Morgunblaðið - 14.08.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 14. AGUST 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
í HRJÓSTRUGU LANDIJARÐHITANS
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
~ Vænir fiskar
víða
A SAMA tíma og smálax hefur
víða vantað illilega í íslenskar lax-
veiðiár í sumar, hefur stórlaxinn
látið á sér kræla og hefur veiðst
óvenju mikið af vænum fiskum.
Fréttir eru af tveimur 26 punda
löxum, í Presthyl og Þverá í Borg-
arfirði í júní. Þá hefur nokkrum
24, 23 og 22 pundurum og mörg-
um 20 og 21 punds löxum verið
landað. Veiðimenn hafa fyrir satt,
að þeir stærstu hafi enn ekki
veiðst. Þeir segja að tveir risar
séu í Laxá í Þingeyjarsýslu, annar
i Skriðuflúð og hinn í Vitaðsgjafa
og eru báðir taldir vera milli 30
og 40 pund. Á myndinni er Aad
Groeneweg með 24 punda hæng
úr Hvítá eystri.
■ Eru þeir að fá’ann?/8
0
Háskóli Islands
Nemendum og ný-
skráningum fjölgar
SKRÁNINGAR í Háskóla íslands
leiða í ljós að nemendur verða fleiri
í upphafí næsta skólaárs en í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Nem-
endaskráningu Háskóla íslands
hafa alls 5.236 manns skráð sig í
HI en á haustmisseri í fyrra skráðu ’
sig 4.957 manns í skólann. Þessi
aukning samsvarar 5,6% fjölgun.
Enn meiri fjölgun er meðal
nýskráðra. í ár hafa 1.993 nýnemar
skráð sig í skólann en fjöldi þeirra
var 1.840 í fyrra. Þetta er 8,3%
'°r áukning milli ára.
Félagsvísindadeild verður fjöl-
mennasta deildin á haustmisseri en
þar eru skráðir 1.085 nemendur.
Heimspekideild og læknadeild eru
einnig fjölmennar en í þeim munu
rúmlega þúsund nemendur stunda
nám.
Nýnemum fjölgar í flestum deild-
" "am Háskólans. Mesta fjölgun ný-
nema er þó í lyfjafræði innan
læknadeildar þar sem fjöldi þeirra
tvöfaldast milli ára. Nú munu 35
hefja nám en nýnemar voru 17 í
fyrra. Mikil fjölgun verður einnig í
sjúkraþjálfun en hún nemur um
29% milli ára. í þeirri grein hefja
128 nýstúdentar nám en í fyrra
bytjuðu 99 manns.
Hrun í guðfræðideild
Aðeins í tveimur deildum fækkar
nýskráningum. í guðfræðideild inn-
ritast aðeins 15 nemendur að þessu
sinni en í þeirri deild hófu 34 nem-
ar nám í fyrrahaust. í lagadeild
fækkar nýnemum um tæp 10%. 182
laganemar byija í ár en 201 í fyrra.
Konur eru hlutfallslega færri í
hópi nýskráðra en í fyrra. 55,9%
þeirra eru konur nú en hlutfall
þeirra skólaárið 1993-1994 var
56,3%.
Loðnuleit heimiluð
í lokaða hólfinu
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að leyfa loðnuskipun-
um að leita að loðnu í lokaða hólfinu norður af Vestfjörðum. Hafrann-
sóknaskipið Árni Friðriksson mun fylgjast með skipunum. Nánast
engin loðnuveiði hefur verið við landið síðustu daga og eru allar loðnu-
verksmiðjur á landinu lokaðar ef verksmiðjan á Bolungarvík er undan-
skilin, en nokkur skip hafa verið að koma þangað með smáslatta.
Snör viðbrögð
björguðu lífi
átta ára telpu
ÁTTA ára telpa var nær dauða
en lífi eftir að hafa dottið á reið-
hjóíi í fyrradag. Hún fékk stýrið
inn í kviðinn og við það sprakk
annað nýrað. Aðstandendur hafa
eftir læknum að rétt viðbrögð
allra sem inn í atburðarásina
komu hefðu bjargað lífi telpunnar.
Óhappið varð með þeim hætti
að telpan fékk lánað reiðhjól vin-
konu sinnar. Hún hjólaði niður
brekku á fleygiferð og kom að
hliði þar sem tvær járngrindur
ganga á víxl og þarf að skjóta
sér á milli þeirra til að komast
framhjá. Telpan reyndi að bremsa
en tókst það ekki. Hún reyndi að
henda sér af hjólinu en datt og
stakkst stýrið inn í kviðinn hægra
megin og upp undir rifbeinin.
Gat strax látið vita
Telpan komst heim til föðurfor-
eldra sinna og lét föðursystur sína
vita af sér. Föðursystirin segir að
hún hafi strax gert sér grein fyr-
ir að eitthvað væri að því að telp-
an var stjörf, augun galopin, hún
átti bágt með að tála, kvartaði
undan því að hún ætti erfitt með
að anda og var við það að falla
í yfirlið. Föðursystirin hringdi
strax á sjúkrabíl. Á leiðinni á
sjúkrahús féll blóðþrýstingur telp-
unnar mjög hratt. Hún var strax
skorin upp og kom í ljós að hægra
nýrað var sprungið.
Aðstandendur telpunnar hafa
eftir læknum að þetta hafi verið
spurning upp á líf og dauða. Snör
viðbrögð allra hafi bjargað lífi
telpunnar. Hún var orðin hress í
gær miðað við þær hremmingar
sem hún hafði lent í og segja
læknar að hún muni ná sér að
fullu.
Ábending til foreldra
Aðstandendur telpunnar vilja
hvetja foreldra að athuga vel
bremsur á hjólum barna sinna og
brýna fyrir þeim að fara ekki á
hjól sem þau þekki ekki. Þá vilja
þau koma á framfæri þakklæti
til allra sem hafa sinnt telpunni
frá því óhappið varð.
Loðnuskipin sem enn eru á mið-
unum eru öll í Grænlandssundi þar
sem skipin hafa fundið stóra og góða
loðnu. Áðstæður til að ná henni eru
afar slæmar. Þama er mikill straum-
ur og hafa skipin hreinlega gefist
upp við veiðarnar. „Skipin eru búin
að verða fyrir stórfelldu veiðarfæra-
tjóni þama, aftur og aftur. Það er
hreinlega ekki forsvaranlegt að reyna
þetta miðað við núverandi aðstæður,“
sagði Þórður Jónsson, rekstrarstjóri
SR-mjöls. Hann sagði að loðnunæt-
urnar flæktust og rifnuðu og dæmi
væri um að skip lenti inni í nótinni.
Sjómenn telja veiðanlega
loðnu á svæðinu
Þórður sagði að sjómenn væru
nokkuð vissir um að veiðanleg loðna
væri á þessu svæði. Hann sagði að
menn vonuðust eftir að betra yrði
að eiga við loðnuna í lokaða hólfinu,
en þar er minni straumur. Þórður
sagðist gera sér vonir um að það
glaðnaði yfir loðnuveiðinni að nýju
um helgina. Hann sagði að straumur
í Grænlandssundi væri að minnka,
auk þess sem Ioðnusjómenn teldu
að loðnan væri að færa sig norðaust-
ur, þar sem auðveldara yrði að eiga
við hana.
Eitt norskt loðnuskip er enn á
loðnumiðunum, en hin eru farin
heim. Á tímabili voru yfir 40 norsk
skip á miðunum.
Skjálfti í
Olfusinu
Jarðskjálftakippur fannst í Ölfus-
inu klukkan rúmlega 6 í gærmorg-
un.
Upptök skjálftans vom skammt
norðan við Hveragerði. Skjálftinn
mældist 3,8 stig á Richterkvarða.