Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ í tilefni 50 ára lýðveldisaimælisins gefur Morgunblaðið út sérstakt lýðveldisblað á þjóðhátíðardaginn, 17. júní nk. Blaðið verður sérprentað og látið fýlgja með Morgunblaðinu þennan hátíðisdag. Auglýsendum gefst kostur á að auglýsa í blaðinu og bendum við á þann möguleika að koma kveðjum frá fyrirtækjum til þjóðarinnar í tilefni 50 ára afmælisins. Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa í þessari sérstöku útgáfu, er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00 í dag, fímmtudaginn 9. júní. Nánari upplýsingar veita Agnes Erhngsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 691111 eða símbréfí 691110. JlfawgptiiMaMfr - kjarni málsins! AÐSENDAR GREINAR Boðið til vinafagnaðar A Opið bréf til Magnúsar Arna Magnús- sonar, formanns ungra jafnaðarmanna Og Jón Daníelsson Blab allra landsmanna! - kjarni málsins! GÓÐI kunningi gamli starfsfélagi. Ég heyrði frá því sagt í fréttum að þú og félagar þínir í ungl- iðahreyfingunni hefð- uð ályktað að við ís- lendingar eigum tafar- laust að sækja um að- ild að Evrópusam- bandinu. Ég get eigin- lega ekki stillt mig um að senda þér línu af þessu tilefni að ekki sé nú talað um þegar það bætist við að horf- ur eru á að þessi af- staða ykkar verði til þess að þið hættið unnvörpum við að kjósa hana Jóhönnu Sigurð- ardóttur í formannskjöri. Einhvern veginn hef ég á tilfinn- ingunni að þið hafið svikist um að lesa undir Islandssögutímana í skóla. Við höfum nefnilega einu sinni áður gengið í Evrópusam- band. Við gengum í Noregsbanda- lagið árið 1262. Noregsbandalagið varð svo að Norðurlandabandalagi og að lokum sátum við uppi í danska heimsveldinu. Reynslan af þessari Evrópusambandsaðild okk- ar varð ekkert afskaplega góð. Reyndar varð hún frekar slæm, jafnvel afskaplega slæm. Eftir að menn fóru að gera sér grein fyrir að betra væri fyrir okkur að standa utan þessa Evrópusambands, tók það þjóðina hundrað ár að losna. Það vill svo kaldhæðnislega til að einmitt í ár skulum við vera að halda upp á hálfrar aldar afmæli þess frelsis og sjálfstæðis sem er SIEMENS HM1994USA orðið ykkur svona þungbært. Að vísu eru nokkuð aðrir tímar núna og kannski hristir þú bara hausinn yfir svona rök- semdum og hugsar með þér að nú sé ég endanlega genginn af göflunum. En jafnvel þótt við minnumst ekki einu orði á aðildina að gamla Evrópusam- bandinu, sýnist mér einhvern veginn að það geti nú að minnsta kosti orkað tvimælis að ganga í Evrópusam- bánd nútímans. Ég ætla ekki að fara að tína hér fram röksemdirnar gegn aðiid enda er ég viss um þú þekkir þær flestar. Mig langar hins vegar til að segja þér að ég er svo sem búinn að vera að velta þessu máli fyrir mér í nokkur ár en þyk- ist samt ekki vera búinn að hugsa það alveg til enda. Að minnsta kosti hef ég ekki enn komist að þeirri niðurstöðu að við eigum strax að sækja um. En þótt þú sért svona miklu fljót- ari að hugsa en ég langar mig samt til að benda þér á það að Jóhanna Sigurðardóttir hefur svo sem ekki beinlínis lýst því yfir að hún sé ákveðið á móti aðild að Evrópusam- bandinu. Ég hef að minnsta kosti skilið yfirlýsingar hennar þannig að hána langi til að fá að hugsa sig pínulítið um áður en hún tekur ákvörðun fyrir sitt leytí. Ég hef fyrir mína parta alltaf átt erfitt með að hafa mikið á móti fólki fyrir þ'að að vilja fá að hugsa. Mér hefur nefnilega alltaf fundist það svo ósköp skynsamlegt að hugsa. Af kynnum mínum af ungum jafnaðarmönnum hefur mér yfir- leitt fundist að þeir ættu sér hug- sjónir um jafnrétti og velferð í þjóð- félaginu. Þetta finnast mér fallegar hugsjónir enda er ég ekki frá því að þær blundi enn einhvers staðar innra með mér sjálfum. Af einhveij- um ástæðum hef ég líka dregið þá ályktun að Jóhanna Sigurðardóttir Viljir þú endingu og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.