Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Höfum til afgreiðslu til fyrirtækja, félagasamtaka og leyfishafa sölutjalda álblöðrur fyrir helíum með 50 ára afmælismerki þjóðhátíðar í fullum litum. cc cc o ÁSRÚN Heildverslun Sími: 81 10 95 - 6810 39 - 64 36 31 ÞJÓÐH ÁTÍÐARBLÖÐRUR Ósanníndum sjálf- stæðismanna svarað SVO BAR við í nýafstaðinni kosningabaráttu að sjálfstæðis- menn upphófu hina hatrömmustu óhróðursherferð og ósannindi á hendur því fólki sem fór með stjóm Reykjavíkurborgar árin 1978-82. Á þessum ámm höfðu fulltrúar Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks meirihluta í borgarstjóm Reykjavíkur. Sem dæmi um málflutninginn sagði Ámi Sigfússon á kappræðu- fundi í sjónvarpinu að það eina sem meirihlutinn á þessum ámm hefði gert hefði verið að auka álögur á borgarbúa. Þar sagði hann einnig að oddvitar meirihlutans hefðu lýst yfir að tilraunin hefði mistek- ist og yrði ekki reynd aftur. Vitan- lega em þessi ummæli algjört mgl. Annar málflutningur um þetta tímabil hjá einstökum frambjóð- ;endum bæði í ræðu og riti var ámóta íjarstæðukenndur. Allt var rangfært. Þetta tímabil er nú orð- ið dálítið fjarlægt í tímanum og fékk að mestu að vera í friði í kosningunum 1986 og 1990. Eng- ir þeirra sem skipuðu meirihlutann 1978-82 vom í forystusveit Reykjavíkurlistans núna. Það fólk gat því illa komið vömum við og leiðrétt rangfærslumar sem slengt var fram án rökstuðnings. Hér verður gerð tilraun til að bæta þar úr og leiða fram það sem rétt og satt er í þessu máli. Samstarfið í meirihlutanum Flokkamir þrír sem mynduðu meirihlutann 1978 gengu ekki sameinaðir til kosninga heldur hver í sínu lagi. Þeirra fyrsta verk eftir að meirihlutinn lá fyrir var því að koma sér saman um mál- efnasamning. Eitthvað svipað og nú er að gerast þessa dagana í fjölmörgum sveitarfélögum lands- NÝTT! NYTT! Fyrir upprennandi körfuboltastjörnur Höfum ti! sölu hinar þekktu „Supershot" körfur. Tilvaldar í sumarbústaðinn, út í garð eða hvar sem er. Verð aðeins kr. 9.900 m/vsk. Flokkamir þrír, sem mynduðu meirihlutann 1978, segir Krislján Benediktsson, gengu ekki sameinaðir til kosninga heldur hver í sínu lagi. ins. Það var hvorki fum né fálm við þau vinnubrögð heldur gengið hreint til verks. Algjört samkomu- lag var milli flokkanna um skipan í starfsnefndir og stjórnunarstörf í borgarráði og borgarstjóm. Þrátt fyrir skamman tíma tókst svo vel til í upphafí að ekki þurfti að gera breytingu á þeirri skipan út kjör- tímabilið. Það er meira en sagt verður um hið „samhenta" lið hjá Sjálfstæðisflokknum, þegar skipt hefur verið um borgarstjóra tvisv- ar og þrisvar á kjörtímabili. Hvað þá minni spámenn,- Þvi er haldið fram að mikil óeining hafí verið innan meirihlutans á þessum árum. Það er ekki rét þegar á heildina er litið. Það sem gerðist var að einn borgarfulltrúi meiri- hlutans var ekki samstiga í tveim- ur mikilvægum málum þannig að þau náðu ekki fram að ganga. Úr þessum ágreiningi var mun meira gert en efni stóðu til. Algjör samstaða náðist öll árin um gerð fjárhagsáætlunar og fram- kvæmdaáætlun sem vitanlega skipti mestu máli. Stjórnarand- staða sjálfstæðismanna á þessu tímabili var gjörsam- lega máttlaus. Tillög- ur þeirra má telja á fíngrum annarrar handar. Þeir virtust gjörsamlega hug- myndasnauðir þegar þeir höfðu ekki lengur embættismennina til að semja fyrir sig til- lögur og greinargerð- ir. Þeir kunnu einfald- lega ekki að vera í minnihluta. Oddviti minnihlutans á þess- um tíma var enginn annar en núverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson. Hann notaði tækifærið sunnudaginn eft- ir kjördag, sjálfsagt svekktur og reiður eftir ósigurinn, að vera með skítkast út í meirihlutann 1978-82. Sagðist hann oft hafa skemmt sér við vitleysur og vand- ræðagang meirihlutans á þessum árum. Menn ættu ekki að kasta skít úr glerhúsi fremur en steinum. Sumar ræður Davíðs Oddssonar frá þessum tíma bera það a.m.k. með sér að honum hafí ekki alltaf verið hlátur í huga. Sú mynd sem dregin var upp af störfum þeirra sem stjómuðu borginni árin 1978-82 nú fyrir kosningarnar var búin til í þeim 'tilgangi að reyna að hræða fólk frá stuðningi við Reykjavíkurlist- ann. Sú tilraun tókst ekki sem betur fór og er þeim til skammar sem að henni stóðu. Kosningabaráttan fyrir borgar- stjómarkosningamar 1982 snerist ekki um dugleysi eða glundroða hjá meirihlutanum. Hún snerist um framkvæmdir sem stóð til að ráðast í. Samstarfið við borgarstjóra Samstarfíð við borgarstjóra, Egil Skúla Ingibergsson, var að mínum dómi mjög gott á ámnum 1978—82. Ekki vissi ég annað en hann hefði verið ánægður í því starfí og vel getað hugsað sér að gegna því áfram ef sami meiri- hluti héldist. Þannig gerði Fram- sóknarflokkurinn það að kosningamáli 1982 að Egill Skúli yrði áfram borgarstjóri ef meirihlutinn héldi velli í kosningunum. Inn- legg hans í kosninga- baráttuna nú fáum dögum fyrir kosningar olli vissulega von- brigðum og sárindum hjá okkur sem á sínum tíma störfuðum með honum. Einnig hjá því fólki í borginni sem ekki vill beygja sig undir ofurvald Sjálf- stæðisflokksins og leit á Egil Skúla sem tákn þess tímabils þegar þetta ofurvald var brotið á bak aftur. Vitanlega er það einkamál Egils Skúla að styðja Árna Sigfússon sem borgar- stjóra og lofa hann og prísa í Morgunblaðinu og annars staðar að vild. Málið snýst ekki um það heldur á þeirri túlkun Áma Sigfús- sonar sem hann viðhafði í sjón- varpskappræðum og einnig annars staðar að stuðningur Egils Skúla við sig byggðist á beiskri reynslu hans frá borgarstjóraárunum í samstarfí við þá flokka og það fólk sem nú stæði að baki Reykja- víkurlistanum. Raunar mátti lesa svipað út úr grein Davíðs Oddsson- ar í Morgunblaðinu 28. maí sl. á kosningadaginn. Aðrir minni spá- menn tönnluðust á þessu sama síðustu dagana fyrir kosningamar. Framhjá mér hefur farið hafí Eg- ill Skúli mótmælt þessari túlkun Áma Sigfússonar og annarra þannig að hún stendur óhögguð í vitund fólks. Hitt hlýtur að koma upp í hug- ann þegar váldsvið borgarstjóra er skoðað bæði skv. lögum og sam- þykktum borgarinnar hvort það snertir ekki verksvið borgarstjóra að einhveiju leyti þegar sjálf- stæðismenn og málgögn þeirra halda því fram að á kjörtímabilinu 1978-82 hafí ríkt „glundroði og óstjórn" í málefnum borgarinnar. Höfundur erfv. borgarfulltrúi. Kristján Benediktsson Heildverslun Alberts Guðmundssonar, Grundarstíg 12, 121 Reykjavík. Upplýsingar í síma 20222. eftir Atla Heimi Sveinsson við Ijóð Steins Steinarrs. Frumflutningur. Kammersveit Reykjavíkur, kór og einsöngvarar Marta G. Halldórsdóttir, Bergþór Pálsson og Sverrir Guðjónsson. Stjórnandi: Paul Zukofsky Langholtskirkja, sunnudaginn 12. juní kl. 20.00 Miðasala í íslensku óperunni sími 11475

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.