Morgunblaðið - 30.10.1994, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sendiráðið í Reykjavík verður fyrsta hús sem Bretar
og Þjóðverjar byggja saman
ístak fjármagnar framkvæmd-
ir og leigir undir sendiráðin
Skipulagsstjórn synjar borgaryfir-
völdum um undanþágu frá auglýsingu
SKIPULAGSSTJORN ríkisins hef-
ur hafnað umsókn borgaryfirvalda
um að samþykkja án auglýsingar
breytta landnotkun lóðar þeirrar við
Laufásveg, sem skipulagsnefnd
Reykjavíkurborgar hafði samþykkt
að ráðstafa til sameiginlegrar
sendiráðsbyggingar fyrir Breta og
Þjóðverja. Byggingin í Reykjavík
er hin fyrsta sem ríkisstjórnir þjóð-
anna tveggja, sem bárust á bana-
spjót í tveimur heimsstyrjöldum
fyrr á öldinni, hafa sameinast um
að láta reisa, og að sögn Ólafs Sig-
urðssonar arkitekts hússins hafa
allir sem komið hafa að undirbún-
ingi byggingarinnar verið sér vel
meðvitaðir um það að sögulegur
atburður sé í aðsigi þótt þeirri stað-
reynd hafí lítið verið haldið á lofti
í samstarfínu.
Páll Siguijónsson, forstjóri Ís-
taks, staðfesti við Morgunblaðið,
að fyrirtækið muni, auk þess að
byggja húsið, íjármagna fram-
kvæmdimar og verða eigandi húss-
ins a.m.k. fyrst um sinn en leigja
sendiráðunum, sem innrétti húsið á
eigin kostnað.
Stefán Thors skipulagsstjóri
sagði að samkvæmt skipulagslög-
um væru tvær leiðir færar til að
samþykkja breytingu á landnotkun
frá aðalskipulagi en á gildandi
skipulagi var lóðin á Laufásvegi 31,
sem stendur við mót Laufásvegar,
Hellusunds og Skothúsvegar, ætluð
undir íbúðabyggingu en ekki skrif-
stofuhús á borð við sendiráð.
Átta vikur til að koma að
athugasemdum
Annars vegar væri sú leið að
auglýsa breytinguna samkvæmt
lögum í sex vikur og veita að auki
tveggja vikna frest til að koma á
framfæri athugasemdum sem sveit-
arfélagið hefði síðan allt að átta
vikur til að semja umsagnir um og
senda málið til skipulagsstjórnar,
sem að loknu samþykki sendir mál-
ið til staðfestingar umhverfísráð-
herra.
Hins vegar sé heimiit þegar um
er að ræða að minni háttar breyt-
ingar, sem ekki er ágreiningur um
og snerta ekki hagsmuni annarra,
að sveitarstjóm samþykki breyt-
ingu og óski staðfestingar skipu-
lagsstjórnar án auglýsingar.
Stefán Thors sagði að í þessu
tilviki hefðu legið fyrir athugasemd-
ir frá nágrönnum, sem óskað hefðu
eftir lögboðinni auglýsingu, til að
þeir fengju lengri frest til að kynna
sér málið auk þess sem athuga-
semdir hefðu verið gerðar við stærð
byggingarinnar og hugsanleg um-
ferðarvandamál sem henni fylgdu.
Stefán sagði að borgaryfírvöld
hefðu auglýst fyrirhugaðar breyt-
ingar í Morgunblaðinu 21. ágúst
og boðið upp á kynningu virka daga
á eftir. Þetta væri ekki það form
sem skipulagslög gerðu ráð fyrir
og væri ekki auglýsing um breyt-
ingu aðalskipulags heldur óformleg
kynning. Skipulagsstjóm hefði talið
í samræmi við lög að þessi breyting
fengi þá kynningu sem lög geri ráð
fyrir.
Hugsanlega kaupleiga
Páll Sigurjónsson vísaði á við-
komandi sendiherra spurningum
um ástæður þess að fyrirtækið hefði
tekið að sér að fjármagna sendi-
ráðsbygginguna fyrir þýsku og
bresku utanríkisþjónusturnar. ístak
mundi eiga húsið en hugsanlegt
væri að gerður yrði um það kaup-
leigusamningur. Hins vegar mundu
leigjendurnir taka við húsinu óinn-
réttuðu og innrétta það á sinn
kostnað. Byggingarkostnaður væri
áætlaður innan við 100 milljónir
króna.
Ekki náðist tal af breska sendi-
herranum.
Samskipti og fagmennska rædd a
hjúkrunarþingi
Vilja komast meira
í beina hjúkrun
HJUKRUNARFRÆÐINGAR vilja
fá meiri viðurkenningu á sérstæðu
hlutverki sínu. Kom þetta fram í
erindi á hjúkrunarþingi sem haldið
var í gær. í öðra erindi kom fram
gagnrýni á það að hjúkrunarfræð-
ingar létu ekki nógu mikið í sér
heyra í umræðum um niðurskurð á
Þorlákshöfn
I gjörgæslu
eftir veltu
TVEIR menn slösuðust í útafakstri
á Þorlákshafnarvegi, rétt utan við
bæinn, í gærmorgun. Þyrla Land-
helgisgæslunnar flutti þá á slysa-
deild Borgarspítalans þar sem annar
var lagður á gjörg-aesludeild.
Lögreglan á Selfossi fékk tilkynn-
ingu um slysið klukkan 8.40. Segir
hún að svo virðist sem bílnum hafí
verið ekið á miklu hraða. Valt hann
útaf veginum og hafnaði úti í hrauni,
15 metram frá veginum. Tveir menn
innan við tvítugt vora í bílnum og
slösuðust báðir alvarlega.
fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu.
Hrund Sch. Thorsteinsson, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri á Landspít-
alanum, velti því fyrir sér í erindi
hvað hjúkranarfræðingar gætu gert
til þess að fá viðurkenningu á sér-
stæðu hlutverki sínu. í samtali við
blaðið sagði hún að hjúkrunarfræð-
ingar þyrftu að breyta því hvernig
þeir störfuðu inni á sjúkrahúsunum.
Fá tækifæri til að komast í enn
meira samband við sjúklingana.
Hugsa bara um eigið skinn?
Anna Stefánsdóttir, hjúkranar-
framkvæmdastjóri á Landspítalan-
um, fjallaði um samskipti hjúkranar-
fræðinga við stjómvöld. Vakti hún
athygli á því hvernig hjúkrunarfræð-
ingar hefðu á undanförnum áram
birst almenningi, annars vegar í
umræðum um eigin kjaramál og hins
vegar um niðurskurð til heilbrigðis-
þjónustu. í samtali við Morgunblaðið
sagðist hún gagnrýna það hversu
lítið hefði heyrst frá hjúkrunafræð-
ingum um niðurskurðinn í saman-
burði við kjaramálin. Það gæfí þá
mynd af stéttinni að hjúkrunarfræð-
ingar hugsuðu meira um eigið skinn
en skjólstæðinga sína og hvatti hún
félaga sína til að breyta þessu.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞORSTEINN Pálsson dómsmáíaráðherra, Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands og Arthur Morthens, formaður Barnaheilla, við
setningu ráðstefnunnar í gær.
Erótískar teikningar
Lennons sýndar hér
í Morgunblaðinu í dag er 12 síðna
blaðauki sem nefnist Veljum íslenskt.
SÝNING á umdeildum teikningum
eftir John Lennon, sem Scotland
Yard gerði upptækar árið 1970,
verður opnuð á Kjarvalsstöðum í
febrúar.
Brúðargjöf til Yoko
Um er að ræða átta erótískar
myndir sem poppstjaman, sem
lagði stund á myndlistamám áður
en hún öðlaðist heimsfrægð, teikn-
aði á ofanverðum sjöunda ára-
tugnum og færði sinni heittelsk-
uðu, Yoko Ono, í brúðargjöf.
Höfðar til fleiri
Að sögn Gunnars Kvarans, for-
stöðumanns Listasafns Reykjavík-
urborgar, hafði Ono sjálf milli-
göngu um það að Kjarvalsstaðir
fengju sýninguna en menningar-
málanefnd þurfti að samþykkja
breytingu á dagskrá vetrarins til
að málið næði fram að ganga.
Gunnar segir að helsti kosturinn
við sýningu sem þessa sé sá að
hún höfði til fólks sem ekki sé
daglegir gestir á Kjarvalsstöðum.
Rætt um
mannréttindi
barna
SAMTÖKIN Barnaheill efndu til
ráðstefnu á Hótel Loftleiðum í
gær um mannréttindi barna. Var
ráðstefnan vel sótt og hélt fjöldi
innlendra og erlendra fyrirlesara
erindi. Ráðstefnan var haldin af
því tilefni að samtökin Barnaheill
eru 5 ára um þessar mundir. For-
seti íslands frú Vigdís Finnboga-
dóttir og Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra ávörpuðu ráðstefn-
una og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hélt erindi um
mannréttindi og alþjóðahjálpar-
slarf.
Erfðir og umhverfi
►í Bandaríkjunum er komin út
bók sem vakið hefur mikið umtal,
en þar er fjallað um greind manna
og viðmiðanir varðandi greindar-
vísitölu./lO
Notaður sem Grýla á
óþæg börn
►Sighvatur Björgvinsson boðar
breytingar í heilbrigðisþjónustunni
og gerir upp ár sín sem heilbrigðis-
ráðherra./14
Hnefaréttur barna
►Ofbeldi bama og unglinga gagn-
vart jafnöldrum sínum hefur verið
í brennidepli fjölmiðla undanfarnar
vikur./16
Skáldið sem sólin
kyssti
►Guðmundur Böðvarsson skáld
og bóndi á Kirkjubóli í Hvítárstðu
hefur verið kallaður „eitt af ævin-
týrum íslenskrar bókmenntasögu".
Birtur er kafli úr nýútkominni
ævisögu skáldsins./18
Sonur tekur við af föð-
ur
►í Viðskiptum og atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við feðgana
Símon Ragnarsson og Ragnar
Símonarson, afkomendur Jóns Sig-
mundssonar gullsmiðs, sem fyrir
90 áram stofnaði skartgripaversl-
un í Reykjavík, sem enn er starf-
rækt./22
B
► 1-28
Tónar frá Túnfæti
►Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur
óperur, dægurlög og djass, enda
með óvenjulegan söngferil að baki.
A tónlistarbúli sínu segir hún
Kristínu Maiju Baldursdóttur frá
tóninum í hljóðfærinu ogtímanum,
óvini sínum./l
Tölvur í skólastarfi
! ►Hefur hefðbundin notkun tölva
í skólastarfí gengið sér til húðar?
/6
Villtir svanir
►Villtir svanir eftir kínverska
höfundinn Jung Chang hefur farið
sigurför um heiminn. I henni er
sönn frásögn þriggja kynslóða
kvenna í Kína á þessari öld, frá
keisaraveldi tilkommúnisma./8
Sagnfræði augna-
bliksins
►Guðrún Finnbogadóttir hefur
skráð viðtöl við rússneskt fólk sem
misst hefur fótanna í tilver-
unni./12
c
BÍLAR
► 1-4
Nýir bílar
►Hvenær koma nýju bílamirtil
landsins?/4
Reynsluakstur
^BMW 316i, stuttur hlaðbakur
hlaðinn búnaði./2
fastir þættir
Leíðari
Helgispjall
Reykjavíkurt
Minningar
Myndasögur
Brids
Stjömuspá
Skák
Bréf til blaðsins 38
INNLENDAR FRÉTTIR-
2—4—8—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-6
bak Velvakandi 40
26 Fólk (fréttum 42
26 Bíó/dans 44
26 Iþróttir 48
29 Útvarp/sjónvarp 49
38 Dagbók/veður 61
38 Mannlifsstr. lOb
38 Kvikmyndir 14b
38 Dægurtónlist lSb
38