Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 34

Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Jæja, Snati, við er- Vá! Ertu viss um að þú sért með Ég er feginn að þú um tilbúnir að fara! nógan farangur? minntir mig á ... ég gleymdi keiluspils- kúlunni minni! BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 091100 • Símbréf 691329 Enn um fatlaða og fötlun Frá Helgu Garðarsdóttur: KOMDU sæll, Jóhann Pétur! Af sömu ástæðu og þú þakkar mér í Morgunblaðinu þann 25. júní sl. fyrir bréf mitt .Hveijir eru fatlað- ir?“, sem birt var í sama blaði þann 17. júní sl., þakka ég þér fyrir bréf þitt ,Að vera eða vera ekki fatlað- ur“. í bréfi þínu segir þú: ,... að opin umræða um hugtök á sviði fötlunar sé af hinu góða og mjög nauðsynleg til að almenningur og stjórnvöld geri sér grein fyrir því að fatlaðir eru í raun það ólíkur hópur að erf- itt ef ekki ómöguiegt er að skil- greina þá undir eitt allsheijarhug- tak“. Við þetta vil ég bæta að umræðan getur komið öllum fötluð- um einstaklingum til góða, ef rétt er haldið á spöðunum, en ef ekki er hætta á að hún fleyti sumum áfram á kostnað annarra. í hvaða farveg umræðan fer skiptir sköp- um. Eg vil ekki gera lítið úr þeirri skoðun þinni að spurning sé hvort hægt sé að nota eitt og sama orðið um alla fatlaða vegna þess hve fötl- un er misjöfn, en læt í ljós það álit mitt að leikur að orðum er síst til þess fallinn að bæta aðstöðu fatl- aðra. Það eru mörg dæmi um að hagsmunafélög hafi flækst í orða- leik og vona ég að félög fatlaðra beri gæfu til að feta ekki í spor þeirra. Orðið fötlun hefur margar merkingar Það er vafalaust hárrétt hjá þér að fyrir 36 árum, þegar Sjálfsbjörg var stofnuð, hafi orðið fötlun fyrst og fremst verið haft um hreyfihöml- un, en að á ,alþjóðaári fatlaðra“ hafi orðið fengið víðari merkingu, sem staðfest hafi verið með lögum um málefni fatlaðra. Þar sem mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því á ,alþjóðaári fatlaðra" finnst mér tímabært að í daglegri umræðu verði lögð áhersla á að með orðinu fötlun er átt við margs konar frá- vik frá reglunni, s.s. hreyfihömlun, lömun, blindu/sjóndepru, heyrnar- leysi, andleg veikindi o.s.frv. Með hliðsjón af viðurkenndri merkingu orðsins fötlun finnst mér rétt að breyta heiti félags þíns, Jóhann Pétur, í .Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra". En það er ykkar félaganna að ákveða það. Það er hins vegar umhugsunarvert hvort félag sem í heiti sínu segist vera landssamband fatlaðra eigi ekki að tala máli allra fatlaðra jafnt. Þú minnist eðlilega á þá skoðun mína, sem ég setti fram í fyrr- nefndu bréfi mínu, að aðalatriði sé ekki að fólk í hjólastólum geti farið um húsnæði opinberra stofnana heldur það að fólkið hafi aðgang að þjónustu stofnananna. Það kem- ur mér ekki á óvart að þú skulir í bréfi þínu ítreka þá skoðun þína að það sé ,réttur“ allra að geta farið um allar byggingar í landinu og læt ég því ógert að karpa við þig hér um þennan skoðanaágrein- ing okkar, en tek fram að ég stend við hvert orð í bréfi mínu .Hveijir eru fatlaðir?" I því lét ég m.a. í ljós þá skoðun mína að því fé sem ætl- að er fötluðu fólki sérstaklega eigi að veija í annað en breytingar á gömlum húsum, t.d. Vonarstræti 4, þar sem umhverfisráðuneytið er til húsa. Aftur á móti finnst mér sjálfsagt að í byggingum, sem hægt er að komast inn í og um í hjóla- stól, sé snyrtiherbergi sem tekur mið af þörfum manns í hjólastól og að komið verði fyrir, þar sem hægt er, brautum fyrir hjólastóla, sbr. stigar fyrir þá sem þá komast. Þá vil ég einnig sjá handrið á veggjum og bekki í sem flestum byggingum fyrir gangfært en hreyfihamlað fólk og blinda/sjónskerta. Einnig vil ég sjá bekki á þeim svæðum sem fólk er hvatt til að ganga um sér til heilsubótar, því það geta ekki allir sest á jörðina eða stóra steina. Raða þarf verkefnum í forgangsröð Um allt land eru svo margar hindranir sem fatlað fólk mætir að ekki verður komist hjá því að raða þeim í forgangsröð; það verður að vega og meta í hvaða röð á að ráð- ast gegn þeim. Fólk í hjólastólum verður að sætta sig við að draumur- inn um að allar byggingar verði færar öllum er langtímaverkefni. Það gengur ekki að stinga höfðinu í sandinn og segja: Allar byggingar eiga að vera færar öllum. Því auk þess að vera rándýrt krefst það þess að margar byggingar um allt land verða dæmdar ónothæfar. Hins vegar kostar lítið sem ekkert að beijast gegn sumum hindrunun; hindrunum sem fólk setur sérstak- lega upp af kvikindisskap og tillits- leysi. Gegn slíku á að beijast af hörku, s.s. þeirri óþolandi og óafs- akanlegu frekju gangfærs fólks að stöðva/leggja bílum sínum í stæði sem eru aðeins ætluð fólki í hjóla- stólum og að stöðva/leggja bílum á gangstéttum og leiða með því blinda og sjónskerta í stórhættulega gildru. Það kostar ekkert fyrir hið opinbera að útrýma þessu tillits- leysi, þvert á móti getur það orðið því tekjulind; a.m.k. sé ég ekkert því til fyrirstöðu að gengið verði hart fram í því að innheimta hjá fólki háar upphæðir fyrir þessi brot, eins og fyrir það að keyra yfir gatnamót á rauðu ljósi. Þótt okkur greini á, Jóhann Pét- ur, um mikilvægi þess að allar byggingar séu færar öllum og að ég andmæli þeim orðum þínum að það sé ,brot á mannréttindum" fólks í hjólastólum, að komast ekki inn í og um allar byggingar, er ég sann- færð um að þú ert með sammála um að hafi okkur með bréfaskrifum okkar tekist að vekja einhveija til umhugsunar um þau mál sem varða fatlaða sérstaklega, getum við bæði vel við unað. HELGA GARÐARSDÓTTIR, Bjarnarstíg 6, Reykjavík. Gagnasafn Morgnnblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.