Morgunblaðið - 23.11.1994, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ
24 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
+
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994 25
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ATAKIÞAGU
FATLAÐRA
VERULEGS átaks er þörf í málefnum fatlaðra einstak-
linga, svo unnt verði að veita þeim nauðsynlega
umönnun. Jafnframt er þörf á að endurskoða stefnumörk-
un í húsnæðismálum þeirra og þjónustu við þá og marka
nánar en nú er, hvert hlutverk ríkis og sveitarfélaga eigi
að vera. Það þolir í raun enga bið, að tekið verði til hönd-
um, því í Reykjavík eru um 200 fatlaðir einstaklingar á
biðlista eftir húsnæði og þjónustu og um 220 til viðbótar
annars staðar á landinu. Gífurlegt álag er á foreldrum
og fjölskyldum margra fatlaðra og verður þjóðfélagið í
heild að láta það tjl sín taka.
Viðhorf í húsnæðismálum og þjónustu við fatlaða eru
að breytast. í skýrslu, sem Framkvæmdasýslan vann um
húsnæðismál fatlaðra, eru skilgreind búsetuform fatlaðra
og er meginniðurstaðan, að einfaldasta og hagkvæmasta
lausnin á húsnæðisvanda þeirra felist ekki í sértækum
lausnum. Sameina þurfi þjónustu við fatlaða við þjón-
ustu, sem þjóðfélagið veiti öðrum hópum, svo sem öldruð-
um og heimahjúkrun. Öll slík þjónusta verði veitt á sama
stjórnsýslustigi. Mikilvægt sé að einblína ekki á einn
kost sem endanlega lausn heldur verði aðstæður og mögu-
leikar metnir hveiju sinni.
í tillögum starfshóps Framkvæmdasýslunnar er lögð
megináherzla á aðstoð við fatlaða í heimahúsum og við
foreldra fatlaðra barna, svo þau geti búið heima eins lengi
og unnt er, enda stuðli það að mestum þroska, sjálfstæði
og vellíðan einstaklingsins. Þá er lagt til, að keyptar
verði eða byggðar íbúðir í venjulegum íbúðarhúsum.
Undanfarin ár hefur megináherzla verið lögð á sam-
býli fyrir fatlaða, en þau eru ekki lengur talin leysa vanda
nema ákveðins hóps. Þetta kemur glögglega fram í um-
fjöllun sunnudagsblaðs Morgunblaðsins um málefni fatl-
aðra um síðustu helgi. Ásta B. Þorsteinsdóttir hjá Lands-
samtökunum Þroskahjálp segir, að allir eigi að sitja við
sama borð í búsetumálum og hafa nægjanlegt einka-
rými. Sambýlin hafi leyst stóru stofnanirnar af hólmi og
verið mikið framfaraspor. Nú sé orðið ljóst, að sambýlin
séu ekki einhlít lausn í búsetumálum fatlaðra og skoða
verði málin upp á nýtt, svo hinir fötluðu fái notið sem
mestra lífsgæða.
Ásta bendir á, að nú séu margir sem vinni að húsnæðis-
málum fatlaðra, bæði opinberir aðilar og félagasamtök.
Við þær aðstæður sé ekki sjálfgefið, að allir fatlaðir sitji
við sama borð. Hún bendir á, að heppilegt sé, að fatlaðir
njóti fyrirgreiðslu úr almenna húsnæðiskerfinu eins og
aðrir þjóðfélagsþegnar, enda fáist þar með meira einka-
rými.
Ásta Eggertsdóttir hjá svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra í Reykjavík segir, að æ betur komi í ljós, að sambýli
sé dýr kostur og hagkvæmara sé, bæði fjárhagslega og
faglega, að fatlað fólk búi sjálfstætt. Nýtt í þeim efnum
sé frekari liðveisla við að koma sér fyrir, heimilishjálp
og útvegun atvinnu. Markmiðið sé að gera eintaklinginn
sjálfbjarga, en þarfirnar séu mjög mismunandi. Svæðis-
skrifstofan sinnir 1.200 einstaklingum um þessar mundir
og segir Ásta, að um 200 manns séu á biðlista eftir hús-
næði. Þroskahamlaðir séu í meirihluta, um fjórðungur
geðfatlaðir, aðrir hreyfihamlaðir, fjölfatlaðir, einhverfir,
sjón- og heyrnarskertir. Um 25 manns séu á bráðalista
eftir húsnæði. Ásta segir, að höfuðvandinn við að koma
til móts við búsetuþarfir felist ekki í húsnæðinu sjálfu
heldur skorti á rekstrarfé vegna þjónustunnar. Kröfur
hafi breyzt frá því sem áður var og nú sé stefnt að því
að gera fatlaða sem mest sjálfbjarga. En allt kostar þetta
sitt, segir Ásta, mannúð kosti peninga.
Af viðtölum við foreldra í sunnudagsblaðinu má glöggt
ráða, hversu óhemju álag það er að sinna miög fötluðum
börnum, ekki sízt er þau eldast og eru algjörir óvitar,
og þurfa því umönnun meira og minna allan sólarhring-
inn. Ekki bætir úr skák, þegar ganga þarf frá Heródesi
til Pílatusar til að leita úrlausna, oft án árangurs. Það
er ekki að furða, þótt fólk örvænti í slíkum tilfellum.
Hér þarf stórátak. Það átak kostar peninga. Stjórn-
málamennirnir ákveða ráðstöfun skattpeninganna. Þess
vegna hvílir á þeim sú skylda að taka málefni fatlaðra
fastari tökum en gert hefur verið til þessa.
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
STÆRRI sjávarútvegsfyrir-
tækin við ísafjarðardjúp, það
er á fsafírði, í Hnífsdal, Bol-
ungarvík og Súðavík, hafa
verið rótgróin einkafyrirtæki, hvert í
eigu fáeinna einstaklinga eða fjöl-
skyldna. Sömu mennirnir hafa stjóm-
að helstu fyrirtækjunum á ísafirði og
í Hnífsdal í áratugi. Og náin samvinna
um hráefnisöflun og vinnslu eða sam-
eining virðist ekki hafa verið mönnum
að skapi fyrr en á þessu ári, þó dæmi
hafi sést um annað. Nú virðist breyt-
ing vera í aðsigi. Minnkun þorskkvót-
ans og miklar skuldir sumra fyrirtækj-
anna kalla á ný úrræði og ný kynslóð
er að taka við stjórninni.
Stjórnendur fyrirtækjanna sjá ýmsa
kosti við sameiningu í stærri einingar.
Grundvöllur fyrirtækjanna myndi til
dæmis breikka með sameiningu hrað-
frystihúss og rækjuvinnslu, hægt yrði
að hagræða í skrifstofuhaldi og útgerð
og hugsanlega einnig með því að nýta
betur húsnæði. Þá sjá sumir möguleika
á því að byggja fyrirtækin upp með
þessum hætti og fara síðar út á hluta-
fjármarkaðinn til að fá nýtt fjármagn
inn í reksturinn. Sjá þessir menn fyrir
sér 2-4 öflug og nútímaleg sjávarút-
vegsfyrirtæki eða fyrirtækjablokkir
við ísafjarðardjúp sem gætu staðið af
sér erfiðleikana og tekið þátt í nýrri
uppbyggingu sjávarútvegsins þegar
þorskstofninn hjarnar við. Áfram yrðu
til lítil fyrirtæki þar sem eigendurnir
vinna sjálfir á gólfinu. Millifyrirtækin
ættu hins vegar í mestu vandræðunum
með að komast í gegn um erfiðleika-
tímabilið.
Stjómendur og eigendur fyrirtækj-
anna tengjast á margvíslegan hátt.
Þeir sitja saman í stjórnum hagsmuna-
samtaka, svo sem sölusamtaka og
útvegsmannafélaga, og eiga saman
þjónustufyrirtæki. Auk þess liggja
þræðir fjölskyldubanda víða milli fyr-
irtækjanna. Þó sjá sumir rautt þegar
minnst er á sameiningu og telja nána
samvinnu við hráefnisöflun vænlegri
kost.
Margt hefur orðið til þess að sam-
runaferlið fer seint af stað við Djúp.
Margir nefna að fyrirtækin séu rótgró-
in einkafyrirtæki, oft í eigu fárra
manna, og þeir vilji áfram vera kóng-
ar í ríki sínu. Sumir ganga svo langt
að segja að þetta sé lýsandi fyrir lynd-
iseinkunn Vestfirðinga. I þessari sam-
einingarumræðu sem nú er í gangi
virðist auk þess slæm skuldastaða
sumra fyrirtækjanna, kvótaleysi,
hrepparígur og bankamúrar vera
þröskuldar sem erfitt er að komast
yfir. Einnig erfiðleikar með að koma
ónýttum fasteignum í verð.
Hreyfing með Vestfjarðaáætlun
Tvennt virðist mest hafa losað um
pattstöðuna í skipulagi sjávarútvegs-
fyrirtækjanna við Djúp: Skilyrði
stjómvalda fyrir svokallaðri Vest-
fjarðaáætlun og frumkvæði íslands-
banka að umræðum um sameiningu
ákveðinna fyrirtækja.
Starfshópur um styrkingu atvinnu-
og þjónustusvæða á Vestfjörðum fékk
17 umsóknir um aðstoð ríkisins og
vom tilnefnd 25 fyrirtæki í umsóknun-
um. Starfshópurinn hefur yfir að ráða
300 milljónum og er sameining fyrir-
tækja skilyrði fyrir aðstoð. Stjómend-
ur sjávarútvegsfyrirtækja á Isafirði
og nágrenni telja að 300 milljónirnar
komi að litlu gagni en margir horfa
til annarra aðgerða sem ættu að koma
í kjölfarið. Magnús Reynir Guðmunds-
son, stjórnarformaður íshúsfélags ís-
firðinga, segir að endurijármögnun
fyrirtækjanna í tengslum við Vest-
fjarðaáætlun gæti hjálpað þeim mikið.
Nefnir hann sem dæmi að meðallengd
lána. Ishúsfélagsins sé innan við fimm
ár. Nefndin sem vinnur að Vest-
fjarðaáætlun gæti gert mikið gagn
með því leggja á það áherslu að bank-
ar og sjóðir veiti þeim fyrirtækjum sem
nefndin á annað borð telur lífvænleg
hagstæðari og lengri lán. Eggert Jóns-
son, stjórnarformaður Hraðfrystihúss-
ins Norðurtanga, segist vera fyrir
SAMEIiMING VIÐ DJUP
Morgunblaðið/RAX
MENN eru opnari fyrir sameiningu eða náinni samvinnu sjávarútvegsfyrirtækja á Isafirði og nágrenni.
Losnar um
pattstöðuna
*
Mikil gerjun er í sjávarútvegsfyrirtælqum við Isafjarðardjúp. Hugar-
farsbreyting er að eiga sér stað með kynslóðaskiptum í stjómum
fyrirtækjanna. Menn hafa verið og eru að ræða ýmsar hugmyndir
um nána samvinnu eða sameiningu til að geta komið við hagræðingu
í útgerð og vinnslu, breikka grundvöll f/rírtækjanna og fá síðar inn
nýtt áhættufé. Enn sem komið er hefur fátt gengið upp en Helgi
Bjarnason telur ótrúlegt annað en eitthvað komi út úr öllum þeim
hugmyndum sem varpað hefur verið fram að undanfömu.
löngu hættur að hugsa um Vest-
fjarðaáætlun. Hún gerði ekkert gagn
og umræðan um hana hefði skaðað
Vestfirði. Áætlar hann að stærstu fyr-
irtækin á ísafirði skuldi samtals um
fjóra milljarða og á þeim tíma sem
búið væri að ræða Vestfjarðaáætlun
hefðu fyrirtækin greitt þessar 300
milljónir margfaldar í vöxtum og
dráttarvöxtum.
Nýir menn til valda í
Norðurtanganum
Stóru frystihúsin á ísafirði, Hrað-
frystihúsið Norðurtangi og íshúsfélag
ísfirðinga, hafa lengi verið burðarrás-
ar í atvinnulífi á staðnum. Fyrirtækin
voru fjárhagslega sterk og talin til
fyrirmyndar um rekstur. Hallað hefur
undan fæti síðustu ár. Norðurtanginn
á í erfiðleikum vegna mikilla skulda
og hráefnisskorts og íshúsfélagið
missti í haust á einu bretti meirihlut-
ann af því hráefni sem það
hefur haft.
Eggert Jónsson, stjórnar-
formaður Norðurtangans,
viðurkennir að staða fyrir-
tækisins sé mjög erfið.
„Frystihúsið hefur verið byggt upp til
vinnslu á bolfíski og menn geta ímynd-
að sér stöðuna þegar aflaheimildir
okkar í þorski minnka um tvo þriðju
á þremur árum. Fyrirtækin eru skuld-
ug og greiða ekki niður skuldir við
þessar aðstæður."
Hallarbylting var gerð í Norður-
tanganum á síðasta aðalfundi þegar
tveir ungir menn voru kosnir í stjórn-
ina og Eggert, sem þar var fyrir, varð
stjórnarformaður. Jón Páll Halldórs-
son sem stjórnað hefur fyrirtækinu í
mörg ár hætti í stjórninni. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins gekk þessi
breyting ekki átakalaust fyrir sig. Jón
Páll er áfram framkvæmdastjóri en
yngri mennirnir ráða ferðinni.
Isfírðingar taka eftir því að nýir
menn eru komnir til valda í Norður-
tanganum. Verið er að loka deildum
og skipin eru komin á söluskrá. Norð-
urtanginn á nýtt hús við Sundahöfn,
Sundatanga, sem orðið er mikill baggi
á fyrirtækinu. Þar var saltfískverkun,
ísframleiðsla og aðstaða fyrir útgerð-
ina. Verið er að leggja niður starfsem-
ina þar og reynt hefur verið að selja
húsið. Eggert segir hins vegar að eng-
inn markaður sé fyrir svona hús og
bendir á að sala Ishúsfélags ísfirð-
inga, þar sem nærri tveir þriðju hluta-
ljár voru seldir á 30 milljónir, sé lýs-
andi dæmi um verðlag á fiskvinnslu-
húsum i dag.
Norðurtangi gerir út þrjú
skip en vegna samdráttar í
aflaheimildum hafa tvö
þeirra, Guðbjartur og Orri,
verið gerð út á rækju og
lagt upp hjá rækjuverk-
smiðjum en bolfískkvótinn er sóttur á
yngsta skipinu, Hálfdáni í Búð. Hálf-
dán í Búð og Orri voru auglýstir til
sölu og hefur Hálfdán nú verið seldur
til Nýja Sjálands. Eggert segir að
ætlunin sé að gera út eitt skip og séu
öll skipin í raun til sölu, með eða án
aflaheimilda. Skuldir Norðurtangans
eru meðal annars vegna kaupanna á
Hálfdáni í Búð og kaupa á aflaheimild-
um sem síðan hafa verið skornar nið-
ur. Telur Eggert að með sölu á tveim-
ur skipanna verði hægt að grynnka
verulega á skuldum og spara útgerðar-
kostnað. Norðurtanginn ætlar að
leggja allan sinn kraft í frystingu á
bolfiski. „Við erum búnir að byggja
upp gott frystihús og það er staðfast-
ur ásetningur okkar að reka það
áfram,“ segir Eggert.
Gliðnar á milli Norður-
tangans og Frosta
Eggert segir að Norðurtanginn sé
opinn fyrir samvinnu eða sameiningu
við önnur fyrirtæki, til dæmis við
rækjuverksmiðju til að breikka fyrir-
tækið, en telur að sameining sé ekki
lausnarorðið. „Það þarf að vera grund-
völlur fyrir öllu slíku. Þetta svæði er
illa farið og fyrirtækin skuldsett og
það þýðir ekkert að tala um samein-
ingu stórra skuldabagga, fleira þarf
að koma til.“ Spurður um afstöðu til
sameiningar tveggja stórra frystihúsa
eins og Norðurtangans og íshúsfélags-
ins, en sú hugmýnd hefur reyndar lít-
ið verið rædd, segir Eggert að samein-
ing tveggja frystihúsa sem ekki hefðu
aflaheimildir væri ekki til neins.
Norðurtangi hefur átt töluverða
samvinnu við Frosta hf. í Súðavík
undanfarin ár. Fyrirtækin keyptu sam-
an meirihlutann í Fiskiðjunni Freyju
hf. á Suðureyri og fluttu kvóta togar-
ans Elínar Þorbjarnardóttur á skip
sín. Erfiðleikarnir á Suðureyri hafa
haldið áfram og fyrirtækin hafa nú
lýst því yfir að þau treysti sér ekki
til að leggja meira fé í fyrirtækið. Er
framtíð þess því í nokkurri óvissu.
Norðurtanginn hefur einnig haft sam-
vinnu við Utgerðarféiagið Ósvör hf. í
-h
Bolungarvík sem lagt hefur upp afla
hjá fyrirtækinu. Ósvör hefur lagt upp
rækju hjá Riti og nú hafa Norðurtangi
og Ritur óskað eftir viðræðum um
samvinnu við Ósvör, eins og reyndar
íshúsfélagið og þijú fyrirtæki í Bol-
ungarvík og Hnífsdal.
Norðurtangi og Frosti höfðu sam-
vinnu við hráefnisöflun síðastliðið
sumar eftir að Frosti hætti að frysta
bolfisk og sérhæfði sig í rækjuvinnslu.
Guðbjartur og Orri, skip Norðurtang-
ans, veiddu rækju fyrir Frosta og tog-
arinn Bessi í Súðavík lagði upp bolfisk
hjá Norðurtanganum. í haust voru
langt komnir samningar um enn nán-
ari samvinnu sem samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins átti að felast í
leiguskiptum, þannig að Norðurtang-
inn gerði út Bessa en Frosti fengi
rækjuskipin í staðinn. Það slitnaði upp
úr þessum viðræðum og fyrra sam-
starf var ekki endurnýjað við lok
kvótaársins.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna vilja
lítið segja um ástæður þess að upp
úr slitnaði. Eftir að það hafði gerst
sagði Eggert Jónsson við Morgunblað-
ið að Frostamenn hefðu ekki viljað
endumýja samstarfssamninginn, talið
sig geta fengið hagstæðari samning
annars staðar. Ingimar Halldórsson,
framkvæmdastjóri Frosta, segir að
aðeins hafí verið samið út kvótaárið
og niðurstaðan hjá Frosta hafi orðið
sú að láta Bessa fara á rækjuveiðar.
Hann tekur það fram að samvinna
þessarra tveggja fyrirtækja hafi lengi
verið góð og svo sé enn þó hún hafi
ekki náð að þróast frekar.
Menn sem tengjast fyrirtækjunum
sögðu í einkasamtölum eftir að upp
úr slitnaði að erfíð fjárhagsstaða hins
fyrirtækisins hefði komið í veg fyrir
samninga. Ljóst er að Bessi er dýrt
skip og maður sem tengist Norður-
tanganum segir að Frosti hafí þurft
að fá leigugjald sem erfítt hefði verið
að greiða. Sömuleiðis hafí trúnaðar-
traust milli samningsaðila brostið þeg-
ar Ingimar Halldórsson hóf þreifingar
um svipaða samvinnu við frændur sína
í Hnífsdal sem reka Hraðfrystihúsið
hf. og útgerðarfélag þess.
Frosti hafnar samningum við
Hnífsdælinga og íshúsfélagið
Samningar um leiguskipti á Bessa
og Páli Pálssyni í Hnífsdal voru langt
komnir eða jafnvel frágengnir. Bessi
hefði þá farið án áhafnar til Hnífsdals
og Páll Pálsson á rækju fyrir Súðvík-
inga. Jóhann Símonarson skipstjóri á
Bessa og einn af eigendum Frosta
mun hafa barið hnefanum í borðið og
komið í veg fyrir að samningurinn
næði fram að ganga.
Þriðja tilraunin til hagræðingar í
útgerð sem tengist Frosta er tilboð
sem íshúsfélag Isfirðinga gerði fyrir-
tækinu eftir viðræður forsvarsmanna.
„Við gerðum þeim kostaboð sem þeir
gátu ekki hafnað,“ segir Magnús
Reynir Guðmundsson, stjórnarformað-
ur íshúsfélagsins. Bessi átti að fá all-
an bolfiskkvóta skipa íshúsfélagsins,
Stefnis og Framness, gegn því að
Bessi landaði hjá íshúsfélaginu. Sömu-
leiðis fengi Frosti Stefni og Framnes
til rækjuveiða. „Þetta hefði verið mjög
góður kostur fyrir báða aðila og ég
skil ekki af hveiju honum var hafn-
að,“ segir Magnús Reynir. Ingimar í
Frosta segir að Frosti hafi verið kom-
inn of langt í því að undirbúa Bessa
fyrir rækjuveiðar og ákveðið að snúa
ekki til baka.
Frosti skuldar mikið fé, meðal ann-
ars vegna kaupanna á Bessa og kvóta-
kaupa og endurbóta á rækjuvinnslu
fyrirtækisins í byrjun þessa árs. Ingi-
mar ber sig þó vel, segir að fyrirtæk-
ið sé nú komið með fullkomna rækju-
vinnslu og hafí breytingarnar komið
vel út. Reksturinn gangi þokkalega
eins og er vegna hækkunar á rækju-
verði. Margir telja óhagkvæmt að vera
með þetta dýra skip á rækjuveiðum
fyrir vinnsluna eins og kemur fram í
þeim þreifíngum sem verið hafa í þeim
tilgangi að fá Bessa annað en Ingimar
segir að þeir ætli að hafa þetta fyrir-
komulag út kvótaárið. Bessi hefur
veitt vel, enda stærsta skipið á fersk-
rækjuveiðum hér við land og er rækju-
kvóti fyrirtækisins að verða búinn.
Ætlunin er að skipta bolfiskkvóta
Bessa fyrir rækju en rækjukvóti hefur
ekki legið á lausu. Frosti gerir einnig
út rækjuskipin Kofra og Haffara og á
í tveimur litlum bátum sem eru á inn-
fjarðarrækju.
Ingimar segir að Frosti sé opinn
fyrir öllum hugmyndum um samvinnu
eða sameiningu. „Sjálfur tel ég að
fyrirtækin þurfí að stækka og eflast
til þess að komast inn á hlutabréfa-
markaðinn og ná inn áhættufé í stað
lánsfjár."
Strandaði á skilyrðum
Islandsbanka
Útgerðarfélögin Hrönn hf. sem ger-
ir út togarann Guðbjörgu og Gunnvör
Gerjunin
• Frosti og Norðurtangi voru
með samvinnu um hráefnisöflun
í sumar, Bessi lagði upp hjá Norð-
urtanganum og Guðbjartur og
Orri veiddu rækju fyrir Frosta.
Samningar tókust ekki um að
ganga lengra með leiguskiptum
á skipunum og var fyrri sam-
starfssamningur ekki endurnýj-
aður.
• Frosti og Miðfell (útgerð Hrað-
frystihússins í Hnífsdal) komast
að samkomulagi um leiguskipti,
Bessi fari til Hnífsdals og Páll
Pálsson til Súðavikur. Komst ekki
til framkvæmda vegna andstöðu
íSúðavík.
• íshúsfélagið gerir Frosta tilboð
um sameiginlega hráefnisöflun.
Hafnað.
• íslandsbanki þrýstir áum við-
ræður um sameiningu íshúsfé-
lagsins, Rits og Bakka. Gekk ekki
upp.
• Samkomulag næst um kaup
Bakka á meirihlutaeign Hrannar
í íshúsfélaginu með skilyrði um
að allt hlutafélagið fáist keypt.
Gunnvör vill ekki selja ogkaupir
hlutinn á 30 milljónir kr. Á nú
svo til öll hlutabréfin.
• Þuríður vill samstarf/samein-
ingu við Ósvör. Hafnað.
• Bakki og Þuríður stefna að sam-
starfi/sameiningu og senda sam-
eiginlega umsókn um Vest-
fjarðaáætlun.
• Bakki, Þuríður og Gná vilja við-
ræður um kaup á meirihlutaeign
■Bolungarvíkurkaupstaðar í Ós-
vör.
• íshúsfélagið og Togaraútgerð
ísafjarðar vilja samvinnu við Ós-
vör.
• Norðurtanginn og Ritur vilja
samvinnu við Ósvör.
• Landsbankinn gefur Norður-
tanga og Básafelli bendingar um
sameiningu.
hf. sem gerir út Júlíus Geirmundsson
áttu lengi íshúsfélag ísfirðinga með
ísafjarðarkaupstað og smærri aðilum
og sáu frystihúsinu fyrir hráefni að
lang mestu leyti. íshúsfélagið var nán-
ast skuldlaust. Endurnýjun útgerðar-
félaganna á skipum sínum þar sem
skipt var yfir í frystitogararekstur
hefur breytt þessu. Fyrst kom nýr
Júlíus Geirmundsson árið 1989 og til
að fá hráefni í stað þess sem hann
lagði upp keypti íshúsfélagið helming
Framness frá Þingeyri og gerði út
með Kaupfélagi Dýrfirðinga. Síðar var
öll útgerðin keypt og einnig Stefnir
(áður Gyllir) frá Flateyri. Fyrirtækið
skuldar töluvert vegna þessara fjár-
festinga en kvóti skipanna hefur
minnkað jafnt og þétt. Með tilkomu
nýju Guðbjargarinnar í haust missti
íshúsfélagið meira en helming þess
afla sem það hefur haft.
Fyrir fáeinum árum keypti Hrönn
hlut bæjarins og átti þvi um
62% hlutabréfa Ishúsfélags-
ins. Nýverið keypti Gunnvör
þennan hlut og á núna svo
til allt hlutaféð. Þar eru því
nýir stjórnendur komnir til
valda, Magnús Reynir og Kristján G.
Jóhannsson framkvæmdastjóri Gunn-
varar, og sjást þess merki, Ishúsfélag-
ið hefur til dæmis verið og er að leita
fyrir sér með samvinnu við önnur fyrir-
tæki við Isafjarðardjúp.
Þreifingarnar byrjuðu reyndar í
sumar, áður en eigendaskipti urðu að
Ishúsfélaginu, og virðist það hafa átt
þátt í að leysa upp þá pattstöðu sem
var í skipulagi helstu sjávarútvegsfyr-
irtækja á þessu svæði. Það gerðist
með ferð sendinefndar íslandsbanka
til ísafjarðar þar sem þrýst var á um
sameiningu íshúsfélagsins og rækju-
verksmiðiðjanna Rits á Isafirði og
Bakka í Hnífsdal en öll þessi fyrirtæki
eru í viðskiptum hjá íslandsbanka sem
jafnframt á liðlega þriðjung hlutfjár í
Riti. Bankamennirnir vildu stuðla að
stofnun fyrirtækis sem væri með bol-
fiskfrystingu og rækjuvinnslu til fryst-
ingar og niðursuðu. Einnig hefði verið
mögulegt að hagræða verulega í út-
gerðinni, Sáu þeir fyrir sér svipaða
einingu og Þormóður rammi á Siglu-
fírði þar sem Stefnir og Framnes yrðu
látin veiða rækju en Ishúsfélagið léti
aðra veiða fyrir sig bolfiskkvótann og
tvöfaldaði hráefni sitt með því að bjóða
tonn á móti tonni. íslandsbankamenn
töldu að þessi eining gæti sýnt hagnað
af rekstri og komist út á hlutabréfa-
markaðinn eftir eitt til tvö ár.
Þessi sameining gekk ekki upp.
Bankinn setti það skilyrði að allir hlut-
hafar í þessum fyrirtækjum yrðu með
í upphafi, ekki mætti kaupa neinn út,
og þar með Hrönn þó vitað væri að
Ásgeir Guðbjartsson stjórnarformaður
Hrannar vildi komast út úr íshúsfélag-
inu til að leggja alla krafta sína í út-
gerð nýja frystiskipsins. Maður sem
tengist einu þessarra fyrirtækja segir
að með skilyrðum sínum hafi bankinn
eyðilagt þennan sameiningarmögu-
leika og tafið þróunina. Telur hann
að afskipti bankans sýni að þeir sem
þekkinguna hafa, eigendur og stjórn-
endur fyrirtækjanna, verði að ráða
ferðinni við sameiningu eða nána sam-
vinnu.
Hugmynd íslandsbanka fór út um
þúfur með sölu íshúsfélagsins. Salan
fór þannig fram að Aðalbjörn Jóakims-
son eigandi Bakka gerði samning um
kaup á 62% eignarhlut Hrannar fyrir
22 milljónir kr. Gerði hann það að
skilyrði að hann fengi hlut annarra
keyptan en Gunnvör var ekki til í að
selja og niðurstaðan varð sú að Gunn-
vör keypti eignarhlutinn á 30 milljónir.
Leitað til Bolungarvíkur
Nýju valdhafamir í Ishúsfélaginu
tóku þá ákvörðun að leita allra leiða
til að fá hráefni til að halda vinnsl-
unni gangandi og hefur ekki fallið úr
dagur í vinnslu frá því þeir tóku við.
Þeir kaupa fisk á mörkuðunum og
heilfrystan fisk úr Barentshafi.
„Reksturinn hefur gengið ágætlega
en við verðum að fá meira hráefni til
að geta haldið stöðu okkar,“ segir
Magnús Reynir stjórnarformaður.
Hann segir að Ishúsfélagið sé opið
fyrir öllum hugmyndum en metur það
svo að samvinna geti oft verið betri
kostur en sameining. íshúsfélagið leit-
aði fyrir sér með samvinnu við Frosta,
eins og fram kemur hér að framan.
Magnús Reynir sér það fyrir sér að á
ísafirði geti í framtíðinni orðið til tvö
öflug sjávarútvegsfyrirtæki sem
spanni víðara svið en nú. Telur hann
sameiningu íshúsfélagsins og Norð-
urtanga varla koma til greina vegna
þess hversu starfsemi þeirra er lík en
telur sameiningu íshúsfélagsins og
Rits aðlaðandi kost.
íshúsfélagið hefur leitað eftir sam-
vinnu við Ósvör í Bolungarvík. Segir
Magnús Reynir að Ósvör sé með tals-
verðan kvóta en tvö léleg skip og
gæti rekstur þess félags fallið vel að
rekstri íshúsfélagsins. Vitað er að
sameining milli bæjarfélaganna er við-
kvæmt mál þar sem Bolungarvíkur-
kaupstaður á meirihluta hlutaQár í
Ósvör. Magnús Reynir telur þó sjálf-
sagt að kanna það hvort möguleikar
séu á samvinnu og segir að ýmislegt
geti komið til greina þó sameining
gangi ekki upp, til dæmis að Ósvör
fengi kvóta frá Ishúsfélaginu gegn því
að landa hjá því. Jafnvel geti komið
til greina að landa aflanum
í Bolungarvík og vera með
einhveija vinnslu þar.
Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal hefur lítið komið
inn í sameiningarumræð-
una. Það virðist vera lang
best stæða frystihúsið við Djúp,
skuldar engum neitt. Þar eru að eiga
sér stað kynslóðaskipti eins og í hin-
um frystihúsunum, synirnir hafa tek-
ið við stjórnarformennsku af feðrun-
um. Aðalbjörn Jóakimsson eigandi
rækjuverksmiðjunnar Bakka, sonur
Jóakims Pálssonar, er orðinn stjórn-
arformaður Hraðfrystihússins og
Kristján G. Jóakimsson sjávarútvegs-
fræðingur, sonur Jóakims Hjart-
arsonar, er stjórnarformaður Miðfells,
útgerðarfélags Páls Pálssonar. Þó
fyrirtækin hafi ekki komið mikið við
sögu í gerjuninni við Djúp voru þau
búin að semja við Frosta um leigu-
skipti á Bessa og Páli Pálssyni. Þó
ekkert hafi orðið úr viðskiptunum
getur tilraunin verið vísbending úm
að yngri mennirnir séu farnir að láta
til sín taka og fyrirtækin komi meira
við sögu á næstunni.
Nú er tækifærið hjá
r ækj u vinnslunum
Þijár rækjuvinnslur eru á ísafírði
og í Hnífsdal. Þær hafa komið nokkuð
inn í samvinnu/sameiningammræð-
una. Menn telja að hagkvæmt geti
verið að reka saman frystihús og
rækjuvinnslu til að jafna sveiflurnar
sem eru í þessum greinum. Sveiflur
eru til dæmis miklar í rækjuvinnslunni
og eru báðar rækjuverksmiðjurnar á
Isafírði, Ritur og Básafell, arftakar
verksmiðja sem orðið hafa gjaldþrota,
sumar oftar en einu sinni.
Halldór Jónsson, útgerðarstjóri
Rits, segir nauðsynlegt að hagræða í
útgerðarþættinum í kjölfar minnkandi
aflaheimilda. Það geti gerst með sam-
vinnu en sameining sé ekkert lokatak-
mark. Hins vegar sé ljóst að fyrirtæki
sem ætli að sækja hlutafé til fjárfesta
og almennings þurfi að hafa breiðari
rekstur en frystihúsin og rækjuvinnsl-
urnar hafa í dag. Hann segir að búið
sé að varpa fram mörgum hugmynd-
um frá því umræðan um Vestfjarða-
áætlun hófst en erfítt sé að láta hlut-
ina ganga upp. Við samruna frysti-
húss og rækjuverksmiðju þyrfti að
vera hægt að hagræða verulega, til
dæmis með því að fækka vinnsluhús-
um og báðir aðilar þyrftu að hafa eitt-
hvað fram að færa. Menn þyrftu að
hafa það í huga að útkoman úr sam-
lagningu tveggja núlla væri einnig
núll.
„Við höfum tapað allt of miklum
tíma, nú er tækifærið þegar rækjan
er á uppleið," segir Halldór. Hann lýs-
ir jafnframt eftir stefnu banka og
sjóða. Bendir á að sum fiskverkunar-
húsin séu orðin óþörf og þar sem eng-
inn markaður sé fyrir þau séu þessar
eignir verðlitlar og standi ekki undir
veðum. Varpar Halldór því fram hvort
bankar og sjóðir séu tilbúnir til að
viðurkenna vandann með því að leysa
til sín þessar fasteignir eða fella niður
skuldirnar. Þá segir hann að í fram-
haldi af Vestfjarðaáætlun þurfi fyrir-
tækin íjármagn til að brúa bilið og
byggja sig upp áður en þau geti kom-
ist á h 1 utafj ármarkaðinn og spyr hvort
næsta skrefið gæti ekki verið að rýmka
heimildir lífeyrissjóðanna til að fjár-
festa í atvinnulífinu. Þeir ættu hvort
sem er allt sitt undir því að atvinnan
héldist á svæðinu.
Landsbankinn með bendingar.,
Rækjuverksmiðjan Básafell hefur
lagt áherslu á að byggja upp eigin
útgerð og segja framkvæmdastjórarn-
ir, Arnar Kristinsson og Eiríkur Böð-
varsson, að með því séu þeir að reyna
að búa í haginn fyrir framtíðina. Þeir
staðfesta það að fyrirtækið hafi feng-
ið ákveðnar bendingar frá Landsbank-
anum um að sameinast Norðurtangan-
um. Þeir segjast hafa lýst vilja sínum
til viðræðna en af þeim hafi ekki orð-
ið, enda hafí þeir verið uppteknir við
að treysta eigin útgerð. Þá vissu þeir ,
ekkert um áhuga Norðurtangans. 1
Guðbjartur Norðurtangans hefur að ;
undanförnu lagt upp rækju hjá Bása- ;
felli.
Arnar og Eiríkur segja að það h/if |
sýnt sig í miklum sveiflum í rækju- L
vinnslunni að það geti aldrei verið
sterkt til lengdar að vera eingöngu í
rækju. Amar segir rétta tímann að
huga að skipulagsmálunum nú, ein-
mitt þegar rækjuvinnslan gangi vel til
þess að vera betur í stakk búnir til
að mæta niðursveiflunni.
Niðurstaða viðtala við stjórnendur
margra helstu sjávarútvegsfyrirtækja
við Isafjarðardjúp og fleiri er sú að
ákveðin hugarfarsbreyting sé að eiga
sér stað. Kemur hún fram í fjölmörg-
um þreifingum um sameiningu/sam-
vinnu og þó ekki hafí tekist að ná ,
samkomulagi um ýmsar hugmyndir :
hafa aðrar komið í staðinn og í raun \
er allt opið. Flestir eru sammála um S
að eitthvað þurfí að gera og þó mörg ■
ljón virðist í veginum er ótrúlegt ann-
að en eitthvað komi út úr allri þessari
vinnu.
Sjá fyrir sér
2-4 öf lug út-
vegsfyrirtæki
Sjá rautt þeg-
ar minnst er á
sameiningu