Morgunblaðið - 05.07.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.07.1994, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR .5. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sljórnvöld and- snúin tilskipun um vinnutíma ÍSLENSK stjórnvöld standa gegn því að tilskipun um skipulag vinnutíma sé lögtekin á evrópska efnahags- svæðinu. Tilskipunin hefur verið samþykkt af Evrópusambandinu, en ísland stendur, eitt EFTA-landa, gegn því að hún öðlist gildi á EES. Arni Páll Árnason, lögfræðingur í utanríkisráðuneytinu, sagði að ís- lensk stjórnvöld efíst um að tilskip- unin falli undir gildissvið EES-samn- ingsins og hefðu því beðið ESB um rökstuðning fyrir því. Tveir fulltrúar ESB komu hingað til lands í gær til að kynna sér viðhorf íslenskra stjórn- valda og aðila vinnumarkaðarins. Árni Páll sagði ekki rétt sem hald- ið hefur verið fram í fjölmiðlum um helgina að embættismenn ESB, sem komu hingað til lands í gær, séu hér til að veita íslenskum stjómvöldum eitthvert tiltal. Hann sagði að eftir að íslensk stjómvöld óskuðu eftir rökstuðningi ESB fyrir því að nauð- synlegt sé að staðfesta tilskipunina hefði ESB ákveðið að senda hingað tvo fulltrúa til að kynna sér sjónar- mið íslendinga. í haust sé síðan að vænta formlegra viðbragða frá ESB við bréfi íslenskra stjórnvalda. í dag áttu fulltrúarnir fund með íslenskum embættismönnum og í dag ætla þeir að kynnast sjónarmiðum fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda. ísland hefur gengist undir tugi tilskipana í félagsmálum í tengsium við aðildina að EES. Árni Páll sagði að það hefði verið sameiginleg nið- urstaða félagsmálaráðherra og ut- anríkisráðherra að þessi tilskipun um vinnutíma samræmdist ekki að öllu leyti íslensku efnahags- og atvinnu- lífí. „Ég geri t.d. ráð fyrir að mönn- um þyki það ekkert smámál á ís- landi ef það heidur sem í tilskipunni segir, að það sé undanþága frá 48 stunda hámarksvinnuviku fyrir vinnslu fisks á sjó en ekki í landi. Þetta myndi væntanlega ýta enn frekar undir þá þróun að vinnsla fisks færðist út á sjó,“ sagði Árni Páll. Verkalýðshreyfíngin hefur lýst yfir óánægju með afstöðu stjórnvalda í þessu máli, BSRB sendi frá sér ályktun í gær þar sem segir að það sé með öllu óaðgengilegt að fylgt sé til hins ítrasta reglugerðum og til- skipunum á hinu evrópska efnahags- svæði sem taka til óheftra markaðs- viðskipta en neita að gangast inn á ákvæði sem lúta að styttingu vinnu- tíma og vinnuvernd. tmmmt------ <*'■ STUTT Umhverfis jörðina á þyrlu á 28 dögum BANDARÍSKI þyrluflugmaður- inn Ron Bower lenti á Reykja- víkurflugvelli síðastliðinn sunnudag á leið sinni umhverfis hnöttinn. Hyggst hann setja nýtt heimsmet með því að fljúga þyrlu einn og án aðstoðar kring- úm hnöttinn. Flugið er talið um 38.000 kílómetrar kringum jörðina og ætlar Bower að fljúga vegalengdina á 28 dögum. Þetta er í annað sinn sem hnattflug er reynt á þyrlu því Ross Perot Jr, sonur auðkýfíngsins og for- setaframbjóðandans Perots eldri flaug ásamt aðstoðarmanni kringum jörðina árið 1982. Ron Bower lagði af stað frá Texas síðastliðinn þriðjudag og hélt áleiðis til Evrópu frá Islandi. Mun hann þvínæst leggja leið sína yfír Rússland og Síberíu en Bower flýgur Bell 206 Jet Ran- ger þyrlu. Sprengisand- ur opnaður ALLAR líkur eru á að takist að opna Sprengisand snemma í vik- unni að sögn Ólafs Hjörleifsson- ar hjá vegaeftirlitinu. Fjalla- baksleið syðri er enn iokuð og segir Ólafur að það sé ekki óvenjulegt. Eyjafi'arðarleið og Skaga- fjarðarleið eru lokaðar. Kjölur og Öskju- og Kverkfjailaleið hafa verið jeppafærar í um viku og miðað er við að leiðirnar inn í Landmannalaugar, Fjallabaks- leið nyrðri og Landmannaleiðin, verði opnaðar í vikunni. Vegirn- ir um Hólssand, í Eldgjá úr Skaftártungum og um Uxa- hryggi og Kaldadal eru orðnir færir. Lægsta boð í veg við Giljá 49,5% STEYPUSTÖÐIN á Blönduósi átti lægsta tilboðið í lokuðu út- boði Vegagerðar ríkisins í Norður- landsveg um Giljá. Fimm tilboð bárust og bauð Steypustöðin kr. 1.193.050 eða 49,5% af kostnaðaráætlun sem er kr. 2.410.000. Næstiægsta boð rúmar 2,8 millj. átti V. Brynjólfs- son hf., Skagaströnd. Suðurverk hf., Hafnarfirði, bauð rúmar 2,9 millj., Fjörður sf., Sauðárkróki, bauð rúmar 3,2 millj. og Króks- verk, Sauðárkróki, bauð rúmar 3,9 millj. Þjóðhagsstofnun boðar betri tíð í efnahagsmálum )rgunblaðið/ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra, Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar og Olafur Dav- íðsson ráðuneytisstjóri kynna efnahagshorfurnar. Efnahagslífið er að rétta úr kútnum Þjóðhagsstofnun telur þróun efnahagsmála hér á landi hagstæða um þessar mundir, eink- um vegna uppgangs í efnahagslífi annarra ríkja og þess að starfs- skilyrði hér á landi eru hagstæð og stöðug. í MINNISBLAÐI Þjóðhagsstofnunar til undirbúnings þjóðhagsáætlun og fjárlagafrumvarpi næsta árs kemur fram að hagvöxtur taki smám saman við sér, að vísu hægar en í mörgum öðrum löndum, en á móti komi að viðleitni til eflingar fiskistofna feli í sér von um hraðari vöxt þegar fram í sækir. Nú er því spáð að landsfram- leiðslan standi í stað milli áranna 1993 og 1994, en dragist ekki saman um 1,1% eins og áður var gert ráð fyrir. Þá er gert ráð fyrir 1% hag- vexti árið 1995. Gert er ráð fyrir að þjóðartekjur aukist um 1,6% á næsta ári vegna bættra viðskiptakjara. Útflutningur vöru og þjónustu verði nánast sá sami árið 1995 og á þessu ári. Út- flutningur sjávarafurða dregst sam- an en útflutningur iðnaðarvara og tekjur af ferðaþjónustu aukast. Viðskiptakjör eru talin munu batna um 1,4% milli áranna 1994 og 1995 og einnig er gert ráð fyrir nokkrum bata á þessu ári. Þá er eink- um iitið til hærra álverðs og aukinn- ar eftirspurnar erlendis vegna efna- hagsbatans. Reiknað er með að laun hækki nokkuð og kaupmáttur aukist um 0,5% árið 1995. Spáð er svipuðu at- vinnuleysi og er á þessu ári eða 5,2- 5,3%. Gert er ráð fyrir að verðlag verði tiltölulega stöðugt áfram þótt verðbólgan aukist eitthvað í kjölfar meiri eftirspurnar. Þjóðhagsstofnun áætlar að verðbólga verði 1,7% á þessu ári sem er ívið meira en Seðla- bankinn spáir, og 2% á næsta ári. í forsendum Þjóðhagsstofnunar er miðað við að halli á ríkissjóði verði Helstu þjóðhagsstærðir 1992-1995 Hlutfallslegar breytingar milli ára. Einkaneysla Samneysla Fjárfesting Þjóðarútgjðld Verglands- Þjóðartekjur Viðskipta- %4n alls framleiðsla jöfnuður (Hlutf. af __ landsfrl.) I íí 1992 1993J bráðab. Spá1994 Spá1995 |f f 1 Viðskiptakjör, % í heild Atvinnuleysi Hlutfall af mannafla Verðbólga, framfærsluvísitala, % Meðalhækkun milli ára Kaupmáttur ráðst.tekna á mann, % I Að meðalt. milli ára Spá1994 Spá1995 6% innan við tíu milljarðar króna á næsta ári og í framhaldi verði stefnt að lækkun hans í áföngum. Áfram verði fylgt aðhaldssamri stjórn peninga- mála og óbreyttu gengi. Þjóðarútgjöld aukast um 2,2% á næsta ári samkvæmt áætlunum Þjóðhagsstofnunar en þjóðarútgjöld hafa dregist saman síðastliðin þijú ár. Áætlað er að einkaneysla aukist um 2,6%, samneysla um l,6%ogfjár- festingar aukist um 1,7%. Loks er gert ráð fyrir því að við- skiptajöfnuður verði hagstæður bæði á þessu og næsta ári og gangi það eftir yrði það í fyrsta skipti á lýðveld- istímanum sem það gerðist þtjú ár í röð. Þetta þýðir að erlendar skuldir munu minnka á næsta ári, bæði að raungildi og sem hlutfall af lands- framleiðslu. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar kynntu þessar niður- stöður í gær. Davíð sagði að þær styrktu mjög það viðhorf og þá sýn að ástandið sé að breytast hægt en örugglega til batnaðar. Bæði eigi það við um ástand efnahagsmála almennt ið fer ekki framhiá bér! Tæknival hf. er sölu- og þjónustuaðili á íslenska Skjáfaxinu. Tæknival Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664 í heiminum og einnig hér á landi á flestum sviðum efnahagslífsins. Davíð sagði að í samanburði við aðrar þjóðir væru flestar hagstærðir hér á landi hagstæðar nema þá helst að hagvöxtur er hægari hér á landi. Þetta væri mjög athyglisvert miðað við þær þrengingar sem íslendingar hefðu gengið í gegnum, og það segði að áætlanir um stöðugleika, sem menn hefðu verið ásáttir um að tryggja, hefðu gengið eftir og væru að skila þjóðinni langþráðum árangri þótt mikilvægt sé að ekkert fari úr böndum. „Við erum ekki að segja að sú staða sé komin upp að menn geti farið að slaka á,“ sagði Davíð. Gott jafnvægi Þórður Friðjónsson sagði að sam- anburður við aðrar þjóðir segði að hér væri traust yfir efnahagsmálun- um og tiltölulega gott jafnvægi mið- að við það sem gengur og gerist. Á næsta ári væri almennt reiknað með hægum upptakti í efnahagsþróuninni en þar skipti að sjálfsögðu miklu máli að áfram yrði beitt aðhaldi í ríkisfjármálum og við fjárlagagerð. „Við höfum aðstæður sem eru hag- felldar um margt og eiga að geta nýst til að hefja vaxtarskeið," sagði Þórður. Bæði Davíð og Þórður lögðu áherslu á að þessar áætlanir væru mjög varfærnar. Ekki væri gert ráð fyrir síldveiði umfram það sem þegar hefur veiðst eða að álverð hækki frá því sem nú er. Þá væri ekki miðað við auknar veiðar utan fiskveiðilögsögu. I forsendunum er reiknað með að verðlag á sjávar- afurðum lækki ekki meir en orðið er en hins vegar er miðað við þá hækkun sem orðið hefur á verði áls og annarra stóriðjuafurða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.