Morgunblaðið - 30.10.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 11
Þýskalandi og þeirra, sem vildu láta
gelda þroskahefta í Bandaríkjun-
um. Hermstein og Murray vilja þó
ekki láta bendla sig við slíkt. Þessi
ráð þeirra stangast einnig á við
staðhæfíngu, sem kemur fram á
einum stað í bókinni: „Börnum for-
eldra með greindarvísitölu yfir með-
altali hættir til að hafa lægri greind-
arvísitölu, en foreldrarnir, og
greindarvísitala barna þeirra á til
að vera enn lægri“.
Þeir segja að það sem þeir hafi
að segja eigi við um hópa, en gefi
í raun enga vísbendingu um
ákveðna einstaklinga.
Michael Lind, ritstjóri blaðsins
Harper’s, skrifar hins vegar í tíma-
ritið The New Republic að heim-
ildaval þeirra gefí annað til kynna
og bendir á að lítt þekkt stofnun,
Frumheijasjóðurinn (Pioneer
Fund), sem stofnaður var árið 1937
með það fyrir augum að senda
svarta Bandaríkjamenn aftur til
Afríku og stuðla að kynbótum
hvítra, hafi styrkt margar þær
rannsóknir, sem Herrnstein og
Murray vitna til.
Frumheijasjóðurinn styrkti til
dæmis tvíburarannsókn, sem gerð
var við Háskóla Minnesota. Teknir
voru 100 miðaldra tvíburar, sem
uxu úr grasi í sitt hvoru lagi. Á
kvarða, sem nær frá -s-1 upp í +1
þar sem 0 sýnir enga fylgni, +1
öfuga fylgni og +1 algera fylgni,
reyndist fylgni greindarvísitölu ein-
stakra tvíbura vera +0,7.
Jeffrey Rosen og Charles Lane
skrifa í sama blað að það sé kynd-
ugt að Herrnstein og Murray skuli
veija tveimur síðum í að verja J.
Phillipe Rushton, kanadískan sál-
fræðing, sem Háskóli Vestur-Ont-
ario vítti fyrir að safna saman 150
svörtum, hvítum og gulum mönnum
og spyija spurninga á borð við „hvað
ertu með stórt typpi?“ Rushton er
þeirrar hyggju að gáfur séu í öfugu
hlutfalli við typpastærð og Asíu-
menn séu greindastir, en svartir
hafi mest undir sér.
Herrnstein og Murray fara ekki
út í vangaveltur af þessu tagi, en
þeir veija þó nokkrú púðri í að bera
saman greindarvísitölu svartra og
hvítra Bandaríkjamanna. Þeir telja
samkvæmt könnunum greindarvísi-
tölu svartra að jafnaði 15 stigum
lægri en hvítra, eða um 85 stig.
Þetta eru ekki ný sannindi fremur
en það að menn séu misvel gefnir,
en hins vegar hefur verið deilt um
orsakirnar. Það er ekkert leynd-
armál að miklir fordómar ríkja í
garð svartra í Bandaríkjunum. Þeir
eiga erfiðara með að ná í leigubíl á
götu, litarhátturinn getur torveldað
mönnum að leigja íbúð og að fá
vinnu og aki lögregla fram á svart-
an mann á gangi í íbúðarhverfi er
hann nánast undantekningarlaust
stöðvaður. Myndin af hinum svarta
glæpamanni er orðin svo sterk í
hugum manna að blökkumannaleið-
toginn Jesse Jackson lét það út úr
sér að ef hann heyrði fótatak að
baki sér í dimmu húsasundi væri
sér létt ef þar væri hvítur maður á
ferð, en ekki svartur. Það má hins
vegar deila um það hvað hinir linnu-
lausu fordómar eiga mikinn þátt í
niðurstöðum greindarmælinga.
Sálfræðingurinn Arthur Jensen
skrifaði árið 1969 að aðgerðir til
þess að hjálpa minnihlutahópum í
skólum hefðu mistekist vegna þess
að margir þátttakendur hefðu haft
lága, óbreytanlega greindarvísitölu
og var gagnrýndur svo harkalega
fyrir að upp frá því hefur hann
stundað sín fræðistörf í kyrrþey.
Þremur árum áður hafði efnafræð-
ingurinn og Nóbelsverðlaunahafínn
William Shockley hvatt til þess að
fólk með lága greindarvísitölu yrði
gert ófijótt og stofnaður yrði sæðis-
banki fyrir snillinga. Herrnstein
vakti úlfaþyt árið 1971 þegar hann
hélt því fram að mismunur á greind-
arvísitölu væri arfgengur.
Stjórnmálafræðingurinn Andrew
Hacker veltir því fyrir sér í The New
Republic hvers vegna Herrnstein og
Murray leggi sérstaklega áherslu á
mismuninn á svörtum og hvítum,
en horfi framhjá því að uppruni
Bandaríkjamanna skipti máli. Til
dæmis fari aðeins 21,3 prósent
Bandaríkjamanna af írskum upp-
runa í háskóla, 27,6 prósent sæn-
skra Bandaríkjamanna, en rúmlega
helmingur rússneskra. „Það er betra
fyrir tilfínningar hvítra að éinblína
á meinta ágalla svartra," skrifar
hann í hæðnistón.
Eftir er að sjá hvaða áhrif þessi
bók mun hafa þegar fram í sækir.
Höfundarnir ijalla um mál, sem leg-
ið hafa í þagnargildi fyrir utan fíla-
beinsturna viðkomandi fræðimanna,
en niðurstöður þeirra hafa fengið
marga til að óska sér að þeir hefðu
látið kyrrt liggja.
1 Hermstein, Richard J., og Charles
Murray, The Bell Burve, Intelligence and
Class Structure in American Life, The
Free Press, 1994.
- stuðningsfólk er hvatt til að mæta -
ARNI M MATHIESEN
Skvifstqfa
stuðningsmannaÁmaM. Mathiesen
er að Dalshrauni 11 gegnt Gaflinum.
QPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 1 G-22 |
I SÍMAR: 65 43 B9 DE 65 43 92
rsrs /vrr\ -rvr,
4 nætur 1 Edinborg
Höfuðborg Skotlands,
Edinborg, nýtur einstakrar
hylli hjá farþegum Ur\>als-
Utsýnar sem sótt hafa
borgina heim undanfarin ár.
Margir taka hreinlega ekki í
mál annað en að skreppa í
skemmtilega helgarrispu til
Edinborgar, borgarinnar
sem sameinar á svo
einstakan hátt kosti
heimsborgar; menningu,
listir og innkaup annars
vegar og hlýleika, þœgindi
og vinalegt viðmót smá-
bœjarins hins vegar.
VISA og Úrval Útsýn bjóða
greiðslukjör í allt að 10 mánuði á
Edinborgarferðum
6., 13. og 20. nóvember.
Með Farareyris-innborgunarseðli
VISA lækkarðu ferðakostnað
um 2.000 kr.
Pantaðu strax því aðeins eru 120
sæti í boði á þessum einstöku
kjörum.
2.975
á mánuði
URVAL-UTSYN
Tryggingfyrir gæðum!
VISA
*Á mann m.v. farareyri og raðgreiðslur VISA í 10 mánuði. lnnifalið: Beint flug og gisting í 4
nætur í tvíbýli á Mount Royal Hotel eða King James Thistle, morgunverður, akstur til og frá
flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallaskattar.
pBsamá
# Js&Cs&’Öi&’'Öi&'GÍ&GÍ&"Öi&"Öi&GÍ&mC3&‘,Öi®GÍ&GÍ<£)GÍ<Ó"Öi<Ó e>C0 CiCÖ CSCg? c^(£)c>(S> CbCg? Ci(£> CK£