Morgunblaðið - 09.06.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 9
KÖNNUN Á ÁFENGISVENJUM UNGLINGA
Hefur þú einhverntíma
neytt áfengis?
12- 14- 16- 18- 20- 22-
13ára 15ára 17ára 19ára 21 árs 24ára
Hversu oft drekkur Drykkja nú miðað við
þú áfengi á mánuði? hvenær drykkja hófst
Meðalfjöldi 17n 18 ára og eldri spurðir
12- 14- 16- 18- 20- 22- Hóf drykkju 13 14 15 16 17
13 ára 15 ára 17 ára 19ára 21 árs 24ára 12ára ára ára ára ára ára
Flestir byrja að drekka
á aldrinum 14 til 17 ára
AF 12 TIL 13 ára ungmennum
hafa 17% einhvern tíma neytt
áfengis en þetta hlutfall er komið
í 62% í aldurshópnum 14 til 15
ára og 88% hjá 16 til 17 ára. Þetta
gefur að mati Gallup, sem gerði
könnun á áfengisvenjum ung-
menna fyrir Áfengisvarnarráð og
heilbrigðisráðuneyti, til kynna að
flestir kynnist áfenginu milli 14.
og 17. aldursárs. Þóroddur Bjama-
son deildarstjóri á Rannsókna-
stofnun uppeldis- og menntamála
segir að niðurstöðurnar séu gagns-
lausar.
Samkvæmt könnuninni er hlut-
fall þeirra, sem drukku sterkt vín
fyrst allra áfengra drykkja, um
og yfir 70% hjá 18 til 24 ára. Það
hlutfall fer lækkandi eftir því sem
aldurinn lækkar. Að sama skapi
hækkar hlutfall þeirra, sem fyrst
prófuðu bjór, með lækkandi aldri
og virðist vera hæst hjá 12 til 13
ára. Það ber samt að hafa í huga
að mjög fáir 12 til 13 ára hafa
drukkið sinn fyrsta sopa og óviss-
an j tölunum því mikil.
Á aldrinum 16 til 24 ára telja
yfir 80% sig vera í vinahópi, þar
Sérfræðingur segir nið-
urstöður áfengiskönn-
unar gagnslausar
sem flestir eða allir drekka. Á aldr-
inum 12 til 13 ára telja hins vegar
um 68% sig vera í vinahópi, þar
sem enginn drekkur. Á aldrinum
14 til 15 ára telja um 58% sig vera
í vinahópi, þar sem helmingur,
fáir eða enginn drekkur.
í aldurshópnum 12 til 13 ára
drekka 98% ekki sterk vín eða
landa. 14 til 15 ára drekka að
meðaltali 2,46 flöskur á ári, 16 til
17 ára 7,03 flöskur, 18 til 19 ára
12,73 flöskur, 20 til 21 árs 8,57
flöskur og 22 til 24 ára 7,58 flösk-
ur á ári að meðaltali.
Gagnslausar upplýsingar
„Þetta eru fullkomlega gagns-
lausar upplýsingar. Niðurstöður
eru mjög mismundandi eftir aldri
og nú orðið snerta menn ekkert
við því að gera svona kannanir,
nema þeir hafi að minnsta kosti
þúsund manns úr hveijum ár-
gangi. Það, sem gerist þarna, er
að það eru um 125 á bak við hvern
árgang. Ef við tökum til dæmis
svör 12 til 13 ára aldurshópsins
við spurningunni hvort áfengis
hafi einhvern tíma verið neytt og
tökum inn skekkjumörk þá kemur
í ljós að það er um það bil einn
tíundi til einn af hverjum fjórum,
sem svara játandi. Það segir auð-
vitað ekki neitt,“ segir Þóroddur
Bjarnason.
Olafur Árnason hjá Gallup segir
að auðvitað væri betra að hafa
5-600 manns í hveijum aldurshópi
en hins vegar væri öryggi í niður-
stöðunum þónokkuð mikið þegar
um 250 manns í hveijum aldurs-
hópi svara. Þúsund manns telur
hann hins vegar allt of stórt úrtak
nema verið sé að kanna hvern
árgang sérstaklega. Hann segir
að Gallup hafi verið að kanna
umræddan hóp 12 til 24 ára ung-
menna og ef hópnum sé skipt upp
í grunnskólaaldur, framhalds-
skólaaldur og háskólaaldur, sé
verulegur hópur á bak við tölurnar
og góð mynd fáist af stöðunni í
dag.
SUMARFATNAÐU
Stakir jakkar
Síðbuxur, gott úrval
Gallabuxur
Bermudas
Stuttbuxur
Pils
Bolir
Biússur
Peysur
DRAGTIR
SUMARÚLPUR
sokkabuxur.
Opið daglega frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl 10-14.
úJÓunti
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnai
!S
3
X
Könnunina
gerði Gallup
fyrir Áfengis-
varnarráð og
heilbrigðis-
ráðuneytið
Franskir, tvískiptir frúar-
kjólar í litlum stærðum
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
622230.
NEÐi
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
ÞÚ ÞARFT EKKI KASKO
EF ÞÚ KAUPIR ASKO!
Sænsku ASKO þvottavélarnar frá FÖNIX eru trygging þín fyrir
tandurhreinum þvotti, ítrustu sparneytni og sannkallaðri
maraþonendingu.
ASKO-DAGAR í FÖNIX
VERULEG VERÐLÆKKUN Á 8 GERÐUM ASKO ÞVOTTAVÉLA
ASKO framhl. ytralok stillanl. Verð Verð nú aðeins:
gerð topphl. tauborð vinduhr. áður: m/afb. staðgr.
10504 framhl. 800/1000 74.180 69.980 64.990
10524 framhl. 800/1200 81.700 75.250 69.980
10624 framhl. tauborð 800/1200 85.990 79.980 74.380
11004 framhl. 900/1400 94.600 89.200 82.960
12004 framhl. tauborð 900/1400 97.840 92.400 85.930
20004 framhl. tauborð 600-1500 119.980 113.900 105.930
14004 topphl. 800/1000 80.640 75.250 69.980
16004 topphl. 900/1400 90.960 85.980 79.960
□ERTZEN
STORVIRKAR
HÁÞRÝ STIDÆLUR
FRÁDERTZEN
Getum boðið þýsku OERTZEN háþrýstidælurnar fyrir verktaka og aðra aðila, sem þurfa
kraftmiklar dælur, t.d. til húsahreinsunar, skipahreinsunar og sandblásturs.
Dælur og dælustöðvar fyrir sjávarútveginn.
Sérstakar rörahreinsidælur sem losa og hreinsa úr stífluðum rörum.