Morgunblaðið - 13.10.1994, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Ef ég skrifa litlu rauðhærðu stelpunni ástarbréf, Á ég að gleypa það, ef ég verð tekin til fanga?
vilt þú þá afhenda það fyrir mig?
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Á ÍSLANDI verður aldrei gróandi þjóðlíf, með bjór og brennivín
og aðra vímu í fararbroddi, segir Árni Helgason.
Eitruð þjóðarsál
Frá Árna Helgasyni:
ÞAÐ VORU uggvænleg tíðindi
sem birtust á baksíðu Morgun-
blaðsins 7. þ.m. Aukning bjórsölu
í landinu um 1,2 milljónir lítra
og svo að reykingar ungmenna
fara hraðvaxandi skv. mælingum
þar um. Okkur bindindismönnum
koma þessi tíðindi ekki á óvart
því bæði við tilkomu bjórsins og
eins síðar höfum við varað við
þessari þróun og nóg var nú fyr-
ir. En hvernig þessi aukning bitn-
ar á heilbrigði fólks, fjármunasó-
un og hugsunarhætti þjóðarinnar
hefir ekki verið reiknað út, en
þeir eru margir sem undir þessu
stynja og heimilin segja til sín,
það fer ekki milli mála, og þjóðin
í heild tapar, og þar kemur mann-
dómurinn líka til greina. Þetta
hlýtur að vekja ráðamenn þjóðar-
innar og þeir hljóta að sjá að slík
þróun má ekki halda áfram. Við
höfum allt annað við upprennandi
æsku að gera en spilla henni í
eitri og ólyfjan. Við bindindis-
menn höfum þráfaldlega bent á
þessa þróun og hvernig hvert
ungmennið og mannkostamaður
þjóðarinnar verður fórnardýr
þessara eiturefna.
Rán, misþyrmingar, svik
og prettir
Og ég spyr: Höfum við efni á
að halda þessu áfram? Opnum við
svo dagblað og útvarp, að ekki
sé sama sagan um rán, misþyrm-
ingar, svik og pretti, akstur undir
áhrifum eiturefna o.s.frv. og alls-
konar ófarnað með þjóðinni, og
allt sem miðar á verri veg í hinu
daglega iífi. Og að maður tali
Gagnasafn
Morgimbladsins
AUt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
ekki um hversu fáum orðum er
treystandi og að fyrirverða sig
fyrir aliskonar ósvífni og jafnvel
glæpi, heyrir sögunni til.
Já, það sígur á ógæfuhliðina
og það er virkilega tími kominn
til þess að stjórnvöld og allur al-
menningur rumski, nuddi stírur
úr augum og hefjist handa. Ég
man þegar bindindishreyfingin
ásamt kristilegum félögum höfðu
meiri ítök í þjóðinni en nú að þá
dreymdi mann um gróandi þjóðlíf
og það var virkilega í raun, þá
beittu menn sér fyrir því að styðja
hver annan og þá var ekki krafist
peninga fyrir að hjálpa hver öðr-
um. Þessi peningaalda hefir ekki
haft bætandi áhrif á þjóðlífið,
enda ekki von, þar sem menn ein-
blína á peningana er ekki von að
þeir hafi tíma til að líta kringum
sig.
Umskipti í þjóðfélaginu
En hvað sem öðru líður getum
við ekki horft á þessi umskipti í
þjóðlífinu og setið aðgerðalaus.
Við vitum um þörfina og heyrum
og sjáum hve hrikalega hin illu
öfl þjóðlífsins eru í sókn. Bindind-
ishreyfingin er ekki eins stór og
áður og það nota þeir sem græða
á óförum annarra. Bjórinn hefir
orðið okkur mesti skaðvaldur, það
fer ekki milli mála og allar þessar
bjórbúllur gildrur fyrir hinn veika,
og taka mikla peninga þjóðarinn-
ar og þeirra sem áttu að leggja
þá til heimilis í stað þessara
ógæfuvalda. Það er mikið gert til
að hamla á móti þessu og það
gera hinir einlægu og trúfélög.
Þar er viss árangur en betur má
ef duga skal.
Það er sorg að nota sér ógæfu
annarra til auðgunar. Það erum
við sammála um og því spyr ég,
er ekki kominn tími fyrir alla þjóð-
holla menn að gera það sem í
þeirra valdi stendur til að rísa á
móti. Á íslandi verður aldrei gró-
andi þjóðlíf, með bjór og brenni-
vín og aðra vímu í fararbroddi.
Ef við viljum eignast gæfuríka
framtíð og gott land, verðum við
að hrekja þennan óþverra og eitur
á brott. Eitruð þjóðarsál gerir
ekki mikið landi sínu til heilla.
Athugum þetta vel.
ÁRNIHELGASON,
Stykkishólmi.