Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ferdinand
Hvað ertu að borða? Nýtt morg- Mér líkar nafnið vel... „flögur“?
unkorn...
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 691100 • Símbréf 691329
Opið bréf til
Davíðs Oddssonar
Frá Páli Tryggvasyni
og Benedikt Sigurðarsyni:
SAMKVÆMT bréfum dags. 28.
október sl. og fréttatilkynningu frá
forsætisráðuneytinu dags. 31.
október 1994 er tilkynnt að emb-
ætti umboðsmanns bama hefur að
tillögu forsætisráðherra verið veitt
Þórhildi Líndal lögfræðingi frá 1.
janúar 1995 að telja.
Samkvæmt þessum gögnum
kemur fram að við mat umsókna
„var einkum litið á aldur, menntun
og fyrri störf umsækjenda“.
Þórhildur Líndal sker sig ekki
úr hópi umsækjenda að því er varð-
ar aldur.
Ekki verður af gögnum málsins
séð að Þórhildur Líndal hafi neina
sérþekkingu á málefnum barna og
margir umsækjendur hafa starfs-
reynslu sem gefur þeim verulegt
forskot varðandi þekkingu á slík-
um málum. Fyrri störf hennar eru
einangruð við lögfræðistörf sem
yfirborgardómara í Reykjavík,
þröngt svið stjórnsýslu í félags-
málaráðuneytinu (skv. fréttatil-
kynningu einkum á sviði sveitar-
stjómarmála þ.m.t. byggingar- og
skipulagsmál) og að síðustu kynn-
ingarstörf í forsætisráðuneytinu.
Störf hennar sem tengjast málefn-
um barna og ungmenna takmark-
ast við 9 mánaða tímabil þ.e.a.s.
frá áramótum 1992/1993 þar sem
hún fer til starfa í forsætisráðu-
neytirtu í otkóber 1993. Störf henn-
ar að samningu reglugerða eftir
lögum um vernd barna og ung-
menna verður vart metin á þessu
stigi þar sem nefndarstörfum er
ekki lokið.
Menntun Þórhildar er ekki á
sviði sem snertir málefni barna
sérstaklega en þvert á móti hafa
margir úr hópi umsækjenda víð-
tæka menntun á ýmsum sviðum
er varða velferð barna. í 2. grein
laga um umboðsmann barna er
tiygging fyrir því að lögfræðilegri
hlið starfsins sé fullnægt þar sem
gert er ráð fyrir að umboðsmaður
barna ráði lögfræðing að embætt-
unum og skv. 7. grein sömu laga
er umboðsmanni heimilað að ráða
sérfræðinga að einstökum verkefn-
um (þ.m.t. lögfræðinga).
Við undirritaðir umsækjendur
teljum okkur knúna til að fara fram
á rökstuðning af hálfu ráðherra
varðandi þessi atriði og vísum til
21. og 22. greina laga nr. 37/1992
(Stjórnsýslulög). Samkvæmt þeim
lögum teljum við augljóst að ráð-
herra beri skylda til að rökstyðja
á hvem hátt þau atriði sem ráðu-
neytið vísaði til varðandi mat á
umsóknum leiði til þeirrar niður-
stöðu sem kynnt hefur verið.
Ástæða þess að við förum fram
á þennan rökstuðning, sem stjórn-
sýslulög gera ráð fyrir, er sú að
við sjáum ekki af þeim gögnum
sem okkur hafa verið opinberuð
að hvaða leyti sá umsækjandi sem
embættið hlaut stendur öðrum
umsækjendum framar.
Einnig óskum við eftir að það
verði gert öllum kunnugt hvaða
einstaklingar unnu að mati á um-
sóknum og hvernig það mat sneri
að öðrum umsækjendum.
Að lokum óskum við eftir upp-
lýsingum um það hvaða önnur at-
riði en þau sem „einkum“ var tek-
ið tillit til voru höfð til hliðsjónar
við val á umsækjanda.
PÁLL TRYGGVASON,
sérfræðingur í barna- og unglingageð-
lækningum og barnalækningum.
BENEDIKT SIGURÐARSON,
uppeldisfræðingur og skólastjóri.
Markaðshyggju
þokumóðan og börnin
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
„MARGT býr í þokunni,“ segir
máltækið. Ég hefí hugleitt það und-
anfarið hversu ótrúlega langt er
gengið í lögmálum markaðshyggj-
unnar. Það er svo komið í dag, að
í raun höfum við foreldrar heilmik-
ið starf með höndum að vernda
börnin okkar frá því að lenda í
hringiðu keppnisfíknar á öllum svið-
um. Hvert sem augað eygir er uppi
á teningnum eitthvað sem höfðar
til barna, einkum og sér í lagi ef
við kaupum nógu mikið af ein-
hverri tiltekinni vöru.
Hvað skyldu Bandaríkjamenn og
fleiri t.d. hafa grætt mikið á íslensk-
um börnum á forskólaaldri eftir
risaeðluæðið? Einn þriggja ára
frændi sagðist ætla í sveitina að
skoða kýrnar og risaeðlurnar. Ekki
var ég hissa, hann var búinn að sjá
bíómyndina þriggja ára gamall og
átti mikið safn risaeðla.
Við erum kannski aftarlega á
merinni íslendingar að hafa ekki
markaðsvætt Grýlu, Leppalúða og
tröllin, úti í hinum stóra heimi.
Hugmyndinni er alla vega hér með
komið á framfæri.
Við þurfum að vera á verði for-
eldrar gagnvart þeirri lítt mannlegu
markaðshyggju, sem miðar að því
að ná til okkar gegnum börnin sem
markhóp.
í raun held ég að best sé að út-
skýra markaðslögmálin fyrir börn-
unum um leið og þau öðlast til þess
vit og þroska. Það gerir þau gagn-
rýnin á þessi atriði, sem er þeim
einungis hollt.
Lengi býr að fyrstu gerð.
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR,
Látraströnd 5, Seltjarnarnesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.