Morgunblaðið - 09.06.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994 11
Minnis-
merki af-
hjúpað á
Akranesi
Akranesi - Minnismerki sem
helgað er þeim einstaklingum úr
Akranessöfnuði sem farist hafa og
ekki fundist var afhjúpað og vígt
á sjómannasunnudaginn í kirkju-
garðinum á Görðum á Akranesi
að viðstöddu fjölmenni. Sr. Björn
Jónsson framkvæmdi vígsluna en
tvær konur, sjómannsekkjan Vald-
ís Guðnadóttir og móðir horfins
sjómanns, Þuríður Jónsdóttir, af-
hjúpuðu minnisvarðann.
Að sögn Björn Jónssonar má
rekja forsögu þessara fram-
kvæmda til hinna miklu sjóslysa
sem Akurnesingar urðu fyrir á
árinu 1993. Eftir viðræður við
marga aðstandendur þeirra sem
fórust og fyrir eindregna hvatn-
ingu úr þeirra hópi segist sr. Björn
hafa borið upp tillögu á sóknar-
nefndarfundi um að reist yrði slíkt
minnismerki. Tillagan var sam-
þykkt og fljótlega hafist handa við
undirbúning og framkvæmdir und-
ir forystu Jóhannesar Ingibjarts-
sonar sóknarnefndarmanns. Af-
markaður var 7X7 metra minnig-
arreitur og í honum miðjum reist
stuðlabergssúla með áletrunum og
táknum. Umhverfis hana er komið
fyrir fjörusteinum, slípuðum á
einni hlið. Þar á eru festir skildir
með nöfnum þeirra sem farist hafa,
ásamt fæðingar- og dánardegi. Sr.
Björn segir að sú ákvörðun hafi
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
FRÁ vígslu minnismerkis á Akranesi um þá sem farist hafa á
sjó og ekki fundist.
verið tekinn að fara til að bytja
með aðeins 20 ár aftur í tímann
og setja aðeins upp minningar-
skildi þar sem þess væri óskað af
aðstandendum. Hins vegar telur
sóknarnefnd sjálfsagt að heimila
uppsetningu minnigarskjalda
þeirra sem fyrr hafa farist, hvort
sem um er að ræða heilar skips-
hafnir eða einstaklinga úr söfnuð-
inum.
Hönnun og gerð minnismerkis-
ins annaðist Steinsmiðja S. Helga-
sonar hf. í Reykjavík í samráði og
samstarfi við sóknarnefnd Akra-
ness.
Framhaldsskóli
Vestfjarða
Vegleg
bókagjöf
við skólaslit
Isafirði - Skólaslit Framhaldsskóla
Vestfjarða voru laugardaginn 21.
maí síðastliðinn. Nemendur á haust-
önn voru 230 auk 23 sem stunduðu
nám í meistaraskóla iðnaðarmanna.
Brautskráðir voru 22 nýstúdent-
ar, auk 15 vélavarða og fjögurra
nemenda með 2. stigs véistjórn-
arnám að baki. Einnig luku fjórir
skólaprófi í iðngrein og tveir iðn-
meistarar fengu skírteini. Hæsta
meðaleinkunn, 8,7, vegið meðaltal
einkunna í öllum áföngum, hlaut
Ingvi Stígsson frá ísafirði, nemandi
á eðlisfræðibraut. Skólameistari,
Björn Teitsson, skýrði frá því við
athöfnina að skólanum hefði borist
vegleg bókagjöf, um 2.000 bindi, úr
dánarbúi hjónanna Eyjólfs Árnason-
ar gullsmiðs og Guðrúnar Guðvarð-
ardóttur frá Súðavík. Einnig komu
fram áform um að styrkja nám í
skiðavali við skólann og stofna mat-
artæknabraut.
NÝSTÚDENTAR frá Framhaldsskóla Vestfjarða.
EIGNAHÖLLIN
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 20
Sími 680057
Faxnúmer 680443.
MIÐBÆJARAÐALL
Sérstök eign á tveimur hæðum í góðu
steinh., 135 fm. Allt endurn. Laus fljótl.
Getur sameinað heimili og atvinnurými.
Gott verð. Makaskipti.
ÞINGHOLTIIM
Aðalhæð, 125 fm í nýju tvíbhúsi. Bílsk.
fylgir. Makaskipti mögul. Einstök eign
á albesta stað í miðb.
VESTURBÆRINN
2ja herb. íbúð á 2. hæð í KR-blokkinni.
Áhv. byggsjlán 3,4 millj. Laus fljótl.
Stutt í Vesturbæjarlaugina, Háskólann
og miðbæinn.
AUSTURSTRÖND
Góð 2ja herb. íb. í lyftuh. Áhv. byggsjlán.
ÁSVEGUR
Efri sérh. í tvíbh., steinh. Stór gróin
lóð. Gott verð.
FOSSVOGUR
Við Kelduland á besta stað 3ja-4ra herb.
íb. á 2. hæð. Góð sameign. Stórar sólsval-
ir. Laus strax. Gott verð. Góð fjárfesting.
LAUFENGI - GRAFARV.
111 fm íb. á 3. hæð m. bílskýli tilb. u.
trév. Stórar suðursvalir. Góð staðsetn-
ing. Útsýni. Afh. strax. Áhv. húsbr. ca
5,8 millj. Ótrúlegt verð.
GARÐHÚS
Vel byggt endaraðh. í smíðum. Maka-
skipti mogul.
VIÐARRIMI
í smíðum ca 200 fm einb. á einni hæð.
Hagst. verð. Makaskipti. Mjög góð staðs.
Skráum, skoðum og
verðmetum eignina án
kostnaðar þegar við
seljum hana.
Sigurður S. Wiium, sölustjóri,
hs. 627788 og 622788.
Grillveisla í
Rauðsdal
í FYRRAVETUR var tekin upp
sú nýbreytni á Barðaströnd að
leikskóli var á laugardögum hjá
1 'k árs til 5 ára börnum. Þetta
mæltist vel fyrir og hélt áfram
nú í vetur. Fór þetta þannig fram
að mæðurnar skiptust á að vera
með leikskólann þijár í senn í tvo
tíma á dag eftir hádegi. Börnin
voru látin lita, föndra, syngja og
fara í leiki svo eitthvað sé nefnt.
í vetur voru fjórtán börn í leik-
skólanum og lauk honum nú í
vor með grillveislu í fjörunni í
Rauðsdal.
Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarson
Frú Unnur
Jónsdóttir
Andlát
UNNUR
JÓNSDÓTTIR
FRÚ Unnur Jónsdóttir, Bárugötu
13, lést í Landakotsspítala aðfara-
nótt miðvikudagsins 8. júní, eftir
langvarandi veikindi. Frú Únnur,
sem var 78 ára að aldri, var eigin-
kona Úlfars Þórðarsonar augn-
læknis. *
Unnur var fædd í Reykjavík 16.
apríl 1916. Foreldrar hennar voru
hjónin Elísabet Sigfúsdóttir, sem
var Húnvetningur og Jón Hjálmars-
son vélstjóri, ættaður úr Aðalvík.
Unnur varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1934
og lauk BA-prófí í ensku og dönsku
frá Háskóla Islands. Árið 1938 gift-
ist hún Úlfari Þórðarsyni lækni.
Varð þeim fjögurra barna auðið.
ÍBÚÐ SÝND í DAG
^sfÐUMÚWUT* I FÍFUSEL 34
'812744 I Stórgæsileg ca 110 fm 4ra-5 herb. ibúð í fjölbýlishúsi. Rúm-
góð stofa. Parket. Þvottahús innaf eldhúsi. Bílskýli. Skipti á
minni eign kemur til greina. Verð 8 millj.
Sölumaður okkar verður á staðnum kl. 18.00 í dag.
BOSCH
HANDVERKFÆRI
TILKYNNING til þeirra, sem vilja aðeins það besta.
Bræðurnir ORMSSON hf. hafa tekið viö umboði og allri þjónustu á hinum
viöurkenndu BOSCH handverkfærum. Öll viðgerðar- og varahlutaþjónusta
er nú í góöum höndum hjá okkur.
Við munum leggja allan okkar metnaö í góöan lager
og fullkomna þjónustu.
BOSCH
Svissnesk og þýsk gæðavara.
Áratuga reynsla okkar í meðhöndlun
handverkfæra segir allt sem þarf...
£ —.
S
BRÆÐURN_IR
DJ ORMSSONHF
Lágmúla 9, sími 38825
Ath: ekiö inn frá Háaleitisbraut