Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fundur utanríkisráðherra Islands og utanríkisviðskiptaráðherra Noregs í Brussel Óþarft að semja við ESB um breytingar á EES JÓN BALDVIN Hannibalsson utanríkisráð- herra átti í gærmorgun fund með Grete Knuds- en, utanríkisviðskiptaráðherra Noregs, í Bruss- el. Á fundinum, sem boðað var til með dags fyrirvara, ræddu ráðherrarnir framtíð EES eft- ir að Norðmenn höfnuðu Evrópusambandsaðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Tilgangurinn með fundinum var að bera saman bækur með Norðmönnum um nokkur mál. í fyrsta lagi ræddum við framhald og fram- kvæmd EES-samningsins, í öðru lagi framtíðar- hlutverk EFTA og í þriðja lagi væntanlega samninga við Evrópusambandið um tollabreyt- ingar, í framhaldi af því að nýju aðildarríkin hverfa okkur bak við ytri tolla bandalagsins. Þetta þriðja og síðasta atriði þurftum við ekki að ræða ítarlega heldur einungis skiptast á upplýsingum, þar sem hvert ríki gerir þetta út af fyrir sig í tvíhliðasamningum við ESB. Að því er varðar framtíð EES þá var nauð- synlegt að skýra málið því það höfðu komið fram margar misvísandi og að sumu leyti vill- andi yfirlýsingar í kosningabaráttunni í Nor- egi. Island hefur lengi gert ráð fyrir þeirri stöðu að verða hugsanlega eina landið EFTA-megin aðili að EES. Þar af leiðir að við höfum rannsak- að málið rækilega, sett fram hugmyndir og til- lögur, og rætt þær við forystumenn sambands- ins bæði formlega og óformlega. Þær niðurstöður eru í aðalatriðum þessar: EES-samningurinn heldur gildi sínu, jafnvel þótt að aðildarríkjum EFTA-megin fækki. Það breytir engu um gildi samningsins að nokkur ríki færa sig hinum megin við borðið. Með því að ganga inn í ESB taka þau á sig allar skuld- bindingar Evrópusambandsins, þar á meðal EES-samninginn.“ Varasamt að breyta EES Utanríkisráðherra sagði ekki standa til að taka upp neinar breytingar á samningnum við ESB. Efni hans og skuldbindingar væri allt óbreytt. Það væri að hans mati mjög varasamt að fara fram á breytingar á EES þar sem þá yrði að staðfesta nýjan samning á fímmtán þjóðþingum innan ESB auk Evrópuþingsins. „Það væri áhættusamt því að það er ekki beint glóandi áhugi á EES á þessum þingum auk þess sem það hefði getað kallað á einhveijar gagnkröfur á þeirri forsendu að hlutföll hefðu raskast milli samningsaðila. Þetta urðum við að fara yfír mjög rækilega og kynna að þetta væri niðurstaða sem ESB hefði fallist á.“ Jón Baldvin sagði heldur enga nauðsyn á viðræðum við ESB um stofnanaþátt EES þar sem að slíkt væri innbyrðis mál EFTA-ríkj- anna. Það þyrfti einungis að finna hentuga lausn, sem auðvitað yrði að kynna ESB. Ráðherrarnir skiptust að auki á skoðunum um framtíð EFTA en Jón Baldvin sagði endan- lega niðurstöðu í þeim efnum ekki fást fyrr en á EFTA-fundi, sem haldinn verður í Genf dag- ana 13. og 14. desember. Þegar væri búið að ná samkomulagi um kostnaðarþátttöku fram á mitt næsta^ ár en um framhaldið yrðu Norð- menn og íslendingar að öllum líkindum að semja. Utanríkisráðherra sagði að embættis- mönnum yrði nú falið að undirbúa það mál. Ósamið um skiptingu kostnaðar Norskir fjölmiðlar birtu í gær fréttir af því að hugsanleg kostnaðarskipting yrði sú að ís- lendingar greiddu 12% af rekstrarkostnaði EES-stofnana í framtíðinni en utanríkisráð- herra sagði alveg ósamið um málið. Hann sagði loks að auðfundið hefði verið á spurningum norskra fjölmiðlamanna að þeim hefði komið þessi niðurstaða fundar hans og Knudsens á óvart eftir hinar mörgu yfírlýsing- ar um að breytingar yrði að gera á EES. „Eft- ir að niðurstaða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni lá ljós fyrir voru norskir stjórnmálamenn farn- ir að tala um að bjarga yrði EES. Það er mis- skilningur. Þeir verða einungis að bjarga sjálf- um sér frá fyrri yfirlýsingum." Norska sjónvarpið Sigga syng- urí jóla- lagakeppni SIGRÍÐUR Beinteinsdóttir söng- kona tekur á laugardagskvöld þátt í söngvakeppni í beinni útsendingu í norska sjónvarpinu. í keppninni verða flutt tólf lög, en Sigga flyt- ur lag Rolfs Lövlands, Barn av samme vind. Norska sjónvarpið leitaði til 12 lagahöfunda og bað þá að semja jólalög fyrir keppnina, þar á meðal Rolfs Löv- lands. Hann hefur áður komið við sögu söngva- keppna þar í landi og samdi m.a. sig- urlag Norðmanna í Evrópusöngva- keppninni árið 1985, La det svinge. Rolf bað Siggu að syngja lagið og var það tekið upp hér á landi í byrjun nóvember, með að- stoð íslenskra hljóðfæraleikara. Með Siggu á sviðinu í sjónvarpssal annað kvöld verða norskir bak- raddasöngvarar og barnakór, sem er skipaður átta íslenskum börn- um, búsettum í Noregi, og fjórum norskum. Lagið er að mestu flutt á norsku, en síðasta erindið er á íslensku. Breytt hljóð í Norðmönnum Morgunblaðið hafði samband við söngkonuna í Ósló í gær. „Það er alltaf gott að vera íslendingur í Noregi. Þrátt fyrir Smugudeilu hefur hljóðið í Norðmönnum breyst eftir að þeir höfnuðu Evr- ópusambandsaðild, því nú fjalia fjölmiðlar mikið um nauðsyn þess að íslendingar og Norðmenn standi saman. Ég held ég hafi því enga ástæðu til að óttast fjand- samleg viðbrögð frænda okkar við söngnum," sagði hún. Sigríður Beinteinsdóttir Morgunblaðið/Rúnar Þór I vetrarbúningi TJÖRNIN á Ákureyri er í fallegum þar niður. Fjölskyldufólk leggur halda til á tjörninni, en það er viss- vetrarskrúða þessa dagana, enda þó alls ekki af þann vana sinn að ara að klæða sig vel þegar Vetur hefur sannkölluðum jólasnjó kyngt sýna ungviðinu endurnar sem konungur hefur tekið völdin. Hámarksútsvar í Hafn- arfirði og Kópavogi TILLAGA meirihlutaflokkanna í bæjarráði Hafnarfjarðar um að hækka útsvarsprósentu á næsta ári úr 8,9% í 9,2% var samþykkt á bæjar- ráðsfundi í gær. Þá hefur meirihluti bæjarstjómar Kópavogs samþykkt að hækka útsvarsprósentuna úr 8,4% I 9,2%. Sveitarfélögum er heimilt að leggja á útsvar á bilinu 8,4%-9,2%. 1% lóðarleiga í Hafnarfirði Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, segir að hækkunin skili bæjarsjóði 115-120 milljónum, en Magnús Jón Ámason, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir að hækkunin þar muni skila tæplega 40 milljónum. I Hafnarfirði verður á næsta ári innheimt lóðarleiga sem verður 1% af fasteignamati lóða, en það skilar bæjarsjóði um 40 milljónum í tekjur. Að sögn Magnúsar Jóns var lóðar- leigan áður á bilinu 3 til 12 aurar fyrir hvetja fasteign. Fasteignaskatt- ar verða að öðru leyti óbreyttir nema hvað þeir lækka á atvinnuhúsnæði úr 1,4% af fasteignamati í 1,25%. Gjalddögum fasteignagjalda verður fjölgað úr 4 í 6 á næsta ári. I Reykjavík, Seltjamamesi og Garðabæ verður útsvarsprósentan óbreytt, 8,4%. í Mosfellsbæ er hún 9% og gerir Jóhann Siguijónsson bæjarstjóri ekki ráð fyrir breytingu, en þar verða álögur ræddar á bæjar- stjórnarfundi á miðvikudag. Gjöldum velt frá ríki til sveitarfélaga Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, sagði að nauðsynlegt hefði verið að hækka útsvarið vegna aukinna gjalda sem ríkið væri sífellt að velta yfir á sveitarfélögin. Útgjöld Kópavogs af þessum orsökum hefðu aukist um 90 milljónir og munaði þar mest um 40 milljóna greiðslu í Atvinnuleysistryggingasjóð. „Við höfum verið í lágmarki í fjöldamörg ár í útsvari, en í dag er krafist miklu hraðari uppbyggingar á allri þjónustu en áður, og það kost- ar tímabundna skuldaaukningu og meiri fjárútlát," sagði Sigurður. Stjórn SVR hf. Lilja Ólafs- dóttir verði forsljóri STJÓRN Strætisvagna Reykja- víkur hf. mælir einróma með því við borgarráð að Lilja Ólafs- dóttir, við- skiptafræð- ingur, verði ráðin forstjóri fyrirtækisins. Borgarráð tekur ákvörð- un um ráðn- inguna á þriðjudag. Sveinn Bjömsson, núverandi forstjóri, lætur af störfum um áramót. Arthur Morthens, stjómar- formaður fyrirtækisins, segir að stjórnin hafí valið úr 12 af 22 umsækjendum, tekið við þá viðtöl og að lokum komist að einróma niðurstöðu að mæla með Lilju. Fyrsta konan í æðstu sfjórn Lilja Ólafsdóttir er fædd í Hrunamannahreppi árið 1943. Hún hefur m.a. starfað hjá Tryggingu hf. og var deildar- fulltrúi hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur 1972-1977, þegar hún tók við starfi deildarstjóra í þjónustudeild Skýrsluvéla rík- isins. Hún var framkvæmda- stjóri notendaráðgjafarsviðs 1985-1991 og er nú aðstoðar- maður forstjóra Skýrr. Við- skiptafræðiprófi lauk Lilja frá Mundelein-háskóla í Chicago árið 1991. Hún er gift Gunnari Sigurðs- syni, deildarstjóra hjá VIS og eiga þau einn uppkominn son. Lilja verður fyrsta konan í æðstu stjórn SVR í 65 ára sögu fyrirtækisins. Þórir Ein- arsson skip- aður ríkis- sáttasemjari FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA skipaði Þóri Einarsson prófess- or í gær í embætti ríkissátta- semjara, að höfðu sam- ráði við ASÍ, VSÍ og VMSS. G.ildir skipunin til næstu íjög- urra ára. Þórir tekur við embætt- inu 1. janúar en þá lætur Guðlaugur Þorvaldsson af emb- ættinu vegna aldurs. Þórir var valinn úr hópi tíu umsækjenda. Hann er fæddur í Reykjavík 2.10. 1933, sonur Guðmundu Laufeyjar Guðmundsdóttur húsmóður og Einars Óskars Ástráðs Þórðarsonar húsgagna- smiðs. Þórir lauk cand. oecon- prófi frá HÍ 1957 og stundaði nám í Hamborg 1957-1960. Þórir starfaði sem sérfræðingur hjá Iðnaðarmálastofnun íslands 1961—1971 er hann var skipað- ur lektor við viðskiptadeild HÍ. Hann hefur verið prófessor þar frá 1974. v Þórir Einarsson seti viðskipta- og hagfræc deildar HI; formaður þróuna nefndar HI 1983-1984 og þr unamefndar Háskólarái 1985-1988. Þá var hann fo maður BHM 1966-1970. Har sat í Kjaradómi 1974—1978 c í verðlagsráði frá 1979. Eigii kona Þóris er Renate Joham Scholz Einarsson, dómtúlkur c löggiltur skjalaþýðandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.