Morgunblaðið - 30.10.1994, Side 42
42 SUNNUDAGUR 50. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00:
•SNÆDROTTNINGIN eftir Hvgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen.
I dag kl. 14 - sun. 6/11 kl. 14. - sun. 13/11 kl. 14.
• VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi
Fös. 25/11, uppselt, sun. 27/11, uppselt, - þri. 29/11, nokkur sæti laus, -
fös. 2/12, uppselt, - sun. 4/12, nokkur sæti laus, - þri. 6/12, laus sæti, - fim.
8/12, nokkur sæti laus, - lau'10/12, örfá sæti laus.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
• GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fim. 3/11, uppselt, - fös. 4/11 - fim. 10/11, uppselt, - lau. 12/11 - fim. 17/11,
uppselt, - fös. 18/11 - fim. 24/11, uppselt.
• GA UKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman
Lau. 5/11 - fös. 11/11.
Litla sviðið kl. 20.30:
•DÓTTIR LÚSÍFERS eftir William Luce
Fim. 3/11 örfá sæti laus - lau. 5/11 - fös. 11/11 - lau. 12/11.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
•SANNAR SÖGUR AF SÁLARLÍFI SYSTRA
eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar.
Lau. 5/11 -sun. 6/11, uppselt, mið. 9/11, uppselt, -fös. 11/11, nokkursæti laus.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
fram að sýningu sýningardaga.
Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00.
Grxna linan 99 61 60 - greiðslukorlaþjónusta.
g|j» BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680
F LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:
• LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage.
• Sýn.fim. 3/11, lau. 5/11, lau. 12/11.
• HVAÐ UM LEONARDO? eftir Evald Flisar
5. sýn. í kvöld 30/10, gul kort gilda, fáein sæti laus, 6. sýn. fös. 4/11, græn
kort gilda, örfá sæti laus, 7. sýn. sun. 6/11, hvít kort gilda, 8. sýn. fim. 10/11,
brún kort gilda.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20:
• ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Sýn. fös. 4/11 örfá sæti laus, lau. 5/11, fim. 10/11, 40. sýn. örfá sæti laus,
fös. 11/11, lau. 12/11, fös. 18/11.
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. kl. 13-20.
Miðapantanir í síma 680680 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Munið gjafakortin, vinsæl tækifærisgjöf!
Greiðslukortaþjónusta.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
LINDARBÆ - SÍMI 21971
TRÚÐAR
Sýn. í kvöld, þri. 1/11, mið. 2/11.
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Takmarkaður sýningafjöldi!
Miðapantanir allan sólarhringinn
LESKFELAG
AKUREYRAR
• KARAMELLUKVÖRNIN
Sýn. lau. 5/11 kl. 14. Næst síðasta
sýningarhelgi.
• BarPar sýnt í Þorpinu
kl. 20.30
Sýn. fös. 4/11, lau. 5/11. Sýningum
lýkur í nóvember.
Miðasalan opin dagl. kl. 14-18, nema
mánud. Fram að sýningu sýningar-
daga. Sími 24073.
Sýnt í íslensku óperunni.
Sýn. fös. 4/11 kl. 24 örfá sæti.
Sýn. lau. 5711 kl. 24.
Bjóðum fyrirtækjum, skólum
og stærri hópum ofslútt.
Ósóttar pantanir eru seldar
3 dögum fyrlr sýningu.
Miöapantanir f simum 11475 og
11476. Ath. miðasalan opln virka
daga frá kl. 10-21 og um helgar frá
kl. 13-20.
Ath. Sýningum fer f ækkandi!
# á tilboðsverði kl. 18-20,
ætlað leikhúsgestum,
áaðeinskr. 1.860
Skókbrú
JJ-* Borðapantanir í stma 624455
1 F R Ú E M I L í Al
■ L E 1 K H U S ■
Seljavegi 2 - simi 12233.
KIRSUBERJAGARÐURINN
eftlr Anton Tsjekhov.
2. sýn. í kvöld, lau. 5/11 kl. 20.
MACBETH
eftir Wiíliam Shakespeare.
Sýn. fim. 3/11 kl. 20.
ATH. sýningum fer að Ijúka.
Miðasalan opin frá kl. 17-20 sýningar-
daga, simi 12233. Miðapantanir
á öðrum tímum i símsvara.
n Sam Shepard 1 1
m 1 i l IESJ i
í Tjarnarbíói
Sýn.: Sun. 30/10, mið. 2/11
og fös. 4/11-síð, sýn
Sýn. hefjart kl. 20.30.
Takmarkaður sýningafjöldi.
Miðasala ITjarnarbíói dagl. 17-19, nema
mánud. Sýningardaga til kl. 20.30
I símsvara á öðrum tímum. Sími 610280.
í sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
FÓLK í FRÉTTUM
JOHN Travolta, Samuel L. Jackson og Harvey Keitel í kvikmyndinni Pulp Fiction.
Stjarna er endurfædd
TRAVOLTA með Kelly og syninum Jett, sem heitir í höfuðið á
Gulfstream-einkaþotu leikarans.
UPPHAF dansatriðisins góða í Pulp Fiction.
JOHN Travolta var einhver skær
asta kvikmyndastjarna heimsins á
seinni hluta 8. áratugarins, eftir að
hann lék í myndunum Saturday
Night Fever og Grease. Honum
gekk hins vegar illa að halda sér á
toppnum og var flestum gleymdur.
En allt í einu er þetta breytt. I fram-
haldi af velgengni myndarinnar
Pulp Fiction, Reyfara, sem Regn-
boginn sýnir nú (og var frumsýnd
í Bandaríkjunum fyrir hálfum mán-
uði þótt hún hafi verið fullgerð í
vor og þá fengið aðalverðlaunin á
kvikmyndahátíðinni í Cannes), er
John Travolta farinn að prýða for-
síður tímarita sem keppast við að
taka við hann viðtöl hvert af öðru.
í öllum viðtölunum er Travolta
spurður að þvi sama: hvar hefur
þú haldið þig og hvað ertu búinn
að vera að gera?
Þótt lítið hafi borið á Travolta í
kvikmyndahúsunum hefur hann síð-
ur en svo verið iðjulaus. Frá því að
Grease var gerð árið 1978 hefur
hann leikið í 13 kvikmyndum. Fæst-
ar þeirra hafa hins vegar náð út-
breiðslu, og margar hafa verið af-
spyrnulélegar og engan veginn nægt
til að halda uppi orðstír leikarans.
En Travolta er alls ekki á flæði-
skeri staddur og lætur sér sveiflu-
kennt gengi i léttu rúmi liggja.
Hann er klókur í ijármálum og
þegar hann samdi um að leika í
Saturday Night Fever og Grease,
tryggði hann sér prósentur af sölu
og flutningsréttindum vegna allrar
tónlistar úr myndunum og minja-
gripum þeim tengdum.
Þessar greiðslur hafa skilað og
skila enn margfalt meiru í vasann
en þær nokkrar milljónir sem hann
hlaut fyrir leik í myndunum sjálfum.
Travolta segist sjálfur hafa eina
grundvallarreglu í fjármálum og
hún sé sú að ganga aldrei á höfuð-
stól eigna sinna heldur láta vextina
halda sér uppi.
Það hefur honum tekist með
glæsibrag enda sagður hafa fjárfest
vel og skynsamlega. Hann á nú hús
á fjórum stöðum í Bandaríkjunum;
eitt í Florida, tvö í Kaliforníu og
íburðarmikla 50 herbergja höll á
auðmannaeyju úti fyrir ströndum
Maine-fylkis í norðausturhluta
Bandaríkjanna.
Þar eyðir hann stærstum hluta
ársins ásamt konu sinni, leikkon-
unni Preston Kelly, og þriggja ára
syni þeirra. Travolta hefur látið
hanna innviði hallarinnar algjörlega
eftir sínu höfði og hann hefur þjóna
á hverjum fingri og kokka sem
framleiða ofan í hann og gesti hans
sælkeramáltíðir og aukakílóin sem
Travolta gengur nú með um sig
miðjan og sýnir þeim sem fara að
sjá Pulp Fiction, eru víst aðallega
þær umframbirgðir af humri, rækj-
um, ferskum ávöxtum og salati sem
hann hefur innbyrt á lieimili sínu
undanfarin misseri.
Ástríða John Travolta er flug.
Hann á þrjár einkaflugvélar, þar á
meðal Gulfgtream-þotu, sem hann
flýgur ásamt aðstoðarflugmanni
um Bandaríkin þver og endilöng og
notast m.a. við til að sækja systkini
sín, foreldra og vini til tíðra helg-
ardvala í höllinni, þar sem silfur-
grár Rolls Royce stendur á hlaðinu.
Flugdella leikarans er slík að
þegar þau hjónin voru að velta fyr-
ir sér nafni á frumburðinn varð
niðurstaðan sú að kalla strákinn
Jett og Travolta neitar hann því
ekki að barnið sé skýrt í höfuðið á
þotunni.
Quentin, Tarantino, höfundur
Pulp Fiction, hefur sagt að hann
hafi aldrei haft neinn annan leikara
en Travolta í huga í hlutverk leigu-
morðingjans Vincents Vega í mynd-
inni.
Sjálfur var Travolta áfjáður í að
leika í Pulp Fiction, ekki vegna
þess að hann þyrfti á peningunum
að halda (hann fékk jú „aðeins" um
11 milljónir króna í sinn hlut) held-
ur vegna þess að hún færði honum
tækifæri til að komast í sviðsljósið
og sanna getu sína sem leikari á
ný. Það reyndist fyrirhafnarinnar
virði og Travolta er að nýju kominn
á kortið í Hollywood. 1 þeirri borg
hefur hann þó aldrei viljað búa og
segist alltaf hafa liðið eins og utan-
garðsmanni þar.
En þótt Travolta líði eins og utan-
garðsmanni í Hollywood er hahn
samt hluti af sögu hennar og Quent-
in Tarantino segir að þótt Travolta
hafi verið gleymdur framleiðendum
og umboðsmönnum þá hafi almenn-
ingur aldrei gleymt honum.
„Ég hef gengið út á götu með
fjölmörgum kvikmyndastjörnum og
oft komist marga kílómetra án þess
að fólk veitti því nokkra eftirtekt.
En það er engu líkt að fara út að
ganga með John Travolta. Umferð-
in stöðvast, allir snúa sér við eða
gefa sig á tal við hann og spyija
hvar hann hafi verið og hvenær
hann ætli aftur að fara að leika.
Þessi náungi er ennþá alvöru
stjarna og í hugum fólks er hann
tákngervingur 8. áratugarins," seg-
ir Tarantino.
Þessu áliti sinu kemur leikstjór-
inn vel til skila í einu eftirminnileg-
asta átriði Pulp Fiction. Þá lætur
hann Vincent Vega, sem Travolta
leikur, fara á veitingastað með eig-
inkonu yfirmanns síns. Á veitinga-
staðnum starfar aðeins fólk sem
líkist þekktum persónum í kvik-
mynda- og skemmtiiðnaðinum frá
6. og 7. áratugnum. Það eru því
tvífarar James Dean og Buddy
Holly, stjarna sjötta og sjöunda
áratugarins, sem eru í áhorfenda-
hópnum þegar Vincent Vega, tví-
fari John Travolta,, tákngervings
áttunda áratugarins, stígur upp á
sviðið til að taka þátt í tvistkeppni
sem haldin er á staðnum þetta
kvöld. Og auðvitað er óþarfi að
sýna frá verðlaunaafhendingunni.