtektir voru góðar og er áhugavert að rifja upp nokkrar þær tillögur sem bárust nefndinni en þær voru alls 46 talsins, lagðar fram af 35 aðilum. Tollgæslufáni. Eins o g vænta mátti L voru tillögur um l^i 1/»>OC!OT01V1 0 110 h '11>_ Ríkisfáninn. ■ KrOSbidlia ðO. /illb Ual" ust 19 tillögur um |1 fána hvítan og bláan, || flestar gerðu ráð fyrir || fána með hvítum f 11 krössi á bláum feldi, 11 en tvær vora um hvít- ■ an fána með bláum -# v- Ólafur Ásgeirsson krossi. Alls bárust 13 tillögur um krossfána sem var eins að gerð og sá fáni sem valinn var, ein tillaga um grænan fáDa með hvítum krossi og ein tillaga um rauðan fána með svörtum krossi og hvítum krossi innan í svarta krossinum. Aðrar tillögur voru um fána sem voru annarrar gerðar en •aSO •Ífé-O I Grensásvegi 50 - sími 885566 Ný hárgreiðslustofa Bjóðum upp á alla almenna þjónustu í hári f|þ og förðun, í nýjum og glæsilegum húsakynnum við Grensásveg 50 þjónustu fyrir brúðir. \ %/ Útskriftarnemar! Útskriftin byrjar hjá Primadonnu. m t/Noname ð fi V fördunarnamskei ✓ - y °Pið á laU3lÍ°verd. í sumar, sama Afgreiðslutími: q|| Mánud-miðvikud. 9-18 Fimmtud. 9-20 Föstud. 9-19 2ö" Laugard. 10-15 % rrty Hlökkum til að sjá ykkur! | REDKEN 5EBASTIAN Fáni forseta íslands. krossfánar. Verður nú vikið að þessum tillögum um þjóðfána handa íslendingum. Bjami Sæmundsson kennari í Reykjavík lagði til að fáninn yrði hvítur kross á bláum feldi með stjörnu með hvítri stjörnu í efri stangarreit. Þá bárust tillögur um bláan fána með hvítum Þórshamri og sams konar fána að öðru leyti en því að stjörnu var komið fyrir í efri stangarreit fánans. Munu þessir fánar hafa litið út eins og fáni Eimskipafélagsins, en hann er hvítur með bláum Þórshamri. Sum- ar tillögurnar báru og vott um mikla litagleði. Fáni blár að ofan með gylltri stjörnu og hvítur að neðan var tillaga Þorsteins Jóns- sonar á Akranesi, köflóttur fáni, dökkblár, hvítur, rauður, grænn, ljósblár. Þá barst tillaga frá manni sem kailar sig Jón Norðlending um bláan fána með hvítri stjömu. Jó- hannes Kjarval gerði að tillögu sinni að fáninn yrði blár með hvít- um krossi, en afar margbrotinn. Carl Jensen í Sounding Creek, Alberta, Kanada, lagði til að ís- lenski fáninn yrði hvít og blárön- dóttur með danska fánann í efri stangarreit. Vestfírðingar létu sitt ekki eftir liggja og lögðu til að fáninn yrði skásettur, blár og grænn, en rauð rönd á milli efra og neðra horns fánans. Verður því ® hlaupaskór Verð kr. 2.490,- St. 36-47. Sendum í póstkröfu. 5% staðgreiðsluafsláttur »hummel^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655 Morgunblaðið/Gói Hinn íslenski konungsfáni. með sanni sagt að áhugi almenn- ings á fánamálinu var mikill bæði innan landa og utan því nefndinni bárast tillögur frá Kanada og Dan- mörku. Þjóðfáni fullvalda ríkis Þegar sambandslögin gengu í gildi 1. desember 1918 gengu í gildi bráðabirgðalög þess efnis að ekkert íslenskt skip mætti hafa uppi annan fána en hinn íslenska. Var þá gefinn út nýr konungsúr- skurður um fánann og var hann í öllu óbreyttur, en nýju ákvæði bætt við um nýja gerð fánans, rík- isfána, sem er að því leyti frábrugð- inn hinum almenna fána að hann er klofinn að framan, tjúgufáni og eru ytri reitir hans tvöfalt lengri en stangarreitirnir. Fyrst var flagg- að með tjúgufána hins nýja íslenska ríkis á hádegi sunnudaginn 1. des- ember 1918, er hann var dreginn að húni á fánastöng stjórnarráðs- hússins. Um leið og fáninn var dreginn upp var honum heilsað með 21 fallbyssuskoti frá varðskipinu Islands Falk. Sérstakur konungsúr- skurður um notkun ríkisfánans var gefinn út 12. febrúar árið 1919. Var þá gefínn út konungsúrskurður um sérfána landssímans, stjörnu með neistum út frá til allra hliða silfurlit krýnd ylltri kórónu. Póst- fáni var búinn silfraðu pósthorni krýndu gylltri kórónu. Hinn 13. janúar 1938 var gefinn úr sérstak- ur konungsúrskurður um póst- og símafána eftir sameiningu þessara stofnana og var pósthornið samein- að stjörnu símans svo sem enn tíðk- ast. Merkið var silfurlitað krýnt gylltri kórónu. Fáni hafnsögu- manns er hinn almenni þjóðfáni með hvítum jaðri umhverfis fánann jafnbreiðum krossinum. íslenskur konungsfáni Stjórnarskrá konungsríkisins Is- lands tók gildi 18. maí árið 1920 og þar með varð Kristján X kon- ungur íslands og Danmerkur. Var því tekið til við að huga að íslensk- um konungsfána og var sérstakur konungsúrskurður um fánann gef- inn út 5. júlí þá um sumarið. Var konungsfáni heiðblár en í honum hvítur íslenskur fálki krýndur hinni íslensku kórónu, þeirri sömu sem getið er um hér að framan á sérfán- um ríkisins. Var konungsfáni þessi notaður er konungur kom til lands- ins árið 1921 og var hann dreginn að húni á skipi konungs er það kom í landhelgi Islands og blakti yfir bústað konungs í menntaskólanum meðan hann dvaldi þar. Nokkurri furðu gegnir að fáni þessi er nú ekki lengur til og frummynd hans hefur ekki fundist. Hann má þó sjá á mynd af skipi konungs á skraut- keri sem er í eigu Alþingis. Virðist konungur ekki hafa notað fánann við seinni heimsóknir sínar til ís- lands og vekur sérstaka athygli að konungur skuli ekki hafa látið draga hinn íslenska konungsfána sinn að húni er hann ávarpaði há- tíðargesti á alþingishátíðinni 1930. Er enn óútskýrt hvers vegna kon- ungur íslands stóð þar undir sínum danska fána. (Myndin af íslenska konungsfánanum sem fylgir hér á síðunni, er sérstaklega gerð sam- kvæmt heimildum um útlit fánans.) Hinn 9. apríl 1940 hernámu Þjóðveijar Danmörku og daginn eftir samþykkti Alþingi að fela ríkisstjórninni meðferð konungs- valds. Er styrjöldin dróst á langinn var ákveðið að hverfa frá þeirri ráðstöfun og 16. maí 1941 var samþykkt sérstök þingsályktun um að kjósa ríkisstjóra til eins árs í senn. Lög um þetta efni voru síðan samþykkt og staðfest 16. júní 1941. Daginn eftir, 17. júní 1941, kaus Alþingi Svein Björnsson ríkis- stjóra til eins árs. Var ríkisstjóri endurkjörinn 1942 og 1943. Hinn 9. desember var gefinn út sérstak- ur úrskurður um fána ríkisstjóra, var hann tjúgufáninn og í honum miðjum stórt gullið R á ferhyrndum hvítum reit. Sérfánar lýðveldisins Við stofnun lýðveldis á íslandi 17. júní 1944 voru hin sýnilegu tákn konungsríkisins felld úr sér- fánunum, en að öðru leyti eru þeir óbreyttir, með silfurlitu merki á efri stangarreit, þó einfaldari að gerð en var í öndverðu. Þá var gerður nýr fáni handa forseta ís- lands, sem er tjúgufáninn með skjaldarmerki lýðveldisins í honum miðjum á hvítum ferhyrndum reit. Höfundur er þjóðskjalavörður, aðstoðarskátahöfðingi og formaður fánanefndar BÍS. Tölvuþjálfun Windows • Word • Excel Það er aldrei of seint að byrja! 60 stunda námskeiö þar sem þátttakendur kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun. Vönduð kennslubók innifalin í verði. Innritun stendur yfir. Fjárfestu í framtíÖinnil * Tölvuskóli íslands Höfðabakka 9 • Sími 67 14 66

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.