Morgunblaðið - 02.12.1994, Side 12

Morgunblaðið - 02.12.1994, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 LANDIÐ AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgurlblaðið/Líney Sigurðardóttir RÚSSNESKI togarinn Pechora landaði á miðvikudag 170 tonn- um af góðum þorski á Þórshöfn og er Rússafiskurinn lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum. Rússafiskur tryggir atvinnu á Þórshöfn Þórshöfn - Rússneski togarinn Pec- hora landaði á miðvikudag 170 tonnum af góðum þorski á Þórs- höfn. Að sögn Gunnlaugs Karls Hreinssonar, verkstjóra hjá Hrað- frystistöð Þórshafnar hf., var hann búinn að reyna í nokkrar vikur að ná í rússafisk og loks datt hann í lukkupottinn, eins og hann orðaði það, og náði hingað tveimur skip- um. Seinni togarinn, Kojda, er vænt- anlegur um næstu helgi með svipað magn og Pechora landaði. Fiskurinn er mjög góður og er unninn í dýr- ari pakkningar en áður hefur verið og fer allur til Ameríku. Þar hefur Hraðfrystistöðin komist inn á dýr- ari markaði og eru afurðimar fyrir- fram seldar. Vegna þessa greiðir Hraðfrystistöðin hærra verð en áð- ur fyrir rússafiskinn eða milli fimmtán og sextánhundruð dollara fyrir tonnið.' Góður afli heimabáta Afli heimabáta undanfarið hefur verið nokkuð góður en á komið hafa á land frá tíu tonnum allt upp í 25 tonn á dag, aðaliega þprskur, ýsa og ufsi. Næg atvinna hefur verið í Hraðfrystistöðinni undanfar- ÞAÐ var kuldaiegt á Þórs- höfn í vikunni, en hefur sjálfsagt verið enn kulda- legra hjá rússnesku sjó- mönnunum á miðunum. ið og hefst vinna strax kl. 7 á morgnana. Búast má við minni afla frá 1. desember því þá hætta krókabát- arnir og eftir verða þrír heimabátar á netum og línu. Rússafískurinn verður unninn á þessu dauða tíma- bili og ætti því að verða næg at- vinna hjá Hraðfrystistöðinni þrátt fyrir lítinn afla heimabáta. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson STARFSFÓLK ísfélagsins gæðir sér á tertum og öðru góðgæti í 2.000 tonna veislunni. Síldarvertíðin í Eyjum 2.0001 í ísfélaginu Vestmannaeyjum - Starfsfólki ís- félags Vestmannaeyja var í gær boðið til veislu í kaffisa! frystihúss- ins þar sem boðið var uppá rjóma- tertur, gosdrykki og súkkulaði í til- efni þess að búið er að frysta 2.000 ton af síld hjá fyrirtækinu á-vertíð- inni. Að sögn Einars Bjarnasonar hjá ísfélaginu hefur vinnsla á vertíðinni gengið vel. Öll síld sem berst er fryst, bæði heilfryst, hausskorin og flökuð. Heilfrysta síldin fer á Jap- ansmarkað, hausskoma sfldin til Þýskalands og flökin fara bæði til Japan og Evrópulanda svo sem Þýskalands, Englands, Frakklands og fleiri landa. Einar sagðiát reikna með að unn- ið yrði í síldinni alveg framundir jól og stefnt væri á vinnslu_ í janúar eins og undanfarin ár. A síðustu sfldarvertíð voru fryst 3.200 tonn í ísfélaginu og sagði Einar að þeir vonuðust til að ná að vinna svipað magn nú ef veður yrði ekki óhag- stætt og tefði veiðarnar. Alþjóðleg- ur dagur fatlaðra ALÞJÓÐLEGUR dagur fatlaðra er á morgun, 3. desember og í tilefni af honum halda Styrktarfélag vangef- inna og Foreldrafélag barna með sérþarfh' daginn hátíðlegan á Fiðlar- anum, 4. hæð í Skipagötu frá kl. 15 til 17. Kaffiveitingar verða á boðstól- um, spiluð tónlist og sungið og síðan verða afhentar viðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu fatlaðra og fyrir gott aðgengi á veitingastöðum, störf að íþróttamálum og skólaundir- búningi fatlaðra bama. ' Styrktarfélag vangefinna á Norð- urlandi var stofnað 1959 og vann á sínum tíma brautiyðjendastarf að málum fatlaðra, m.a. með uppbygg- ingu Sólborgar. Foreldrafélag barna með sérþarfir var stofnað 1976 og hefur það ætíð lagt áherslu á að börn gætu lifað sem eðlilegustu lífi hjá íjölskyldum sínum og gert tilkall til aðstoðar frá samfélaginu. Félögin reka sameiginiega skrifstofu að Stór- holti 1 og hafa haft einn starfsmann frá því í ársbyijun 1993 en Akur- eyrarbær veitir félögunum styrk. Alþjóðlegur dagur fatlaðra var til- nefndur af Sameinuðu þjóðunum og haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í fyrra. --------------- Sorg í nánd jólanna SAMTÖK um sorg og sorgarviðbrögð boða til hátíðarsamveru í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju í dag, föstu- daginn 2. desember kl. 20.30. í til- efni af því að 5 ár eru liðin frá stofn- un samtakanna. Ræðumaður verður séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur á Borg- arspítalanum og tala hann um sorg í nánd jólanna en hann nefnir erindi sitt „í dag er glatt í döprum hjört- um.“ Opið hús verður hjá samtök- unum tvisvar í desember, fyrst 8. og síðan 22. en þá verður jólafundur. Langafi smíðaði sleðann ÞAÐ er ekki ónýtt farartæki sem systurnar Guðrún Fönn og Vilborg Fönn hafa yfir að ráða, sérsmíðaður sleði sem langafi þeirri austur á fjörðum gerði handa þeim. Hann er hægt að nota óspart þegar snjór Iiggur yfir öllu og gerðu þær sér ferð út í gær með sieðann sinn. Krókaleyfisbátarnir stopp og ró færist yfir í Grímsey Ovenjugóð aflabrögð og veðurfar allt árið Grímsey - TVEGGJA mánaða stopp krókaleyfisbáta hófst í gær, 1. desember, og mun því aðeins einn bátur róa frá Grímsey næstu vikur, Þorleifur EA, sem er stærsti báturinn í eynni. Árið hefur verið trillusjómönnum einkar hagstætt, veðurfar með mestu ágætum og aflabrögð afar góð. Það er því að færast ró yfir og menn farnir að sinna undirbúningi jólanna. Guðmundur G. Árnarson, sjó- maður sem gerir út 6 tonn trillu, Kristínu EA, í félagi við Sæmund Ólason, sagðist hafa róið af kappi allt þetta ár og hefðu þeir fengið um 300 tonn sem væri harla gott. Þeir eru tveir á og hafa tvo í landi' við að stokka fyrir sig línuna. „Þetta ár hefur verið stórkostlegt," sagði Guðmundur þegar hann var spurður hvernig árið hefði verið hvað sjósókn og aflabrögð varðar. „Veðráttan hefur verið sérstaklega góð, fiskiríið líka en það er ekki qft sem þetta tvennt fer saman. Ég hugsa að maður geti ekki búist við svona góðu framhaldi þegar við byrjum aftur, það er sjaldgæft að þetta .sé svona gott eins og það hefur verið í ár.“ Gott veður gerði að verkum að sjómenn sóttu langt, ekki var óalgengt að róið væri austur að Rauðunúpum eða fram á Stóragrunn átta mílum sunnan Kolbeinseyjar en um 40 mílna stím er á þessi mið hvora leið. Sífellt grimmari sókn Guðmundur sagði að sér litist í sjálfu sér ekki illa á það tveggja mánaða stopp sem framundan væri. Þetta væri sá tími ársins þegár allra veðra væri von. Verri væru hin reglubundnu helgarstopp sem væru alltaf af og til. „Það kæmi sér betur fyrir okkur ef við mættum nota brælurnar í þessi stopp og fá að róa þegar gefur, þá yrði maður sáttari við þessi sí- felldu og auknu stopp hjá okkur,“ sagði Guðmundur. „Við höfum hælt okkur af því Grímseyingar að hafa róið héðan slysalaust í nærri 200 ár, en þegar sóknin er að þyngjast á minnstu bátunum og menn verða að fara út í misj- öfnu veðri er ég hræddur um að við hælum okkur ekki mikið lengur af slysalausri sjósókn." Hann sagði þetta ekki eðlilega þróun og hann óttaðist sífelit grimmari sókn sem fyrirsjáanleg væri á næsta kvótaári þegar búið væri að skerða sóknardagana enn frekar. Ef banndögum fjölgaði mikið enn væri ekki lengur grund- völlur til að standa í þessari út- gerð, „það heldur enginn mann- skap út á þetta fyrirkomulag." Guðmundur sagðist vilja setja kvóta á allar línuveiðar en leyfa síðan fijálsar handfæraveiðar á öllum bátum en með því móti gætu menn lifað af útgerðinni. „Það er ekkert launungarmál að byggðar- lög eins og Grímsey lifa á króka- leyfinu og þá deyr það líka ef það verður skert meira,“ sagði Guð- mundur, en hann sagði of mikinn kraft fara í innbyrðis deilur hjá hagsmunaaðilum í sjávarútvegi í stað þess að fá sjómenn til að ræða saman og finna lausn á fisk- veiðistjómuninni. 1.100-L200 tonn á árinu Garðar Ólason hjá Fiskkaupum hefur -tekið á móti 1.100-1.200 tonnum af fiski á einu ári eða frá því fyrirtækið hóf starfsemi um rniðjan nóvember í fyrra og þar til nú, en mest hafa 8-9 bátar lagt þar upp afla. Á meðan stopp er hjá krókaleyfisbátunum mun að- eins einn bátur landa hjá Fiskkaup- um, Þorleifur EA, en hann er á netum og hafa aflabrögðin verið með tregara móti. Nú starfa sjö manns hja fyrirtækinu en voru fimmtán þegar mest hefur verið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.