Morgunblaðið - 06.11.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 21
I norrænu goðafræðinni var
Njörður guð siglinga og verslunar
og hann bjó í IMóatúnum. Ég kom
úr siglingum í verslun og fannst því
vel viðeigandi að nefna búðina
eftir heimkynnum Njarðar
ið,“ segir Jón. Hann segir að Nóa-
Góð afkoma
Nóatún hefur sýnt góða afkomu,
þrátt fyrir harða samkeppni. „Und-
anfarin tvö ár hafa verið einhver
þau bestu í þessum rekstri, bæði
varðandi afkomu og veltu,“ segir
Jón. Veltuaukning nam nærri 50%
í fyrra og í ár lítur út fyrir 30% til
40% veltuaukningu. Árið 1992 velti
Nóatún hf. 1.370 milljónum króna,
2.024 milljónum 1993 og á þessu
ári er áætluð velta 2.700 milljónir.
Allar þessar tölur eru án virðisauka-
skatts. Ef áætlanir ganga eftir
verður því heildarveltan á þessu
ári, með virðisaukaskatti, vel á
fjórða milljarð króna. Jón segir að
fyrirtækið standi vel fjárhagslega
og sterk eiginfjárstaða sé efnahags-
legur grundvöllur verslananna. Hún
fæst þó ekki gefin upp.
„Við höfum aldrei verið skuldug,
maður þorði ekki að taka lán,“ seg-
ir Jón. „Við höfum reynt það að
sígandi lukka er best, eins og mál-
tækið segir. Það gaf aldrei svo á
bátinn að ekki hefðist undan að
ausa, þótt það væri ekki alltaf létt.
Það getur enginn maður rekið mat-
vöruverslun í dag á bankalánum,
miðað við vexti af fjármagni og þá
álagningu sem við höfum. Ég held
að maður þurfi að eiga 60% til 70%
af þessu til að reksturinn geti geng-
ið upp.“
En hvers vegna hefur Nóatún
staðist í tímans rás?
„Fólk fær hér góða vöru og þjón-
ustu og kemur aftur. Það er traust-
ur kúnnahópur í kringum Nóatún-
tún leggi metnað sinn í að vera
með gott afgreiðslukjötborð þar
sem starfi fagmenn og það kunni
fólk að meta.
Nauðsyn að lækka
matvælaverð
„Matvælaverðið þyrfti að lækka
meira til neytenda, þetta er enn of
skattlagt," segir Jón. Þrátt fyrir
lækkun virðisaukaskatts á matvæli
í 14% og afnám aðstöðugjalds telur
Jón að ekki sé nóg að gert, fyrirtæk-
in séu enn of skattlögð til að varan
geti lækkað meira. Það gangi ekki
að skattleggja búgreinar með fóður-
bætisskatti og þvílíku, sem gerir
ekkert annað en að halda uppi
matvælaverðinu í landinu. Jóni
finnst það hljóti að vera keppikefli
að lækka matvælaverð svo það verði
líkt því sem gildir í nálægum lönd-
um. Hann segir að Nóatún hafi að
meðaltali lækkað álagningu hjá sér
um 1,4% í fyrra. Miðað við 2 millj-
arða veltu þýði það að neytendur
hafi greitt 28 milljónum minna fyr-
ir vörurnar en ella. Jón segi.r Nóa-
tún hf. miða álagningu sína við að
vera neðan við miðju í verðlagn-
ingu, án þess að slá nokkuð af í
gæðum þjónustunnar við viðskipta-
vini eða vöruúrvali.
Vextina þarf að lækka
Sem kaupmaður talar þú um að
matvaran þurfi enn að lækka, en
hvað segir stjórnarformaður spari-
sjóðsins um bankavextina. Þurfa
þeir ekki líka að lækka?
„Já, ég vil meina að þeir þyrftu
að lækka og kannski kemur að
því. Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að það verður að fylgjast
að hjá ríkinu og Seðlabankanum.
Bankarnir geta ekki einir lækkað
vexti." Jón telur að tæknivæðing
bankakerfisins, til dæmis tölvu-
bankarnir og minni vinna við ávís-
anir í kjölfar debetkorta, hljóti að
hafa í för með sér að reksturskostn-
aður lækki. Nú er einnig farið að
innheimta þjónustugjöld og allt
ætti þetta að stuðla að lækkun
vaxta. Jón bendir á að stóru við-
skiptabankarnir hafi orðið fyrir
hremmingum, en nú líti út fyrir að
þeir séu að ná sér eftir þær,- Spari-
sjóðirnir hafí sloppið við erfiðleika
af þeirri stærðargráðu. „Þeir hafa
náð aukningu og þeir hafa grætt,"
segir Jón. „Sparisjóður vélstjóra
hefur hagnast vel undanfarin ár og
haft bestu afkomuna."
Það verður allt að gulli, sem þú
kemur nálægt. Hver er leyndardóm-
urinn? Og það stendur ekki á svar-
inu: „Þetta er mikið til heppni, svo
útsjónarsemi og dugnaður."
' Hefur kaupmaðurinn í Nóatúni
tíma fyrir áhugamál og tómstunda-
starf? „Ég þarf ekkert að fara í
golf eða svoleiðis, því eftir daginn
er ég svo þreyttur að ég sofna ágæt-
lega!“
Blab allra landsmanna!
HbtpniiW
-kjarni málsins!
- kjarni málsins!
Vilt þú hætta aö reykja?
Ég get hjálpað þér.
Orkustöðvahreinsun og orkugjöf.
Bryndís Hrólfsdóttir, heilun & ráögjöf,
sími 673613
dömu og herra
Stærðir:
S-
Póstsendum. 5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga.
miuTiLiFtlm
GLÆSIBÆ SÍMI 812922
Við bjóðum þér
íslenskar nátturu- og heilsuvörur
á einutn stað
Hið íslenska tefélag,
íslenskar tejurtir
Sandi II, Aðaldal.
Marín,
Rannveig
og co.
jurtaframleiðsla
Birkisalt
Neskaupstað.
Margrét Björgvinsdóttir,|
Vefstofa, handverkshús
Neskaupstað.
Bit»M*drvr
Heimaey,
kertagerð,
Vestmannaeyjum.
náttúru- og Uheilsuvörur,
Vitastíg 10,101 Reykjavík.
Opið kl. 10-21 virka daga,
kl. 10-16 um helgar. Sími 62 84 84