Morgunblaðið - 14.08.1994, Side 22

Morgunblaðið - 14.08.1994, Side 22
22 SUNNUDAGUR14. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ 1 KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABÍÓ tekur á næstunni til sýninga nýjustu mynd bræðranna Joels og Ethans Coen. Hudsucker Proxy heitir hún og er gamanmynd með Tim Robbins, Paul Newman og Jennifer Jason Leigh í aðalhlutverkum. Peðið sem létekki fóma sér STRAX og Mussburger hittir Norville er hann sannfærður um þarna sé einmitt maðurinn sem hann vantar í forstjórastólinn. NORVILLE Bames (Tim Robbins) var að ljúka prófi í viðskiptafræði í háskólanum heima í Mundie í Indiana og þegar Hudsucker Proxy hefst er hann að koma til New York þar sem hann ætlar að láta að sér kveða í viðskiptalífinu á sjötta áratugnum, byija á botninum og stefna á toppinn. Á sama augnabliki og Norville tryggir sér stöðu í innanhússpóstdeild alþjóðastórfyrirtækisins Hudsucker Industries, tekur líf stofnanda fyrirtækisins Waring Hudsucker aðra stefnu. Hann stekkur út um glugga á fertugustu og fjórðu hæð húss fyrirtækisins og tryggir sér skjótan dauðdaga á gangstéttinni. Mikil skelf- ing grípur um sig meðal stjórnenda fyrirtækisins. Waring Hudsucker lét ekki eftir erfðaskrá og þar af leiðandi verð- ur að bjóða meirihlutaeign hans í fyrirtækinu til sölu á almennum markaði innan 30 daga. Aðeins einn maður heldur ró sinni, Stanley J. Mussburger (Paul Newman), hægri hönd Warings. Hann er strax búinn að finna lausn- ina sem tryggir stjórnendunum möguleika á að eignast hlutabréf stofnandans á viðráðanlegu verði. TIM Robbins leikur Norville Robbins og Paul New- man leikur Stanley J. Mussburger sem heldur að Norville sé asni sem hann hafi í vasanum. NORVILLE er sannfærður um að uppfinning sín, húlla-hopp gjörðin eigi eftir að slá í gegn en Muss- burger og félagar taka það sem sönnun þess að maðurinn sé ekki með öllum mjalla og því rétti maðurinn í forstjórastólinn. að sem við þurfum að gera,“ segir Mussbur- ger valdsmannslega, „er að koma hlutunum þannig fyrir að fjárfesting í því sem nú er arðvænlegasta fyrirtæki aldarinnar verði álíka eftir- sótt og sigling yfir Atlants- hafíð með Titanic." Hann hefur aðferðina á reiðum höndum. Málið er að ráða einhvem vitleysing til að taka við forstjórastarfinu af War- ing heitnum Hudsucker. Peð, strengjabrúðu, lepp, sem hægt er að ráðskast með í tæpa þijátíu daga eða þar til verð hlutabréfanna hefur fallið svo langt niður að verð- ið verður viðráðanlegt. En hver er nógu einfaldur og saklaus til að passa í hlutverk leppsins? Fyrir valinu verður nýliðinn i póstdeildinni, Nor- ville Bames, sem virðist ekki alveg eins og fólk er flest en er með áform á pijónunum um nýja framleiðsluvöru. í fyrstu virðist áætlun Mussburgers ætla að ganga upp og verð hlutabréfa í fyr- irtækinu hríðfellur. Ástandið vekur athygii blaðakonunnar Amy Archer (Jennifer Jason Leigh), sem ákveður að af- hjúpa Norville Barnes sem vitleysing sem ráði ekki við starfíð og eigi að koma fyrir- tækinu á vonárvöl. Hún villir á sér heimildir og kemst að sem einkaritari Bames. Smám saman rennur upp fyrir henni að Norville er ekki jafnglataður og hann lítur út fyrir að vera. Þegar við bætist að nýja framleiðslan hans, húlla- hopp gjörðin, fer sem eldur í sinu um Bandaríkin, taka hlutabréfín að stíga hærra en nokkru sinni áður. En samt eru ský á himni því Stanley J. Mussburger og félagar taka því ekki aðgerð- arlausir að áform þeirra séu gerð að engu. Hudsucker Proxy er áreið- anlega engin venjuleg gam- anmynd. Þetta er fimmta kvikmynd bræðranna Joels og Ethans Coen. Joel leik- stýrir, Ethan framleiðir og saman skrifa þeir handritið, að þessu sinni í samvinnu við Sam Raimi, sem þekktari er sem kvikmyndaleikstjóri og ástsæll sem slíkur í þröngum hópi og gerði m.a. Darkman. Raimi er einnig skráður aðstoðarleikstjóri myndarinnar og fékk að stýra tökum á mörgum tæknilega flóknustu atriðum myndarinnar en af slíku er meira í The Hudsucker Proxy en í flestum fyrri myndum bræðranna. Þrátt fyrir að myndir Coen bræðra hafi jafnan hlotið mikið lof gagnrýnenda og góða aðsókn í Evrópu, hafa þeir ekki slegið í gegn að gagni heima í Ameríku, enda þótt síðasta mynd þeirra, Barton Fink, hlyti þijár ósk- arsverðlaunatilnefningar, auk gullpálmans í Cannes árið 1991. Blood Simple, ein athyglisverðasta mynd árs- ins 1984, Raising Arizona og Miller’s Crossing, gerðu vart meira en að standa und- ir lágum framleiðslukostnaði á bandarískan mælikvarða. The Rudsucker Proxy, er fyrsta kvikmynd þeirra bræðra þar sem alvöru Hollywood-stjörnur eru í að- alhlutverkum og aldrei áður hafa þeir haft úr jafnmiklum peningum að moða, 25 millj- ónum bandaríkjadala, nær 1,5 milljörðum króna. Lykill- inn að því að Joel og Ethan tókst að útvega alla þessa peninga er sá að þeir fengu til samstarfs við sig fram- leiðandann Joel Silver, fram- leiðanda hasarmynda númer 1 og guðföður mynda á borð við Lethal Weapon, Die Hard og Demolition Man. Silver skipti sér hins vegar ekki af gerð myndarinnar og fyrir vikið er Hudsucker Proxy ósvikið höfundarverk Coen-bræðranna og ber hin sérstöku höfundareinkenni þeirra jafnt og fyrri mynd- irnar þótt söguþráðurinn sé óneitanlega í anda mynda Frank Capra eins og gjarnan er sagt um myndir sem fjalla um venjulegan mann sem settur er í erfiða, óvenjulega og ábyrgðarfulla aðstöðu sem enginn á von á að hann ráði við. í aðalhlutverk myndarinn- ar völdust þijár valinkunnar stjörnur. Hinn 69 ára gamli Paul Newman, sem allir þekkja úr The Sting, Butch Cassidy and the Sundance Kid og ótal öðrum myndum tók að sér að leika Sidney J. Mussburger. Tim Robbins, leikstjóri, höfundur og stjarna myndarinnar Bob Roberts og aðalleikari mynda Roberts Altmans, Short Cuts og The Player, leikur Norville Barnes. Robbins segst hafa fagnað þessu hlutverki sérstaklega. „Eftir hlutverkin sem ég lék í The Player og Bob Roberts tók ég fegins hendi tækifær- inu til þess að leika mann með samvisku. Og Norville er ekki vitlaus. Hann er bara ekki gæddur þeim eiginleik- um sem menn þurfa til að lifa af í höðrum samkeppnis- heimi.“ Jennifer Jason Leigh úr Single White Female, leikur svo blaðakonuna Amy Archer. Auk þeirra er gamla kempan Charles Durning, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja m.a. úr þáttunum Evening Shade meðal leik- enda í myndinni. Hann leikur Waring Hudsucker sjálfan og hverfur því snemma af sviðinu en ekki fyrr en hann hefur skilað hlutverki sínu með afar eftirminnilegum hætti. Furðufuglar og snillingar ÓTT svo eigi að heita að Joel Coen sé leik- stjóri og handritshöfundur og Ethan Coen framleiðandi og handritshöfundur er verkaskiptingin á milli þeirra að jafnaði ekki alltof ljós. „Joel og Ethan hafa ekkert egó,“ segir Tim Robbins, aðalleikari The Hudsucker Proxy. „Þeir eru samvaxnir, á nákvæmlega sömu bylgju- lengd og annar botnar stöð- ugt hálfkláraðar setningar hins. Ég hef aldrei séð þá rífast,“ segir hann. „Það var mjög ánægjulegt að vinna undir stjórn Joels og Et- hans.“ segir hin stórstjama myndarinnar, Paul New- man. „Ég hef aldrei áður unnið með tveimur leikstjór- um. Og ég hef aldrei áður unnið með tveimur mönnum sem ráða jafnmiklu úm gerð og útlit myndar en rífast aldrei. Ég skemmti mér stór- kostlega." Eins og gefur að skilja eru Coen-bræður engir venjulegir kvikmynda- gerðarmenn og þeir falla ekki í mynstur hinna hefð- bundnu Hollywood-manna enda hafa þeir fram að gerð The Hudsucker Proxy haft lítið við fólkið á þeim bæ saman að sælda. Joel og Ethan eru gyðing- ar frá Minneapolis. Joel verður fertugur í nóvember, Ethan 37 ára í september. Þeir voru á unglingsaldri þegar þeir ásamt félögum sínum settu á stofn fyrir- tæki og tóku að sér að slá garða til þess að safna sér peningum til að festa kaup á kvikmyndatökuvél og filmum sem þeir dunduðu sér við að taka á 8 mm stutt- myndir næstu árin. Síðan fóru þeir í háskóla; Joel lærði kvikmyndagerð í New York og fékk síðan vinnu sem klippari við hryll- ingsmyndirnar Fear No Evil og The Evil Dead. Ethan las hins vegar heimspeki í Princeton og dvaldi þar við fræðimennsku fyrst að loknu námi eða þar til stóri bróðir kallaði á hann til New York árið 1982 að gera með sér kvikmynd. Þá hafði þeim bræðrum tæmst arfshlutur eftir sölu á landi sem afi þeirra og amma höfðu átt í ísrael og þeir peningar voru stofn- sjóðurinn sem kosta skyldi fyrstu kvikmynd þeirra. Af- ganginn lögðu vinir og vel- unnarar frá Minnesota í púkkið án þess að hinn eig- inlegi kvikmyndaiðnaður kæmi þar nokkurs staðar nærri. Eins og jafnan síðar skrif- uðu báðir handrit, Joel var titlaður leikstjóri en Ethan framleiðandi. Myndin hét Blood Simple, var frumsýnd árið 1984 og var að margra mati ein besta kvikmynd þess árs. Samt gerði hún lít- ið meira en að standa undir sér en vann á hinn bóginn til ýmissa verðlauna á smærri kvikmyndahátíðum. Eftir Blood Simple lögð- ust bræðurnir undir feld um tíma en sýsluðu þó sitthvað við kvikmyndagerð, skrif- uðu saman handrit kvik- myndar sem heitir Crimewave auk þess sem Joel lék aukahlutverk í myndinni Spies Like Us, með Dan Aykroyd. Árið 1987 leit svo önnur mynd Coen-bræðra dagsins ljós, uppfull af sérstæðum og óvenjulegum húmor og efnistökum bræðranna. Það var Raising Arizona með Nicolas Cage í aðalhlutverki. 1990 gerðu þeir svo Mill- er’s Crossing, bófamynd í anda þriðja áratugarins, sem eins og hinar tvær hlaut prýðisgóða dóma en fremur dræmar viðtökur í Banda- ríkjunum þótt áhorfendur tækju betur við sér í Evrópu. Árið 1991 var svo komið að gerð Barton Fink, mynd- arinnar um rithöfundinn sem kemur ekki frá sér staf- krók á blað þótt allt í kring- um hann eigi sér stað hinir ótrúlegir og örlagaríkir at- burðir. Sú hlaut þrjár ósk- arstilnefningar og vann að auki þrenn helstu verðlaun- in í Cannes árið 1991; sjálf- an gullpálmann, auk þess sem John Torturro hlaut verðlaun fyrir besta leik og Joel fyrir leikstjóm. Þótt peningarnir létu á sér standa höfðu furðufugl- arnir, sem nú áttu sífellt stækkandi aðdáendahóp, endanlega áunnið sér virð- ingu Hollywood-fólksins sem nú fór að gera sig lík- legt við þá. Afraksturinn er The Hudsucker Proxy, myndin sem færði Coen- bræðurna af útjaðri og inn í hringiðu bandaríska kvik- myndaiðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.