Morgunblaðið - 02.12.1994, Side 28
28 FÖSTUDACUR 2. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FRÁ samsöng kóra í Perlunni 1993.
Kóramót bama og unglinga í Perlunni
KÓRAMÓT verður haldið í Perl-
unni tvær helgar í desember.
Hátt í tvö þúsund manns munu
syngja á mótinu. Dagana 3. og
4. desember syngja um eitt þús-
und börn frá 24 kórum og dag-
ana 10. og 11. desember syngja
kórar fullorðinna og eru þar á
meðal kirkjukórar, starfsmanna-
kórar og kórar eldri borgara.
Þetta er annað árið í röð sem
Perlan býður upp á kóramót sem
þetta. Eftirfarandi kórar koma
fram:
Laugardagur 3. desember
Kl. 14. Barnakór Kársnesskóla
litli kór, Barnakór Fríkirkjunnar
Hafnarfirði, Skólakór Garðaa-
bæjar eldri deild, Skólakór
Garðabæjar yngri deild, Barna-
kór Árbæjarsóknar yngri deild,
Barnakór Árbæjarsóknar eldri
deild og Kór Grandaskóla.
Kl. 15.30. Skólakór Grunnskól-
ans Þorlákshöfn, Unglingakór
Grundaskóla, Barnakór Akranes,
Barnakór Borgarnes yngri kór,
Barnakór Borgarnes eldri kór
og Unglingakór Selfosskirkju.
Sunnudagur 4. desember
Kór Hólabrekkuskóla, Skóla-
kór Víðistaðaskóla, Barnakór
Olduselsskóla, Kór Hvaleyrar-
skóla, Kór Smáraskóla og Kór
Snælandsskóla.
Kl. 15.30. Kór Digranesskóla,
Kór Setbergsskóla, Kór Lang-
holtsskóla, Barnakór Varmár-
skóla og Barnakór Kársnesskóla.
Aðgangur að mótinu er ókeypis.
SIEMENS BOSCH
Aðyentutilboð!
r^/6lunum fylgir bakstur, þrif og uppþvottur.
Við viljum létta þér störfin og bjóðum því þessi fjögur gæða-heimilistæki
frá Siemens og Bosch á sérstöku tilboðsverði.
HB 34520FN
Fjölvirkur Siemens baksturofn. Yfir- og undirhiti, blástur,
glóðarsteiking með og án blásturs. Rafeindaklukka,
létthreinsikerfi, sökkhnappar. Gæðí hvert sem litið er.
Og verðið er einstakt. Tilboðsverð kr. 49.900 stgr.
Ryksuga
Fjölhæf Bosch hrærivél sem gegnir dyggu hlutverki á mörg
þúsund íslenskum heimílum. Líklega mest selda hrærivélin
á Islandi undanfarin ár. Blandari, hakkavél og grænmetis-
kvörn fylgja með. Og verðið slær enginn út.
Tilboðsverð kr. 17.900 stgr.
Uppþvottavél
Létt og lipur Siemens ryksuga sem auðveldar þér að halda
híbýlunum hreinum. 1200 W, sjálfinndregin snúra, fylgihlutir
geymdir í vél, hleðsluljós. Og þær gerast vart ódýrari.
Tilboðsverð kr. 12.900 stgr.
SN 333Ö6SD
Velvirk, sparneytin og hljóðlát Siemens uppþvottavél.
Tekur borðbúnað fyrir 12 manns.
Og llttu á verðið.
Tilboðsverð kr. 59.900 stgr.
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður. Rafstofan
Hvítárskála • Hellissandun Blómsturvellir ■ Grundarfjörðun Guöni Hallgrímsson
Stykkishólmur Skipavík • Búðardalur Ásubúö • Isafjörður Póllinn • Hvammstangi:
Skjanni Sauðárkrókur Rafsjá • Siglufjörður Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn •
Húsavík: öryggi Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaður Rafalda Reyðarfjörður
Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N.
Stefánsson • Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar Tréverk Hvolsvöllur
Kaupfélag Rangæinga ■ Selfoss: Árvirkínn • Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss. •
Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörðun Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
"1
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300
Viljirðu endingu og gæði -jj
velurðu Siemens
Fyrir verð-
andi foreldra
BÆKUR
Læknisfræði
AÐ EIGNAST BARN
eftir Miriam Stoppard. Guðsteinn
Þengilsson þýddi. Forlagið, 1994.
Prentuð í Bretlandi, umbrot Oddi.
MIRIAM Stoppard er óneitanlega
afkastamikill höfundur, en hún er
læknir að mennt og vel þekkt í sínu
heimalandi, Bretlandi. Nafnið Stopp-
ard kemur einnig mörgum kunnug-
lega fyrir sjónir af öðrum ástæðum,
en það er vegna frægðar eiginmanns
hennar, Toms Stoppards, sem er leik-
ritahöfundur. Mér sýnist að Miriam
Stoppard hafi fundið formúlu til að
verða metsöluhöfundur. Segja má
að útlit bókarinnar sé óaðfinnanlegt.
Mikið er til útgáfunnar vandað. Sér-
staklega þykja mér myndirnar falleg-
ar, og höfundur setur textann fram
af nærgætni og á jákvæðan, hvetj-
andi hátt. Hins vegar sýna efnistökin
að höfundur hefur lært sína læknis-
fræði fyrir alllöngu. Getnaður, með-
ganga, fæðing og umönnun bams
hefur þó ekki breytzt í eðli sínu í ald-
anna rás, en það sem beytist era af-
staða og aðferðir fagfólks. Því er mikil-
vægt í bók sem þessari að lesanda sé
gerð grein fyrir öilum hliðum máls.
Allítarlegur inngangur er í upp-
hafi bókarinnar og hún skiptist í 15
kafla. Þar er sagt frá þroskaferli
fósturs og ijallað um meðgönguna
frá ýmsum sjónarhóli. Þáttur er um
kynlíf á meðgöngu og fæðinguna
sjálfa. Síðustu kaflarnir era um ný-
fætt bam og foreldrahlutverkið og
hvernig megi aðlagast því. Það
gleymist oft í spenningnum vegna
fæðingar barns að nýbakaðir foreldr-
ar þurfa tíma hvort fyrir annað, ekki
síður en fyrir fæðingu bamsins. Það
er afar mikilvægt að halda í ýmsar
venjur sínar þrátt fyrir nýjan ein-
stakling. Einnig þarf að tryggja
nægan nætursvefn eða hvíld á dag-
inn verði nætursvefni ekki náð.
Lofsverð er viðleitni þýðanda að
staðfæra vissa hluti í bókinni. Guð-
steinn Þengilsson er smekkmaður á
mál og ieggur sig fram við að þýða
og staðfæra textann. Þannig kemur
hann inn á réttindi mæðra til fæðing-
aroriofs og ýmislegt annað sem máli
skiptir. Það er hins vegar ýmislegt
í texta frá höfundinum sjálfum sem
ekki á við hér á landi og líklegt er
að starfsfólk við fæðingarstofnanir
hnjóti um.
Sé þessi bók lesin með réttu hug-
arfari er hún jákvæð viðbót við það
fátæklega safn fræðibóka sem að-
gengilegar eru verðandi foreldmm í
íslensku þjóðfélagi.
Katrín Fjeldsted
Nýjar plötur
Urval sönglaga með
Stefáni íslandi
ÞAÐ hafa fáir íslenskir óperasöngv-
arar átt jafn glæstan feril og Stefán
Islandi. Hann var stundum nefndur
tenórinn með gullröddina. Frami
hans í Danmörku var með eindæmum
og varð hann konunglegur hirð-
söngvari, en það er æðsta virðingar-
staða sem söngvara getur hlotnast í
Danmörku. Ferill Stefáns á erlendum
vettvangi stóð frá því hann þreytti
frumraun sína á leiksviði í Dante-
leikhúsinu í Flórens á Ítalíu 1933,
og til 1964, en þá hætti hann störfum
hjá Konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn. Reyndar hafði Stefán
getið sér mjög gott orð hér heima
áður en hann hélt til söngnáms á
Ítalíu, en hann hætti alfarið að
syngja árið 1964 og fluttist tveimur
árum síðar heim til Íslands.
Hljóðritanir með söng Stefáns eru
ekki nema rúmlega sextíu, enda stóð
ferill hans í mestum blóma á árum
síðari heimsstyijaldarinnar, en þá
starfaði hann í Danmörku, landi sem
var hersetið af nasistum. Á þeim
áram komu út nokkrar plötur með
söng hans, sem eru afar sjaldgæfar,
því stór hluti^ upplagsins eyðilagðist
í stríðinu. Á þessari nýútkomnu
geislaplötu má einmitt finna hljóðrit-
anir frá þessum tíma, auk upptakna
frá tímabílinu 1937 og allt til 1958.
Geislaplatan Ökuljóð inniheldur
alls 25 söngnúmer með Stefáni ís-
landi og spannar hún rúmar 76 mín-
útur í spilun. Platan geymir 11 ís-
lensk sönglög, eitt rússneskt þjóðlag
við íslenskan texta, 12 óperuaríur
sem sungnar eru á ítölsku og eina
aríu sem sungin er við danskan texta.
Með honum í tveimur aríum syngur
danski baritonsöngvarinn Henry
Skjær og í öðrum tveimur aríum
syngur messósópransöngkonan Else
Brems með Stefáni.
Mikil vinna var lögð í að lagfæra
hljóminn á upptökunum, sem sumar
hveijar voru mjög illa famar. í bækl-
ingi sem fylgir geislaplötunni eru ít-
arlegar upplýsingar um upptökurnar,
ásamt ljósmyndum og formála eftir
Jón Þórarinsson tónskáld; þar sem
hann rekur feril Stefáns Islandi.
Útgefandi er Spor hf. sem annast
jafnframt dreifingu.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Rithöfundar heim-
sóttu Egilsstaði
NOKKRIR rithöfundar heimsóttu
Egilsstaði nýverið og lásu úr nýj-
um verkum sínum. Þar voru á
ferð Einar Kárason sem las úr bók
sinni Kvikasilfur, Sjón sem las úr
Augu þín sáu mig, Megas sem las
úr Björn og Sveinn, og Jóhanna
Sveinsdóttir las úr bók sinni Guð
og mamma hans. Upplesturinn fór
fram í salarkynnum Menntaskól-
ans á Egilsstöðum. Mál og menn-
ing er útgefandi bókanna. Á
myndinni má sjá Sjón lesa úr bók
sinin Augu þín sáu mig.