Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 21 I norrænu goðafræðinni var Njörður guð siglinga og verslunar og hann bjó í IMóatúnum. Ég kom úr siglingum í verslun og fannst því vel viðeigandi að nefna búðina eftir heimkynnum Njarðar ið,“ segir Jón. Hann segir að Nóa- Góð afkoma Nóatún hefur sýnt góða afkomu, þrátt fyrir harða samkeppni. „Und- anfarin tvö ár hafa verið einhver þau bestu í þessum rekstri, bæði varðandi afkomu og veltu,“ segir Jón. Veltuaukning nam nærri 50% í fyrra og í ár lítur út fyrir 30% til 40% veltuaukningu. Árið 1992 velti Nóatún hf. 1.370 milljónum króna, 2.024 milljónum 1993 og á þessu ári er áætluð velta 2.700 milljónir. Allar þessar tölur eru án virðisauka- skatts. Ef áætlanir ganga eftir verður því heildarveltan á þessu ári, með virðisaukaskatti, vel á fjórða milljarð króna. Jón segir að fyrirtækið standi vel fjárhagslega og sterk eiginfjárstaða sé efnahags- legur grundvöllur verslananna. Hún fæst þó ekki gefin upp. „Við höfum aldrei verið skuldug, maður þorði ekki að taka lán,“ seg- ir Jón. „Við höfum reynt það að sígandi lukka er best, eins og mál- tækið segir. Það gaf aldrei svo á bátinn að ekki hefðist undan að ausa, þótt það væri ekki alltaf létt. Það getur enginn maður rekið mat- vöruverslun í dag á bankalánum, miðað við vexti af fjármagni og þá álagningu sem við höfum. Ég held að maður þurfi að eiga 60% til 70% af þessu til að reksturinn geti geng- ið upp.“ En hvers vegna hefur Nóatún staðist í tímans rás? „Fólk fær hér góða vöru og þjón- ustu og kemur aftur. Það er traust- ur kúnnahópur í kringum Nóatún- tún leggi metnað sinn í að vera með gott afgreiðslukjötborð þar sem starfi fagmenn og það kunni fólk að meta. Nauðsyn að lækka matvælaverð „Matvælaverðið þyrfti að lækka meira til neytenda, þetta er enn of skattlagt," segir Jón. Þrátt fyrir lækkun virðisaukaskatts á matvæli í 14% og afnám aðstöðugjalds telur Jón að ekki sé nóg að gert, fyrirtæk- in séu enn of skattlögð til að varan geti lækkað meira. Það gangi ekki að skattleggja búgreinar með fóður- bætisskatti og þvílíku, sem gerir ekkert annað en að halda uppi matvælaverðinu í landinu. Jóni finnst það hljóti að vera keppikefli að lækka matvælaverð svo það verði líkt því sem gildir í nálægum lönd- um. Hann segir að Nóatún hafi að meðaltali lækkað álagningu hjá sér um 1,4% í fyrra. Miðað við 2 millj- arða veltu þýði það að neytendur hafi greitt 28 milljónum minna fyr- ir vörurnar en ella. Jón segi.r Nóa- tún hf. miða álagningu sína við að vera neðan við miðju í verðlagn- ingu, án þess að slá nokkuð af í gæðum þjónustunnar við viðskipta- vini eða vöruúrvali. Vextina þarf að lækka Sem kaupmaður talar þú um að matvaran þurfi enn að lækka, en hvað segir stjórnarformaður spari- sjóðsins um bankavextina. Þurfa þeir ekki líka að lækka? „Já, ég vil meina að þeir þyrftu að lækka og kannski kemur að því. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að það verður að fylgjast að hjá ríkinu og Seðlabankanum. Bankarnir geta ekki einir lækkað vexti." Jón telur að tæknivæðing bankakerfisins, til dæmis tölvu- bankarnir og minni vinna við ávís- anir í kjölfar debetkorta, hljóti að hafa í för með sér að reksturskostn- aður lækki. Nú er einnig farið að innheimta þjónustugjöld og allt ætti þetta að stuðla að lækkun vaxta. Jón bendir á að stóru við- skiptabankarnir hafi orðið fyrir hremmingum, en nú líti út fyrir að þeir séu að ná sér eftir þær,- Spari- sjóðirnir hafí sloppið við erfiðleika af þeirri stærðargráðu. „Þeir hafa náð aukningu og þeir hafa grætt," segir Jón. „Sparisjóður vélstjóra hefur hagnast vel undanfarin ár og haft bestu afkomuna." Það verður allt að gulli, sem þú kemur nálægt. Hver er leyndardóm- urinn? Og það stendur ekki á svar- inu: „Þetta er mikið til heppni, svo útsjónarsemi og dugnaður." ' Hefur kaupmaðurinn í Nóatúni tíma fyrir áhugamál og tómstunda- starf? „Ég þarf ekkert að fara í golf eða svoleiðis, því eftir daginn er ég svo þreyttur að ég sofna ágæt- lega!“ Blab allra landsmanna! HbtpniiW -kjarni málsins! - kjarni málsins! Vilt þú hætta aö reykja? Ég get hjálpað þér. Orkustöðvahreinsun og orkugjöf. Bryndís Hrólfsdóttir, heilun & ráögjöf, sími 673613 dömu og herra Stærðir: S- Póstsendum. 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. miuTiLiFtlm GLÆSIBÆ SÍMI 812922 Við bjóðum þér íslenskar nátturu- og heilsuvörur á einutn stað Hið íslenska tefélag, íslenskar tejurtir Sandi II, Aðaldal. Marín, Rannveig og co. jurtaframleiðsla Birkisalt Neskaupstað. Margrét Björgvinsdóttir,| Vefstofa, handverkshús Neskaupstað. Bit»M*drvr Heimaey, kertagerð, Vestmannaeyjum. náttúru- og Uheilsuvörur, Vitastíg 10,101 Reykjavík. Opið kl. 10-21 virka daga, kl. 10-16 um helgar. Sími 62 84 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.