Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 14

Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Verðbólga lækkar í Rússlandi MÁNAÐARLEG verðbólga í Rússlandi var 4,8% í júní og hef- ur ekki verið minni síðan verð- lagning var gefin fijáls í janúar 1992. Lækkaði hún mikið milli mánaða því í maí var hún 8,1%. I janúar var verðbólgan 22% en talið er nú, að hún fari í 2,5-3% fyrir árslok. Mun þessi þróun ýta enn frekar undir vaxtalækkanir en í síðustu viku lækkaði seðla- bankinn endurfjármögnunarvexti í 155% úr 170%. Var það fimmta vaxtalækkunin frá því í apríl. Fundu leifar af taugagasi TALIÐ er, að taugagas hafi valdið dauða sjö manna í bænum Matsumoto í Japan í síðustu viku en ekki er vitað hvernig það barst út í andrúmsloftið. Um 50 manns voru flutt á spítala með öndunarerfíðleika. Við rannsókn fundust leifar af efni, sem líkist sarin, en það er taugagas, sem nasistar framleiddu og_ var t.d. notað í stríðinu milli íraka og Irana. Fyrrverandi efnasali, sem varð fyrir eitruninni ásamt öðr- um, hefur verið yfírheyrður en hann neitar allri sök. Ekki samstarf við PDS RUDOLF Scharping, leiðtogi jafnaðarmanna í Þýskalandi, hefur ekki í hyggju að nýta sér stuðning lýðræðislegra sósíal- ista, PDS, arftaka austur-þýskra kommúnista, til að verða kansl- ari. Lýsti hann þessu yfir í gær í framhaldi af því, að jafnaðar- menn í Sachsen-Anhalt í austur- hlutanum ætla að mynda þar minnihlutastjórn með græningj- um en þurfa að reiða sig á stuðn- ing PDS á fylkisþinginu. Scharp- ing sagði, að þetta stjómar- mynstur myndi hann ekki endur- taka á landsmælikvarða. Sósíalistar verða að selja ofan af sér SVO illa er komið frönskum sós- íalistum, að þeim er nauðugur einn kostur að selja höfuðstöðvar flokksins í París og koma sér fyrir í ódýrara húsnæði. Verða þær auglýstar á næstunni en þær eru á vinstri bakka Signu pg skammt frá franska þinginu. í kosningunum til Evrópuþings- ins á dögunum fengu sósíalistar ekki nema 14,4% atkvæða. Expo ’96 Hætta Ungverj- ar við? Búdapest. Reuter. SAMNINGAR hafa verið undir- ritaðir og gestunum hefur verið boðið en gestgjafarnir eru samt að hugsa um að aflýsa veisl- unni. Hér er átt við heimssýn- inguna í Búdapest í Ungveija- landi eftir tvö ár, Expo ’96. Stuðningsmenn sýningarinnar segja, að hún muni vekja mikla athygli á landinu og draga að sér milljónir ferðamanna en stjórnvöldum, samsteypustjórn sósíalista og fijálsra demókrata, ofbýður kostnaðurinn. Áætlaður kostnaður við heimssýninguna er um 35 millj- arðar ísl. kr. og hafa stjórnvöld lofað að leggja fram rúmlega 20 milljarða. Hitt átti að koma frá einkaaðilum og fyrirtækjum en ólíklegt er, að það standist. Ævarandi háðung Stjórnvöld segja, að fénu yrði betur varið til að örva efnahags- lífið en stuðningsmenn sýning- arinnar segja, að það verði best gert með sýningunni, með þeim samgöngubótum, sem unnið er að hennar vegna í Búdapest, með ferðamannastraumnum og þeirri kynningu, sem Ungveija- land og ungversk framleiðsla muni fá. Auk þess yrði það landsmönnum til ævarandi háð- ungar hættu þeir við allt saman. Valdaránstilraun afstýrt í Kambódíu Sonur Sihanouks ætlaði að steypa af stóli hálfbróður sínum Phnom Penh. Reuter, Daily Telegraph. STJÓRNVÖLD í Kambódíu komu í veg fyrir tilraun til valdaráns um helgina og handtóku samsæris- mennina. Hefur einum þeirra, Norodom Chakrapong prinsi og syni Norodoms Sihanouks kon- ungs, verið vísað úr landi og er hann nú í Malasíu. Aðfararnótt sunnudagsins var mikill orðrómur um valdarán í Phnom Penh, höduðborg Kambód- íu, enda voru þá skriðdrekar á götunum og hermenn gættu heim- ila beggja forsætisráðherranna. Hefur mikil spenna verið í Kambódíu síðustu daga vegna fyr- irliggjandi tillögu á þingi, sem gerir ráð fyrir, að skæruliðasam- tök Rauðra khmera verði bönnuð en friðarviðræður þeirra og stjórn- valda fóru út um þúfur í síðasta mánuði. Flestir fulltrúar konungs- íjölskyldunnar í ríkisstjórninni eru andvígir banninu og segjast ótt- ast, að það verði til að kynda und- ir ófriðnum í landinu. Forsprakkar valdaránstil- raunarinnar voru þeir Chakrapong prins og Sin Song, fyrrum innan- ríkisráðherra, en flokkur þeirra laut í lægra haldi fyrir flokki kon- ungssinna í þingkosningunum á síðasta ári. Var Chakrapong rek- inn úr landi eins og fyrr segir en Sin Song var handtekinn. Valda- ránsliðið, sem ekki taldi nema 200 hermenn, var stöðvað fyrir utan Phnom Penh og hermennirnir sendir til búða sinna en foringjarn- ir handteknir. Sihanouk konungur, sem er til meðferðar við krabbameini í Pek- ing, krafðist þess á sunnudag, að sonur sinn yrði látinn laus en þá var hann alls ekki í haldi, heldur hafði verið vísað úr landi. Þá hót- aði hann einnig að snúa ekki heim aftur til Kambódíu ef lögin um bann við starfsemi Rauðra khmera yrðu samþykkt. Forsætisráðherra Kambódíu, Norodom Ranariddh prins, er einnig sonur Sihanouks og eru þeir Chakrapong hálfbræð- ur en svarnir óvinir. 37 fórust er DC-9 þota fórst í Charlotte í Bandaríkjunum Flugmenn fengu við- vörun um höggvind Charlotte. Reuter. ÞRJÁTÍU OG SJÖ manns fór- ust þegar DC-9 þota bandaríska flugfélagsins USAir hrapaði í aðflugi að flug- vellinum í Char- lotte í Norður- Karólínu í Bandaríkjunum á laugardags- kvöld. Tuttugu lifðu slysið af. Höggvindur gæti hafa verið orsök. slyssins, en það hefur þó ekki verið stað- fest opinberlega. Mikið þrumu- veður var þegar flugvélin fórst. Hún kom niður í rjóðri, en rakst síðan á stór tré og brotnaði. Meðal þeirra sem lifðu af voru báðir flugmennirnir. Rætt verður við þá í dag, en báðir hafa mikla reynslu af flugi. Bæði hljóðupp- taka úr flugstjórnarklefa og „svarti kassinn“, sem skráir upp- lýsingar um flugið, hafa fundist í flakinu og verða send til Was- hington til at- hugunar. Vitað er að flugmennirnir fengu viðvörun um hættu á höggvindi skömmu áður en vélin hrapaði. Höggvindur er staðbundin breyting á vind- átt, þannig að flugvél sem er í aðflugi á móti vindi lendir skyndilega í meðvindi, með þeim afleiðing- um að dregur úr hraða lofts yfir vængina og lyftikraftur tapast. Stjórnandi rannsóknar á orsök- um slyssins vildi ekki staðfesta að höggvindur hefði valdið slysinu. „Flugmenn eru æfðir í að varast og bregðast við slíkum aðstæð- um,“ sagði hann. „Ég vil ekki segja að höggvindur hafi verið orsök slyssins.“ Björgunarmenn skoða flak þotunnar í Charlotte í gær. LOUIS Freeh, yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar FBI (t.h.), og Alexej Iljúshenko, starfandi ríkissaksóknari Rússlands. FBI opnar úti- bú í Moskvu VILTU VíKKA SJÓNÞEILDARHRINGINN? >1FS Á ÍSL4NDI Alþjóðleg fræðsla og samskipti Þú hefur tækifæri til að eignast nýjan fjölskyldumeðlim. Við óskum eftir fjölskyldum fyrir skiptinema, á aldrinum 16—19 ára, frá miðjum ágúst '94 til byrjun júlí '95. Hvort sem fjölskyldan er stór eða lítil, með ungbörn, unglinga eða engin börn, þá hefur hún möguleika á að hýsa erlendan skiptinema. Nánari upplýsingar á skrifstofu AFS á íslandi, Laugavegi 59, 3. hæð, sími 91-25450. Moskvu. The Daily TelegTaph. BANDARÍSKA alríkislögreglan FBI opnaði í gær útibú í Moskvu sem ætlað er að afla upplýsinga um rússneska glæpamenn sem starfa í Bandaríkjunum og veita rússneskum yfírvöldum upplýs- ingar um tilraunir glæpamanna til að kaupa rússnesk kjarnavopn. Louis Freeh, yfírmaður FBI, opnaði útibúið, en hann er á ferð um átta ríki í Áustur- og Mið-Evr- ópu til að ræða við þarlenda ráða- menn um hvernig beijast eigi gegn skipulögðum glæpahópum sem hann segir „mestu ógnina við ör- yggi Bandaríkjanna til lengri tíma litið“. Freeh hyggst ræða við yfirmenn rússnesku lögreglunnar og Sergej Stepashín, yfirmann gagnnjósna- deildar leyniþjónustunnar. „Höfuðmarkmiðið með fundum okkar næstu daga er að tryggja að starfsemi okkar verði skipu- legri en skipulögðu glæpasamtak- anna sem við beijumst gegn,“ sagði Freeh við komuna til Moskvu. Freeh gladdi gestgjafa sína með því að lýsa yfir stuðningi við um- deilda tilskipun Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, sem heimilar lögreglunni að hafa meinta glæpa- menn í haldi í 30 daga án þess að ákæra þá og kanna bankareikn- inga ættingja þeirra. Hvort tveggja brýtur í bága við nýja stjórnarskrá landsins. Þegar Freeh var spurður um tilskipunina sagði hann að í sögu Bandaríkjanna væru dæmi um að stjórnvöld hefðu beitt hermönnum og numið lög úr gildi til að koma á lögum og reglu. Rússnesk yfírvöld eru óánægð með yfirlýsingar Freehs um ógn- ina sem Bandaríkjunum stafi af rússneskum glæpamönnum og kjarnavopnum og búist er við að Stepashín biðji hann að færa rök fyrir staðhæfingum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.