Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Tónleikar í Akureyrar- kirkju KÓR Hafnaríjarðarkirkju verður með tónleika í Akur- eyrarkirkju annað kvöld, föstudagskvöldið 10. júní, kl. 21 en þetta eru sjöttu tónleik- ar kórsins á ferð sinni um Suður-, Austur- og Norður- land sem farin er í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýð- veldisins. Kórinn er skipaður ungu fólki sem getið hefur sér gott orð fyrir söng sinn, segir í til- kynningu frá kómum. Geisla- diskur er að koma út með safni íslenskra þjóðlaga, ætt- jarðarlaga og sönglaga í tilefni lýðveldisafmælisins og verða á tónleikunum flutt lög af hon- um ásamt öðrum lögum. Að- gangseyrir er 300 krónur en ókeypis fyrir börn í fylgd full- orðinna. Djass í Blómaskál- anum Vín LÉTTSVEIT Lúðrasveitar Akureyrar stendur fyrir djass- kvöldi í Blómaskálanum Vín í Eyjaíjarðarsveit í kvöld, fimmtudagskvöldið 9. júní. Fram koma auk hennar Akur- jass, saxófónkvartett, Finnur Eydal, Jón Rafnsson, Birgir Karlsson og Áni Ketill Frið- riksson. Kynnir verður Hauk- ur Ágústsson en tónleikarnir hefjast kl. 21. Biblíulestrar BIBLÍULESTRAR með Dananum Ove Petersen skóla- stjóra Biblíuskólans Troens Bevis í Sarons-Dal í Noregi verða í kvöld, fimmtudags- kvöld, og einnig á föstudags- kvöld og hefjast kl. 20 í Hvíta- sunnukirkjunni. Biblíulestr- arnir eru einnig á daginn frá kl. 15-17. Ove er góður og lifandi biblíukennari, segir í fréttatilkynningu frá Hvíta- sunnukirkjunni. * Afall þegar riðuveiki greindist í tveggja vetra kind í Svarfaðardal „ÞETTA er vissulega mikið áfall," sagði Ármann Gunnarsson, dýra- læknir í Svarfaðardal, en fyrir örfáum dögum var riða greind í tveggja vetra kind á bænum Ing- vörum. í samningi sem bændur gerðu við sauðfjárveikivarnir við fjárskipti fyrir nokkrum árum eru bændur skuldbundnir til að skera fé komi upp riða. Féð á Ingvörum verður skorið en ekki hefur verið tekin ákveðin ákvörðun um hve- nær það verður gert. Eftir að riðuveiki kom upp í Svarfaðardal fyrir 6-8 árum var allt fé skorið og var dalurinn fjár- laus í eitt ár og á sumum bæjum þar í þijú ár. Bændur í Svarfaðar- dal keyptu fé bæði úr Þistilfirði og Fé á bænum skorið niður af Ströndum þegar fjárbúskapur hófst að nýju í dalnum. „Það eru örfáir dagar síðan riðan var staðfest og ekki er vitað um fleiri tilfelli, en þetta verður kannað gaumgæfilega og vel fylgst með næstu daga. Bændur eru líka hvatt- ir til að láta vita strax ef einhveij- ar grunsemdir koma upp,“ sagði Ármann. Menn felmtri slegnir Hann sagði að vonir hefðu verið bundnar við að riðuveiki hefði verið útrýmt úr Svarfaðardal með fjár- skiptunum en því miður væri nú Sextán ára og samdi hljómsveitarverk sem frum- flutt verður á lýðveldishátíðinni á Akureyri Dálítið spenntur „ÉG ER auðvitað dálítið spenntur," sagði Davíð Brynj- ar Franzson sem samið hefur hljómsveitarverk fyrir Blásarasveit æskunnar, en það flytur hún í lok lýðveld- ishátíðarinnar á Akureyri 19. júní næstkomandi. Davíð Brynjar, sem nýlega er orðinn 16 ára, hefur varið frístundum síðustu ár við tónsmíðar en þetta er fyrsta verk hans sem flutt er opinberlega. Davíð Brynjar hefur stundað nám við Tónlistarskól- ann á Akureyri í 10 ár þar sem hann er að læra á trompet. í fyrravetur byijaði hann í kontrapunkti og hljóðfærafræði hjá Rovari Kvam „ég var búinn að fikta við að semja, en þarna fór maður að gera eitt- hvað af viti,“ segir hann. Fermingargjöfin Fyrsta verkið, sem Davíð Brynjar samdi, gaf hann systur sinni, Sigríði Rut, í fermingargjöf en þá var hann 11 ára gamall og síðan hafa þau nokkur litið dagsins ljós en ekkert verið flutt opinbeflega fyrr. Hann sagði að Rovar hefði boðið honum að semja hljómsveitarverk fyrir blásarasveitina og hann slegið til. „Þetta er einhvers konar svíta fyrir kammerhljóm- sveit,“ sagði hann um verkið. Ifyrstu tvo kaflana samdi hann síðastliðið haust og byijaði á þeim þriðja eftir áramótin. „Hann vafðist svolítið fyrir mér, ég var dálítið lengi að koma honum saman en það kom svo allt í einu,“ sagði Davíð Brynjar. Tónleikar Blásarasveitar æskunnar verða í íþrótta- skemmunni sunnudagskvöldið 19. júní og eru þeir jafnframt því að vera lokatónleikar hljómsveitarinnar lokapunktur þriggja daga lýðveldishátíðar á Akureyri og verður bæjarbúum boðið á tónleikana af því til- efni. Tónskáldið unga tekur þátt í frumflutningi verks Morgunblaðið/Rúnar Þór DAVÍÐ Brynjar Franzson, sem er 16 ára. síns og það gerir einnig systir hans, Sigríður Rut, ásamt um 15 hljóðfæraleikurum, en þau hafa bæði verið í sveitinni frá upphafi og er Davíð Brynjar yngsti hljóðfæraleikarinn þar. „Ég verð að vinna hjá garðræktinni fram í miðjan júlí og fái ég ekki aðra vinnu þá ætla ég að nota tímann til að semja en ég er að leggja lokahönd á eitt verk og vinna að tveimur öðrum,“ sagði Davíð Brynjar, sem ætlar að hefja nám við Menntaskólann á Ákureyri í haust og hefur mikinn hug á að halda áfram á þessari braut í framtíðinni. 250 sumarstörf hjá Akureyrarbæ Atvinnu- lausum fækkar FÆKKAÐ hefur á atvinnuleysisskrá á Akureyri að undanfömu, en m.a. hefur fólk af skránni fengið vinnu hjá Akureyrarbæ sem bauð upp á 250 sumarstörf. Un nýliðin mánaða- mót. voru um 470 manns á atvinnu- leysisskrá en voru í lok apríl 540 talsins, en þess má geta að í apríl voru rúmlega 80 manns að störfum við atvinnuátak en voru mun færri, eða tæplega 50, í maí. Sigrún Bjömsdóttir, forstöðumaður Vinnumiðlunarskrifstofunnar á Akur- eyri, sagði að fólk hefði fengið störf tímabundið, m.a. hjá Akureyrarbæ. Öllum 16 ára unglingum sem um sóttu var boðin vinna hjá bænum í 6 vikur í sumar. Nokkru fleiri unglingar eru í unglingavinnunni í sumar en var í fyrra, eða 432 á móti 409, en jafn- mörg böm em skráð í skólagarðana bæði árin, eða 124. Flestir þeirra sem eru skráðir at- vinnulausir eru félagsmenn í Ein- ingu, eða 212 manns, og þá eru yfir 100 manns úr Félagi verslunar- og skrifstofufólks á skránni og tæplega 70 félagsmenn í Iðju. Loks má nefna að um 40 iðnaðarmenn skráðir at- vinnulausir, flestir smiðir, járniðnað- armen'n óg ráfvirkjá. ljóst að það hefði ekki tekist. „Það má auðvitað segja að menn séu felmtri slegnir yfir þessum tíðind- um, en auðvitað gátum við allt eins búist við þessu. Þetta var tilraun sem víða hefur tekist en það gat allt eins farið á hinn veginn, að hún mistækist, en við vorum að vona í lengstu lög að svo færi ekki,“ sagði Ármann. Fé verður skorið á Ingvörum en Ármann sagði að ákvörðun um hvenær það yrði gert hefði ekki verið tekin. Hann sagði að bændur væru vel vakandi hvað þessi mál varðar, en mikilvægt væri að taka ekki í hús ókunnugt fé, eins að hafa sem allra minnstan samgang milli fjárhópa og að stunda ekki fjárkaup milli bæja. -------» ♦ ♦ Þrjú til- boð í ný- byggingu viðFSA ÞRJÚ tilboð bárust í fram- kvæmdir við nýbyggingu Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Þau voru öll frá akureyrskum byggingaverktökum og undir kostnaðaráætlun sem hljóðar upp á 160,8 milljónir króna. Lægsta tilboðið var frá SS- Byggb 142,4 milljónir króna eða 88,6% af áætluðum kostnaði. SJS verktakar buðu 146,5 milljónir í verkið og Trésmiðjan Fjölnir 146,7 milljónir króna. 4160 fermetra nýbygging Nýbyggingin verður 4160 fer- metrar að stærð alls á fjórum hæðum með kjallara, en í þessum fyrsta áfanga sem verið er að bjóða út er um að ræða uppsteypu hússins sem skila á fullfrágengnu að utan. Síðan verður hugað að næsta áfanga í framhaldinu en það er innrétting á efstu hæð þar sem verður barnadeild og er stefnt að því að hún verði fullbúin til notk- unar í ársbyijun 1998 að sögn Finns Birgissonar, formanns bygginganefndar FSA. Gert er ráð fyrir að þessum fyrsta áfanga verði lokið 1. sept- ember árið 1996. ♦ ♦ ♦ Mánaðar- bið eftir bifreiða- skoðun ÓVENJU löng bið er nú eftir skoð- un bíla hjá Bifreiðaskoðun íslands á Akureyri eða um það bil einn mánuður þannig að þeir sem panta tíma í skoðun nú komast ekki að fyrr en í byijun júlí. Þorsteinn Friðriksson stöðvar- stjóri Bifreiðaskoðunar fslands á Akureyri sagði að yfirleitt væri mest ásókn á þessum tíma, í sumarbyijun. Fólk vildi Ijúka skoð- uninni af áður en farið væri í sum- arfrí og þá væri að jafnaði einn skoðunarmaður af þremur í sum- arfríi sem kæmi niður á afköstun- um. Meiri ásókn og færri starfs- menn gerðu því að verkum að bið- in væri orðin óvenju löng. „Það kemur alltaf bylgja í upp- hafí sumars og svo erum við líka að skoða alltof mikið af bílum sem áttu að vera löngu komnir þannig að hefur myndast svolítill kúfur í þessu lijá okkur,“ sagði Þorsleinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.