Morgunblaðið - 30.10.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 30.10.1994, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Sendiráðið í Reykjavík verður fyrsta hús sem Bretar og Þjóðverjar byggja saman ístak fjármagnar framkvæmd- ir og leigir undir sendiráðin Skipulagsstjórn synjar borgaryfir- völdum um undanþágu frá auglýsingu SKIPULAGSSTJORN ríkisins hef- ur hafnað umsókn borgaryfirvalda um að samþykkja án auglýsingar breytta landnotkun lóðar þeirrar við Laufásveg, sem skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar hafði samþykkt að ráðstafa til sameiginlegrar sendiráðsbyggingar fyrir Breta og Þjóðverja. Byggingin í Reykjavík er hin fyrsta sem ríkisstjórnir þjóð- anna tveggja, sem bárust á bana- spjót í tveimur heimsstyrjöldum fyrr á öldinni, hafa sameinast um að láta reisa, og að sögn Ólafs Sig- urðssonar arkitekts hússins hafa allir sem komið hafa að undirbún- ingi byggingarinnar verið sér vel meðvitaðir um það að sögulegur atburður sé í aðsigi þótt þeirri stað- reynd hafí lítið verið haldið á lofti í samstarfínu. Páll Siguijónsson, forstjóri Ís- taks, staðfesti við Morgunblaðið, að fyrirtækið muni, auk þess að byggja húsið, íjármagna fram- kvæmdimar og verða eigandi húss- ins a.m.k. fyrst um sinn en leigja sendiráðunum, sem innrétti húsið á eigin kostnað. Stefán Thors skipulagsstjóri sagði að samkvæmt skipulagslög- um væru tvær leiðir færar til að samþykkja breytingu á landnotkun frá aðalskipulagi en á gildandi skipulagi var lóðin á Laufásvegi 31, sem stendur við mót Laufásvegar, Hellusunds og Skothúsvegar, ætluð undir íbúðabyggingu en ekki skrif- stofuhús á borð við sendiráð. Átta vikur til að koma að athugasemdum Annars vegar væri sú leið að auglýsa breytinguna samkvæmt lögum í sex vikur og veita að auki tveggja vikna frest til að koma á framfæri athugasemdum sem sveit- arfélagið hefði síðan allt að átta vikur til að semja umsagnir um og senda málið til skipulagsstjórnar, sem að loknu samþykki sendir mál- ið til staðfestingar umhverfísráð- herra. Hins vegar sé heimiit þegar um er að ræða að minni háttar breyt- ingar, sem ekki er ágreiningur um og snerta ekki hagsmuni annarra, að sveitarstjóm samþykki breyt- ingu og óski staðfestingar skipu- lagsstjórnar án auglýsingar. Stefán Thors sagði að í þessu tilviki hefðu legið fyrir athugasemd- ir frá nágrönnum, sem óskað hefðu eftir lögboðinni auglýsingu, til að þeir fengju lengri frest til að kynna sér málið auk þess sem athuga- semdir hefðu verið gerðar við stærð byggingarinnar og hugsanleg um- ferðarvandamál sem henni fylgdu. Stefán sagði að borgaryfírvöld hefðu auglýst fyrirhugaðar breyt- ingar í Morgunblaðinu 21. ágúst og boðið upp á kynningu virka daga á eftir. Þetta væri ekki það form sem skipulagslög gerðu ráð fyrir og væri ekki auglýsing um breyt- ingu aðalskipulags heldur óformleg kynning. Skipulagsstjóm hefði talið í samræmi við lög að þessi breyting fengi þá kynningu sem lög geri ráð fyrir. Hugsanlega kaupleiga Páll Sigurjónsson vísaði á við- komandi sendiherra spurningum um ástæður þess að fyrirtækið hefði tekið að sér að fjármagna sendi- ráðsbygginguna fyrir þýsku og bresku utanríkisþjónusturnar. ístak mundi eiga húsið en hugsanlegt væri að gerður yrði um það kaup- leigusamningur. Hins vegar mundu leigjendurnir taka við húsinu óinn- réttuðu og innrétta það á sinn kostnað. Byggingarkostnaður væri áætlaður innan við 100 milljónir króna. Ekki náðist tal af breska sendi- herranum. Samskipti og fagmennska rædd a hjúkrunarþingi Vilja komast meira í beina hjúkrun HJUKRUNARFRÆÐINGAR vilja fá meiri viðurkenningu á sérstæðu hlutverki sínu. Kom þetta fram í erindi á hjúkrunarþingi sem haldið var í gær. í öðra erindi kom fram gagnrýni á það að hjúkrunarfræð- ingar létu ekki nógu mikið í sér heyra í umræðum um niðurskurð á Þorlákshöfn I gjörgæslu eftir veltu TVEIR menn slösuðust í útafakstri á Þorlákshafnarvegi, rétt utan við bæinn, í gærmorgun. Þyrla Land- helgisgæslunnar flutti þá á slysa- deild Borgarspítalans þar sem annar var lagður á gjörg-aesludeild. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynn- ingu um slysið klukkan 8.40. Segir hún að svo virðist sem bílnum hafí verið ekið á miklu hraða. Valt hann útaf veginum og hafnaði úti í hrauni, 15 metram frá veginum. Tveir menn innan við tvítugt vora í bílnum og slösuðust báðir alvarlega. fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu. Hrund Sch. Thorsteinsson, hjúkr- unarframkvæmdastjóri á Landspít- alanum, velti því fyrir sér í erindi hvað hjúkranarfræðingar gætu gert til þess að fá viðurkenningu á sér- stæðu hlutverki sínu. í samtali við blaðið sagði hún að hjúkrunarfræð- ingar þyrftu að breyta því hvernig þeir störfuðu inni á sjúkrahúsunum. Fá tækifæri til að komast í enn meira samband við sjúklingana. Hugsa bara um eigið skinn? Anna Stefánsdóttir, hjúkranar- framkvæmdastjóri á Landspítalan- um, fjallaði um samskipti hjúkranar- fræðinga við stjómvöld. Vakti hún athygli á því hvernig hjúkrunarfræð- ingar hefðu á undanförnum áram birst almenningi, annars vegar í umræðum um eigin kjaramál og hins vegar um niðurskurð til heilbrigðis- þjónustu. í samtali við Morgunblaðið sagðist hún gagnrýna það hversu lítið hefði heyrst frá hjúkrunafræð- ingum um niðurskurðinn í saman- burði við kjaramálin. Það gæfí þá mynd af stéttinni að hjúkrunarfræð- ingar hugsuðu meira um eigið skinn en skjólstæðinga sína og hvatti hún félaga sína til að breyta þessu. Morgunblaðið/Þorkell ÞORSTEINN Pálsson dómsmáíaráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og Arthur Morthens, formaður Barnaheilla, við setningu ráðstefnunnar í gær. Erótískar teikningar Lennons sýndar hér í Morgunblaðinu í dag er 12 síðna blaðauki sem nefnist Veljum íslenskt. SÝNING á umdeildum teikningum eftir John Lennon, sem Scotland Yard gerði upptækar árið 1970, verður opnuð á Kjarvalsstöðum í febrúar. Brúðargjöf til Yoko Um er að ræða átta erótískar myndir sem poppstjaman, sem lagði stund á myndlistamám áður en hún öðlaðist heimsfrægð, teikn- aði á ofanverðum sjöunda ára- tugnum og færði sinni heittelsk- uðu, Yoko Ono, í brúðargjöf. Höfðar til fleiri Að sögn Gunnars Kvarans, for- stöðumanns Listasafns Reykjavík- urborgar, hafði Ono sjálf milli- göngu um það að Kjarvalsstaðir fengju sýninguna en menningar- málanefnd þurfti að samþykkja breytingu á dagskrá vetrarins til að málið næði fram að ganga. Gunnar segir að helsti kosturinn við sýningu sem þessa sé sá að hún höfði til fólks sem ekki sé daglegir gestir á Kjarvalsstöðum. Rætt um mannréttindi barna SAMTÖKIN Barnaheill efndu til ráðstefnu á Hótel Loftleiðum í gær um mannréttindi barna. Var ráðstefnan vel sótt og hélt fjöldi innlendra og erlendra fyrirlesara erindi. Ráðstefnan var haldin af því tilefni að samtökin Barnaheill eru 5 ára um þessar mundir. For- seti íslands frú Vigdís Finnboga- dóttir og Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra ávörpuðu ráðstefn- una og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hélt erindi um mannréttindi og alþjóðahjálpar- slarf. Erfðir og umhverfi ►í Bandaríkjunum er komin út bók sem vakið hefur mikið umtal, en þar er fjallað um greind manna og viðmiðanir varðandi greindar- vísitölu./lO Notaður sem Grýla á óþæg börn ►Sighvatur Björgvinsson boðar breytingar í heilbrigðisþjónustunni og gerir upp ár sín sem heilbrigðis- ráðherra./14 Hnefaréttur barna ►Ofbeldi bama og unglinga gagn- vart jafnöldrum sínum hefur verið í brennidepli fjölmiðla undanfarnar vikur./16 Skáldið sem sólin kyssti ►Guðmundur Böðvarsson skáld og bóndi á Kirkjubóli í Hvítárstðu hefur verið kallaður „eitt af ævin- týrum íslenskrar bókmenntasögu". Birtur er kafli úr nýútkominni ævisögu skáldsins./18 Sonur tekur við af föð- ur ►í Viðskiptum og atvinnulífí á sunnudegi er rætt við feðgana Símon Ragnarsson og Ragnar Símonarson, afkomendur Jóns Sig- mundssonar gullsmiðs, sem fyrir 90 áram stofnaði skartgripaversl- un í Reykjavík, sem enn er starf- rækt./22 B ► 1-28 Tónar frá Túnfæti ►Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur óperur, dægurlög og djass, enda með óvenjulegan söngferil að baki. A tónlistarbúli sínu segir hún Kristínu Maiju Baldursdóttur frá tóninum í hljóðfærinu ogtímanum, óvini sínum./l Tölvur í skólastarfi ! ►Hefur hefðbundin notkun tölva í skólastarfí gengið sér til húðar? /6 Villtir svanir ►Villtir svanir eftir kínverska höfundinn Jung Chang hefur farið sigurför um heiminn. I henni er sönn frásögn þriggja kynslóða kvenna í Kína á þessari öld, frá keisaraveldi tilkommúnisma./8 Sagnfræði augna- bliksins ►Guðrún Finnbogadóttir hefur skráð viðtöl við rússneskt fólk sem misst hefur fótanna í tilver- unni./12 c BÍLAR ► 1-4 Nýir bílar ►Hvenær koma nýju bílamirtil landsins?/4 Reynsluakstur ^BMW 316i, stuttur hlaðbakur hlaðinn búnaði./2 fastir þættir Leíðari Helgispjall Reykjavíkurt Minningar Myndasögur Brids Stjömuspá Skák Bréf til blaðsins 38 INNLENDAR FRÉTTIR- 2—4—8—BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1-6 bak Velvakandi 40 26 Fólk (fréttum 42 26 Bíó/dans 44 26 Iþróttir 48 29 Útvarp/sjónvarp 49 38 Dagbók/veður 61 38 Mannlifsstr. lOb 38 Kvikmyndir 14b 38 Dægurtónlist lSb 38

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.