Morgunblaðið - 09.06.1994, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Jón Engilberts: Vorgleði. 1944.
Náttúrufar litarins
MYNPLIST
Norræna húsið og
FI M - s a 1 u r
MÁLVERK, TEIKNINGAR
OG GRAFÍK
Jón Engilberts. Opið 14-19 daglega
til 3. júlí. Aðgangur ókeypis. Sýning-
arskrá 400 kr.
EIN ÞAU forréttindi sem
tíminn býður upp á er tækifæri
til að endurmeta stöðugt fyrri
ályktanir og afstöðu í ljósi
breyttra aðstæðna og þeirrar
þekkingar og reynslu, sem tíminn
hleður upp. Þessi forréttindi hafa
verið vanmetin, ekki síst á sviði
sögunnar, þar sem menn ríghalda
oft í gamlar skoðanir og kenning-
ar, sem voru ef til vill fremur
byggðar á þröngsýni eða mis-
skilningi en þekkingu og umburð-
arlyndi.
Listasagan er full af dæmum
um slíka fordóma, ekki síður en
almenn stjórnmálasaga. Við skoð-
un þessara tveggja sýninga verð-
ur ljóst, að Jón Engilberts á skil-
ið nokkuð hærri sess en íslensk
listasaga hefur ætlað honum til
þessa, en sú staða er líklega meira
byggð á mati á persónunni en list
hans. Bragi Ásgeirsson bendir á
þetta með ákveðnum hætti í grein
sinni í sýningarskrá: „Hann var
lengi atkvæðamaður í félagsmál-
um, fylginn sér og sagði þar hik-
laust meiningu sína, og slíkum
eru búin þau örlög að axla grann-
ans róg . .. Listamenn sem horf-
ast í augu við samtíðina gjalda
fyrir misskilning og andstreymi,
því þeir eru margir sem neita að
vera hér meðvitaðir og lifa í
myrkri fordóma, tvískinnungs og
skinhelgi."
Jón Engilberts stóð á mótum
tveggja tíma í íslenskri myndlist,
ef svo má komast að orði, þegar
hann flutti heim frá Danmörku;
annars vegar voru svonefndir
frumherjar, sem voru enn í fullu
fjöri (Ásgrímur Jónsson, Jón Stef-
ánsson, Jóhannes Kjarval), og
hins vegar komandi kynslóð ab-
straktmálara (Svavar Guðnason
og aðstandendur Septem-sýning-
anna), sem áttu eftir að verða
alls ráðandi í listinni um langt
skeið. Jón tilheyrði í raun hvorug-
um hópnum, og þrátt fyrir ótví-
ræða viðurkenningu í hópi lista-
manna, var staða hans ekki eins
sterk meðal listunnenda, þó hon-
um væri falið að vinna ýmis stór-
verk fyrir opinbera aðila.
Jón vann í ýmsa miðla, og taka
sýningarnar mið af því; í FÍM-
salnum við Garðastræti er að
finna þrjátíu grafíkmyndir frá
hendi listamannsins, en í sýning-
arsölum Norræna hússins eru ol-
íumálverk, teikningar, vatnslita-
myndir og verk unnin með krit
og blandaðri tækni.
Grafíkmyndirnar eru sterkur
þáttur í listsköpun Jóns, einkum
á fjórða áratugnum, og þar er
nánast um brautryðjendastarf að
ræða, því þá hafði Guðmundur frá
Miðdal einn íslenskra listamanna
eitthvað fengist áður við grafík.
Þessar myndir skiptast í tvö
meginviðfangsefni; annars vegar
eru það myndir helgaðar lífsbar-
áttu verkafólks til lands og sjáv-
ar, en Jón hefur verið einn sterk-
asti myndlistarmaður okkar á því
sviði, eins og margar myndir úr
sjávarþorpum vitna hér um; hins
vegar er það munúðin, ástarblíð-
an, og í þeim er tilvísunin í verk
Edvards Munchs afar sterk.
í bók um listamanninn, sem
kom út 1988 í bókaflokknum ís:
lensk myndlist sem Listasafn ASÍ
og Lögberg gáfu út, benti Ólafur
Kvaran á að áhrifamáttur litarins
hafi alla tíð verið eitt helsta ein-
kenni listar Jóns Engilberts. Þessi
ályktun er ríkulega studd af ýms-
um verkum í Norræna húsinu,
t.d. „Mánasilfur" (nr. 2) og „Við
höfnina“ (nr. 10).
Hins vegar kemur einnig skýrt
fram á þessari sýningu, að hvati
hans í listinni var kominn frá
náttúrunni, bæði eins og Bragi
vísar í orð listamannsins („... að
ég ætti að leggja sömu tilfinningu
í málverkið og menn gerðu þegar
þeir elskuðu konu í fyrsta skipti!“)
og þeirra þriggja tilvísana orðs-
ins, sem Hannes Lárusson ræðir
um í grein sinni — og þar er nátt-
úrufar mannsins sýnu mikilvæg-
ast.
Efnisleg undurgreining sýning-
arinnar í Norræna húsinu kemur
vel á móts við þessar vangavelt-
ur. í fremri sal eru litrík olíumál-
verk, þar á meðal ýmis sem ekki
hafa verið á sýningum áður; í
innri sal eru hins vegar vatnslita-
myndir, ýmis erótísk verk (en á
því sviði var framlag Jón ríku-
legra en flestra samtímamanna
hans), og loks skissur og frum-
myndir af stórvirkinu „Vorgleði“,
sem prýðir afgreiðslusai Búnaðar-
banka- íslands.
Sýningarskrá sem fylgir sýn-
ingunum báðum er vel unnin, og
þar er að finna ritgerðir sem hafa
annars vegar að geyma persónu-
legar minningar Braga Ásgeirs-
sonar um kynni hans af lista-
manninum og íhugun um stöðu
hans í listasögunni, og hins vegar
fróðlega greiningu Hannesar Lár-
ussonar á ákveðnum þætti í list-
sköpun Jóns; sú umfjöllun er jafn
fersk nú og fyrst þegar hún kom
fram, og einkum er athyglisverð
umræðan um tilurð „Vorgleði“,
og gaman að bera saman ætlan
Jóns og þá útkomu, sem bankinn
krafðist á endanum.
Hér hafa verið settar upp sýn-
ingar á ákveðnum þáttum í list-
sköpun þessa vanmetna lista-
manns, og er það vel, en ekki
yfirlitssýning í venjulegri merk-
ingu þess orðs; til þess vantar of
margt mikilvægt úr hans ferli,
t.d. nánari umfjöllun um pólitíska
list hans á fjórða áratugnum, svo
og frjálslegt formspil ýmissa stór-
verka frá síðasta áratug ævi hans,
sem endurspeglast í stórvirkinu
„Sól yfir íslandi“ frá 1967 og
fleiri verkum. Nú eru brátt tveir
áratugir liðnir frá síðustu yfirlits-
sýningu á verkum Jóns, og greini-
lega orðin þörf á að setja verk
hans í nýtt og ef til vill vinsam-
legra samhengi í ljósi þess sem
hefur verið að gerjast í íslenskri
myndlist síðan.
Allir aðstandendur þessa fram-
taks eiga þakkir skildar, því hér
eru á ferðinni sýningar sem eng-
inn áhugamaður um íslenska
myndlistarsögu ætti að láta fram
hjá sér fara.
Eiríkur Þorláksson
Kaldalóns-
tgnleikar
í Arbæjar-
safni
ÁRBÆJARSAFNI barst ný-
lega að gjöf flygill dr. Sigvalda
Kaldalóns tónskálds. Af því
tilefni verður efnt til Kalda-
lónstónleika, sunnudaginn 12.
júní kl. 15.
Sigvaldi
Kaldalóns
sonarsonur
skáldsins og
dóttir hans
Anna Mar-
grét Kalda-
lóns sópran
munu flytja
verk eftir sty1ta af Sig-
hann í Kqrn- valda Kaldalóns
húsinu á Árbæjarsafni.
Kl. 16 sama dag verður flutt
erindi í veitingastofunni í Dill-
onshúsi um ævi og ástir madd-
ömu Sire Ottesen og Dillons
lávarðar á 19. öld.
Norrænir
flakkarar
NORRÆNA húsið stendur í
tilefni af lýðveldisafmælinu
fyrir ferðalagi norrænna lista-
manna um landið, dagana
9.-19. júní.
Byrjað verður á Egilsstöð-
um og farið þaðan til Húsavík-
ur, og síðan Akureyrar,
Blönduóss og Stykkishólms.
Því næst til Reykjavíkur, en
18. júní verður hópurinn í
Borgarnesi og loks þann 19.
í Keflavík.
Hópurinn kallar sig Nor-
rænu flakkarana og í honum
eru átta manna danskur kór,
fimm þjóðlagatónlistarmenn
frá Svíþjóð og Danmörku og
tveir leikarar frá Færeyjum
með barnaleikrit. Komið verð-
ur fram í félagsheimilum, á
vinnustöðum, barnaheimilum,
leikskólum og jafnvel á götum
úti.
tílefni tónleikanna með
í Laugardalshöll 19. júní 1994
eru eftírfarandi plötur á tílboðsverði:
Debutkr. 1.790,-
Life’s too good Here today, tomorrow next weekl Stick Around For Joy It’s It Glíngló Smekkleysa f hálfa öld
„Upphaf aJls - Evrópa undirlögö14 „Ameríka sigruö“ „Heimsveldið styrkír sig“ „Bestu Molamir meö dansbíti" „ Dœgurlagademantar lýöveldissins“ „Ný lægð“ (Útgáfudagur 17. júní)
kr.990,- kr. 990,- kr. 990,- kr. 990,- kr. 1.790,- kr. 1.994,-
Ósóttar miðapantanir seldar eftir 14. júní. + allar tólftommur á kr. 790,-