Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 12
lgr FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Uppskriftir Tveir einfaldir kjúklingaréttir í LITLUM ferðamannabæ, sem heitir Varkiza og er skammt fyrir sunnan Aþenu í Grikklandi er íjöldi veitingahúsa sem ferðamenn venja komur sínar á. Einn vinsælasti barinn þar um slóðir er lítill og heimilislegur og gengur undir nafninu La Voile, sem þýðir segl á íslensku. Eigandinn, Nontas Argiroudakis, er eins og fæddur inn í hlutverk veitingamannsins. Hann er á þönum milli borða, sest niður og rabbar um daginn og veginn við viðskiptavinina og spilar fyrir þá uppáhaldstónlistina sína sem gjarnan er hágæðaklassík á borð við Domingo og Pavarotti. Þegar ég rölti á dögunum um götur Varkiza og villtist inn á La Voile leið ekki á löngu uns Nontas hafði tekið mig í kunningjahópinn og þegar hann komst að því að ég væri frá íslandi, fannst honum ekk- ert sjálfsagðara en að bjóða upp á kvöldverð þar sem að ég var fyrsti íslendingurinn sem sótti hann heim. Eftir matinn lofaði hann bíltúr um næsta nágrenni sem hann efndi með glæsibrag. Matseðillinn á La Voile er ekki flókinn. Á honum eru fljótlegir og þægilegir réttir og þegar sú hug- mynd var viðruð að fá uppskrift var það auðsótt mál. Anthony Vrettas ræður ríkjum í eldhúsinu og með aðstoð hans fengum við tvær ein- faldar kjúklinga-uppskriftir, kín- verska og mexíkóska, sem allir ættu að geta ráðið við. Kínverskur kjúklingur ______1 kg beinlaus kjúklingur_ _________200 g gulrætur________ •_____200 g motbaurtir_______ ólífuolía hvítlaukur engifer soja-sósa |Girnilegur| Mukl inéaiiíaklií * Hraórétta veitingastaður í hjarta borgarinnar J Sími 16480 kjúklingastaður Miele fyrirheimili og fjölbýlishus Margfaldir verðlaunagripir fyrir hönnun og gæði. mmilistæki hf veswrgöw 25,101 Rvk. S: 91-28210 NEYTENDUR Nontas Argiroudakis og Anth- ony Vrettas á veitingastaðnum La Voile, sem þýðir „segl“. Skerið kjúklinginn í litla bita og marinerið þá yfir nótt eða í a.m.k. þrjá klukkutíma í ólífuolíu, hvítlauk og engifer. Skerið gulrætumar í litla bita og hafið matbaunirnar sömuleiðis tilbúnar. Steikið kjúklingabitana við lítinn hita í um 2 mínútur. Bætið sojasósu út í og steikið áfram í um 1 mín- útu. Grænmetinu bætt út á pönn- una. Borið fram með hrísgijónum. Mexíkóskur kjúklingur ____500 g nautahakk______ laukur chili pipar nýrnabaunir 150 g tómatsósa Blandið saman nautahakkinu, smátt skornum lauk, chili pipar og nýmabaunum. Steikið á pönnu. Bætið síðan 150 g tómatsósu við og látið sjóða í nokkrar mínútur. Látið kjötmaukið inn í Taco skeljar og bætið síðan við rifnu salati, tóm- ötum og smávegis af sýrðum rjóma. Þetta má til dæmis bera fram með baunastöppu. Ávöxtur sem getnaðarvörn HITABELTISÁVÖXTURINN papaya kemur í veg fyrir getnað samkvæmt- niðurstöðum úr nýlegum rannsóknum sem gerðar voru við háskólann íJ Sussex á Englandi. Greint er frá niðurstöðum í vikuritinu Asiaweek, og segir meðal annars að kynslóð fram af kynslóð hafi indverskar konur vitað að papaya-át og þungun færi ekki vel saman. Morgunblaðið/Júlíus Ávöxturinn er oft fáanlegur hér en er fremur dýr. Vel þrosk- að papaya á vera mjúkt viðkomu og þeir heppnu fá verulega bragðgóðan ávöxt. Hinir fá þurran og ekk- ert sérstaklega góðan ávöxt. Nýjan og vel þrosk- aðan papaya-ávöxt er hægt að borða einan eða í ávaxtasalati, ann- að hvort eins og hann kemur fyrir eða með svolitlum sítrónusafa. Papaya er einnig hægt að fylla með sjávarréttum eða nota í salat, til dæmis með avocato. í Banda- ríkjunum er ávöxturinn stundum bakaður með kjúklingum eða kálfakótilettum. Papaya er ræktað í hitabeltis- loftslagi og er verð í ræktunarlönd- um miklu lægra en í Evrópu. Enda segir Tharmalingam Senthilomo- han, stjórnandi rannsóknarinnar, sem getið er að framan, að margar konur í Sri Lanka noti papaya- ávexti sem getnaðarvöm „af því það er ódýr og náttúruleg leið.“ Hann segist líka hafa komist að því að yfirgnæfandi líkur séu á fósturláti ef kor.a borðar óþroskað papaya þrjá daga í röð. „Sé þrosk- aður ávöxtur hins vegar borðaður daglega dregur hann úr líkum á getnaði,“ segir Senthilomohan. Hann telur að ensímið papain í ávextinum bæli niður kynhormónið progesterone, en það er nauðsyn- legt til að undirbúa leg fyrir getn- að og viðhalda þungun. Hann seg- ir ástæðuna geta verið þá að papa- in, sem stundum er notað til að gera kjöt meyrt, geti brotið niður himnur sem stuðla að þroska fóst- urs. í papaya er fjöldinn allur af fræj- um og samkvæmt alþýðutrú eru fræin mjög góð við hægðatregðu.. Hægt er að borða þau eintóm eða til dæmis blanda saman við AB- mjólk eða súrmjólk. í Stóru matreiðslubók Iðunnar kemur meðal annars fram að óþroskað papaya sé notað í krydd- mauk, sultur og hlaup. Einnig að hægt sé að sjóða það svipað og um grænmeti væri að ræða. Þetta er hitaeiningasnauður ávöxtur. I 100 g eru aðeins 39 hitaeiningar. Frá Hárprýði/Fataprýði í tilefni þjóðhátíðarafmælis okkar bjóðum við 19,44-19,94% afslátt af öllum fatnaði vikuna 9.-16. júní. Gleðilega hátíð! Hár;x ypryð V y BOK FATAPRYÐI Bommmimi, HÆO, SÍMI3234J -w-----------W Pöntunarsími B.MAGNUSSON HÓLSHRAUNI 2 ■ SlMI S28Í6 • HAFNARFIRÐI Fallegir varalitir og tvöfaldur spegill með g S Karamellu- regn í Hveragerði TÍVOLÍ-húsið í Hveragerði hefur nú fengið nýtt hlutverk. Á laugar- dag verður opnað þar markaðs- og5 sýningarsvæði, þar sem settir verða upp sölubásar á milli trjágróðurs og göngustíga. Einnig er barnaleik- völlur þar og sýningarsvæði fyrir tjaldvagna, bíla og aðra sýningar- gripi. Methúsalem Þórisson hefur umsjón með markaðstorginu og segir hann að þar verði seld mat- væli, heimilisiðnaður og ódýr fatn- aður. „Við opnum formlega kl. 11 á laugardag. Skólalúðrasveitin og þekktir harmonikkuleikarar spila og svifdrekasýning býr til hið vin- sæla karamelluregn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.