Morgunblaðið - 30.10.1994, Síða 1
96 SÍÐUR B/C/D
248. TBL. 82. ÁRG. . SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ofanburður á Akureyri
SNJÓ kyngdi niður á Akureyri í fyrrinótt og fram eftir degi í gær og var aldrei lát á hríðinni. Sást hvergi á dökkan díl.
Gróður sligaðist undan snjóþyngslunum en stúlkurnar gengu eftir Eyrarlandsveginum af stóískri rósemi.
Boða frekari viðræður
við Auner San Suu Kyi
Rangoon. Reuter. ^ J
Hundabann
sett í Kína
ÞÓTT nú sé „ár hundsins" í Kína hafa
borgaryfirvöld í Peking í hyggju að
selja bann við öllum hundum - jafnvel
Pekinghundum - á mörkuðum borgar-
innar, verslunum, hótelum, almenn-
ingsgörðum, skólum og opinberum
stöðum. Hundar mega aðeins sjást á
götunum eftir klukkan átta á kvöldin
og til dögunar - og þá aðeins í fylgd
fullorðins. Þá þurfa hundaeigendur að
greiða jafnvirði 46.000 króna á ári í
skráningargjald fyrir hvern hund, sem
er þrefalt meira en meðalárslaun borg-
arbúa. Um 190.000 hundar eru í Peking
og 100 milljónir í öllu landinu þrátt
fyrir sérþjálfaðar drápssveitir sem leita
uppi ólöglega hunda.
Rauðvín með
kjöti hollt
JAPANSKUR vísindamaður hefur stað-
fest hollustu þess að neyta rauðvíns
með nautakjöti. Stöðvar það oxun mik-
ilvægs prótíns sem myndast í maganum
eftir að kjöt er melt. Oxuð mynd svo-
kallaðs LDL-prótíns er ein af helstu
orsökum slagæðaherslis, sem veldur
hjartaáföllum. Frá þessu verður skýrt
í breska læknaritinu The Lancet.
Selafælan
reynist vel
SKOSKUR laxabóndi greip til þess ráðs
að setja fimm metra trefjaglerslíkan
af háhyrningi við eldiskvíar í Loch
Clash í þeirri von að það fældi aðgangs-
harða seli sein drepið höfðu allt að 200
laxa á viku sér til matar. Aðeins 10
fiskar hafa drepist á viku síðan.
Mæla þunga
svarthols
STJÖRNUFRÆÐINGUM við Oxford-
háskóla hefur tekist að þyngdarmæla
svarthol með því að hraðamæla peru-
laga stjörnu sem svartholið, V404
Cygni, er um það bil að svelgja í sig.
Stjarnan er í 26 milljóna milna fjarlægð
frá svartholinu og fær lögun sína af
togkröftum þess. Nákvæm þyngd
svartholsins, sem er í um 13.000 ljósára
fjarlægð frá jcrðu, er sögð vera
24.000.000.000.000.000.000.000.000.000
tonn. Er það 12 sinnum þyngra en sólin.
FJOMIÐLAR í Rangoon, höfuðborg Burma,
lögðu miklu rými undir myndit- og frásagn-
ir frá fundi andófskonunnar Aung San Suu
Kyi og fulltrúa herforingjastjórnarinnar í
fyrradag. Þar var sagt að frekari viðræður
stæðu fyrir dyrum. Fundurinn fór fram í
gestabústað hersins í höfuðborginni og stóð
í þijár klukkustundir.
Viðræðurnar voru sagðar „opinskáar og
hressilegar". Blöð lögðu forsíður sínar und-
ir myndir og fréttir frá fundinum og útvarp
og sjónvarpsstöðvar fjölluðu sömuleiðis um
hann í máli og myndum.
Suu Kyi átti óvænt fund með fulltrúum
stjómarinnar fyrir mánuði, hinn fyrsta frá
því hún var sett í stofufangelsi í Rangoon
í júlí 1989. Haft var eftir óbreyttum borgur-
um sem horfðu á sjónvarpsfréttir frá fundin-
um nú, að hún virtist öllu hraustlegri og
afslappaðri en á fyrri fundinum.
Vilja sættir
Af hálfu stjórnarinnar ræddu þrír hers-
höfðingjar við Suu Kyi, þar á meðal forseti
hennar, Khin Nyunt hershöfðingi.
„Það er tími til kominn að J)au semji.
Það hljóta þau að geta fyrst Israelar og
arabar geta friðmælst,“ sagði óbreyttur
stuðningsmaður andófskonunnar. Af hálfu
herforingjanna hefur verið látið að því liggja
að frekari samningaviðræður við Suu Kyi
standi fyrir dyrutn en almenningur hefur
tekið orðróm af því tagi með miklum fyrir-
vara. Þess vegna komu fréttir af fundinum
í fyrradag enn á óvart.
Suu Kyi er 49 ára dóttir sjálfstæðishetj-
unnar Aung San og gift breskum vísinda-
manni. Hún hefur ekki viljað slaka á kröfum
sínum um lýðræðislegar umbætur í Burma
og lilaut árið 1991 friðarverðlaun Nóbeis
fyrir baráttu sína.
Aung San Suu Kyi var í fylkingarbijósti
lýðræðissinna sem risu upp 1988 en herinn
braut mótmæli þeirra á bak aftur af mik-
illi grimmd. Lýðræðishreyfingin, sem Suu
Kyi stofnaði, vann stórsigur í þingkosning-
um í Burma 1990 en herforingjastjórnin
virti úrslitin að vettugi og fór ekki frá.
NOTAÐURSEM
GRÝLA Á BÖRN!
Hnefaréttur
bMH
SONUR TEKUR
VIÐ AF FÖÐUR
VIÐSKIPTl/ATVINNVLÍF
Á SUIMIMUDEGI
Kóngalíf í
Tyrklandi
48
R T ónar frá
Túnfæti