Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 29
LISTIR
Ekkí er allt
sem sýnist
BOKMENNTIR
Unglingabök
DULARFULLA
EYÐIBÝLIÐ
eftir Krislján Jónsson
Teikningar: Bjarni Jónsson
Prentun: Singapore
Skjaldborg hf. 1994 -125 síður.
ÞETTA er æsispennandi ung-
lingabók, rituð af snilli þess er
kann til verka. Straumröstin er
svo þung í upphafi
sögu að lesanda
hreinlega svimar á
iðutorgi Eyrarvatns
við Eyrarfjörð. Tvö
börn, Ari og Jóa, eru
týnd, ótti og skelfing
grípur um sig, og fólk
æðir um í stjórnlausu
fumi. Runólfur og
Hnúi, ærslastrákar,
leggja sitt til leitar-
innar. Atburðarásin
verður þó önnur en
þeir ætluðu, og fyrr
en varir eru þeir
komnir, dragslandi
með sóknarprestinn,
á flótta undan svolanum Gísla
verkstjóra. Smygl,- þjófnaður
hafði sem sé, enn einu sinni, ver-
ið framinn á Eyrarvatni, og Gróa
á Leiti var fljót að fá fólk til þess
að gleyma týndum börnum, fá það
til að smjatta á getsökum um
saklausan mann.
Runólfur og Hnúi voru aðrir en
fólk taldi þá vera. Sá fyrri átti sér
málsbót sára og bitra, sem prestin-
um var sífelld martröð, sá síðar-
nefndi vár meiri bógur en hann
sjálfur vissi.
Nú, skátastelpurnar hans Krist-
jáns: Kiddý, Munda, Stína og Erla
eru einnig leiddar á sviðið, Jói líka.
Þegar þetta lið leggur saman, með
Skafta sýslumann sér við hlið, þá
er ekki að sökum að spyija, mál
skýrist, og berrassaðir sökudólgar
eru baðaðir ljósi.
Já, dagur rennur bjartur, hlýr
yfir Eyrarvatn: Börnin
fundin heil á húfi; sak-
laus maður stangaður
úr tönnum fólks; Gróa
á Leiti læðist niðurlút
í skuggasundið sitt;
sannar hetjur hljóta
lof.
Kristján kann þá
list að skapa spennu,
•halda lesanda föngn-
um þar til saga er öll.
Málfimi, hraði og
fyndni einkenna
stíiinn, oft svo mynd-
rænt, til dæmis atriðið
í kirkjugarðinum, að
lesandinn veltist um
af hlátri.
Ekki draga teikningar lista-
mannsins Bjarna úr gildi bókar,
þær eru tærar perlur. Allur frá-
gangur útgáfunni til sóma.
Hörku spennubók, vafin hlýju
höfundar til unglinga.
Sig. Haukur Guðjónsson
Kristján Jónsson
Tónskóli Sigursveins
Tónleikar í desember
TÓNLEIKAR Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar í desember
verða sem hér segir:
Laugardagur 3. desember. Tón-
leikar strengjasveita í Áskirkju kl.
16. Fjórar strengjasveitir koma
fram á tónleikunum og auk þess
Kór Flataskóla í Garðabæ.
Sunnudagur 4. desember. Jóla-
tónleikar í Hraunbergi kl. 14. Tón-
leikar Árbæjardeildar í Árbæjar-
kirkju kl. 17. Á tónleikunum koma
fram einleikarar og hópar.
Laugardagur 10. desember.
Jólatónleikar forskólans og blás-
aradeildar í Langholtskirkju kl. 14.
Á tónleikunum mun kór 100 for-
skólanema leika og syngja og sveit
allra blásaranemenda í skólanum
kemur fram í fyrsta sinn.
Sunnudagur 11. desember.
Jólatónleikar Suzuki-deildar í
Hraunbergi 2 kl. 14. Jólatónleikar
í Norræna húsinu kl. 17. Á tónleik-
unum koma fram einleikarar og
hópar.
Laugardagur 17. desember.
Tónleikar framhaldsdeildar í
Listasafni Sigutjóns Olafssonar
kl. 17.
Auk þess að koma fram á þess-
um tónleikum munu nemendur
skólans leika fyrir vistmenn á heil-
brigðisstofnunum og við önnur
tækifæri.
Jólakort Tónskóla Sigursveins
Heilög María og Hátíð fer að
höndum ein. Jólakort Tónskólans
1994 eru komin út. Á kortinu er
íslensk teikning frá 15. öld og jóla-
lagið Hátíð fer að höndum ein, en
birting þess á jólakorti skólans á
sínum tíma áttu verulegan þátt í
kynningu lagsins, sem þá var al-
veg óþekkt. Enn er eftir lítilshátt-
ar af jólakorti skólans 1993, Hug-
sjónatréð, litprentun á málverki
eftir Grímu (Olöf Grímea Þorláks-
dóttir (1895-1988). Kortin verða
til sölu á skrifstofu skólans eftir
1. desember. Ágóðinn af sölu kort-
anna rennur í byggingarsjóð Tón-
skólans,
Sparisjóður Hafnarfjarðar
„Leysingar og
loftkastalar“
SOFFÍA Sæmundsdóttir opnar
sýningu á verkum sínum í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar, Garðabæjar-
útibúi, Garðatorgi 1, laugardaginn
3. desember kl. 14.
Á sýningunni sem nefnist
„Leysingar og loftkastalar" eru
þrykk unnin á árunum ’93 og ’94.
I sýningarskrá segir: „... að taka
inn lit úr umhverfi sínu, gulan
hvítan, himinbláan, appelsínu-
rauðan, sægrænan ... bera hann á
tréð, þrykkja á pappírinn, drekkja
blaðinu í lit uns það öðlast sjálf-
stætt líf ... ferðalagið er hafið...“
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 8.30-16 og stendur út jan-
úar 1995. Þetta er önnur einka-
sýning Soffíu en hún útskrifaðist
úr grafíkdeild MHÍ 1991.
Svimandi há upphæð! Handa þér?
Fjórfaldur fyrsti vinningur á laugardag.
MERj<ISMENN