Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Ný áhættuflokkun húseigendatrygginga hjá VIS Tíð tjón hækka iðgjöld á 5 stöðum Bensínið hækkar um 2,5%-2,6% HVER lítri af blýlausu bensíni er nú 1,70 krónum dýrari en í gær og blý- bensín hefur hækkað um 1,80 krón- ur. Hækkunin nemur um 2,5%—2,6% og stafar af 5,7% hækkun bensín- gjalds. Gert er ráð fyrir að olíugjald, eða þungaskattur á dísilbíla, hækki um tæp 4% um áramót að sögn Stein- gríms Ara Arasonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra. Þessi hækkun vegagjaldsins er vegna sérstaks framkvæmdaátaks í vegamálum. Ákveðið var að flýta fyrri áformum og framkvæma fyrir 3,5 milljarða á árunum 1995-98, þar af á næsta ári fyrir 1.250 milljónir, 1.000 milljónir 1996, 750 milljónir 1997 og 500 milljónir 1998. Því er bensíngjald hækkað í einu lagi nú, í stað 1. janúar og 1. júní nk. Gert er ráð fyrir að hækkunin skili 310 milljónum í ríkissjóð á næsta ári eða um 350 milljónum að meðaltaii á ári næstu fímm árin. Hækkunin veldur 0,12% hækkun á framfærsluvísitölu og 0,04% hækk- un á lánskjaravísitölu. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær ríkis- sjóð til að greiða eiganda mynd- bandaleigu 200 þúsund krónur í miskabætur þar sem rannsókn sú sem fram fór í kjölfar þess að lagt var hald á myndbönd í leigu manns- ins í umfangsmiklum lögregluað- gerðum í Reykjavík og nágp-enni 22. desember 1986 hafi verið andstæð lögum um að lögregla skuli ekki valda manni tjóni, óhagræði eða miska framar en óhjákvæmilegt er. Framvinda málsins hafi og ekki ver- ið í anda ákvæða Mannréttindasátt- máia Evrópu um að sakaður maður eigi rétt tii réttlátrar og opinberrar málshöfðunar innan hæfilegs tíma fyrir sjálfstæðum og óháðum dóm- stóli. Hjá leigu mannsins sem höfðaði málið hafði verið lagt hald á tæplega 1.000 myndbandsspólur, langflestar án merkinga rétthafa og kvikmynda- eftirlits. Hæstiréttur telur að maður- inn hafí ekki getað fært sönnur á þá staðhæfíngu sína að hann hafi verið beittur óþarfa harðræði af hálfu lögreglunnar þegar haldlagningin fór fram en þá var honum meinað að fara af staðnum og að hafa samband við lögmann fyrr en tveimur klukku- stundum eftir að lögreglan kom á staðinn. Vítavert seinlæti Hæstiréttur segir að Ijóst sé að rannsókn lögreglu eftir haldlagningu myndbandsspólanna hafí mjög farið úr böndum og vítavert seinlæti hafi einkennt alla meðferð málsins. Er- indum lögmanna mannsins til yfir- valda hafí ekki verið svarað og hann hafi hvorki fengið upplýsingar um HIN nýja áhættuflokkun húseig- endatrygginga, sem Vátrygg- ingafélag íslands hefur tekið upp, getur leitt til þess að vegna tjóna- reynslu verði iðgjöld á ákveðnum svæðum á landinu hærri en á sambærilegum húseignum annars staðar. Morgunbiaðið hefur upp- lýsingar um að vegna tjóna- reynslu kunni iðgjöld að vera allt að fjórðungi hærri í ákveðnum sveitarfélögum en þegár um er að ræða sambærilegar eignir ann- ars staðar en Örn Gústafsson, framkvæmdastjóri hjá VÍS, vildi ekki staðfesta neina ákveðna tölu í því sambandi. Ekki eingöngu miðað við brunabótamat Hefðbundið hefur verið hjá tryggingafélögum hér á landi, að sögn Arnar, að leggja eingöngu brunabótamat til grundvallar við útreikning iðgjalds húseigenda- trygginga en frá næstu áramótum mun VIS gera breytingu á því. Eins og fram kom í Morgunblað- inu á þriðjudag munu heildarið- gjöld lækka um 6% vegna þessa en um hækkun getur orðið að ræða hjá eigendum eldri húsa og einnig hjá eigendum húsa á ákveðnum svæðum. Auk aldurs og staðsetningar, hafa stærð húsa, brunabótamat og eigin áhætta tryggingatakans áhrif á fjárhæð iðgjaldsins. framvindu rannsóknarínnar né heiti og Qölda þeirra myndbanda sem lög- regla lagði hald á. Þá hafi hann ekki verið kvaddur til skýrslutöku hjá lög- reglu fyrr en 2'A ári eftir haldlagn- inguna og honum ekki gerð grein fyrir niðurfellingu saksóknar sem ákveðin hafí verið rúmum þremur árum eftir aðgerðina. Samningaum- leitanir hagsmunaaðila í mýndbanda- viðskiptum kunni að varpa ljósi á töfina en réttlæti hana á engan hátt. Mannréttindasáttmáli Haldlagningu lögreglunnar á myndbandsspóulm hafí ekki verið áfátt að lögum en engu að síður verði að telja að meðferð málsins hjá rannsóknaraðilum hafí verið svo and- stæð þeim rétti sakaðra manna, sem varinn sé í lögum og skýra verði með hliðsjón af Mannréttindasátt- mála Evrópu, að manninum beri bætur. Maðurinn hafi ekki sýnt fram á rétt sinn til útleigu þorra þeirra myndbanda sem hald var lagt á, og voru hvorki merkt rétthafa né með merki um skoðun kvikmyndaeftirlits og þv,í sé m.a. ekki grundvöllur fyrir að bæta honum fjártjón. Hins vegar eigi hann rétt til miska- bóta sem þyki hæfílegar 200 þúsund krónur, auk þess sem allur máls- kostnaður, þar á meðal 150 þúsund króna þóknun lögmanns hans, Gunn- ars Jóhanns Birgissonar, var felldur á ríkissjóð. Málið dæmdu hæstarétt- ardómararnir Hrafn Bragason, Garð- ar Gíslason, Haraldur Henrysson, Pétur Kr. Hafstein og Ingibjörg Benediktsdóttir. Guðrún M. Áma- dóttir hrl. flutti málið fyrir hönd rík- isins. Munar allt að fjórðungi eftir sveitarfélögum Skemmdir ofnar á Suðurnesjum Örn Gústafsson sagði að t.d. hefðu tíð tjón á ofnum í húsum á Suðurnesjum, sem rekja mætti til vandamála í hitaveitu svæðisins, áhrif til hækkunar iðgjalda þar sem aukin áhætta væri fólgin í að taka húseignir þar í tryggingu. Auk Suðurnesja hefur Morgun- blaðið upplýsingar um hækkun verðs á ákveðnum stöðum á Snæ- fellsnesi, í Hornafírði, Akranesi og á Hvolsvelli, en Örn Gústafs- son vildi ekki staðfesta að um fyrrgreind svæði væri að ræða né tjá sig um það hvort rétt væri að álagið gæti numið allt að 25%. Aukin úrvinnsla gagna Örn sagði að að baki þessum breytta iðgjaldagrunni lægi það að féiagið hefði undanfarið. lagt vinnu í að skoða og vinna úr gögn- um sínum með tilliti til áhættu þannig að iðgjöld endurspegluðu þá áhættu sem viðskipti hefðu í för með sér fyrir tryggingafélagið HLJÓMSVEITIN Mezzoforte er nú á hljómleikaferðalagi í Suð- austur -Asíu. í gærkvöldi lék sveitin á mjög fjölmennum úti- hljómleikum á vegum jasshátíð- arinnar í Jakarta. Leikur Mezzo- forte er eitt þriggja aðalatriða á jasshátíðinni, auk japönsku sveit- arinnar Casseopeia og hollensku saxafóndrottningarinnar Candy Dulfer. Hún hefur meðal annars leikið með Prince. Fjöldi annarra tónlistannanna kemur fram á hátíðinni. Að sögn Eyþórs Gunnarssonar kom Mezzoforte síðust á svið á útitónleikunum í gærkvöldi. Hljómsveitinni var mikið fagnað enda þekkt frá vel heppnaðri heimsókn sinni í fyrra til Indó- nesiu. Þá birtist stór litmynd af Mezzoforte á forsíðu stærsta dagblaðs í Jakarta með fyrir- sögninni „Hip, hip, húrra.“ I gær voru þeir félagar í sjónvarpsvið- tali. _ miðað við tjónareynslu. Hann sagði að þessi aðferð væri alþekkt í tryggingaviðskipt- um, t.d. varðandi ábyrgðartrygg- ingar ökutækja, þar sem landinu væri skipt niður í áhættusvæði; í sambandi við foktryggingar þar sem sérstakt álag hefði verið á iðgjöld á ákveðnum svæðum, vegna tjónareynslu, t.d. undir Eyjafjöllum; þá hefðu störf manna áhrif á iðgjöld slysatrygg- inga, og iðgjald brunatrygginga tæki mið af skipulagi brunamála í viðkomandi sveitarfélagi. Reglugerðir ekki virtar í samtali Morgunblaðsins við Örn Gústafsson kom einnig fram að í þeim sveitarfélögum þar sem tjónareynslan verkaði til hækkun- ar hefði félagið sett sig í samband við sveitarstjórnir til að vinna að úrbótum á þeim þáttum. Hann sagði að þar gæti verið um að ræða að eftirlit með fram- kvæmd byggingareglugerða væri lélegt og því væri t.d. ekki tryggt að frágangur lagna væri í sam- ræmi við reglugerð eða kröfur fagmanna. Auk tíðra ofnaskemmda á Suð- urnesjum, sem verið væri skipu- lega að leita orsaka fyrir hjá hita- veitu svæðisins, hefðu ýmis vandamál tengd húshitun valdið ijölda tjóna á ýmsum öðrum svæðum á landinu. Athyglin sem hljómsveitin hef- ur vakið í Indónesíu kom henni á óvart að sögn Eyþórs. „Salan á plötum okkar hér er ekki í neinu samræmi við vinsældirnar, enda er mikið um það á þessum slóðum að framleiddir séu geisla- diskar og snældur án þess að leyfa sé aflað.“ Hringferð um SA-Asíu Eyþór átti von á náðugum dögum á næstunni. Góð frí gefast á milli tónleikanna og átti hann von á því að frídagarnir yrðu notaðir til hvíldar og sóldýrkunar meðan svartasta skammdegið umvefur gamla Frón. Mezzoforte heldur tvenna tón- leika til viðbótar í Jakarta á sunnudag, síðan liggur leiðin til Bandu, þaðan til Bali, Surabaya, Kuala Lumpur í Malaysíu og loks til Singapore um miðjan mánuð- inn. Heimkoma er ráðgerð þann 18. desember. Sjúkraliðadeilan í Félagsdómi Ríkið féll frá aðal- kröfu sinni RÍKIÐ féll í gær frá kröfu sinni f Félagsdómi um að verkfall sjúkraliða á Ríkisspítölunum verði dæmt ólöglegt. Dæmt verð- ur eftir varakröfu sem varðar undanþágulista sem spítalarnir hafa lagt fram og vilja að sjúkra- liðar fari eftir. Ekki er búist við úrskurði Félagsdóms fyrr en í lok næstu viku. Lögmaður Sjúkraliðafélagsins lagði fram kröfu í Félagsdómi í gær um frávísun á þeirri for- sendu að aðalkrafa ríkisins um að verkfallið yrði dæmt ólöglegt heyrði ekki undir dóminn. Ekki væri ágreiningur um að verkfall- ið væri löglega boðað. Áður en Félagsdómur tók afstöðu til frá- vísunarkröfunnar dró lögmaður ríkisins kröfuna til baka og því verður dæmt eftir varakröfu. Ríkið höfðaði málið vegna ágreinings um hveijir ættu að vinna í verkfallinu. Ríkið telur að sjúkraliðum sé skylt að mæta til vinnu samkvæmt undanþágu- listum, en Sjúkraliðafélagið er ekki sátt við túlkun ríkisins á listunum. Málið verður flutt í Félags- dómi nk. þriðjudag. Líkamsárás- um hefur fækkað KÆRÐUM líkamsárásum hefúr fækkað síðustu ár. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarlög- regiu ríkisins voru þær 129 árið 1988, í fyrra voru þær 81 og fyrstu ellefu mánuði þessa árs 75. Í yfírliti frá RLR yfír kærðar líkamsárásir frá 1988 til 1994 er þeim skipt í líkamsárásir (Lá.) og meiriháttar líkamsárásir (Mh. lá.). Ár Lá. Mh. lá. Samt. 1988 120 9 129 1989 98 13 111 1990 98 4 102 1991 74 8 82 1992 69 16 85 1993 69 12 81 1994 64 11 75 Af kærðum líkamsárásum árið 1993 er rannsókn lokið í 39 málum, 14 eru enn óupplýst og 16 enn í rannsókn. Af meiri- háttar líkamsárásum, kærðum sama ár, er rannsókn lokið í 11 málum, 1 mál er óupplýst og ekkert mál er ennþá í rannsókn. Af kærðum líkamsárásum á þessu ári er rannsókn lokið í 20 málum, 1 er enn óupplýst og 43 eru enn í rannsókn. Af meirihátt- ar líkamsárásum, kærðum á þessu ári, er rannsókn 9 mála lokið og 2 eru enn í rannsókn. Tveir fjöl- bílaárekstrar TVEIR árekstrar urðu í Reykja- vík í gær þar sem mörg ökutæki komu við sögu. Fjögurra bíla árekstur varð um kiukkan eitt á gatnamótum Laugavegar og Nóatúns. Flytja þurfti farþega úr einum bílnum á slysadeild en meiðsl hans reyndust minniháttar. I'imm bíla árekstur varð svo um tvöleytið á gatnamótum Grensásvegar og Bústaðavegar. Flytja þurfti einn farþega og einn ökumann á slysadeild. Meiðsl voru minniháttar. Ríkið greiði bætur vegna seinlætis í lögreglurannsókn Morgunblaðið/Halldór MEZZOFORTE gerir nú garðinn frægan í Jakarta í Indónesiu. Hljómsveitin er á tónleikaferðalagi um Suðaustur-Asiu. íslensk sveifla í Asíu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.