Morgunblaðið - 09.06.1994, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Magnús Jón Arnason sest í sæti bæjarstjóra í Hafnarfirði
Yaldaskipti
í næstu viku
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags tekur við af Alþýðuflokknum í
bæjarstjóm Hafnarfjarðar á bæjarstjómar- fundi 14. júní. Guðmundur Hermannsson flallar um valdaskiptin.
Magnús Jón Árnason ►MAGNÚS Jón Árnason næsti bæjar- sljóri Hafnarfjarðar er kennari að mennt og hefur starfað undanfarin ár sem yfir- kennari Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Magnús fæddist á Akureyri 30. nóvember 1947 en fluttist til Hafnarfjarðar árið 1962. Hann hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Alþýðubandalagið frá 1986, og var áður varabæjarfulltrúi eitt kjörtímabil. Árin 1986 til 1990 var Magnús formaður bæjarráðs Hafn- arfjarðar í meirihlutasamstarfi Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags. Magnús hef- ur einnig starfað fyrir skátahreyfinguna. Magnús er kvæntur Jóhönnu Axelsdótt- ur kennara og á með henni tvo stjúp- syni. Hann á auk þess eina dóttur.
Ijl §
Magnús Jóhann Gunnarsson Bergþórsson Lúðvík Geirsson
MAGNÚS Jón Árnason oddviti Al-
þýðubandalagsins í Hafnarfirði tek-
ur á þriðjudaginn við embætti bæj-
arstjóra og Magnús Gunnarsson
oddviti Sjálfstæðisflokksins tekur
við embætti formanns bæjarráðs.
Þeir Magnús Gunnarsson og Ell-
ert Borgar Þorvaldsson frá Sjálf-
stæðisflokki og Magnús Jón Árna-
son og Lúðvík Geirsson hittust á
þriðjudagskvöld og fóru yfir ýmis
atriði sem ekki hafði verið gengið
frá áður í viðræðum flokkanna. Síð-
ar um kvöldið bættust Jóhann G.
Bergþórsson og Valgerður Sigurð-
ardóttir frá Sjálfstæðisflokki og
Guðrún Ámadóttir og Gunnur Bald-
ursdóttir frá Alþýðubandalagi í hóp-
inn og ritað var undir yfirlýsingu
um meirihlutasamstarf flokkanna
nokkru eftir miðnættið.
Samkvæmt því verður embætti
bæjarstjóra í höndum Alþýðubanda-
lagsins og flokkurinn ráðstafar
einnig hver verður staðgengill bæj-
arstjórans í forföllum hans. For-
maður bæjarráðs og forseti bæjar-
stjórnar koma úr röðum sjálfstæðis-
manna og er ákveðið að Magnús
Gunnarsson verði formaður bæjar-
ráðs. Ekki liggur enn fyrir hver
verður forseti bæjarstjórnar en lík-
legast að það verði Ellert Borgar
Þorleifsson. Einnig er talið líklegt
að Ellert Borgar sitji með Magnúsi
í bæjarráði fýrir Sjálfstæðisflokk.
Venja er að efstu menn á framboðs-
listum sitji í bæjarráði, en Jóhann
G. Bergþórsson, sem var í 2. sæti
hjá sjálfstæðismönnum, er einn
umsækjenda um stöðu bæjarverk-
fræðings Hafnarfjarðar og fái hann
stöðuna getur hann ekki setið í
bæjarráði.
Lúðvík Geirsson verður fulltrúi
Alþýðubandalagsins í bæjarráði'en
Magnús Jón hefur sem bæjarstjóri
seturétt og tillögurétt í ráðinu.
Fjármálum komið í
viðunandi horf
Sjálfstæðismenn fá 2 fulltrúa í
öllum fímm manna nefndum og
formennsku í atvinnumálanefnd,
bygginganefnd, ferðamálanefnd,
hafnarstjórn, heilbrigðisráði, menn-
ingarmálanefnd, skipulagsnefnd,
skólanefnd, vímuvarnanefnd, æsku-
lýðs- og tómstundaráði og öldrunar-
ráði. Alþýðubandalagið fær einn
fulltrúa í fímm manna nefndir og
formennsku í bókasafnsstjórn,
brunamálanefnd, félagsmálanefnd,
framtalsnefnd, húsnæðisnefnd,
íþróttaráði og umhverfísnefnd. I
nefndum þar sem einn fulltrúi er
frá bæjarstjórn skipta flokkarnir
nokkurn veginn með sér nefndar-
sætum.
í sameiginlegri yfirlýsingu flokk-
anna tveggja kemur fram að megin-
viðfangsefnið verði að styrkja og
efla atvinnulífið í bænum og koma
fjármálum hans í viðunandi horf.
Áð sögn Magnúsar Jóns Árnasonar
verður fyrsta verkefnið að fara
gegnum fjármál bæjarins og láta
gera óháða úttekt á fjárhagsstöð-
unni. Einnig er gert ráð fyrir að
fjárhagsáætlun bæjarins verði end-
urskoðuð fyrir 1. september.
Þá leggja flokkarnir áherslu á
endurskoðun stjómkerfísins í því
skyni að gera það skilvirkara og
efla með því móti og treysta sam-
skipti bæjaryfirvalda og bæjarbúa.
Til stendur að fækka nefndum
bæjarins og sagði Magnús Jón að
nú í upphafí kjörtímabilsins verði
aðeins kosið til eins árs í þær nefnd-
ir sem það sé lagalega mögulegt
og þessi mál síðan skoðuð betur í
sumar. Þá stendur til að samræma
upplýsingamiðlun frá bæjarstjórn
og nefndum til bæjarbúa og bæjar-
kerfisins, og færa alla útgáfu og
upplýsingamiðlun á eina hendi.
Magnús Jón bar til baka fréttir um
að búa ætti til embætti upplýsinga-
fulltrúa bæjarins.
Fallið frá bæjarstjóra
kröfunni
Fuiltrúar flokkanna tveggja
settust aftur við samningaborðið á
þriðjudagskvöld eftir að Jóhann
G. Bergþórsson hafði fyrr um
kvöldið fallið frá kröfu sinni um
að ráðinn yrði ópólitískur bæjar-
stjóri. Mikill þrýstingur var á Jó-
hann frá flokksbræðrum hans að
láta af þessari kröfu en í atkvæða-
greiðslu á fundi aðal- og varabæj-
arfulltrúa sjálfstæðismanna á
mánudag var samþykkt með 7 at-
kvæðum gegn atkvæði Jóhanns að
halda áfram samningum við Al-
þýðubandalagið á þeim grundvelli
sem lagður hafði verið. Þar var
gert ráð fyrir að bæjarstjóraemb-
ættið kæmi í hlut Álþýðubanda-
lags.
Jóhann hefur gagnrýnt Magnús
Gunnarsson harðlega fyrir það
hvernig hann leiddi samningavið-
ræðurnar við Alþýðubandalagið og
sakar hann um að hafa gefið Al-
þýðubandalaginu loforð um bæjar-
stjóraembættið án þess að hafa til
þess umboð samninganefndar bæj-
arfulltrúanna. Þessu hefur Magnús
vísað á bug. í ljósi þessa hafa menn
velt því fyrir sér hvernig bæjar-
stjórnarmeirihlutanum muni ganga
samstarfið en flokkarnir tveir hafa
samtals 6 bæjarfulltrúa af 11. Jó-
hann sagði við Morgunblaðið á
þriðjudagskvöld að hann myndi
áfram vinna að framfaramálum
bæjarins í samræmi við þá stefnu
sem hann setti fram fyrir prófkjör
sjálfstæðismanna í vor. Og Magnús
Jón Árnason sagði við Morgunblað-
ið, að hann teldi það frekar styrk
en veikleika að bæjarstjómin hafí
svona nauman meirihluta.
Það gæti einnig spilað inn í, að
Jóhann er einn umsækjenda um
stöðu bæjarverkfræðings Hafnar-
fjarðar og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins þykir hann óum-
deilanlega hæfasti umsækjandinn.
Sem bæjarverkfræðingur myndi
Jóhann ekki geta setið í bæjarráði,
en þyrfti væntanlega ekki að segja
af sér sem bæjarfulltrúi og hefur
sagt í fjölmiðlum að það ætli hann
sér ekki að gera.
2ja manna kúlutjald.
3 kg.
Verð kr. 7.950
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnlg af póstkröfum
greiddum Innan 7 daga
mmúTiLíFm
GLÆSIBÆ . SÍMI 812922
1
Aðfinnslur við þjónustu- o g öryggiskerfi atvinnulausra
Lög um atvmnuleysis-
tryggingar endurskoðuð
0
JÓHANNA Sigurðardóttir félags-
málaráðherra kynnti í gær skýrslu
starfshóps, sem falið var að endur-
skoða þjónustu- og öryggiskerfi at-
vinnulausra. Starfshópurinn lagði
fram fjölbreyttar hugmyndir um úr-
bætur. Jóhanna Sigurðardóttir sagð-
ist í ljósi niðurstaðna skýrslunnar
munu beita sér fyrir heildarendur-
skoðun laga um atvinnuleysistrygg-
ingar og hefur kynnt rikisstjóminni
tillögurnar.
Starfshópurinn rekur í skýrslu
sinni ástæður þess að heildarendur-
skoðun laga um atvinnuleysistrygg-
ingar sé þörf. Hann bendir á að að-
eins sé í núgildandi lögum gert ráð
fyrir atvinnuleysi í skamman tíma.
Hópurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að afmarka verði betur hóp
atvinnulausra. Hann leggur ríka
áherslu á að auka sveigjanleika í
bótakerfinu m.a. í því skyni að kerfi
atvinnuleysisbóta sé ekki notað í
stað annarra úrræða. Til að mynda
er talið að endurskoða megi reglur
um örorkubætur.
Einnig er lagt til að rýmkaðar
verði heimildir atvinnulausra til að
nýta ónýttan persónuafslátt og til
greina komi að endurskoða reglur
um fæðingarorlof.
Starfshópurinn kemst að þeirri
niðurstöðu að menntakerfið sé mjög
ósveigjanlegt gagnvart atvinnulausu
fólki. Lagt er til að ráðgjöf við at-
vinnulausa verði efld. Þá er lagt til
að einstaklingar geti í auknum
mæli stundað nám á fullum atvinnu-
leysisbótum.
Brotalöm hefur verið á fjárhags-
aðstoð sveitarfélaga til íbúa sinna
að mati starfshópsins. Fimmti hver
Islendingur búi í sveitarfélagi, þar
sem fjárhagsaðstoð sé óaðgengileg.
Nauðsynlegt sé að sveitarfélög setji
sér reglur um fjárhagsaðstoð, sem
nægi til framfærslu.
Sveitarfélög sinni
skyldum sínum
Félagsmálaráðherra kvaðst hafa
orðið fyrir vonbrigðum með þessar
niðurstöður enda kveði lög skýrt á
um skyldu sveitarfélaga í þessum
efnum. Hún hyggst fara fram á það
við sveitarfélög að þau sinni skyldum
sínum.
í skýrslunni segir eftirfarandi um
fjárhagsaðstoð sveitarfélaga: „Það
virðist ... mega álykta, að fjárhags-
aðstoð sveitarfélaga sé engan veginn
það öryggisnet sem lög gera ráð fyr-
ir á atvinnuleysistímum og að fjárhag
atvinnulauss manns sé mjög misvel
borgið, eftir því hvar hann á heimili.“
Bilun hjá P&S
Skrefin
hlóðust
upp í apríl
UMFRAMSKREF virðast hafa
hlaðist upp hjá hluta þeirra símnot-
enda sem hafa símanúmer sem
byija á 3 á höfuðborgarsvæðinu í
apríl og hefur Pósti og síma borist
íjöldi kvartana. Að sögn Hrefnu
Ingólfsdóttur, upplýsingafulltrúa
stofnunarinnar, verða umfram-
skrefin felld niður þar sem kemur
í ljós að um mistök sé að ræða.
Hrefna segir að verið sé að kanna
umfang bilunarinnar, en orsök
hennar sé ekki kunn enn. Kvartan-
ir séu enn að berast og á eftir að
fara í gengum þær og athuga hveij-
ar þeirra séu á rökum reistar.
Þegar búið verði að fara í gegn-
um kvartanirnar verður meðalnotk-
un símnotendanna mánuðina áður
reiknuð saman og það sem er um-
fram fellt niður, segir Hrefna.
Misjafnt er hversu mörg skref
hafa bæst við notkun símnotend-
anna, segir hún, og því er ekkert
hægt að segja um umfang bilunar-
innar né um hversu háar upphæðir
sé að ræða.
-----»-»-4----
Snæfellsbær
Meirihluti
myndaður
Ólafsvík. Morgunblaðið
MEIRIHLUTI hefur verið myndað-
ur í fyrstu bæjarstjórn Snæfellsbæj-
ar undir jökli. Meirihlutann mynda
D-listi sem fékk íjóra menn, B-listi
sem fékk tvo og G-listi sem fékk
einn mann í kosningunum. Forseti
bæjarstjórnar verður Páll Ingólfs-
son, efsti maður Sjálfstæðisflokks,
en Atli Alexandersson úr Fram-
sóknarflokki verður formaður bæj-
arráðs. Stefán Garðarsson hefur
verið ráðinn bæjarstjóri en hann var
bæjarstjóri í Ólafsvík síðasta kjör-
tímabil.
.... ♦ ♦------
Sjálfsbjörg
Athygli vaMn
á ólestri í að-
gengimálum
SJÁLFSBJÖRG vekur athygli á að-
gengimálum fatlaðra á útifundi við
umhverfisráðuneytið kl. 12.45 á
föstudag. Landssambandsþing
Sjálfsbjargar verður sett síðar sama
dag.
I fréttatilkynningu segir að borin
verði upp tillaga að áskorun til Al-
þingis um að taka myndarlega á
aðgengimálum fatlaðra, mannrétt-
indamáli sem sé í miklum ólestri
víðast hvar. Síðan verði farið í kröfu-
göngu með lúðrablæstri að Alþingis-
húsinu. Þar verði forseta Alþingis
og forsætisráðherra afhent ályktun
fundarins.
Veitt ádrepa
Ennfremur segir að umhverfis-
ráðuneytinu, sem flutt hafi í gjör-
samlega óaðgengilegt húsnæði eftir
að það hafi tekið við byggingar- og
skipulagsmálum, verði veitt „Sjálfs-
bjargarádrepan - Þrándur í Götu nr.
1 1994“ ef félögum Sjálfsbjargar
takist að skríða upp tröppur að inn-
gangi ráðuneytisins.
Síðar sama dag verður 27. lands-
sambandsþing Sjálfsbjargar sett í
Ársal Hótel Sögu. Við þingsetning-
una flytja m.a. ávörp Össur Skarp-
héðinsson, umhverfísráðherra, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, verðandi
borgarstjóri, og Ólöf Ríkarðsdóttir,
formaður Öryrkjabandalags íslands.