Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.06.1994, Blaðsíða 52
m HEWLETT PACKARD HPÁ Í5LANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavfk, sími (91) 671000 Frá muguleika til veruleika MORGUNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sauð^yjar 0 Hrauneyjar;^ • ° Hvallátur; ;' 1 líergilsey f- £ _ ' Skáleyjar F1i>ípy ;f- 0, Svefneyjar ^ ^ breiðáfj° .. a. Þremur mönnun bjargað er Hringur strandaði. Ríkið greiði verjendum TVEIR vetjendur í stóra fíkninefna- málinu gerðu í gær kröfu um að í Íjölfar lögfestingar Mannréttinda- sáttmála Evrópu verði ríkissjóður dæmdur til að greiða málsvarnarlaun umbjóðenda sinna, sem játað hafa á sig sakir í málinu. Til þessa hefur ríkissjóður lagt út fyrir málsvarnarlaunum skipaðra veijenda en endurkrafið sakbom- inga, sem dæmdir eru til refsingar og greiðslu málsvarnarlauna og sak- arkostnaðar um málsvarnarlaun og annan sakarkostnað. Ríkið hefur þá aðeins setið uppi án endurkröfuréttar með málsvarnarlaun þeirra sem sýknaðir eru af ákærum. Lögmennimir Hilmar Ingimundar- son og Sigurður Þóroddsson, tveir veijenda í stóra fíkniefnamálinu, kröfðust þess í gær að ríkissjóður yrði dæmdur til að greiða málsvarnar- laun sín en ekki sakborningarnir. Ástæðan væri sú að með lögfest- ingu Mannréttindasáttmála Evrópu, sem tekið hefur lagagildi hér á landi eftir birtingu í stjórnartíðindum 23. maí sl., hefði það ákvæði sáttmálans lagagildi að hver sá maður sem bor- inn sé sökum fyrir glæpsamlegt at- hæfi eigi þau lágmarksréttindi að kjósa sér veijanda og hafí hann ekki efni á að greiða lögfræðilega aðstoð skuli hann fá hana ókeypis ef réttar- sjónarmið krefjist þess. Lögmennirnir sögðu umbjóðendur sína ekki hafa fjárhagslega burði til að greiða málsvamarlaunin og því beri nú að fella þann kostnað á ríkis- sjóð. H Bera höfuðpaurinn sökum/4 Ovæntir nágrannar í nýreistu húsi Þremur bjargað af strandstað ÞRIGGJA tonna trébátur, Hringur, steytti á skeri við Hrauneyjar, rétt hjá Hergilsey á Breiðafirði, síðdegis í gær. Þrír menn voru um borð og voru þeir aldrei í hættu. Hringur var á grásleppuveiðum og vom skipveijar að vitja lagna þegar báturinn strandaði. Hraðskreiður björgunarbátur frá Bijánslæk fór út að Hring og tvær gráslepputrillur fóra einnig að strandstað. Ágætis veður var og voru mennirnir þrír um borð aldrei í hættu. Breiðafjarðarfeijan Baldur lagði lykkju á leið sína og bjargaði Hring af strandstað. Til þess var notaður kraninn um borð í Baldri og Hring lyft um borð. Áætlun Baldurs rask- aðist um eina klukkustund vegna þessa óvenjulega björgunarstarfs, en trillunni var lyft úr Baldri og upp á land við Bijánslæk í gærkvöldi. Einhveijar skemmdir munu hafa orðið á botni hennar. -----» ♦ ♦----- ^Samdrætti mætt með útflutningi RÚMLEGA 12% veltusamdráttur hefur orðið hjá verkfræðistofum síð- ustu 3 árin. Þetta er niðurstaða könnunar sem Félag ráðgjafarverk- fræðinga hefur unnið. Fækkun starfsfólks á þessum tíma er 6%. Verkfræðingar hafa reynt að mæta samdrættinum með aukinni áherslu á verkefnaútflutning. Til skamms tíma var hlutur útflutnings í veltu verkfræðistofa almennt ekki mælanlegur en skv. könnuninni fór hann úr 2,5% árið 1992 í 5,0% 1993. ■ íslenskar verkfræðistofur/B4 Ráðuneyti standa ekki við áætlanir sínar um niðurskurð Hlúð að ungTim maríuerlu SIGURÐUR Rúnar Jónsson tónlistarmaður hefur eignast óvenjulega nágranna. Fyrir skömmu gerði maríuerlupar sig heimakomið í nýreistu húsi hans og síðan hefur húsbóndinn fylgst gaumgæfilega með dag- legu lífi hústökufuglanna. Þeir eru mjög gæfir og treysta Sig- urði vel. í hvert sinn, sem þau fara að heiman, fljúga þau út um glugga en inn um dyrnar. í gærmorgun færðist svo enn meira líf í íbúðina þegar sjö ungar maríuerlunnar litu dags- ins ljós í fyrsta sinn. Náið sam- band virðist strax hafa myndast milli húsbóndans og litlu ung- anna, því að í hvert sinn sem hann blístrar opna ungarnir gogg sinn; ef til vill í von .um Saumað fyrir síldina Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. MARGIR bátar bíða nú í start- holunum eftir fréttum af síld- veiði fyrir norðan land. Fimm Eyjabátar eru að gera sig klára ef góðar fréttir berast af miðun- um og í gær unnu starfsmenn Netagerðar Ingólfs við að sauma saman nýja nót fyrir Gígju VE. Nótin er frá Noregi og að sögn Birkis Agnarssonar, fram- kvæmdastjóra Netagerðarinnar, urðu vandræði með að flytja hana til landsins. 40 feta gámur brotn- aði undan þunga hennar og varð að skipta henni í tvo hluta. Nú vinna netagerðamenn í við að setja nótina saman á ný en hún er engin smásmíði, 320 faðmar að lengd og 90 faðmar á dýpt. Þórshamar GK átti stutt stím eftir á miðin í gær. Börkur NK var í gærkvöldi kominn á miðin, en ekki náðist samband við hann til að kanna aflabrögð. Blóðbank- inn auglýsir eftir blóði ÓVENJU mikið álag hefur verið á Blóðbankanum undanfama daga. Ólafur Jensson, forstöðumaður Blóðbankans, segir að þetta aukna álag megi rekja til verkfalls meina- tækna. Meðan á því stóð hafi að- gerðir, sem nú er verið að gera, safnast upp. Ofan á þetta bætist svo aðgerðir, sem þarf að ljúka fyr- ir sumarfrí. Ólafur segir að mikið hafi gengið á blóðið um síðustu helgi og verið sé að safna birgðum fyrir þá næstu. Mest vantar blóð í blóðflokknum 0 Rh- að sögn Ólafs en það er sér- stakt bráðaþjónustublóð, sem er notað þegar ekki vinnst tími til að greina blóðflokk blóðþegans. Mjög góð viðbrögð hafa verið við auglýs- ingunni og segir Ólafur að fyrirhug- uð sé ferð Blóðbankans út á land á næstunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg eitthvað gott. Það þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart að maríuerlan gerist jafn mann- blendin og raun ber vitni. Kjör- lendi hennar er oft í grennd við vötn og hún verpir iðulega utan í húsum, í holum eða undir brúm. Stefnir í að halli ríkis- sjóðs verði 13 milljarðar HORFUR eru á að útgjöld ríkisins á yfirstand- andi fjárlagaári verði um 3-4 milljörðum hærri en gert var ráð fyrir á fjárlögum eða rúmir 13 milljarðar í stað 9,6. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er ástæðan aðallega sú, að ráðu- neytin hafa ekki hrundið í framkvæmd öllum þeim aðgerðum sem áformuð voru og munar þar mest um heilbrigðisráðuneytið. Útgjöld þess stefna í að verða á annan milljarð króna hærri en áætlað var. Fjárlög ársins voru afgreidd með 9,6 milljarða halla, en verði ekkert að gert stefnir í að hallinn verði rúmir 13 milljarðar. Ástæða aukinna út- gjalda er að hluta til aðgerðir ríkisstjórnarinnar í sambandi við kjarasamninga nú í maí, en veiga- meiri hluti er að ráðuneytin hafa ekki hrundið í framkvæmd þeim niðurskurðaráformum sem fyrirhuguð voru. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stefnir til dæmis í að útgjöld heilbrigðis- ráðuneytisins verði 1-2 milljörðum hærri en áætlað var við gerð fjárlaga. Aætlanir heilbrigðisráðu- neytis standast ekki Veigamestu ástæðurnar til að heilbrigðisráðu- neytið stefnir í að fara fram úr áætlunum munu vera þær, að áform um að lækka útgjöld sjúkra- trygginga um 600 milljónir króna hafa ekki skilað sér nema að óverulegu leyti. Þá var fallið frá áformum um að skera útgjöld lífeyristrygg- inga niður um 200 milljónir króna. Loks má svo nefna að rekstur sjúkrahúsanna stefnir í að fara 100-200 milljónir fram úr áætlunum. Þá hafa önnur útgjöld komið til skjalanna, sem ekki var ráð fyrir gert við gerð fjárlaga, til dæmis fer hálfur milljarður til kaupa á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Alls stefnir því í að útgjöld ríkissjóðs verði 3-4 millj- örðum hærri en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. Ríkisstjórnin ræddi þessa stöðu ríkisfjármála á fundi sínum á föstudag, en samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins var ekki tekin ákveðin af- staða til þess hvernig bregðast ætti við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.